Vísir - 24.05.1971, Blaðsíða 8

Vísir - 24.05.1971, Blaðsíða 8
b VISIR . Mánudagur 24. maf 1971. VISIR Otgefandi: KeyKtaprenr ní. Framtcvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Rristjánsson Fréttgstjóri: Jón Birgir Pétursson Knsttórí'arfutttrúi: Valdimar H. Jóhannesson Augiysingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Augiýsingwr: Bröttugötu 3b Slmar 15610 11660 Afgreiösla Bröttugötu 3b SVni 11660 Ritstjóri: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 iinur) Askriftargjald kr. 195.00 á mánuði innanlands r lausasölu kr. 12.00 eintakið Prentsmiðia Vfsis — Edda hf Fegrum borgina okkar {^eykvíkingar hafa öll skilyrði til að gera borg sína að hreinustu og snyrtilegustu borg í heimi. Hitaveitan, sem komin er í öll hverfi borgarinnar, veldur því, að andrúmsloftið er hreint og laust við sót. Þá hafa borgaryfirvöld látið leggja malbik á flestar götur, komið víða fyrir snyrtilegum gangstéttum og ræktað ótal bletti. Rykið á götunum er því margfalt minna en áður var. Mikill meirihluti borgarbúa gengur fram í góðri snyrtimennsku. Sumir hafa frá gamalli tíð kapp- kostað að halda húsum sínum og lóðum í sem beztu ástandi, einnig á þeim tíma, er Reykjavík var hálf- gerður gullgrafarabær með malargötum og óhirtum svæðum. En margir fleiri hafa tekið kipp, síðan mal- bikunar-, gangstéttagerðar- og ræktunarherferð borg- arinnar hófst fyrir alvöru fyrir allmögum árum. Það var ánægjulegt að sjá, hvernig hverfi gerbreytt- ust við malbikun gatnanna. Menn fóru skyndilega að hugsa um hús sín og lóðir. Þeir girtu lóðirnar og sléttuðu, komu sér upp grasflötum og fóru að rækta tré, runna og blóm. Þeir óku rusli á haugana og máluðu húsin sín, svo að þau litu út sem ný. Þessi snyrtilegi svipur einkennir nú flest hverfi borgarinn- ar, einkum íbúðahverfin. En innan um ríkir gamli sóðaskapurinn, einkum í hverfum verkstæða og verksmiðja. Dagblaðið Vísir hefur á undanförnum dögum birt fjölda mynda, sem sýna, hvernig ástandið er sums staðar. Þær sýna fjallháa hauga af margs konar ónýtu dóti, vélar- hlutum, hjólbörðum, bílum, timbri og mörgu fleiru. Húsin, sem þessi sóðaskapur er við, eru velflest ómáluð og mörg líta út eins og flutt hafi verið í þau fokhéld. Mótavíramir standa enn fram úr þeim og steypujámin upp úr þeim. Hreinsunardeild Reykjavíkurborgar gefur mönnum á hverju vori tækifæri til að koma lóðum sínum í snyrtilegt horf og áskilur sér rétt, að vissum fresti liðnum, til að fjarlægja ósómann á kostnað eigenda. Sá frestur er nú runninn út á þessu vori og hreinsunarT aðgerðir borgaryfirvalda em hafnar. En það gildir um allar slíkar herferðir, að sóða- skapurinn sækir á að nýju, þegar þeim er lokið. Það er ekki svo lítið, sem fellur til af ónýtum bílahlutum á bflaverkstæðum, svo að dæmi sé tekið. Og á sumum verkstæðum virðist það vera siður að fleygja öllu slíku út undir vegg. Slíkir staðir verða alltaf til skammar, þótt þeir séu við og við hreinsaðir. Á þessu sviði þarf að koma til sögunnar breytt hugarfar. Og sú breyting ætti ekki að vera erfið. Menn þurfa aðeins að vakna til meðvitundar um framkvæmdaleysi sitt og láta síðan hendur standa fram úr ermum. Það, sem hefur tekizt í íbúðahverf- um, ætti einnig að takast í atvinnuhverfum. Vísir skorar á alla, sem hafa orðið aftur úr, að taka nú fil höndum og fegra umhverfi sitt. Þinsmenn erfiðir Nixon f — „nöldurskjóður" hefta framkvæmda- gleði forsetans í bandarískimi bloðum eru menn allt í einu farnir að velta fyrir sér spurningum, sem ekki hafa leitað á þarlenda menn um áraraðir: Hvemig er hægt að búa forsetanum þannig völd í hendur að hann geti gert það sem honum þykir nauðsynlegt á stríðstímum, t. d. ef út brýzt kjarn- orkustyrjöld? Og hvernig er hægt að fá einum forseta því- lík völd í hendur, en viöhalda samt þeim stjórnartaumum sem þingið hefur eða getur haft? Hvernig er hægt að hafa aðstöðu forsetans nægilega sterka, en halda samt eftir að- haldi þingsins, þannig að forsetinn geti ekki gengið ger- samlega framhjá vilja þjóðarinnar, vilja þeirra fulltrúa, sem hún hefir kjörið? önnur spurning leitar á og er sú í tengslum við þær fyrri: Hvernig er hægt að hindra forsetann í að nota það vald, sem hann vissulega verður að hafa í meiriháttar kjarnorkustríði — þegar vilji þjóðarinnar getur verið næsta þokukenndur eða sundraður, eins og þegar þingið er ekki enn komið saman eða getur ekki myndað meirihlutaálit, eins og á sér staö með Víetnamstríðið? Illllllllllí DlSffil Fulbright — hefur löngum velgt forsetum undir uggum. Hann er formaður utanríkismálanefndar Bandaríkjaþings. Tilkoma kjarnorkuvopna og svo útistöður þær sem Banda- r’ikin eiga í fjarlægum heims- álfum hefur gersamlega gert að engu fornar hugmyndir um „jafnvægi á báða bóga‘‘ milli forseta og þings. Einn hlutur í viðbót er það, sem eflt hefur stöðu forsetans gagnvart þingi, en þaö er sjónvarp. Skýrari ákvæði um völd Þessi mál eru nú aftur til umræöu, vegna þess að nokkrir þingmenn hafa enn borið þau upp á þingi, þeir Mansfield. Fulbright, Javits og reyndar fleiri. Vilja þeir reyna að hafa skýr mörk þegar völd forsetans á venjulegum friðartímum eru annars vegar og hins vegar völd þau er hann hefir á alvar- legum ófriðartímum. Viður- kenna þingmennirnir að völdin verði að færast úr binginu og I Hyíta húsið ef um kjarnorku- styrjöld væri að ræða, en vilja hins vegar viðhalda áhrifum þingsins á gerðir forsetans þar fyrir utan og einnig, þótt um sé að ræða styrjaldir, sambæri- legar við ástand það er skapazt hefir vegna Víetnam-stríðsins. Forsetinn einvaldur í hermálum Nú er það viðtekin skoðun, aö þeim Mansfield og Fulbright hafi ekki tekizt öllu betur en þeim báðum forsetunurh, Nixon og Johnson, að ski'greina hver skil skulu vera á valdsviði for- seta eftir ástandi í alþjóðamál- um. . Nixon hefur sagt. að hann telii siálfan sig, forsetann, hafa haft a'lan rétt tii að =enda inn- rásarher til KambódVu, jafnvel án þess að minnast einu orði á Umsjón: Gunnar Gunnarsson. slíkt við þingið. Nú leggja þeir Mansfield og Fulbright hart að Nixon að kalla alla bandarfska hermenn heim frá Vfetnam fyrir árslok 1971, og einnig fækka um helming í hersveitum þeim sem Bandaríkin halda úti yfðs vegar um Evrópu. Það er því enn sprottin upp spuming um vald forseta. Ekki aðeins um hver skuli valdið hafa, heldur öllu fremur hver eigi að stjórna, forsetinn eða þingiö og þá undir hvaöa kring- umstæðum hvor aðili fyrir sig á að halda um stjómartumana. Lincoln blés á þingið Áratugir eru sfðan umræður spruttu um þetta atriði, og það var reyndar talsvert löngu áður en kjarnorkuvopn komu til sög- unnar. Reyndar munu þau árin vera næsta fá V' allri sögu Bandaríkjanna, sem vel hefur farið á með forsetanum og þingi. Vitanlega er það slæmt, því að gagnkvæmt traust, gagn- kvæm virðing hlýtur að vera helzta fbrsenda þess til að for- setinn hafi fullnægjandi völd og þingið fullnægiandi aðstöðu ’tfl’að halda f við hann. " Ef rýnt er í söguna er ljóst, að þingfulltrúar okkar tíma, geta mæta vel við unað, ef miða á við hlutskipti, t.d. þeirra þingmanna sem þingbekki vermdu í forsetatíð Lincolns. Lincoln hafði staðið f borg- arstyrjöld vikum saman áður en hann kallaði þingið til starfa. Hann jós út peningum ri'kisins án þess að leita álits þingsins. Hann beið oft með mikilvægar ákvarðanir eða útgjöld, þar til þingmenn voru farnir í frí, en tók þá til óspil'tra málanna. Þingmenn þeirra tíma voru líka ekk; eins orðvarir þegar rætt var um yfirgang forsetans, og þeir Fu'.bright og Javits eru nú. Margir þelrra álitu að þingið sem stóð meðan borgarastyrjöld- in varði, þ.e. árið 1863, og það var 37. löggjáfarþingið, yrði hið síðasta f allri sögu Bandaríkj- anna. Þingmaður að nafni Wade sagði, að „landið væri á leið ti! helvítis og að sitthvað það sem bar til t'iðinda í frönsku byltingunni var ekkert í saman- buröi við það sem við ættum aö siá hér“. Þótt Fulbright sé stundum orðhvass, þá hefur hann aldrei sagt neitt í líkingu við þetta. Og áfram halda menn að deila um völd forseta og völd þings. Vissulega mun þingmönn- um ekkj takast að beita áhrifum sínum til að koma öllum her- mönnum heim frá Víetntm fyrir áramótin, og heldur ekki mun beim takast að fækka her- mönnum í Fvrópu um helminn fyrir 1. iúlí. en hitt er víst, að forsetinn mun he’dur ekki verða fær um að halda áfram að eigin geðhótta. „Nöldur- sesqir“ eins og Javits. Ful- bright og Mansfield eru nefni- lega forsendan fyrir þv), að eitt- hvert íafnvægi sé á hlutunum milli forseta og Bandarfkia- þings. —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.