Vísir - 23.06.1971, Qupperneq 2
Romy Schneider
á fnngelsisdóm
yfir höfði sér
Þetta er fyrsta heímili
flóttamannanna
í apríl síðastliðnum efndu.
franskar konur til mótmæla gegn*
fóstureyðingarlögunum með því*
að gefa út sfcjal, sem 343 þjóð-J
kunnar konur undirrituðu, en þar«
var skýrt frá þvi, að þær hefðuj
látið eyða fóstri á ólöglegan hátt.J'
Þýzfcar konur léku sama leik- •
inn ekki alls fyrir löngu, en full-J
trúar „réttvfsinnar" tóku það mál»
mjög föstum tökum, Mál verðurj
höfðað gegn þeim konum, semj
undirrituðu yifirlýsinguna, svo aðo
t. d. Romy Schneider, kvikmyndaj
leikkonan fræga, á fimm ára fang-*
elsisdóm yfir höfði sér, ef húnj
snýr til Þýzkalands. Hún hefurj
það þó ekki I huga í svipinn, þvío
hún dvelst í Frakklandi. Hún hef J
ur ekkert látið hafa eftir sér um«
málið: „Ég er í fríi og mig langar J
til að eignast annað barn,“ segirj
hún •
Þama á fólkið að búa fyrst um
sinn. Þetta eru flóttamenn frá
Austur-Pakistan, sem komið hafa
til flóttamannabúða í námunda
viö Kalkútta í Indlandi.
Þar finna þeir ekkj annað skýli
en nokkur steinrör, sem síðar
verða notuð til ræsagerðar, og
þar hreiðra þeir um sig.
í'rörunum búa þeir Síðan, unz
þeir sjá sér fært að eignast ein-
hvem annan samastað, en það
verður varla alveg á næstunni, því
að aðalhöfuðverkur indverskra
ráðamanna þessa stundina er
hvemig þeir eigi að fara að því aö
halda lífi í þeim flóttamanna-
skara, sem streymir frá Austur-
Pakistan.
Twiggy þrælar myrkranna á milli til að verða
kvikmyndadís
Twiggy — enska tízkudaman,
sem 'lítur út eins og pípuhreinsari
— er nú að reyna að komast aft-
ur upp á frægöartindinn með við-
komu í kvikmyndum.
Það er lítið að gera hjá þessari
ungu beinasleggju í sambandi viö
tízkusýningar þessa stundina, svo
að hún ver tímanum til að undir-
búa sig sem bezt fyrir hlutverk
sitt í myndinni „The Boy Friend".
Hún púlar og puðar myrkranna
á milli við að læra að dansa og
syngja og ýmislegt fleira, sem er
nauðsynlegt fyrir hana að kunna, J
þvi að hún mun ekki hafa kunn-*
aö ýkja margt, þegar hún tók til J
við kvikmyndaleikinn. •
Það er vinur hetrnar og um- J
boðsmaður, Jústfn de Vdlleneuve, J
sem útvegaði henni kvikmynda- •
hlutverkið, og það var lfka hann J
sem gerði hana fræga sem tízku- J
sýningardömu. •
„Þetta er gasalega erfitt," segir J
Twiggy. „Ég vinn so mikið, að •
ég hef ekki keypt mér kjól í þrjá •
mánuði." Z
Hitler, Eva Braun
og rauði sófinn
Eva Braun, ástkona Hitlers,
hefur aldrei verið talin sérlega
fögur kona ásýndum, og menn
hafa löngum velt því fyrir sér,
hvað Adolf Hitler sá við hana,
en hann hefði víst getað valið úr
mörgum konum.
Engu aö síður mun nafn Evu
Braun geymast um ókomna tíð
við hlið nafna fagurra kvenna,
sem áttu sér valdamikla elskhuga,
Lola Montez, Madame Pompadour
Nell Gwyn og Du Barry.
Nýlega birti Lundúnablaðið
„The Sunday Times“ myndir úr
einkaaibúmi Evu sálugu, og þar
e^ fátt eitt að finna/ sem gæti
verið svarið við leyndarmáli henn-
ar um, hvernig hún töfraði Hitler.
f þessu blaði er sagt frá Evu
Braun, og sagt, að henni hafi
hundleiðzt stjórnmálaruglið í
Hitler sínum. Einnig er þess getið,
að hún hafi haft áhyggjur af út-
liti sínu og jafnvel gert tilraun
til að líta meira aðlaðandi út með
því að troða vasaklútum í brjósta
höld sín.
Eva kallaði Hitler „gamla herra
manninn“, og það var ekki fyrr
en þremur árum eftir að þau hitt-
ust, sem þau samrekktu á sama
rauða sófanum og Hitler hafði
boðið þeim Neville Chamberlain,
forsætisráðherra Breta, og Musso-
lini, ítalska einræðisherranum,
aö tylla sér á til skrafs og ráða-
gerða, þegar þeir heimsóttu hann.
Eva á eitt sinn að hafa sagt:
„Það er svei mér gott, að þeir
vita ekki, hvað gerðist á þessum
sófa“.
1