Vísir - 17.02.1971, Blaðsíða 16

Vísir - 17.02.1971, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 17. febrúar 1971. Rennan að toll- skýlinu tepptist vegna áreksturs UMFERÐ tepptist algerlega og urðu margir bílar að bíða drjúga stund við tollskýlið á Reykja- nesbraut á laugardagskvöld, þegar árekstur varö í aðkeyrsl- unni að gjaldskýlinu. Hemlalaus bifreið rann áfram og á bíl, sem beið afgreiðslu við gjald- skýlið. Ökumaðurinn hafði þó reynt að komast fram með þeim kyrrstæða, en lenti utan í honum og á milli hans og grindverksins. Menn lentu síðan i mesta stíma- braki við að losa þennan tappa þarna i tröðunum, því að bílarnir voru fastklemmdir saman milli skýl isins og grindverksins. Þurfti loks kranabíl til þess að losa þá sundur, og hafði þá á meðan myndazt tölu- verð biðröð af bilum, sem komu sunnan frá og ætluðu þama hjá, en komust ekkj fram hjá árekstrar- bílunum. — GP Reykvíkingar fá sína Big Ben" í apríl n.k. n Þá er ætlunin oð kirkjuklukkur Hallgrims- kirkju fari oð hljóma — Klukkan 12 á hádegi hringja klukkurnar stef úr sálmi „Það eru þrjár stórar klukk- ur og 28 minní klukkur, sem mynda klukknasamspil,“ sagði Hermann Þorsteinsson framkvæmdastjóri Hallgríms- safnaðar í morgun, þegar Vísir spurðist fyrir um klukk urnar í tumi Hallgrímskirkju, Hermann sagði, að þetta væru stærstu kirkjuklukkur á Islandi og þær væru nú komnar til landsins allar þrjár, en þær komu með Arn- arfelli á nýársdag. Hermann sagði að það væri einn gefandi að þessum þrem stóru klukkum og vilji hann ekki láta nafns síns getið fyrr en hann afhendir þær sjálfur, við litla athöfn sem mun fara fram innan skamms. Hennann sagði að klukkurnar væru gerðar í bænum Asten í Hollandi. Klukk umar munu hringja á 15 mín- útna fresti. Einnig fylgir mann- hæðarhá klukka, nokkurs konar „Big Ben“ íslendinga eins og Hermann orðaðj það. Mun hún hringja kl. 12 í bverju hádegi stef úr laginu „Víst ert þú Jesú kóngur klár“ og hefur Róbert Abraham Ottósson útsett stefið sérstaklega fyrir klukk- una. Hermann sagði að klukkna- spilið væri algjörlega sjálfvirkt, og væru fyrirmæli sett inn á segulbönd og síðan ynni heili úr þeim. Einnig er hægt að leika með höndunum á nokkurs konar nótnaborð, og er það mjög göm- ul list og hennj víða haldið við erlendis enn þann dag í dag. Hermann sagði að líklega mundi organisti Hallgrímskirkju, Páll Halldórsson, leika á klukkna- samspflið, en á stórhátíðum muni Róbert Abraham. söng- málastjóri kirkjunnar leika, en hann hefur setið á ráöstefnum erlendis, sem haldnar eru af mönnum sem leika á klukkna- spil. Hermann sagði að Mukk- umar yrðu hífðar upp stoMta í turninum, og koma menn alla leið frá verksmiðjunni í HoJ- landi til að sjá um verMð, einnig sagði hann að vélsmiðjan Héðinn mundi aðstoða þá. Stærsta kirkjuMufckan ber nafn- ið Hallgrimur og eru Mukkumar allar mjög fallega skreyttar að sögn Hermanns. Að lokum sagði Hermann að vonir stæðu til að allar Mukkurnar yrðu komnar upp fyrir páska. En þá er eftir að ganga endanlega frá tón- stillingunni, en það er víst ekki gott að gera það þegar kalt er í veðri, og sagðist Hermann ekk; vera bjartsýnn á það að þetta tækist fyrir páska, en þetta yrði allavega komið upp með vorinu. — ÁS Rauðsokkar ræða dagheimilamál „Rauðsokkahreyfingin lítur svo á að ein undirstaða jafnréttis kynj- anna sé að konur fái að taka þátt í atvinnulífinu, ef þær vilja. En til að það sé hægt verði að vera til nægilega mörg góð dagheimiii fyr- ir böm“, segir m a. í frétt frá starfshópi rauðsokka, sem ætiar að efna til aimenns umræðufundar um dagheimilismálin. í kvöid í Nor- ræna húsinu. Á fundinum, sem hefst kl. 8.30, reifa málin þau Guðrún Friðgeirs- dóttir kennari, Gerður Óskarsdótt ir kennari, Geir Vilhjálmsson sál- fræðingur, Gerður Steinþórsdóttir varaborgarfulltrúi og Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfullrúi, en síð- an verða almennar umræður. Fund- arstjóri er Þuríður Pétursdóttir. Félagsmálaráði Reykjavíkurborgar hefur verið boðið á fundinn. Vænt- ir starfshópurinn þátttöku foreldra og annars áhugafólks. — SB Þetta er Iíkanið af stærsta sambýlishúsi utan Reykjavíkur til þessa, en smíðin er vel á veg komin. Byggja stærsta fjöibýlis- húsið utan Reykjavíkur Stærsta sambyggingin, sem reist hefur verið á Suðurnesjum, þ. e. Danmörk birgðastöð fyrir eituriyf á Norðurlöndum? Nefnd Norðurlandarábs krefst samræmingar á lögum um eiturlyf Tillaga um aukna samvinnu Norðurlanda í baráttunni við eiturlyfin er aðalhitamálið á fundi Norðurlandaráðs í dag. Féiagsmálanefnd þingsins spar- ar ekki stór. orö -í áliti sínu og krefst samstöðu Norðurlanda. Deilur hafa verið milli Norð- manna og Dana, og saka Norð- menn Dani um iinkind í þessum efnum. í Noregi er litið á neyzlu eiturlyfja sem glæpsamlegt at- hæfi, en það tíðkast ekki í Dan- mörku eða Svíþjóö. Nefndin krefst þess, að sett verði í lög ákvæði um hörð viðurlög einnig vegna notkunar en ekki aðeins vegna sölu eiturlyfja. „Nauðsyn ber til að auka fræðslu um hætturnar við notk- un,“ segir i álitinu. „Samræma verður löggjöf allra Norður- landa. Hætt er við. að það ríki, sem vægast tekur á eiturlyfja- notkun verðj ,,hirgðastöð‘‘ fyrir hin löndin." — HH Keflavík og nágrenni og líklega utan Reykjavíkur, er nú fokheld orðin, en það er Byggingarfélag iönaðarmanna á Suðumesjum, sem beitti sér fyrir því, að byggð yrði 40 íbúða blokk. „Þetta var nú frekar hugsað sem hugsjónastarf, j>að var hér þörf á að bæta úr atvinnuástandi hjá iön- aðarmönnum, svo við ákváðum að reisa stóra sambvggingu," sagði Hilmar Sölvason framkvæmdastióri byggingarfélagsins Vísi i morgun, „og þetta hefur gengið mjög vel. Við ætlum að afhenda kaupendum fyrstu íbúðirnar um mánaðamót iúlí-ágúst í sumar. 3ja herbergja íbúð. 90 fermetrar, kostar hiá okk- ur tilbúin undir tréverk 960.000 kr.“ Sagði Hilmar, að ekki væri ákveð ið með frekari byggingar iðnaðar- manna, „en það gæti hugsazt að við byggðum í öðrum sveitarfélög- um næst — reyndar megum við byggja 50 fbúðir á þessu svæði, sem sambyggingin er á, og á skipu- lagi okkar er áætlað að reisa rað- hús þama við.“ — GG Fyrsta BEA-flug- vélin í dag Brezka flugfélagið BEA hefur eins og áður hefur verið skýrt frá. áætlunarflug til íslands í vor í morgun kom fyrsta BEA flugvélin til íslands vegna þessarar nýju á- ætlunarleiðar BEA. Flugvélin 'al Trident-gerð, kom hingað meö for- svarsmenn félagsins og um 20 brezka blaöamenn til að kanna hér allar aðstæður áður en áætlunar- flugið hefst. — VJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.