Vísir - 09.02.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 09.02.1971, Blaðsíða 1
Tólf í verkfalli í Hverfissteininn Töiuverðrar ölvunar gætti í gær- kvöldi og fyrri hluta nætur, og hafði lögreglan í Reykjavík mik- ið annríki af ölvuðum mönnum. ,Tólf voru teknir úr umferð vegna ölvunar á almannafæri og færðir í fangageymslu lögregl- unnar, Hlverfissteininn. Slík ölv- un á virkum degi, og það mánu- degi, er fátíð, en það vakti nokkra eftirtekt, að töluverður hluti hinna ölvuðu voru sjó- menn, sem eru í landi vegna verkfallsins. ■—GP Flotinn á heimleið — nú er beðid eftir loðnug'óngunum v/ð Austfirbi Síldveiðiskipin sem ver- lenzku bátanna í síðustu ið hafa við veiðar í Norð ursjó að undanfömu eru nú flest komin heim, eða eru á heimleið. Veiðin hefur farið minnkandi í Norðursjónum og afli ís- viku var sáralítill. Að minnsta kosti 25 íslenzk skip hafa verið þarna niðri í Norðursjó við veiðar síðan um áramót. Þessi útvegur hefur ekki gefið jafnmikið í aðra hönd og hann gerði fyrir hátíðamar. Fyrst eftir að skipin komu út eftir áramót, lækkaði verð á síldinni upp úr skipum til mik- i'Ha muna. Þegar minna fór að berast hækkaði verið að sjálf- sögðu, en ógæftir hafa hamlað veiðum. Síldarfiotinn mun nú búast til loðnuveiða. Enn hefur loðnugang an ekk; tekið á sig þá mynd, að hægt sé að hefja veiðar. Torf- umar standa of dijúpt. — Leitar skipin eru nú í höfn fyrir aust- an vegna veðurs og ekki er útlit fyrir leitarveður á næst- unni. Sfcip, sem hafa verið að koma heim úr Norðursjó hafa orðið vör við loðnu austur af landinu. Meðal annars varð Börkur frá Neskaupsstað var við loðnu úti í Reyðanfjarðar- dýpi, en torfurnar stóðu djúpt og voru fremur dreifðar. —JH Enn ókyrrð i brezkn togaranum ENN þurfti lögreglan á Akur- eyri að fara um borð í brezka togarann, Blackbum Rovers G- 706, sem legið hefur við bryggju í Akureyrarhöfn undanfarna daga, til þess að skakka hrika- legan leik skipverja og koma á ró á skipshöfnina. Gætur hafa verið hafðar á tog- aranum síðan lögreglan þunfti í síðustu viku að hafa afskipti af skipverjum, sem í ölæði höfðu leyst landfestar skipsins að næturþeli, sett á flot einn björgunarbátinn og verið með drykkjulæti. Lögregluþjónn, sem var á vakt við togarann í gærkvöldi, kvaddi til liðstyrk undir miðnætti, þegar áfiog og læti upphófust um borð. Lögregluþjónar, sem fóru um iborð, skildu að tvo áifiogaseggi. Einn skipverja var íluttur á sjúkrahúsið. Hann hafði fengið högg á augað, svo að það sökk, og var óttazt um að það hefði sprungið. Einn skip- verja var færður í fangagey“msluna, sá sami, sem leystá landfestar skips ins á dögunum. Fyrsti stýrimaður togarans gekk í land í gærkvöldi, og hafði við orð, að hann væri farinn af sfcip- inu. Baðst hann gistingar ’hjá lög- reglunni og sagðist ekki geta hafzt við um borð vegna drykkjuláta á- hafnarinnar. Skaut lögreglan skjóis húsi yfir hann í nótt. Skipið leitaði hafnar á Akureyri í síðustu vifcu vegna bilunar í einni iegunni í vélinni, en beðið hefur verið eftir varahlutum. Ann- ar brezkur togari hefur einnig ver- ið samskipa þessum í höfn, en á- höfn hans hefur ekki verið til neins ama þennan tíma. —GP Narfi, síðasti togarinn sem var útí, kom til Reykjavíkur í nótt og hafa þá allir togararnir stöðv- azt í verkfallinu. Togaraflotinn við Faxaflóa sést í baksýn. Síðasti togarinn í höfn í dag er ellefti dagurinn, sem líður síðan síðasti sáttafundur- inn var haldinn með fulltrú- um togaraeigenda og yfkmanna og hefur sáttafundur ekki verið boð- aður. Síðasti togarinn, sem hefur verió úti, Narfi, kom til Reykja- vikur í nótt og hafa þá allir tog- ararnir stöðvazt. Enn munu ekki vera mikil brögð að því, að skipsmenn á togurunum, sem ekki eru í verkfalli, hafi ráðið sig til annarra starfa, en hættan á því aö togaramir missi frá sér mannskap eykst með hverjum deg- inum, sem iíður. All marga daga mun taka, að koma öllum togur- unum á veiðar, eftir að verkfallið leysist m. a. vegna þess að ekki er hægt að framleiða ís f skipin fyrr en skömmu áður en þau halda á veiðar. — Fragtfíug bíður átekta Unnið er nú að þvi af hálfu ráöu neytanna og Flugráðs á hvem hátt unnt sé að koma til móts við ósfc- ir Fragtflugs hf. um svipaðar íviln- anir í vöruflutningum í lofti og Loftleiðir og Flugfélag íslandshafa nú. Fragtflug telur, aö forsenda fyrir rekstri félagsins hafi brost- ið, þegar innflytjanda var gert með breyttri reglugerð nú um mánaða mótin að greiða 100% toM af flug- fragt hjá leiguflugvélum í stað 50% tolls eins og hann var áður og þá í samræmi við reglur í áætlunar- flugi. Meðan á þessari athugun stendur bíður Fragtflug átekta, en forráða- menn félagsins hafa verið boðaðir á fund til samgöngumálaráöherra ti.l að finna lausn á málinu, Yfir- völd munu hafa á því áhuga, að tryggja áframhaldandi fiskflutninga en eins og Vísis hefur skýrt frá, er flutningsgeta fiugvélanna á heim leiðinni forsenda fyrir rekstraraf- komunni. Flugvél Fragtflugs, sem kom heim rétt fyrir síðustu mánaðamót var fyrst losuð í gær, enda hefur ekkert legið á meðan beðið er eft- ir að fá úr því skorið hvort félag ið hefur grundvöll fyrir áfram- haldandi rekstur. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd má koma ö- trúlegu magni í eina litla „sexu“. —VJo Allar skíðalyfturnar á sínum stað Varla voru skiíðalyfturnar nýju komnar úr tolli, en allur snjór á SV-landi hvarf eins og dögg fyrir sólu. Um helgina var samt haldið skíðamót I Flengingabrekkum í Hveradölum, en þar munu einhverj- ir skaflar hafa oröið út undan, þeg- ar úrhellið gekk yfir Reykjavíkur- svæðið á sunnudag og mánudag. i morgun tjáði fólk í Skíðaskálanum, Hveradölum Vísi, að j»r hefði eitt- hvað snjóað í morgun og væri nú allt grátt en snjórinn blautur. Ný skíðalyfta, ein af þeim frægu sjö, verður sett upp í Hveradölum í vikunni. Viö aðra skíðaskála verð- ur og komið fyrir lyftum i vikunni. ÍR-ingar eru reyndar búnir að koma fyrir 2 í Hamragili við skála sinn. KR-ingar setja upp 2 við sinn skála og sömuleiðis verða settar upp 2 i Jósepsdal. Hver lyfta getur dregið skíðafólk upp allt að 300 m langar brekkur og óhætt er að láta 9 hanga í strengnum í einu. —GG Vörurnar úr .síðustu flugferð“ Fragtflugs voru loks tíndar út í gær eftir rúma vikubið. Vörurnar úr einni svona lítilli „sexu“ fylltu 6 vörubíla og eina sendibifreið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.