Vísir - 15.04.1971, Síða 9
CfSIR . Fimmtudagur 15. apríl 1971,
ellefu... eitthvað.. eða?
Hve margir muna númerin 11100 og 11166?
Hvaöa símanúmer er hjá
slökkviliðinu eða hjá lögregl-
unni?
— Staddur inni í símaklefa að
næturlagi og neyðin steðjar að
.. .búið er auðvitað að stela
simaskránni og 03 svarar ekki
eftir miðnætti . hvernig ætlaröu
að fara að, ef þú manst
ekki þessi neyðarnúmer?
Þú getur svo sem bjargað þér.
Hringt í fyrstu símanúmerin sem
þér koma í hug, og vonaö að
þér takist að vekja fólk upp um
hánótt. Og þegar loks í annarri
eða þriðju tilraun einhver grút-
syfjuð manneskja kernur í sím-
ann, getur þú varið næstu mín
útunum í að skýra út fyrir
henni, hvers vegna hún er vakin
upp um þetta leyti nætur, reynt
að fúMvissa hana um, að þctta
sé ekkj einhver fyllirútur eða
ugluspegill, og síðan beöið hana
að fletta í símaskránni og finna
símanúmerið hjá lögreglunni eða
slökkviliðinu — ef hún er ekki
þá búin að hengja upp sfmtól-
ið og slíta símtalinu fyrir löngu.
Nú, ef hún hefur skeilt á, get-
urðu bara hringt í næsta númer
og svo koÉ af kolli.
En hcað er þá langur timi
farinn til spillis? — Er þá ekki
allt oröið um seinan?
11100 — slökkvi'liðiö — og
11166 — lögreglan. Þetta er
þægileg tölusamstæða aö muna
fyrir Reykvíkinga. En það líður
samt varla sá dagur, að ekki sé
hringt í dagblaðið Vísi, sem hef
ur símann 11660, eða Flugfélag
íslands, sem hefur símann 16600
og spurt, hvort þetta sé ekki hjá
lögreglunni.
Svör nokkurra vegfarenda,
sem stöðvaðir voru á götunni
af biaðamanni Vfsis og spurðir,
hver væru símanúmer lögreglu
og slöikkviliðs, sem hringt væri
til í neyðartilvikum, gefa vís-
bendingu um, hvemig minni
Reykvíkinga er í þessu dæmi.
Einn hafði bæði símanúmerin á
takteinum, en hinum tókst að
grufla upp símanúmer aðalvarð
stöðvar lögreglunnar, og voru
þó ekki alltof vissir f sinni sök.
Hins vegar höföu þeir ekki hug
boð um neyðarsfma slökkviliðs-
ins.
Það þarf ekki að tíunda mikil
vægi þess, að nevðarkall berist
réttum aðilum ’i tæka tíð þegar
bruni er annars vegar, eða ef
slys ber að höndum og koma
þarf slösuðum manni hið fyrsta
til læknishjálpar. Hver mínútan
getur skipt sköpum.
„Enda þekki ég til þess, að er
Iendis er þetta næstum inn-
prentað í börnin. Hvert manns-
bam veit, hvaða neyðamúmer
ber að hringja í“, sagöi Rúnar
Bjarnason slökkviliösstjóri þeg-
ar blaðamaöur Vísis færöi þetta
í tal við hann.
,Hafa menn elcki hugleitt að
fá fyrir slökkvi'liðið eitthvert
símanúmer sem auðveldara væri
að muna en 11100?“
„Við höfum leitað eftir þvi
bæði fyrirrennarar mfnir og ég
að fá t.d. tveggja stafa númer,
en þaö er talið vera vandkvæð
um bundiö. Við vitum vel, að
fjöldi manns man ekki númerið
11100, og þó tel ég, að viö séum
nokkuð vel settir með það núm-
er af þeim, sem við áttum völ á.
Lítum bara á bve auðvelt er
að hringja það í myrkri. Þrisvar
sinnum er skffunni snúið í fyrsta
gati og tvisvar sinnum f síðasta
gati. Það ætti ekki að vera erfitt
að muna þetta.
Annars hafa fiöl-nvðlarnir gert
mikið að þvi að kynna þessi
símanúmer og sum dagblaðanna
birta þau daglega í þjónustudálk
um sínurn." sagöi Rúnar slökkvi
liðsstjóri.'
Það kann að vera hugsanleg
skýring á þvf, hve fáir muna
þessa auöveldu tölu, að þeir vita
sig geta gengið að þessum núm
erum visum annaðhvort fremst
í símaskránni eða í dagblöðun-
um.
Símanúmer lögreglunnar
11166 virðist tolla betur f fólki,
og kemur greinilega fram við
það íit5 slys og eldsvoðar eru
oftar tilkynnt fvrst á lögreglu-
stööina , sem kemur síðan skila-
boðum til slökkviliðs og sjú-kra
flutnii ijjamanm.
„Það .kann að vera vegna þess,
hve len gi við höfum haft þetta
númer, en við leggjum svo mikla
áherzlui á, að þetta númer sé
fólki rmertækt, að við völdum
nýju va-.rðstöðinni í Árbæ síma-
númer sem líkast þessu — nefni
lega 81166,“ sagði Sigurjón Sig
urðsson,. lögregiustjóri, þegar
blaðamalður minntist á þetta við
hann.
„Við höfum hugleitt það, að
það þyrifli að vera mjög einfalt
símanúnier að muna, sem við
fengjum fyrir okkar gamla, ef
við breyttum til. Það yrði þá að
vera á borð við neyðarnúmer
lögreglur.uiar f London, sem hef
ur númerið 999, eða eitthvað,
sem jafnaiuðvelt yrði að muna.
— Það hefur stundum komið
til tals að fá tveggja stafa núm
er, en ekkert orðið úr því. Þó
höfum viS ekki varpað þessari
hugmynd lalveg frá okkur, en
geymum htma til frekari athug-
unar, einkamlega með tflEti til
þeirra breyt:inga, sem verða, þeg
ar lögreglan! flytur aðaistöðvam
ar í nýju lögreglustöðina við
Snorrabraut."
Lundúnaibúar hringja ekki í
999 aðeins trftir lögregluaðstoð,
heldur einnig: vegna hvers konar
neyðar, eldsvoða eða slysa. Aíl-
ar tilkynningar berast í eitt og
sama númerið, en þaðan er þeim
skilað ti-1 rétltra aöila. Sambæri
legur neyðarsími í Kaupmanna-
höfn er 000. — Sumum he#ur
komið í hug, að númer eins og
þau, sem bæjarsíminn hefur fyr-
ir t.d. bilanatfl'kynningar, upplýs
ingar, talsamhand við út-lönd —
númer eins oj; 05, 03, 09 væru
blátt áfram sniðin til nota við
neyðarvarnir. Varla getur auð-
veldari tölur atð muna og ekki
virðist eins brýmt að hafa á tak
teinum það ntSmer, seip hringja
skal í, þegar mienn vilja fá tal-
^samþ'áhid'Við'iáiiÖhÖ á'móts við
þegar í húfi eru líf og limir
fólks.
„Þetta hefur oftar en einu
sinni borið á górna. Tveggja
stafa númerin eru upptekin í
þágu símans og komin slfk hefð
á notkun þeirra, að illt yrði að
raska því. Enda ekkert minna
fyrirtæ-ki að brejda því, heldur
en bæta t.d. þrfiggja stafa talna
samstæðu inn í kerfið, eins og
fram hafa koiniö hugmvndir
um,“ sagði bæjarsímstjórinn,
Bjarni Forberg, við blaðamann
Vísis.
„Hugmyndin um að bæta inn
3ja stafa númeruim, sem væru
einföld og auðveld til minnis,
hefur þó hingað til ekki þótt
árennileg vegna mikils kostnað
ar, sem þvl mundi fylgja. Það
þyrfti sérstakan umbúnað og
sérstök tæki til.
Mig rekur reynd'ar minni til
þess, að lögreglunni og Slökkvi
liðinu stóð til boöa fyrir svona
15 árum að fá sdika númera-
röð og hefðu þá oröið að taka
undir það tuttugu línur. En það
þótti vfst í mikið ráöizt og af
því varð ekki.
— Annars sér maöur það, ef
flett er í símaskrám næstu ná-
grannalanda okkar, að þar þekkj
ast í svona tilvikusm 5 og 6
stafa númer. Mér kemur í hug
t.d. Osló. Þar virðast menn ekki
leggja mikla áherzlu á þetta.
Hins vegar þarf elaki að orð-
lengja þaö, að biejarsíminn
mundi að sjálfsögðu akki standa
í vegi fyrir því, að slökkviliðið
eða lögreglan fengi t.d. þriggja
stafa númer, ef í i&Yvöru yrði
farið fram á slíkt," saigði bæiar
símstjórinn að endiiaRu. —GP
vtom
Vitið þér, hvaða síma-
númer er hjá lögreglu og
slökkviliði Reykjavíkur?
Ólafur Hákanson, lfffræði-
nemi: — Ég veit símanúmerið
hjá lögreglunni, það hef ég
þurft aö hringja í. Hins vegar
hef ég aldrei þurft að hringja
£ slökkviliðiö og þyrfti að fletta
upp á því númeri, ef til þess
kæmi.
Stefán Karisson, skólastrákur:
— Er ekkj löggan með númerið
einn, ellefu eitthvað? Mig minn-
ir að það endi á 60 eða 66, þó
er ég ekki viss. Símanúmer
slökkviliðsins get ég enn síður
farið rétt með. Ég hef svo lítið
þurift að hringja í þessi númer.
Kolbrún Dexter, skrifstofu-
stúlka hjá Félagi ísl. stórkaup-
manna: — Ég veit að númer
lögreglunnar er 11166, en s’ima-
númeriö hjá slökkviliðinu hef
ég hins vegar aldrei vitaö hvað
er ....
Þorkell Jónasson: — Nei. hvor-
ugt. Hef — sem betur fer —
aldrei þurft að hringja uppi lög-
reglu eða slökkvilið, og vona
að ég eigi aldrei eftir aö þurfa
að gera.
Sigurður Stefánsson, skrifstofu-
maður hjá Háskólahappdrætt-
inu: — Já, auðvitað, hvernig
spyrjiö þið. Lögreglan hefur
símanúmerið 11(66, en slökkvi-
liðið 11100. Bæjji númerin hafa
fyrir löngu siazt inn í kollinn á
mér án þess að ég gerði bein-
línis nokkuð tj] þess, eða hefði
þurft á þeim að halda.