Vísir - 23.06.1971, Qupperneq 5
IKt S IR. Miðvikudagur 23. júni 1971,
5
/
Handknattleiksmenn
okkar hafa lítið verið í
sviðsljósinu síðustu vik-
urnar eða allt frá því ís-
landsmótinu lauk í vor.
En í gærkvöldi kom
landsliðshópurinn sam:
an á æfingu í Laugardals
höllinni — hinni fyrstu
af fimm næstu kvöldin.
Landsliðsnefnd valdi fyrir
nokkru 27 menn til æfinga með
landsliðinu undir stjórn Hilmars
Björnssonar, landsliðsþjálfara.
Fjórtán þeirra mættu í gær —
hinir þrettán höfðu nær allir
lögleg forföll, nokkrir erlendis,
aðrir meiddir. Æfingin stóð frá
kl. átta til tíu og þegar við lit-
um inn var allt í fullum gangi
— og greinilegt, að leikmenn
nutu þess að koma við knött-
inn á ný.
Þar voru einnig staddir for-
maður landsliðsnefndar Jón Er-
lendsson og Hjörleifur Þórðar-
son og við spurðum Hjörleif um
æfingaskrána.
— Þaö veröur æft núna fimm
kvöld í röð og þessar æfingar
eru liður ’i undirbúningi okkar
fyrir þátttöku í undankeppni
Ólympíuleikannna næsta ár.
Eftir þessar fimm æfingar
verður hlé í mánuð hvað lands-
liðsæfingar snertir — en leik-
mennirnir flestir munu æfa með
félögum sínum þann tíma. Nú
síðast í júlí kemur svo hópur-
inn saman til æfinga á ný,
Nokkrir erlendis, sem voru
valdir?
— Já, nokkrir eru í sumarfríi
og að minnsta kosti þrír við
nám og vinnu. Jón H. Magnús-
son er V Sviþjóð og æfir mjög
vel — og þeir Einar Magnússon
og Birgir Finnbogason starfa i
Þýzkalandi, jafnframt þvi, sem
þeir nema þar.
— Og hvenær verður fyrsti
landsleikurinn á næsta keppnis-
tfmabili?
— Fyrsti iandsiiðsleikurinn
verður hér í Laugardalshöll-
inni 31. nóvember viö hið
geysisterka lið Júgöslava. Liðin
mætast svo aftur hinn 1. des-
ember á sama stað.
En þessar æfingar eru fyrst
og fremst vegna Ólympíuleik-
anna?
— Já, það er rétt. 1 febrúar
tökum við þátt í undankeppni,
sem háð verður á Spáni, Við
leikum í riðli með Noregi,
Belgíu og Finnlandi, en 16
þjóðir í allt taka þátt í þessari
keppni og fimm þeirra komast
á Óiympiuleikana' V Munchen
næsta sumar. Elleíu þjóðir hafa
sem sagt unnið sér rétt að keppa
þar ' — til dæmis átta efstu
þjóðirnar í síöustu heimsmeist-
arakeppni, þeirri, sem var í
Frakklandi. Þar munaði litlu að
ísland næði sætj — var nr.
níu. Á Spánj verður keppt í
fjórum riðlum — fjórar þjóðir
í hverjum riðli. Takist íslenzka
iandsiiðinu að vinna leiki sína
í undankeppninni þyrfti það
ekki að vinna nema einn leik
í milliriðli til að komast 1 úr-
slitakeppnina í Múnchen. Þetta
verður því spennandi, og Hand-
knattieikssamband íslands er
ákveðið í, að allur undirbúning-
ur fyrir þessa keppnj verði í
sem bezta lagi,
Og eftir æíingunni í gær-
kvöldi í Laugardalshöllinni að
dæma ætti það að vera. - hsím.
Það voru ýmis atriði æfð á landsliðsæfingunni f gærkvöldi. A myndunum hér að ofan er vörnin í sviðsljósinu — sóknarleik-
menn stökkva upp og tveir varnarlekimenn reyna að verjast. Ljósm. BB.
Kennslustund þýzkru í Osló
— Vestur - Þjóðverjar unnu Norðmenn 7 -1 i gærkvöldi
Vestur-þýzka iandsliöið í knatt-
spymu lék sér að því norska á
Ulleval-leikvanginum í Osló í gær-
kvöldi og sigraði með 7—1 eftir
að hafa liaft yfir 3—0 í hálfleik.
Síðan skoraði þýzka liðið fjögur
mörk í síðari hálfleik áður en hið
norska skoraði sitt eina mark.
Yfir 22 þúsund áhorfendur
horí'ðu á þennan sýningarleik
þýzkra. Völlurinn var blautur eftir
ihiklar rigningar og á þann hátt
kom miklu meiri tækni Þjóðverja
betur í ljós. Það var eftir 13 mín.
sem fyrsta markið var skorað.
Hinir þekktu leikmenn Þjóðverja
Helmuth Overath, fyrirliöi og
Siegfried Held léku þá saman og
Overath sendi knöttinn í markiö.
Annað markið var skorað nokkrum
mín, síöar og var markakóngurinn
Gerd Mtiller þar að verki — og
þriöja mark hálfleiksins skoraði
Franz Beckenbauer á 36. mín.
beint úr frísparki. Þeir voru þvi at-
hafnasamir í hálfleiknum þessir
frægustu leikmenn Þýzkalands.
Múller sem byrjaði að skora — '
fjórða mark leiksins eftir 3 min.
og fjórum mín. síðar jók hann töl-
una í 5—0. Held var maðurinn bak
við flest markanna og um miðjan
hálfleikinn tók han„ sig til sjálfur
og skoraði sjötta markið, Þegar 5
min. voru eftir af leiknum skoraði
Gunther Netzer sjöunda markið.
Þjóðverjum fannst þá sennilega
nóg komið — Harald Sunde sendi
knöttinn í mark Þjóðverja rétt á
eftir, en það var dæmt af vegna
rangstöðu, en á 42. mín. tókst Odd
Iversen að skora og það var eina
mark Noregs í leiknum,
Þýzka liöið sýndi oft srilldarleik,
sem norska liöið —- sem var næst-
um eins og gegn Islandi ’i Bergen
— átti ekkert svar við.
Breiðablik - KR
onnað kvöld
í kvöld átti að fara fram ij Mela-
vellinum leikur í 1. deild milli
Breiðabliks og KR — en leiknum
hefur verið frestað um einn dag.
Hann verður sem sagt leikinn á
fimmtudagskvöld á Melavellinum
og hefst kl. 8.30. Liðin skipa sem
kunnugt er neðsta sætið i keppn-
inni ásamt Akumesingum — en
þarna er tækifæri til að komast
af botninum.
Hljóp á
13 sek
I gær hófst meistaramót Reykja-
víkur í frjálsum fþróttum meðal
yngra fólks á Melavellinum. 1 100
m. hlaupi í meyjaflokki hljóp Sig-
rún Sveinsdóttir, Á, á 13.0 sek.,
sem er bezti timi á vegalengdinni
hér í sumar. Athyglisverður ár-
angur náðist i nokkrum greinum,
en mótið heldur áfram á sama stað
í kvöld og verður þá keppt i fjöl-
mörgum greinum. Nánar verður
sagt frá mótinu í blaðinu á morgun.
Norðurlanda-
met í 10 km
I landskeppni Finna og Rúmena
í gærkvöldi sigraði Seppo Tuo-
minen í 10.000 m. hlaupi og setti
nýtt Norðurlandamet — hljóp
vegalengdina á 28:17.2 mín., sem
er frábær árangur. Eftir fyrri dag-
inn stóð 54—50 fyrir Finnland.
Jafnframt var einnig landskeppni
við Eistland og þar höfðu Finnar
einnig yfirhöndina, 63-41,
Atvinnumanna
lið hjá Dönum
Danir mæta Þjóðverjum í iands-
leik í knattspyrnu 30. júní og hafa
valið lið sitt. Allt atvinnumenn
nema einn og er það þannig skipað:
Erik Lykke, Morton, Johnny Han-
sen, Bayern Múnchen, Mogens Berg,
B-1909, Preben Arentoft, New-
castle, Flemming Pedersen, KB,
Ole Björnmose, Hamborg SV,
Jörgen Christensen, Sparta,
Kresten Bjerre, Racing White,
Finn Laudrup, Brönshöj, Bent
Jensen, Bordeaux og Ulrik Le
Fevre, Borussia.
Gerd Múllcr skoraði þriú ar
mörkuin Vestur-Þýzkalands.