Vísir - 09.02.1971, Qupperneq 5
5
«**S-íííR Wbr&ar
Áhorfendur á Old Traf-
ford brostu í gegnum tárin
— jbegar Manch. Utd. vann Tottenham
— Olga i Leeds og West Ham
Það bfikuðu tár í augum áhorfenda á Old Trafford,
þegar leikur Manch. Utd. og Tottenham hófst á
lasagartteginn, því þess hafði verið minnzt, að ná-
ksssæawiega fyrir 13 árum — hinn 6. febrúar 1958
— á sömu klukkustund splundraðist frábært lið
I$B3sed í flugslysinu mikla í Miinchen þann gráa
efíSrmiðdag, þegar iðnaðarborgin mikla í Lanca-
siúre næstum dó af sorg. Lið, sem vorið áður, 1957,
hafðí srgrað í 1. deild með átta stiga mun og vorið
1*956 með 11 stiga mun, sem er mesti munur, sem
t*m getur í keppninni, var ekki lengur til og beztu
leíkmenn þess og Englands, eins og Duncan Ed-
wards, Tommy Taylor og Roger Byrne, ekki leng-
ur í töíu lifenda ásamt mörgum öðrum, leikmönn-
um og þjálfurum, og átta fremstu íþróttafrétta-
mönnum Englands. í hugum Manchester-búa eru
þessir látnu knattspyrnumenn hálfgerðir dýrlingar
og að grafhýswm sumra, til dæmis Duncan Ed-
wards, koma enn á hverju ári hundruð þúsunda
til að votta virðingu sína.
En nióri á teikvellinum á laug
ardaginn var einn leikmaöur,
sem bjargazt hafði í Miinohen á
undraverðan hátt — þeyttist út
úr flugvélinni, þegar hún tætt-
ist í sundur í árekstrinum, og
vaknaði í slyddusnjónum á flug-
vellinum bundinn í stól sinn, ó-
meiddur — leikmaöur, sem á
einum degi breyttist úr óhörðn-
uöum ungling í fulltíða mann,
sem varö tákn hins mikla liðs
og síðasta áratuginn dáðasti leik
maður Englands. Nafniö þekkja
al'lir — Bobby Oharlton — hinn
firitkomm „genttemaóur“ í
enskri knattspyrnu, jafnt á leik-
vellí sem utan, leikmaður, sem
aldrei hefur verió áminntur af
dómara, aldrei bókaður, aldrei
vísaö af leikvelii. .Leikmaöur,
sem nú hefur leikiö fleiri lands-
lei'ki, en nokkur annar og á þar
einnig markametið enska, leik-
maður, sem unnið hefur til allra
verðlauna, sem eftirsóknarverð-
ust eru fyrir knattspyrnumann.
Furðuteg örlög.
En leikurinn hófst á Old Traf-
ford og áhorfendur fóru brátt að
brosa gegnum fcárin — sií'kan
snilldarleik, sem þar sást, hafði
United ekki sýnt í langan tíma,
Ieik, sem jafnvel hið fræga lið
frá F958 hefði vart getaö leikið
eftir. Göm-tn „stríðshestamir“
Charlton og Pat Crerand náöu
algjörum tökum á miðju vallar-
ins og í framiínunni var stúdent
inn Alan Gowling, sem fórnaöi
frama í Cambridge-háskóla fyrir
frægð hjá United, i sérflokki —
varð nýr Duncan Edwards í
hugum Manchester-búa. Á 15
mín. skoraði George Best fyrsta
markið í leiknum, eftir að Gowl-
ing hafði splundrað vörn Tott-
enham, og tæpum 10 mín. síðar
var dæmd vítaspyrna á Lund-
únaliðið, þegar illa var brotið
á Gowling. Willy Morgan skor-
aði. En rétt á eftir urðu Charl-
ton á einu mistök sin í leiknum
— hann ætlaði að spyrna knett-
inum aftur til markvarö-
ar, en mistókst, og Mart-
in Peter komst inn í send-
inguna og pkoraði. En leikurinn
hélt áfram og sjaldan hefur hið
ágæta Tottenham-liö verið leik-
ið jafn grátt úti á vellinum,
en samt uröu mörkin ekki fleiri.
Irski landsliðsmaðurinn Pat
Jennings í marki Tottenham
kom í veg fyrir stórsigur United
með undraverðri markvörzlu, og
þegar Jennings kemst í ,,stuð“
stenzt honum enginn snúning
— meira að segja ekki sjálfur
Gordon Banks. En hinir 50 þús-
und áhorfendur voru ánægðir
— slæmir leikir undanfarið til-
tnÁ-föu aðelns fortíðinhi — og
á Stretfordpöllunum heyhöist nú
-• af<tumeftdr..marga mánuði gápil,a
vígorðið „We are fche greatest“.
En það var ekki á öllum völl-
um, sem áhorfendur voru ánægð
ir, nei, það var nú eitthvað ann-
að í Leeds og West Ham. Leeds
— án fjögurra landsliðsmanna
—tapaði á heimavelli fyrir Liv-
erpool og áhorfendur og leik-
menn Leeds ásökuðu dómarann
algjörlega fyrir tapiö. Þar gekk
:kannski upp dómgæzlan, sem
við sáum í leiknum í sjónvarp-
inu á laugardaginn í leik Manch.
City og Leeds. Nú, eftir aöeins
fjórar mfn. skoraði Liverpool
eina markið í leiknum — Philip
Boersma lagaöi þá knöttinn vel
fyrir sig með höndum áöur en
hann spyrnti á markið — Gary
Sprake varöi, en hélt ekki knett-
inum og John Toshack var nær-
staddur og sendi hann i netið.
Leeds reyndi mjög til að jafna,
en vörn Liverpool var frá'bær
með Tommy Smith og Larry
Lloyd sem beztu menn. Þó kom
að þvi, að Leeds skoraði —
Paul Madeley sendi knöttinn í
netið, en markið var daemt af.
Hvers vegna, vissi enginn, og
undir lokin urðu söknartilraunir
Leeds mjög . örvæntingarfullar.
Liverpool hefði þá eins getað
skorað annað mark, þegar Steve
Heighway átti hörkuskot í þver-
slá^
Forskot Leeds minnkaði við
þetta í þrjú stig, þar sem Arsen-
al, sem leikið hefur einum leik
minna, sigraði Mandh. City á leik
velli sínum í Lundúnum. Það
var góður leikur. og Arsenal-
mennirnir voru betri, en leik-
menn City hættulegir í snöggum
upphlaupum. Og þegar allir virt-
ust hafa sætt sig við jafntefli
kom sigurmark Arsenal mjög ó-
vænt, þegar þrjár mínútur voru
til leiksloka. Peter Simpson lék
þá upp miðjuna — og spyrnti
kpettinum sakleysislega á rrfark-
Tðl’ Hættan vlrtist TfHT;sem eng-
in, en Joe Corrigan greip ekki
'kriöttinn, 'sém skall á brjóst-
kassa hans og hrökk fyrir fæt-
ur John Radford, sem fylgt
hafði vel eftir, og Radford lét
ekki slíkt tækifæri ganga sér út
greipum.
1 Austur-Lundúnum, á leik-
velli West Ham, hrópuðu áhorf-
endur i kór áður en leikurinn
hófst „Rekið Greenwood" og
öll reiði áhorfenda beindist að
framkvæmdastjóranum, hinurn
hægláta Ronnie, sem mörgum
íslendingum er að góöu kunnur
síðan hann lék hér á landi með
Brentford 1951. Greenwood
hafði ■ nú valið Bobby Moore
sem varainann og þótti frétta-
mönnúm það enn meiri litils-
virðing, en að láta hann áitia
heima eins og áður eftir
skemmtikvöldið fræga í Black-
pool. Það er því greinilegt, að
ineira er bak við deilu Moore
og Greenwood en agabrotið í
Blackpool. Annar hvor verður
sennilega að vikja frá félaginu.
Og „mórallinn" í West Hanr
liðinu var á núllpunkti í fyrri
hálfleik gegn Derby. Eftir að-
eins hálftíma leik stóð 3—0 fyr-
ir Derby, Kevin Hector skoraði
tvö af mörkunum. en Alan Hint-
on hið þriðja. Og þannig var
staðan í hléi. Bobby Moore birt-
ist á leikvanginum eftir hléið og
í fyrstu virtist það ætla að hafa
einhver áhrif, þvi á 3 mín.
tókst Peter Eustace að laga stöð
una í 3 — 1. En það stóð ekki
lengi, Hinton bætti við fjórða
markinu fyrir Derby og stærsta
tap West Ham á heimavelli á
leiktímabilinu var staðrevnd. Já.
útlitið er ekki gott hjá West
Ham — þó það bætti að vísy
svolítið úr. aö bæði neðstu liðin
i 1. deild töpuðu á laugardág-
inn. En við skulurn nú líta á
úrslitin í heílcl.
Alan Gowling — fórnaói
frama í Cambridge-háskóla
fyrir frægð hjá Manchester
United.
Lcikir 6. Jcbrúar 1Q7J. 1 X 2
Arsonal — Manch. City <1 i o
Blackpool — "Wolvcs n Z 0 - z
Crystal P. — Ipswich ' / t - o
Evcrfoa — Iluddersfield • (• Á - 1
lyceds — Livcriiool z r 1
Man. Uld. — Tottcnham z 1
Ncwcastle — Chelsea ' |. z 0 - I
Nott’m For. — South’pton / 2 - 0
Stokc — Covcntiry / z - l
W.B.A. — Bumley / i 1 * 0
West Ham — 3>erby z 1 -
Lciccstcr — Hull X 0 - 0
Lánið leikur ekkj við Black-
pool. Liðið sótti stööugt gegn
Ulfunum, en allt kom fyrir ekki
— knötturinn vildi ekki i mark,
ög hrislust þá oft stangir og
þverslá marks Úlfanna. Síðustu
fimm mínútur leiksins skoruðu
Úlfarnir svo tvívegis, fyrst Der-
ek Dougan og síðan Jimmy Mc-
Calli, Peter Wall, sem C. Palace
keypti sl. sumar frá Liverpool,
skoraði eina markið gegn Ips-
wich — fyrsta mark hans í
deildakeppninni, sem færði
Lundúnaliðinu tvö dýrmæt stig.
Eitt mark nægði í tveimur öör-
um leikjum — Tony Brown
skoraði fyrir WBA gegn Burnley
18. mark hans á leiktímabilinu,
og Alan Hudson eina mark
Chelsea i Newcastle. Heimalið-
ið sótti þar mjög undir lokin,
en John Phillips, sem lék í stað
Bonettis í Chelseamarkinu, en
hann meiddist á Jamaíka í leikn
um gegn Santos sl. miövikudag,
var mjög góður og varði allt,
sem á markið kom.
í 2. deild heldur Hull enn for
ustu með 35 stig, eftir jafn-
teflið í Leicester, en markvör.ð-
ur Hull, Ian McKecknie, bjarg-
aði þar stigi með ágætum leik,
eins og við fáum víst að sjá
í sjónvarpinu á laugardag. Ann-
að Yorkshirelið er nú komið í
annað sætið, Sheff Utd., sem
sigraöi Luton 2—1. Sheffield
hefur einnig 35 stig, síðan kem-
ur Cardiff með 34, Leicester 33,
Luton. Middlesbro og Carlisle
32. Feikileg barátta það. Staðan
í I. og 2. deild er birt meö
getraunaspjallinu i dag. Marka-
hæstu leikmenn i deild og bik-
ar eftir leikina á laugardaginn
efu nú þessir: Ted MacDougall
tBournemouth') 35 mörk. Ray
Crawford CColchester), John
Hickton fMiíjidtesbro) og Mal-
colm MacDonald (Luton) 23
mörk hver, og Martin Chivers
(Tot.tenharn) og Jinimy Fryatt
(Oldham) 22 mörk hver. hsim.
Martin Peters skoraöi eina mark Tottenham á Old Trafford. Hann skoraði einnig í fyrri
lelk liöanna í vetur í Lundunum og sést hann hér lengst til hægri, senda knöttinn í netið
iram hjá John Rimmer. Manch. Utd. skoraði þá einnig tvö fyrstu mörkin i leiknum, en Tott-
enham tófcst að jafna.