Vísir - 23.06.1971, Qupperneq 6
6
VISIR. Miðvikudagur 23. júní 1971,
Jónas Gubmundsson, stýrimaður:
ER ELUHÚSIÐ FYRIR
SJÓMENN BARA PLAP
VT'iö göngum hægt svo hann geti
" fylgzt með og vorið andar í
grasnálinni og í liljunum. Við erum
öll mjög döpur, næstum eins og
þetta sé jaröarför eða eitthvað sér-
lega sorglegt, því vorið er svo
fjarlægt í dag þrátt fyrir þang-
lyktina og sönginn í trjánum. Við
gengum hægt, því hann átti örð-
ugt með gang, mjaðmakringlan
brotin, líka öxlin og guð veit hvaö.
Svona koma sjómenn oift úr stóru
feröinni sinni, siglingunni miklu,
sem á eyðublöðunum er kölluð
starfsferill. Héma endar þá ferðin,
sem hófst i fyrra stríöinu
fyrir framan sótuga kabyssu
og stóra fötu til að gubba 5,
norður hana Faxabugt, síðan vagg-
andi göngulag í höfnunum fyrir
norðan, innan um skít, hreistur og
sild, þar sem tekinn var skakfiskur
fyrir peninga. Þá voru mikil sól-
skin á íslandi og loftið angaði af
grút og svefnjurt og allt var svo
friðsælt, þrátt fyrir fjarlægar
dmnur frá skotgröfunum á megin-
landinu. Þetta var fjar’ægt stríð,
fjarlægt eins og dagurinn í dag, frá
reiðarslaginu um daginn. — Skip
fór á hiiðina í svörtu myrkri, svo
var það búið og hann lá á erlendu
sjúkrahúsi, og peningarnir, fáeinir
markseðlar voru hengdir á snúm
til þerris eins og fötin, svo var
allt í einu komið vor aftur, og lilj-
urnar að vakna á elliheimilinu i ann
að sinn, því hann svaf næstumár.og
þær teygja fíngérðar bamshendur
sínar út í sumarið. Gott að hafa
þær fyrir framán kjallaragluggann
sinn i ferðalok.
TVEIR SJÓMENN
í KJALLARA.
Kjallari. Tveir sjómenn liggja
upp í loft og láta tímann fjara út.
Glugginn er efst við loftið og
gluggakistan byrjar upp við höku,
en samt er vistlegt þama inni og
öxulþungaútvarpið er stillt lágt.
Ekki af því að þeir heyri svo vel,
heldur er ekki lengur bætandi á
þekkingu þeirra i féþyngd, dilka-
framgöngu eða öxulþunga á fjall-
vegum, að ekki sé minnzt á loðnu-
göngumar og allt það. Þeir hlusta
heldur á fótatakið í sallanum
fyrir utan, Fótatak þar sem menn
lyfta ekki iiinni í skrefunum,
heldur renna sólanum eftir harp-
aðri mölinni l’ika eftir pákulegu
fótataki gangastúlkunnar, sem var
börnuð í nótt, eöa þeir nema dmn-
ur þeirra sem á sunnudögum heim-
sækja gamalmennasafnið með börn-
unum sínum, sem læra senn um
lifið og dauðann, og þeim er það
ijóst eins og þér, að íslendingar
kunna ekki lengur að deyja, fremur
en að lifa. Áður dóu menn bak við
stein, ellegar niöur um is, ef það
var ekki vaðið eftir þeim í flæðar-
málinu og þjeir bornir á kamb með
blóðug vitin upp, en þeir nudduðu
punginn fram í andlátið og hjá
gömlum, blindum konum lærðu
börnin um Ijósið og bækumar, svo
ekki varð hlé á nema þegar fitjað
var upp á prjónana, sem aldrei
námu staðar, nema fyrir nýtt plagg.
Lífsstíllinn á Isiandi rúmar ekki
lengur fólk, sem er oröið að böm-
SENDUM
BÍL.INN
37346
um aftur, og þess vegna reisir
þjóðin eins konar fákshesthús
undir feður sfna og mæður, hesthús
undir óhamingjuna og málið er
leyst.
Kjallari. Tveir sjómenn og
iiljan brosir framan í nálina 1 tún-
inu. Þeir þegja. Samband þeirra er
of náið til að nokkuð sé ósagt
með orðum. I rauninni hata þeir
hvorn annan, hata skjálfandi,
iasburða hreyfingar hvors annars,
hlandlyktina og guð veit hvað;
það er helzt þegar þeir hugsa um
drauminn um ellihúsið fyrir gamla
sjómenn að þeir eru sáttir, þótt í
rauninni séu þeir ósammála um
flest. Húsi sjómanna er svo gott
sem búið að stela og fylla það með
harmónikuleikurum úr Hvítársíð-
unn; og saumakonum norðan úr
Fljótum; sjómenn eru bara hafðir
niðri í kjallara, vestur í bæ, til að
heyra iljarnar dregnar eftir grús.
ÞJÓÐIN GEFUR
SJÓMÖNNUM ELLIHÚS.
Mörg ár.
Mörg ár eru liðin og það er búið
að halda sjómannadag i mörg ár.
Þaö er víst svolítið óljóst hvemig
það byrjaði allt, en þaö skiptir
ekkj máli, einhverra hluta vegna
mundu menn allt f einu eftir föng-
unum, sem stóðu á sætrjám og nú
voru þeir allt í einu orðnir hetjur
dagsins og þeir gáfu út blað, létu
prenta merki, svo-lék lúðrasveitin
og biskupinn grét, lVka ráðherrann
og fulitrúi, sjómanna, svo yar,
fyillirí á Borginn; um kvöldið og
sjómenn fundu að þeir höfðu eign-
azt nýjan dag og þjóðin fann að
hún hafði eignazt nýja hetju, og
svo var gróði á öllu saman f þokka-
bót. Gróðanum átti að verja til að
búa til elliheimilj fyrir sjó-
menn inni í Laugarási, svo
komu fleiri sjómannadagar, svo
komu orður, svo fleiri orður og
meiri peningar og alltaf varð þjóðin
ánægðarj með Sjómannadaginn og
sjómenn ánægðari með gróðann,
sem verja skyldi í ellihúsiö mikla,
þar sem hvíthæröir sjómenn, iðra-
fullir af sveskjugraut gætu horft
andagtugir út í spælt sólarlagið
vestur undir Jökli, og brátt byrjaði
ellihúsiö mikla að rísa af runni, fór
að skyggja svolítið á VifilsfeTið og
Hengilinn og nú bættist DAS happ
drættið við, og þjóðin lagði þv*i lið
af ofurþunga.
Það er erfitt að skilgreina DAS,
nema það er fyrir löngu orðinn
veigamikill partur af andliti þjóð-
arinnar og hefur hlotið allt að því
sama sess i vitund hennar og
kirkjuhóstinn og handritin, ekki
sVzt þar sem nú er dregiö um tvö
einbýlishús, eins og segir í aug-
lýsingunum, vegna þess að elli-
heimilið hafði ofan á alla fyrri
lukku álpazt til að vinna eigið hús
í eigin happdrætti sem var talin
hálfgerð ofrausn af almættinu, sem
virðist annast húsun á Laugarásn-
um af sérstökum áhuga, sem oft
'aðrar við hreina öivun.
Keyrt er á fullri ferð; risa hús
á svipstundu og eru sjómenn 6-
spart notaðir í auglýsingum þess-
ara sjálfskipuðu framfærsluyfir-
valda, þvf þeir vita að þjóðin ann
sjómönnum sínum þótt þeir séu
oft fullir og slíti niður g’uggatjöld
og gangi með tennumar í vasanum,
samanber undirritaöan, og þvi
finnst öllu fólki sjálfsagt að leggja
fé I kardimommubæinn í Laugar-
ási, sem siómenn, sem ekki á annað
borð drukkna geti átt athvarf f
ellinnj — en hvað svo?
ER VERIÐ AÐ PLATA?
Hús. Stórt ellihús með akkeri
fyrir utan til að minna á mennina
niðri f botni á sjónum og mennina
niðri f kjallara vestur f bæ, þar
sem gluggakistan nær í höku, til aö
minna á einbýlishúsin tvö, minna
á hundrað bíla, minna á allt
mögulega. sem er nauðsynlegt
til að skyggja á Vífilsfellið og
Hengilinn með el’ihúsinu mikla, ‘
með sjúkradeild, bíói og guð veit
hvað. En hvað skyldi svo vera inni
í húsinu? Sjómenn? Nei, ekki
sjómenn, heldur alls konar fólk.
— Þetta er hús hinna útvöldu, hina
útsmognu, en þetta veit enginn og
því heldur þjóðin áfram að hlaupa
undir bagga, því eftir allt saman þá
veit hún ekki um kja’.larana út um
allt, veit ekki að Hrafnista er
sennilega síðasti staðurinn á þess-
ari jörð, þar sem fátækir sjómenn
geta vænzt gistingar. Vitanlega
státar heimilið af nokkrum sjó-
mönnum, svona til að sýnast og
birtir myndir af V blöðunum, en
obbinn er annarrar gerðar. I raun
og veru er mjög erfitt að útskýra
inngöngukerfi Hrafnistu. Það er
öðrum þræði einhvers konar kerfi,
j en mjög dularfullt og leyndardóms-
IfuHt í framkvæmd. Menn virðast
■ ekki geta „sótt um“, því ekki er
! tekið við umsóknum. Engra vott-
I orða um sig’ingatíma er krafizt,
| heldur virðist einhver innblástur
eða fýdd p,ð p/an ráða þyefj^þljóta
náð pg hverjir teljist sjómenn. Með
öðrum orðum minnir þetta helzt
á 'Pá'páiDoM' sálugá', eih'fáeðisfierrá
Haiti, sem meö sérstakri seri-
moníu „gerði“ 19 ára son sinn 21
árs. Þannig virðist hægt að gera
forstjóra tóbaksins og sjálfan
Fjalla-Eyvind að gömlum sjómönn-
um svo eitthvað sé nefnt og hvaða
saumakonu sem er, er hægt að
breyta f einu vetfangi f sjó-
mannsekkju ellegar heimasætu frá
gömlu sjómannaheimili — það er
að segja ef áhugi er fyrir hendi.
Við þessu er kannski ekkert að
segja.
Þeim er guðvelkomið að fylla
húsið af saumakonum, bankaræn-
ingjum og þingmönnum — hverju
sem er, bara ef þeir hætta að beita
gömlum sjómönnum á DAS-krók-
inn. Þetta hús lyktar af káli,
tvinnakeflum og peningum, en
ekki af sjómönnum og fiski. Það
er bara í auglýsingunum sem þjóð-
in fer til sjós.
Þaö er kvöld í vesturbænum. Þeir
sem hafa gluggakistur ofan við
hökuskegg og eru jafnháir gras-
inu, þegar þeir standa uppréttir í
jarðhúsgó’.finu, sjá að vísu ekki
leikspil vorskýjanna, þegar sólin
brennur upp og sundrast f báli
kvöldroðans, því hér er sólargang-
ur talinn í sekúndum á sjálfa Jóns-
messu.
Mér er líka til efs að þeir skeri
upp herör gegn þeim sem misnota
bágindi þeirra og athvarfsleysi til
að byggja yfir al't annað fölk en
þeir segjast vera að byggja yfir —
en er ástandið f raun og veru svona
aumt? Getur enginn stöðvað þessa
hugsjónamisnotkun, alla þessa
hræsni og tvöfeldni? Sem sé að
taka að sér annað tveggja, að ná
ellihúsi sjómanna aftur af sauma-
konunum og byggja það alvöru-
sjómönnum, þar sem siglingatfmi
og aðstæður ráða, eða stöðva öðr-
um kosti þessi niðrandi samskot
,og lotterí sem framin eru f nafni
I sjómanna.
Gangbraut í
Álfheima
íbúi f Vogunum skrifar:
„Hvers vegna í ósköpunum
er ekki sett gangbraut, merkt
Ferðafélagsferðir.
Föstudagskvöld 25/6.
1. Landmannalaugar. Veiðivötn.
2. Eiríksjökull.
Laugardag 26/6.
Þórsmörk.
Sunnudagsmorgun 27/6 kl. 9.30.
1. Keilir. Sogin.
Ferðafélag>- íslands,
Öldugötu 3,
símar: 19533 og 11798.
sebrabraut, f Álfheimunum hjá
verzlun Silla og Valda? Eru
menn að bíða þess að eittbvert
voöalegt slys veröi þarna fyrst?
Þarna eru börn og fullorönir
á ferð til og frá verzluninni,
þvers og krtiss yfir götuna inn-
an um bílaumferðina, og það
er mesta mildi. aö ekki skuli
þegar hafa hlotizt af störslys.
Það getur ekki dregizt öllu
lengur, að gerðar verði ein-
hverjar ráðstafanir til þess aö
auðvelda gangandi vegfarend-
um að komast þama leiðar sinn
ar.“
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15
1 HELLU
OFNINN
ÁVALLT 1 SÉRFLOKKI HF. OFNASMIÐJAN Einholti 10. — Simi 21220.
Smurbrauðstofan
Njálsgata 49 Símí 15105
Auglýsing
frá lánasjóði ísl. námsmanna um fimm ára
styrki.
Hér með eru auglýstir til umsóknar 10 styrk
ir, sem veittir eru þeim, sem í vor luku stúd-
entsprófi eða prófi frá raungreinadeild Tækni
skólans og hyggjast hef ja nám í háskóla eða
tækniskóla á komandi hausti.
Sá, sem hlýtur sh'kan styrk, heldur honum í
allt að 5 ár, enda leggi hann árlega fram
greinargerð um námsárangur, sem lánasjóð-
urinn tekur gilda. Þeir einir koma til greina,
sem hlutu ágætiseinkunn eða háa fyrstu eink-
unn.
Styrkir verða veittir til náms bæði í raunvís-
indum og hugvísindum.
Umsóknir, ásamt afriti af prófskírteini, eiga
að hafa borizt skrifstofu lánasjóðs ísl. náms-
manna, Hverfisgötu 21. fyrir 30. júní n.k.
Skrifstofan afhendir umsóknareyðublöð og
veitir allar nánari uppívsingar.
Reykjavík, 22. júní IC71.
Lánasjóður ísl. námsmanna.