Vísir - 24.02.1971, Blaðsíða 4

Vísir - 24.02.1971, Blaðsíða 4
VÍSIR . Miðvikudagur 24. febrúar 1£»71 4 ® Ekkja de Gaulles þakkar Ambassador Frakklands hefur borizt bréf frá frú de Gaulle, þar sem hún biður hann um að þakka hjartaniega ölium þeim íslendingum, Frökkum og öðr- um sem vottuðu samúð sína vegna fráfails de Gaulie hers- höfðingja, hinn 12. nðvember s.l., með þvf að rita nöfn sín í minningabók, sem lá frammi 1 Franska sendiráðinu i Reykja- vík. H Margir vildu bréfa- viðskipti við Japan Hún Ko Mastu Yu Ko segir okkur í bréfi, sem barst í gær eftir aðeins 3 daga frá póst- stimplun, að hún hafi stokkið upp af gleði, þegar hún fékk fjöldan ailan af bréfum frá ís- iandi. Hún skrifaði okkur og bað um að segja lesendum frá \ því að hún óskaði eftir bréfa- skriftum við íslenzkt æskufólk. „Méd þykir samt fyrir því að ég get ekki skipzt á bréfum við þau öM“, segir hún. „Svo ég lofa því að ég læt bréfin, sem afgangs verða, ganga ti'l vina minna, eða einhverra pennavina- klúbba", segir hún um leið og hún þakkar innvirðulega að japönskum sið. 0 Auðvelda náms- mönnum að öðlast vitneskju um lán út er kominn gagnlegur pési, sem heitir Námsstyrkir og náms lán, í samantekt þeirra Birgis Thorlaciusar og Árna Gunnars- sonar hjá menntamá'laráðuneyt- inu, en ráðuneytið gefur út. Er þarna að finna ýmsar leiðir fyr- ir námsmenn, upplýsingar um hina ýmsu sjóöi, og leiöir til að útvega námslán eða styrki. Hef- ur ráðuneytið til þessa heldur lftið aöhafst til að koma á fram- færi upplýsingum um styrki, sem boðizt hafa, en hér er sannarlega bragarbót gerð á. Bókin fæst hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs á Skálholtsstig 7. Gœði í gólfteppi GÓLFTEPPAGERÐIN H/F Suðurlandsbraut 32 Sími 84570 @ Gáfu skólanum grillofn Aldarfjórðungur er nú liðinn síðan fyrsta sveinspróf í fram- reiöslu og matreiðslu fór fram hér á landi. í tilefni af þessu ákváðu þau er prófi luku þá, og enn eru við störf í iðninni, að minnast þessara tímamóta með því að gefa Matsveina og veit- ingaþjónaskólanum grillofn. Ofn inn var afhentur á verklegri æf- ingu 3. bekkjar skólans nú ný- lega. Á myndinni sem tekin var við þetta tækifæri, sést Tryggvi Þorfinnsson, skólastjóri skólans, þakka Böðvari Steinþórssyni, en hann afhenti ofninn fyrir hönd fyrrverandi bekkjarsystkina sinna. © Aga Khan væntan- legur til fslands Prins Sadruddin Aga Khan framkvæmdastjóri Plóttamanna- stofnunar Sameinuöu þjóöanna, mun koma hingað til lands 17— 18. apríl n. k. á vegum ríkis- stjórnarinnar og Plóttamanna- ráðs íslands í tilefni af lands- ■ • -i .I ' söfnuninni „Plóttafólk 7d“, sem fer fram á öllum Norðurlöndum 25. aprfl. í tilkynningu frá Aga - Khan, sem blaðinu barst, segir hann m, a.: „Enn einu sinni eru Norðurlöndin að undirbúa öfl- uga söfnunarherferð til lausnar flóttamannavandamá'linu í heim inum. Ég minnist með innilegu þakklæti liðinna aðgerða, er þjóðir Danmerkur, Noregs, Sví- þjóða, Finnlands og íslands hafa sýnt bæði samúð og hjálp til að levsa vandamál flóttafólks víða um heim“. Fyrirlestur um *J •■■■ if i M‘l%; i’> i I f' ’ I I I Raforkunotkun til húshitunar verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, fimmtudaginn 25. þ. m. kl. 20.30. Fyrirlesturinn flytur Harold E. Smith, verk- fræðingur hjá brezka raforkuráðinu, Electr- icity Council. Með fyrirlestrinum, sem fram fer á ensku, verða sýndar litskuggamyndir og kvikmynd. Allir áhugamenn um rafhitun veikomnir með- an húsrúm leyfir. Samhand íslenzkra rafveitna. Byggingarfélag verkamanna Reykjavík. Til sölu tveggja herbergja íbúð í II. byggingarflokki. Þeir félagsmenn, sem vilja neyta forkaups- réttar að íbúð þessari, sendi umsóknir sínar í skrifstofu félagBins, Stórholti 16, fyrir kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 2. marz n. k. Félagsstjórnin. Heiðraður fúlkaorðu í þorrablóti Nýlega afhenti fslenzki kons- úMinn í Vancouver Jón Sigurös- son Franik Fredrickson riddara- kross fálkaorðunnar, fyrir hönd forseta. Frank er fyrrverandi flugmaður og íshokkístjarna. Oi'ðan var afhent í hitou ár- lega þorrablóti, sem haldið er aif íslenzka—kanadíska klúbbn- um í Brezku-Kóluimbíu. Orðuna hlaut Frank fyrir flug á ís'landi árið 1920. Frank fæddist í Winnipeg, esi foraldrar hans voru íslenzkir. 1 Kanada er Frank þekktastur fyrir það að árið 1920, átti hann mikinn þátt í því að íshokk'íliðið „Fálkar" varð Ólympíumeistari á Ól- ympíuileikunum árið 1920. Á sieánni árum hefur Frank m. a átt sæti í borgarstjóminm i Winnipeg. Hér heima eru orður yfirlieitt ekki afhentar opinber- lega, en þei-r hafa það greinilega öðruvísi þarna vestan haifs. - ÁS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.