Vísir - 14.06.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 14.06.1971, Blaðsíða 1
VISIR öl. áíg. Mánudagur 14. júni 1971. — 131. tbl. „Ég mun biðjast lausnar ' — sagði Jóhann Hafstein — Aðstaða Sjálfstaeðisflokksins nær óbreytt 1 kosningunum hefur stjómin misst meirihluta sinn á alþingi og af því leiðir að ég mun nú biðjast lausnar fyrir mig og mitt ráðuneyti, sagði Jóhann Haf- stein, forsætisráðherra, þegar Vísir ræddi við hann í morgun, þegar úrslit urðu kunn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur enn sem fyrr sýnt, að hann á aö fagna SIGUR HANNIBAUSTA HRUN ALÞÝÐUFLOKKS mikiu og traustu kjósendafylgi og er aðstaða hans naerri óbreytt frá síðustu alþingiskosningum. Hann fær,nú sama fjölda kjördæmiskjör- inna þingmanna, 20, en nokkrum tugum atkvæða munar til aö hann nái sömu tölu upþbótarþingsæta og í síðustu kosningum. Hann fær nú tvö uppbótarþingsæti, en hafði þrjú. F-listinn er sigurvegarinn í þess- ari kosningu og G-listinn hefur unnið áberandi sigur. Ég vil að lokum þakka hinum mikla kjósendafjölda sem veitti okkur brautargengi í kosningun- um. Ennfremur þakka ég öllum þeim fjölda áhugafólks. sem vann að kosningunum fyrir flokkinn, sagði Jóhann Hafstein. — VJ Sýátfsfæðisflokkurinn héft nokkurn veginn Mutfalíi sínu — Híutfall Framsóknar- ffokksins minnkaði — Alhýðubandalagið stóðst áhlaup Hannibalista ■ Ríkisstjómin missti meirihluta sinn í kosningunum í gær og mun segja af sér í dag. Ástæðan fyrir tapi hennar er sú, að Hannbalistar reyttu óhemjulegt fylgi af Alþýðuflokkn- um. Þeir fengu fimm þingmenn, mest á kostnað Alþýðuflokks- ins, sem tapaði þriðjungi fylgis síns og þriðjungi þingsæta Hinir Jnír gömlu flokkamir töpuðu litlu sem engu. Sjálfstæð- isflokkurinn minnst, síðan Alþýðubandalagið og mest Fram- sóknarflokkurinn. Raunar stendur Sjálfstæðisflokkurinn nokkum veginn í stað, og Alþýðubandalagið má einnig vel við una, þar sem það hélt fylgi sínu, þrátt fyrir tilkomu flokks Hannibalista. „Fimm sekúndur, áður en kjörstað verður Iokað“, tilkynnti rödd í hátalaranum um leið og þessi maður hljóp upp tröppurnar inn í Austurbæjarskólann. Rétt á eftir lokaði lögregluþjónn dyrunum á hæla honum. IÐEI‘LDARIjRSLIT Atkvæði þingm % A-listi Alþýðufl. 10761 (15059) 6 ( 9) 10,3 (15,7) B-listi Framsóknarfl. 26412 (20729) 17 (18) 25,3 (28,1) D-listi Sjálfstæðisfi. 37724 (36036) 22 (23) 36,2 (37,5) F-listi Frjálsl. 9414 5 9,0 G-listi Alþýðub. 17910 (16923) 10 (10) 17,2 (17,0) O-listi Framboðsfl. 2058 0 1,9 (Ótalin 670—675 atkvæði á Suðurl.) Breytingar í einstökum kjör- dæmum voru þaar helztar, að Samtök frjálslyndra og vinstri manna fengu þrjá kjördæma- kjörna þingmenn og tvö sæti af Alþýðuflokki og eitt af Alþýðu- bandalagi. Mesta athygli vakti sigur Hannibals í Vestfjarða- kjördæmi og félaga hans Björns Jónssonar í Norðurl’andskjör- dæmi eystra. Hannibal geröi sér lítiö fyrir og fékk í kjördæmi sínu svipað atkvæðamagn og Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag höfðu haft til samans í fyrri kosningum. Svo mikil var ferðin á Hannibal, að 2. maðurinn á lista hans, Karvel Pálmason, flaut með honum inn á þing. Þarna féll Alþýðuflokksmaður inn Birgir Finnsson. Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur urðu nú nær jafnir en fengu tvo kjöma eins og áður. Björn Jónsson fékk f Norður- landskjördæmi eystra litlu færri atkvæði en hann hafði fengið sem frambjóöandi Alþýðubanda- lagsins árið 1967. Hann vann sætið af fyrrverandi flokki sín- um, Alþýðubandalagmn, það sæti, er hann hafði sjálfur hald- ið fyrir þann flokk árið 19'67. Framsókn fékk áfram þrjá og Sjálfstæðisflokkur tvo. Jóns Árnason (Ab) felldi Benedikt Gröndal (A) í Vestur- landskjördæmi. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur fengu tvo hvor. Eggert G. Þorsteinsson, ráð- herra missti þingsæti sitt i Reykjavík til Magnúsar Torfa Ólafssonar og Hannibalista. Ný framboð drógu eitthvert fylgi frá öðrum flokkum, og Alþýðu- bandalaginu tókst að komast í annað sætið í Reykjavík. Sjálf- stæðisflokkurinn fékk sem fyrr sex af tólf þingmönnum höfuð- borgarinnar, Alþýðubandalag og Framsókn tvo hvor, og Alþýðu- flokkur og Samtök frjálslyndra eitt hvor. Framboðsflokkurinn fékk þrjú prósent atkvæða, en engan mann. í Norðurlandskjördæmi vestra tókst Ragnari Amalds, for- manni AlþýÖubandalagsins, að Uppbótar- þingsæti i Alþýðuflokkurinn fær fjóra upp- bótarþingmenn, Alþýðubandalagið þrjá Samtök frjálslyndra og vinstri manna tvo og Sjálfstæðisflokkur- in tvo. Uppbótarmenn verða þessir, eftir því sem næst verður komizt: 1. Eggert G. Þorsteinsson, Al- þýðufl., Reykjavík. 2. Pétur Pétursson, Alþfl., Norður Iandi vestra. 3. Bjarni Guðnason, Samtök frjálslyndra, Reykjavík. 4. Svava Jakobsdóttir, Alþýðu- bandalag Reykjavík. 5. Stefán Gunnlaugsson, Alþfl., Reykjanesi. 6. Helgi Seljan, Alþýðubandalag, Austurlandi. 7. Karvel Pálmason, Samt. frjáls- lyndra, Vestfjörðum. 8. Benedikt Gröndal, Alþfl., Vest- urlandi. 9. Ellert B. Schram, Sjálfst.fl., Reykjavík. 10. Geir Gunnarsson, Alþýöu- bandalag, Reykjanesi. 11. Ólafur G. Einarsson, Sjálfst.fl., Reykjanesi. Næstur þv) að ná uppbótarþing- sæti er Sjálfstæðisflokkurinn, yrði það Halldór Blöndai í Norðurlandi eystra. Eðlilegast að Alþýðuflokkur fari í stjórnarandstöðu — segir Birgir Finnsson, „Maöur getur ékki mikið sagt eftir þessi vonbrigði", sagði Birgir Finnsson, efsti maður á lista Al- þýðuflokksins í Vestfjarðakjördæmi þegar Vísir hafði tal af honum klukkan 8 f morgun. „Hannibal á mikið fylgi hér á Vestfjörðum. Hann er gamall alþýðuflokksmaður og margir vinir hans og kunningjar hafa kosið hann þess vegna, einnig bað hann þá um að kjósa sig í síðasta sinn. sem hann býður sig fram. Hannibal er oröinn 6S ára“. sem féll fyrir Hannibal — Nú koma Frjálslyndir út sem sigurvegarar um allt land — þarf ekki Alþýðuflokkurinn að endur- skoða sfna stefnu eftir þessar kosn ingar? ,,Hann hlýtur að gera það og það er ævinlega hætta á að flokkur eins og Alþýðuflokkurinn missi fylgi við að vera svo lengi í samstarfi við stóran flokk eins og Sjálfstæðis- flokkinn, og sú hefur orðið raunin á nú“ — Hvað tekur við eftir kosning- arnar? „Því get ég ekki svarað, þetta er nú allt svo nýskeð. Mér þykir eðli- legast að Alþýðuflokkurinn verði í stjörnarandstöðu, en hverjir mynda stjórn er ekki enn hægt að segja til um. .Stjórnarandstaðan sigraði í þessum kosningum og eðli- legast væri að Framsókn, Alþýðu- bandalag og Frjálslyndir mynduðu stjórn saman, en méT sýnist nú að á því séu litlar líkur“. — GG Kosningarfréítir á bls 2, 8, 9, 10 og 16

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.