Vísir - 15.04.1971, Síða 5
r
. Eimitttatlagur Í5. apríMS?!.
Stutt...
Skótanrótihu að Ijúka
Sean hsfjast upplestrarfrf í
skótam, — og i'íklegá halda ein-
hverjíf nesmendur ánægöir í írí-
in, sem nýhakaöir skólameistarar
i koattspymu. Úrslitaleikur Skóla-
móts K3SÍ ’verður á Háskólaveil-
inwm á morgun kl. 17, — það eru
Sð Wenntaskólans í Hamrahlíð og
Kennaraskölans, sem leika. Bæði
liðin hafa tapaö einum leik. Það
liðið sem tapar, hefur þar með
tapaö tveim leikjum og er þar með
úr leík, en hitt liðið stendur eftir
sem sigar-wegar.i í mótinu.
Sfentffiierrakeppnin í kvöld
Begapnj Vérnarliösmanna og úr-
vaásRðs Reykjavíkur í körfuknatt-
ieik, 3endiherrakeppnin svonefnda,
fier fnam í fþróttaíhöllínni í Laugar-
dai f ’fcwöid og heíst leikurinn kl.
20.15. Þfetta. er þriöji leikur keppn-
mnar.
Fjöldafciátí-
taka í víða-
vangshlaupi
ÍR?
■Wðavangshlaup ÍR mun fara
fram á sumardaginn' fyrsta i 56.
sinn. Keppt er um einstaklings-
verðlaun a*ík þess, sem keppt
er f 3ja-, fimm- og 10 manna
siveitum. 1 'fyrra vann KR 3ja
manna svertina en UBK hinar
báðar í þriðjia sinn í röð og þar
með hikara þá, sem um var keppt,
til eignar.
Þétttaka í .fyrra var mjög mikil
eða um 40 manns, en nú er þúizt
við að sú tala;hækki að mun, þvi
sjálfsagt munu margir trimmarar
og skokkarar vilja taka undir á-
sfeorun Dr. Guimlaugs Þórðarsonar
frá I fyrra um aö þeir, sem skokka
um sér tii heilsuhótar, reikni þátt-
töku í v’iíðavangshiaupinu sem há-
punkt æfinga sinna, líkt og Svíar
gera við sín lðhgu hlaup, Vasa-
gönguna og Lidiregöhlaupiö.
ÞátUðkutiIkyrmingar þurfa að
hafia borizt tii þjálfara ÍR-inga
Guðmundar Þórarinssonar, Bald-
ursgötu 6, sími 12473, eigi síðar
en íð. apríl.
Kristján L. Gestsson kvaddur
■
Nú, 'þegar við kveðjum Kristján
L. Gestsson hinztu kveöju í dag,
er okkur iþróttamönnum ljóst, að
við eigum aö baki að sjá miklum
iþróttafrömuði og foringja, sem
vann allar stundir í þágu æsku-
lýðs- og íþróttamála landsins þrátt
fyrir mikil og annasöm störf, sem
á hann hlóðust
Kristján gekk ungur inn í raóir
íþróttamanna og ávann sér þar
strax traust og virðingu jafnt sam-
herja sem mótherja fyrir prúð-
mannlegan og drengilegan leik í
hvívetna. íþróttirnar heilluðu hann
svo, að hann var stöðugt virkur
þátttakandi í þeim, meðan heilsa
entist.' Fyrst sem afburða íþrótta-
maður í mörgum keppnisgreinum
en síðan sem hin styrka stoð hins
félagslega starfs. En jafnframt þvi
stundaðj hann að staðaldri sund
sér til 'hressingar, gleði og heilsu-
bótar.
Það fór ekki hjá því, að á hans
yngri' árum væri sérstaklega tekið
eftir honum á leikvelli, þar sem
hann bar af öðrum með allri sinni
prúðmennsku og færni í sérhverri
iþrótt, er hann tók þátt 'f. En hann
var um árabil einn af okkar beztu
og þekktustu íþróttamönnum.
Kristján var því hin sanna fyrir-
mynd allra ungra drengja á íþrótta-
vellinum, enda vildu þeir líkjast
honum að færni og fræknleik. En
það var ekki aðeins á íþróttavell-
inum, heldur einnig í lífinu sjálfu,
að hann var fyrirmynd annarra.
'Það var sérstök ánægja að eiga
þess kost að kynnast Kristjáni
persónulega, og vissulega var það
gæfa hvers og eins að eiga þess
kost að starfa með honum að upp-
byggingu íþr-óttamálanna, sem
hann gerði ótrauður, á meöan
kraftar entust.
Fyrir störf og atbeina hans hef-
ur hvers konar iþróttastarf vaxið
og dafnað með hverju ári og orðið
léttara fyrir þá, er störfuðu með
honum og oft í skjól; hans. Hann
hafðj sérstakt lag á að sameina
alla í einu félagslegu átaki og
benda mönnum á, að erfiðleikarnir
væru til þess aö sigrast á, og það
yrðj bezt gert með samstilltu á-
taki. Með þessu hugarfari tókst
honum ávallt að ná settu marki
á tilsettum tíma.
Það fór ekki hjá því, að sótzt
væri é'ftir starfskröftum Kristjáns
1' heildarsamtök íþróttamanna
vegna þeirrar dugmiklu forystu,
sem hann 'hafði innt af hendi um
áratuga skeið í stærsta iþróttafé-
lagi landsins. Hann var því kosinn
gjaldker; Í.S.Í. á íþróttaþingi árið
1942, og gegndi hann því starfi
til ársins 1949.
í því starfi komu fram hinir
miklu kostir Kristjáns að afla
íþróttahreyfingunn; fjár og fyrir-
greiðslu, auka vinsældir hennar og
hrífa menn til'starfs og dáða. Það
varð því mikil breyting á starfssmi
samtakanna, eftir að 'hann tók við
gjaldkerastörfum. Á þessu tímabili
er fyrsti framkvæmdastjórj sam-
bandsins ráðinn. íþróttablaðið end-
urvakið, og Kri'stján var frum-
kvööull að því, að bókasjóöur
Í.S.Í. var stofnaður. Síðan hefur
sá sjóður staðið undir útgáfu
leikreglna og árbókar íþróttam.,
á meðan hún kom út, svo og ann-
arra rita, sem gefin hafa verið út
á vegum sambandsins. Allt þetta
krafðist mikilla fjármuna, sem
gjaldkerinn tók að sér að útvega
að mestu leyti með almennum
söfnunum meðal vina og iþrótta-
unnenda. Kom sér þá oft vel fyrir
Í.S.Í. það traust og vinsældir,
sem Kristján hafði aflað sér í
verzlunarstéttinni. En þar átti
hann marga sYna beztu vini_ sem
studdu hann dyggilega í hans
mikla á'hugamálj að útbreiða
íþróttastarfið.
Vegna velgengni Kristjáns í
þessu umfangsmikla starfi þótti
sjálfsagt að fá hann sem gjald-
kera, þegar Óiympíunefnd var
m-> bls. 10.
Borgakeppnln:
LEEDS VANN
LIVERPOOL!
Mark Billy Bremners á 67. mín-
útu í gærkvöldi, tryggði Leeds
sigur í fyrri leik sínum við Liv-
erpool í borgarakeppni Evrópu.
Þessi smávaxni Skoti, sem oft-
ast hefur oröið að horfa á félaga
sína í vetur vegna meiðsla, var
settur í óvenjulega stöðu, sókn-
arbroddur meö stöðu nokkuð
bakatil í sókninni. Markið kom
eftir aukaspyrnu frá John Giles.
Bremner tókst að skalla í net-
Borgnesingar
\í 1. deild í
körfuknattleik
Næsta haust verður liðunum í
1. deild í körfuknattleik fjölgað í
8, — og lé'ku SkallagTÍmur frá í
Borgamesj og Njarðvíkingar um j
þetta sæti nú um páskana vestur
á Seiitjamarnesi.
Leikurinn var geysiharður og
spennandi, og munaði sjaldnast
meiru en 1—2 stigum á liðunum.
Undir lokin tókst Borgnesingum
þó aö sigla fram úr og tryggja sér
6 stiga sigur, 84:78 — og þar með
háfa Borgnesingar með Gunnar
Gunnarsson, fyrrum landsliðs-
mann úr KR í broddi fyikingar,
tryggt sér 1. deildarvem næsta
vetur.
ÍHafa Borgnesingar ekki áður
náð svo langt á íbróttasviðinu.
• Myndin sýnir fimleika í Óiympíuþorpinu, eins og það er í dag, — meira en ári áður en Ólympíu-
leikarnir í Munchen hefjast. Reyndar eru þaó aðallega verkamennimir, sem framkvæma ótrú-
legustu fimleika í starfi sínu á leikunum þessa stundina, — en stúlkan er hins vegar Ól-von
Þjóðverja í fhnleikum, hin 17 ára gamla Margarete Probst...
ið úr varnarþvögunni. AIIs sáu
leikinn 52.577 áhorfendur á velö
Liverpool.
í leik s'mum f Evrópukeppnii.
bikarmeistara vann Ghelsea Man-
chester City í London með 1:0,.
Smet-hurst skoraði markið eftir 46'
mínútna leik.
Grísku meistararnir frá Pana-
thinaikos, sem unnu ensku meist-
arana frá Everton í Evrópubikar-
keppni meistaraliða svo óvænt,
áttu í erfiðleikum í gærkvöldi í
Belgrad. Þar vann Rauða stjarnan
Grikkina með 4:1. Það var Ostojic,
sem skoraði 3 mörk í röð fyrir
Júgóslavana, á 14., 47. og 69. min-
útu en Nankovic skoraði 4. mark
heimamanna. Kamaras skoraði
eina mark Grikkjanna. Um 90.000
áhorfendur sáu leikinn. Seinni
leikurinn fer fram í Aþenu um
mánaðamótin.
í Eindhoven varð jafntefli í
bikarkeppni bikarmeistara í leik
'Eindhoven, hollenzku bikarmeist-
aranna, og Real Madrid, — ekkect
mark var skorað. Aðeins 22 þús.
áhorfendur sáu þetta lið, sem stát-
ar mest af fornr; frægð nú orðið.
Rvk.mótið i
badminfon
um helgina
■ ReykjaVfíkurmeistaramótið í
badminton veröur haldið í KR-
húsinu um næstu helgi, á laugar-
dag og sunnudag 17. og 18. apríL
'Þátttaka ska] tilkynnast Óskari
Guðmundssyni í síma 10511 eða til
Hængs Þorsteinssonar f síma
82725. 1
íslandsmótið s
badminton um
mánaðamófin
■ islandsmeistaramótið í bad-
rninton verður haldið í íþrótta-
höllinni í Laugardal dagana 1. og
2. maí n.k. Keppt verður í öllum
greinum í nieistarafl. og 2. flokki.
Þátttaka tilkynnist til Kristjáns
Benjamínssonar í síma 24368 eða
B.S.'L, íþróttamiðstöðinni, Laugar-
dal fyrir 14. apríl n.k.
st- f V^fcEtxm tóitíttsriim