Vísir - 17.02.1971, Qupperneq 4
HVAB HAFA VALSMCNN / POKA
HORNINU CC6N FH I KVÖLD?
Lokaundirbúrtingur FH og Vals i gærkvöldi
fyrir átökin i kvöld
VALSMENN og FH-menn bjuggu sig í gærkvöldi
undir mestu átök í handknattleik, sem fram hafa
farið um mörg undanfarin ár. Það mun óhætt að
fullyrða, að langt er síðan eins mikil spenna hefur
ríkt um úrslit leiks í handknattleik og um leikinn
milli Vals og FH í kvöld.
Hér mætast tvö hmfjöfn lið,
— leikmenn í hvoru liðj sér-
É lega hæfir og hvergi veikan
hlekk að sjá. Bæði hafa liðin
skapmikla leikmenn, sem hafa
nægilegt úthald til að leika
2x30 mínútur á fullri ferð.
Gangur mála hjá báðum hefur
þróazt svo undanfarna mánuði
Íað þau hafa á að skipa frábær-
lega góðum liðum, senniiega
betri en þessi tvö félög hafa
áður átt.
„Okkur lízt vel á þennan
leik“, sagði Bergur Guðnason,
leikreyndasti Valsmaðurinn,
einn markhæsti maður 1. deild-
ar um þessar mundir. „Við ætl-
um að vinna, — annað kemur
ekki til greina af okkar hálfu“
Þeir Valsmennirnir voru ný-
búnir að æfa létt, þegar okkur
bar að garði í Valsheimilinu.
Eftir æfinguna fengu þeir sem
þess þurftu nudd hjá einum fé-
laga þeirra, Jóni Carlssyni.
Það var á Bergi og félögum
hans að heyra að þeir hefðu
heilmikið í pokahorninu gegn
hinum fræknu Hafnfirðingum í
kvöld, en ekki vildu þeir láta
neitt af því á þrykk ganga að
svo stöddu.
Hafnfirðingarnir söfnuðust
saman heima hjá formanni sín-
um. Einari Th. Mathiesen að
Suðurgötu 23 í gærkvöldi. Það
var létt yfir hópnum, rætt um
andvökunætur. taugaspennu og
annað því um líkt. Pepsí, tertur
og kleinur var fram borið og
fékk góðar viðtökur, en Ingi-
mar Jónsson þjálfari FH, sýndi
leikmönnum leikaðferðina, sem
duga á gegn Val, á töflu, sem
fyllt var af hvítum leikmönnum
„Eigum viö ekki aö „parkera“ Óla þarna, þá missum við ekki boltann“. Það var í gamni meö-
an blaðamenn dokuðu viö í upphafi fundarins hjá FH í gærkvöldi.
Ólafur Jónsson, stórstjarna Vals, einn bezti handknattleiksmaður okkar, fær þama nudd hjá Jóni
Carlssyni, en á horfa Jón Karlsson og Stefán Gunnarsson.
og rauðum, rétt eins og dæmið
verður í kvöld.
„Það er erfitt að spá um
þetta, sigurinn getur orðið hvoru
megin sem er“, sagði Öm Hall-
steinsson. einn leikreyndasti
leikmaður FH. „Þetta gætj jafn-
vel fariö eftir því hvernig tök-
um dómararnir taka leikinn.
Sjálfum hefur mér fundizt Vals-
menn of brotlegir og grófir og
ekkj hafa verið tekið nógu
strangt á þeim af öllum dómur-
unum. Hins vegar eru Vals-
mennirnir með gott handknatt-
leikslið, sem leikur af öryggi,
en ég vonast til að okkur tak-
ist að yfirbuga þá í þessum
!eik“.
Og ef við eigum að spá um
úrslit leiksins, eins og okkar
hefur verið venja i 1. deildinni
í vetur þá er okkur mikill vandi
á höndum, — en leyfum okkur
að velja þann kostinn að spá
jafntefli og fáum mörkum eins
og síðast, þegar FH vann 16:14,
— en jafnframt þeim möguleika
að FH vinni með einu marki.
— JBP
EfnHeg Ármanus■
stúlka setti met
Kornung stúlka i Ármanni, Sig-
rún Sveinsdóttir, hljóp glæsilegt
hlaup í Baldurshaga, innanhúss-
velli frjálsíþróttamanna í Laugar-
dalnum um siðustu helgi. Tími
hennar var 6.9 sekúndur, sem er
nýtt íslandsmet sem að vísu verð-
lír 'ékki staöfest fremur en önnur
afrek innanhúss.
Að tilstuðlan FRl eru haldin mót
um hverja helgi í Baldurshaga, —
og svo virðist sem meira líf sé í
frjálsum íþróttum nú en um mörg
undanfarin ár. Er það áreiðanlega
ekki hvað sízt æfingaaðstöðunni
að þakka.
Elías Sveinsson, IR, náði ágætum
árangri i hástökki, stökk 1.93
metra, Hafsteinn Jóhannsson,
UMSK, stökk 1.84 metra.
Eins og gera máttj ráð fyrir, var
Bjarni Stefánsson, KR, yfirburða-
maður í 50 metra hlaupi, fékk tím-
ann 6.0, Borgþór Magnússon, KR,
vann 50 metra grindahlaup á 7.1
sek., og Katrín ísleifsdóttir, iR,
stökk 1.40 í hástökki kvenna og
vann þá grein.
... og ekki er Valbjörn Þorláks-
son aldeilis búinn að leggja skóna
á hilluna. Hann vann langstökkið,
stökk 6.74 metra. Kannski maður
fái að sjá 7 metrana í sumar, Val-
bjöm?
Æfingar hjá
FRAM í vetur
Knattspyrnudeild Fram:
ÆFINGATAFLA
Álftamýrars’fóla.
Meistaraflokkur:
Mánudaga kl. 19.30 úti.
Miðvikudaga fel. 18.50 inni.
Laugardaga kl. 14.00 úti.
2. flokkur:
Mánudaga kl. 19.30 úti.
Laugardaga kl. 16.00 inni.
3 flokkur:
Sunnudaga kl. 14.40 inni.
4. flokkur:
Föstudaga fel. 19.40 inni.
5. flokkur — A-deild:
Miðvikudaga kl. 18.30 inni
5. flokkur — E-deild:
Laugardaga kl. 15.00.
Old Boys:
Laugardaga kl. 14.40 inni.
Nú eiga Víkingar
sterkan leik
— Jón Hjaltalin kominn, en Agúst
Svavarsson slasabur
Víkingar eiga sitt stóra tækifæri
í kvöld í 1. deildinni. Leikur þeirra
gegn ,,lömuðu“ iR-liði ætti sann-
arlega að vinnast, því Jón Hjal-talín,
sá furðumaður handknattleiksins.
er aftur kominn til íslands, og á-
reiðanlega veitist iR-ingum ekki
auðvelt að stöðva hann fremur en
FH á dögunum.
Við sögðum „lömuðum" ÍR-ingum.
Þeir hafa verið óheppnir, þvf Ágúst
Svavarsson, þeirra sterka og stóra
finonrhrotnaði á dögunum
og er úr leik. Þetta er mikil blóð-
taka fyrir hið fámenna ÍR-lið. sem
á varla menn til að manna vara-
mannabekkina, og aðeins 7—8
hæfa leikmenn inn á völlinn í einu
Hjá Víkingunum er ástandið mun
betra.
Þessi leikur er á dagskránni kl
20.15 í kvöld, — en á eftir fer
leikur FH og Vals fram. Það mun
vera skynsamlegra að mæta
snemma í Höllinni í kvöld.