Vísir - 15.04.1971, Síða 6
6
V1 S I R . Fimmtudagur 15. apríl 1971.
Eftir 15 tonn af
súkkulaði — TRIMM
Þá eru páskarnir búnir með
tiiteyrandi súkkulaðiáti sem
fuliorðnir hafa lfklega ekkj far-
ið varhluta af fremur en börn-
in. Talið er aö ein 15—20 tonn
af súkkulaöi séu borðuð um
páskana, og þar við bætast alls
konar kræsingar, sem líklega
hafa eyðilagt „trimmið" hjá
mörgum. En sem sagt, þegar
staðið er upp frá slíkri veizlu,
dugir ekkert annað en ógurlegt
trimm. Talið er að um 220 þús.
páskaegg hafi verið seld fyrir
hát'iðina, — og verð þeirra
skiptir örugglega milljónum
króna.
Páskarnir ekki leng-
ur svefnhátíð
Fjölmargir bregða sér í feröa-
lög, löng eða stutt um páskana,
en ekkj eru það nándar nærri
allir sem hafa vilja eða getu
til þess, en verða eftir heima.
Fyrir þetta fólk hafa páskar
yfirleitt verið hálfgerð svefn-
hátíð — en nú virðist talsverð
breyting að verða á. Mikið var
um að vera um páskana,
skemmtanir, kórsöngvar þrír
erlendir kórar heimsóttu landiö,
íþróttir fjölbreyttar mjög og
víða mikið um að vera. Virðist
fullur skilningur á að ekki geta
öll hjól þjóðfélagsins stöðvazt
enda þótt stórhátíð standi yfir.
Sú íslenzka var
mælskust
Mælskukeppni mun vera vin-
sæl víða í skólum vestur í
Bandaríkjunum og víðar. í Mani
toba sigraðj t.d. Cathy Hjálm-
arsson í mælskukeppni í skóla
sínum og fer í úrslit fyrir Mani-
tobarí'ki í mælskukeppni skól-
anna í Kanada. Þessi keppni á
að fara fram nú um helgina
að sögn Lögbergs—Heims-
kringlu, — og vonandj verður
landj okkar, sem reyndar er
einnig af skozk-írsku bergi
brotin, sigursæl í kappræðum
þeim. Á myndinnj er James
Richardson, einn ráðherra
Trudeaus að afhenda henni sig-
urlaunin fyrir keppnina í skóla
hennar.
V erksmiðjustörf
Laghentur maður, helzt vanur vélum óskast
til verksmiðjustarfa. — Uppl. í síma 35350.
Ungur maður óskast
í frekar létt starf. Verður að vera mjög reglu-
samur og hafa bílpróf. Uppl. í _ímum 1GC23
og 33820.
Ba-bú og blátt ljós á
lögreglubíla?
Meðal mála sem BFÖ, Bind-
indisfélag ökumanna, tók til
meöferðar á aðalfundi Reykja-
víkurdeildarinnar nú nýlega var
hv->rt ekki bærj að rannsaka
hvort heppilegra væri að iög-
reglu- sjúkra- og slökkviliðs-
bílar heföu blá ljósmerkj og
„ba-bú“-hljóðmerki í stað sí-
renu og rauðra ljósmerkja,
eins og- nú er.
„Ég er komínn heim“
Það hefur aldrei farið neitt
á milli mála, að geirfuglinn er
háíslenzkur fugl, og ætti
kannskj að taka hann upp i
skjaldarmerki landsins. Verzl-
unin Hagkaup hefur að minnsta
kosti svo mikla þjóöræknis-
kennd ti] að bera, aö eigendur
hennar hafa ekkj getað látið
hjá líða að flagga soldið með
geirfuglinum. Þeir hafa látið
þrykkja mynd hans á skyrtu-
boli, sem reykvískir unglingar
kaupa síðan 1 stórum stíl. Undir
fallegrj þrykkmynd af stoltum
fuglinum standa svo hin tákn-
rænu orð: „Ég er kominn
heim“.
Lúðrasveitarmenn
setja á svið
„músíkrevíu“
1 gær var frumflutt í Sigtúni
„Músíkrevían 1971“, eftir Jón
Hjartarson, blaöamann. Þaö er
Lúörasveitin Svanur, sem
stendur fyrir sýningunni, sem
flutt er af 17 manna hljómsveit
eða „big-band“, eins og það
mun kallaö á fagmáli. Saman
við tónlistina er fléttað gaman-
þáttum um dægurmál, — geir-
fugla og aðra fugla, en leik-
stjóri er Borgar Garðarsson.
Önnur sýning revíunnar er í
kvöld kl. 21.
Stálu bensíni af
bíium
Tveir ungir menn voru staðn-
ir að því að stela bensíni af
mannlausri bifreið í Ármúla,
en til þeirra hafði sézj- og lög-
reglunni var gert viðvart.
Piltarnir voru á bifreið, sem
reyndist við athugun vera í all-
mörgu ábótavant með tillitj til
öryggisbúnaðar, og var bifreiðin
tekin úr umferð.
Nokkur brögð hafa verið að
því, að stolið sé bensíni af jrfir-
gefnum bifreiðum, og eru bíla-
eigendur varla óhultir fyrir
slíku, nema þeir, sem hafa læst
bens'inlok á geymunum, eða
geyma bíla sína í bflskúrum.
•••••••••••••••••••••••
rnrnm
□ Hvað eru þjóðr.ýt
störf?
Ámi Bjömsson cand. mag.
gerði störfum eiginkonu sinnar
allhressileg skil í útvarpsbætti
Jökuls Jakobssonar s.l. laug-
ardagskvöld.
Árni lýsti því yfir í upphafi
stutts erindis er hann hélt um
Reykjavfkurblöðin og blaða-
menn, að hann væri kvæntur
blaðamanni, „og þekkti þar af
leiðandi vel blaðamenn, og af
því leiddi svo að hann vissi að
blaðamenn væru upp til hópa
hinir mestu kálfar." Ekki furða
ég mig á þvi, að blaðamenn
komi kálfslega fram við Áma
en mjög lýsti hann fjörlega störf
um eiginkonu sinnar, sem starf
ar við Þióðviljann. Lýsti Árni
(sem sjálfur skrifar þætti í Þjóð
viliann) störfum blaðamanna
þannig að þeir gerðu fátt annað
en að hlaupa eftir fréttatilkvnn-
ingum frá hinum og þessum fyr
irtækium. Tækiu þessar fréttat'l
kynningar og kæmu þeim á skilj
anlegt mál. Sæiu um að koma
þeim gegnum allar prentvélar,
þannig að viðkomandi fyrirtæki
fengi sem bezta pressu, og héldi
áfram að auglýsa í blaðinu, svo
að blaöið gæti borgað blaöa-
mönnum kaup fyrir að hlaupa
áfram eftir fréttatilkynningum.
Sennilega alveg raunsönn Ivsing
Áma á störfum þar sem hann
þekkir til, en ekki kæri ég mig
um að slík þjónkun viö fyrir-
tæki sé hermd upp á Vísi.
Hvað um bað. Árna tókst vel
upp að stríða konu sinni, og á
endanum stakk hann upp á því
að aðeins yrði gefið út eitt blað í
Reykjavík. Ætti það að vera á
stærð við Morgunblaðið, og
skiptast jafnt miffli pólitísku
flokkanna, þannig að hver flokk
ur fengi rúm fyrir sinn mál-
flutning: „Þannig gæti hópur
blaðamanna snúið sér að þjóð-
nýtum stö,rfum“. sagði Ámi.
Við þessa skoðun Áma hef
ég reyndar ekkert að athuga en
finnst bara skrítið, að þeir menn
sem mest tala um að koma viss
um stéttum i „þjóðnýt störf“.
skuli stunda skógrækt og þjóð-
háttafræði!
Kannski menn þessir vi'lii skil
greina nánar, hvaða störf era
þjóðnýt og hver ekki?
Blaðamaður
Óskum að ráða
verkcamenn í byeggingnrvinnu BREIÐHOLT H.F. Lágmúla 9, sími 81550.
□ Misheppnuð Ár-
bæjarferð
Birgir skrifar:
„Á skírdag fór ég með fjöl-
skvlduna að skoða Árbæjarsafn
ið, en engir voru þar aðrir i safn
inu utan hópur farþega frá Loft
leiðum.
Á skiltum gat að líta að saifnið
yrði opið til kl 16, en um kl. 14
fór farþegahópurinn, og ég og
fjölskvlda mín vomm ein eftir
auk varðarins.
Þá byriaði hann að reka á eft
ir okkur. Elti okkur hvert fót-
mál og spurði okkur, hvc. við
væmm ekki búin að skoða þetta
og skoða hitt, og lokaði siðan
hveriu herberai. um leið og við
stigum út úr því. Jafnframt á-
málgaði hánn það miög við okk-
ur að svíkiast nú ekki um að
greiða það giald, sem gestum
safnsins væri gert að greiða.
Þetta gerði mér svo gramt í
geði, að fvrir rest tókst karlin-
um að flæma okkur út eftir að
við höfðum hlaupið í giegnum
húsin á hundavaði.
Hvort honum lá á að losna
eða hvað það hefur verið, sem
þessu réði, þá var þetta ónota-
leg reynsla. Og fleiri ferðir fer
ég ekki i þetta safn, ef ég á
þetta yfir höfði mér.“
□ Illfær gatnamót
S.Á. skrifar:
„Allt frá opnun svonefndrar
„hraðbrautar". Kringlumýrar-
brautarinnar. suöur í Kópavog
hefi ég undrað mig á gerð gatna
mótanna viö Kringlumýrarbr. og
Sléttuveg. Mér finnast þessi
gatnamót hafa frá upphafi veriö
dæmigerð um, hvernig ekki á
aö leggja nýja og dýra vegi.
Mikil umferð mætist þama
ekki sízt á annatímum. Myndast
þá raðir bifreiða, sem bíða fær
is að fara yfir eða inn á Kringilu
mýrarbrautina af Sléttuvegin-
um. Ökumenn tefla stundum á
tæpasta vaðið ti'l að nota sét
þær smugur, sem myndast, til
að smeygja sér inn á brautina-
Er það oft með óútreiknanleg-
um tiiburðum, enda er þarna
athafnasvæði litið og engin grein
arskil á götunni, sem benda til
þess hvernig aka á.
Eftir að hafa orðið áhorfandi
að alvarlegu slvsi í annað sinn
á þessum gatnamótum, get ég
ekkj orða bundizt. Ég mælist til
þess viö gatnageröarmenn, að
þeir endurbæti þessi gatnamót.
Á sínum tíma brást rafmagns
veitan skjótt við gagnrýni á
götulýsinguna þarna, og eins og
betri götulýsing dresur úr slysa
hættunni, þá munu greiðfærari
gatnamót áreiðanlega einnig
draga úr sömu hættunni. Kostn
aðurinn af framkvæmdunum
mun endurgjaldast í færri slys-
um.
— En ég vil ekki stinga niður
penna og skrifa um Kringlumýr
arbrautina án þess að ég víki
að viðvörunum lögreglun: r ti'l
vegfarenda, þegar hún í gegn-
um útvarpið vekur athygli á við
sjárverðum akstursskilyröum
vegna veöurs. Það finnst mér
vel gert, enda ekki var.j " -c á,
eins og veðráttan hér leiðir af
sér, síbreytileg akstursskil-’rði,
jafnvel á einura og sama sólar-
hringnum. Það bvrft.i að brOna
fyrir mönnum gangandi sem
akandi, að gá íil veðurs i upp-
hafi ferða sinna.“
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15