Vísir - 15.04.1971, Page 4
4
VÍSIR . Fimmtudagur 15. apríl 1971.
1 æfingahléi: M.a. má sjá Guðmund Guðmundsson, sýningarst jóra, Þorleik Karlsson, leikmunavörð, Jón Sigurbjörnsson, leik-
stjóra, Sigríði Hagalín, Þorstein Gunnarsson og Gissur Pálsson, ljósameistara.
Þorsteinn Gunnarsson og
Sigríður Hagalín
Rússneskt öndvegisverk
— Frumsýning á Máfinum i IBnó á þriðjudag
Viö komum við upphaf þriöja
þáttar. Leikararnir' eru allhr á
sviðinu og leikstjórinn, Jón Sig
urbjörnsson í miðjum hópnum.
Sviðið er borðstofa, rússnesk
borðstofa heima hjá Pétri Nok-
ilaévitsj Sorin, fyrrverandi ráðu
neytisstjóra. Við klárum þriðja
þátt fvrir matinn segir leik-
stjórinn og bætir við nokkrum
athugasemdum til leikaranna,
ráðfærir sig við Gissur ljósa-
meistara um lýsinguna vinstra
megin á sviðinu. Síðan: Þögn í
sál, tjaidið fyrir og tjaldið frá
eftir kúnstarinnar reglum.
Rússinn A.P. Tsékhov er einn
frægasti leikritahöfundur seinni
tíma og leikur hans Máfurinn er
eitt af kunnustu verkum hans.
Sumir vilja kalia það eitt af
ástsælusitu verkum leikbók-
menntanna.
Það værj synd að segja, að ís-
lenzkt leikhús hafi vanrækt
þennan rússneska skáldjöfur því
að með Máfinum eru öll verk
hans, sem á annað borð hafa
náð vinsældum, komin á svið
hér á landi. Síðast var Vanja
frændi sýndur í Iðnó í leikstjórn
Gísla Halldórssonar fyrir nokkr
um árum.
Máfurinn er fyrsta frægðar-
•verk skáldsins og tímamótaverk
í sögu þess. Margir líta á það
sem eins konar uppgjör — t. d.
við leikhúsið. Máfurinn hefur aö
sjálfsögöu verið sýndur í mörg-
um þekktustu leikhúsum heims.
fslenzku þýðinguna á verkinu
gerði Pétur Thorsteinsson fyrr
um sendiherra i Moskvu og
þýddi hann leikinn úr rússn-
esku. Leikmyndir sýningarinnar
f Iðnó eru eftir Ungverjann
Ivan Török, sem dvalizt hefur
hér á landi síðastliðið ár og unn-
ið að leikmyndum hjá Leikfélag
inu og raunar víðar.
Leikendur eru Signður Haga-
lín, sem leikur Irínu Nikolaévnu
Arkadínu Trépléva, leikkonu,
Pétur Einarsson leikur Konstan
tín son hennar, Brynjólfur Jó-
hannesson bróöur hennar, Sor-
ín. Nína Mighailovna Zarétsn-
aja er leikin af Valgeröi Dan,
Ilja Afanasévitsj Sjamraév, ráðs
maöur hjá Sorin er leikinn af
Karli Guðmundssyni, Pá!ínu
Andréevnu konu hans leikur
Margrét Ólafsdóttir, Mösju dótt
ur þeirra leikur Guðrún Ás-
mundsdóttir, Boris Alekséévtsj
Trigorin, rithöfund leikur Þor-
steinn Gunnarsson, Évgéni Sér-
géevitsj Dorn, lækni leikur Guð
mundur Pálsson, Simon Simono
vitsj MedVönko, kennara, Borg-
ar Garöarsson Auk þess koma
fram í leiknum Sigurður Karls-
son, Arnhildur Jónsdóttir og
Gestur Guömundsson.
Frumsýning á Máfinum verö-
ur á þriðjudag. Fyrirhugað er
að sýna leikinn einungis fimm
sinnum í vor, en taka svo ti! við
hann aftur í haust. Þetta er 4.
frumsýningin í Iðnó I vetur, en
óvenjuleg aðsökn hefur verið aö
flestum verkefnum Leikfélags-
ins á þessu leikári. —JH
Brynjólfur, Sigríður og Pétur í hlutverkum sínum. Úr þriðja þætti: Gestur, Þorsteinn, Arnhiidur, Sigurður, Sigríður.