Vísir - 22.07.1971, Side 7

Vísir - 22.07.1971, Side 7
VÍSIR .. . 7 «r~ ÍÍliÍÍÍlÍI wmm&mm ^Pg VILJA AUKA FERÐA- MANNASTRAUMINN TIL SIGLUFJARÐAR sfldarárin í algleymingi Siglufjörður sem var — mannvirki, sem séu hin mestu sinnar tegundar hérlendis standi nú sem minjar um síldarævintýr in, sem gerðu Sigiufjörð að miö punkti atvinnuKfs landsmanna yfir sumarmánuðina, þegar stór ir vinningar fengust í sfldarhapp drættinu. En alft bendi nú til, að slík ævintýri gerist ekki aft ur, — að minnsta kosti ekki næstu árin. Einnig er vakin at- hygli á miklum rústum síldar verksmiðja, sem Norömenn hafi reist austan megin fjarðarins og horfið hafi að mestu f snjóflóði áriö 1919. Fleira er kynnt í þessum feróa mannabæklingi um Siglufjoró, sem of langt mál yrði að telja upp. Þess iná geta, að flugfélagið Vængir flýgur þangað þrisvar i viku frá Reykjavík, og sömuleið is geta feröamenn flogið með Flugfélagi íslands til Sauðár- króks, en þaðan eru fastar ferð ir áætlunarbíla i sambandi við flugið til Siglufjarðar. Alian árs ins hring er hægt að fara land- leiðina til Siglufjaröar, eftir aö Siglufjarðarvegur ytri kom tii sögunnar, en hann lággur sem kurmugt er í gegnum lengstu jarðgöng í þjóðvegakerfi lands- ms, Strákagöng, sem voru opouð til umferðar haustið 1967. I bæklingi Ferðamálafélags Siglufjaröar er litprentað kort af næsta umhverfi Siglufjaröar, þar á meðal Héðinsfirði, en þang að verða skipulagöar ferðir fra Siglufirði, auk ferða fyrir silungs veiðimenn að Miklavatni í Skaga firöi. Bæklingurinn er, gefiþþ út í tæplega tíu þúsund^eintökum, bæði á íslenzku. og^.'értsþu, en það var Ölafur ' Ragriársson, fréttamaður, sem sá um útílit bæklingsins og efnisval í hann, auk þess sem hann tók flestar myndanna, sem hann prýða. Prentun annaðist Grafik hf. Ferðamálafélag Siglufjarðar vinnur nú að ýmsum öörum verkefnum, sem miða að þvf að auka fjölbreytni þess, sem iað að getur að feröamenn á Sigkx firði. Má þar til nefna að koma sem fyrst upp minjasafni í bæn um og viðhalda og bæta vegi upp í Siglufj arðarskarð og Hvanneyrarskál. Þá mun félagiö einnig veita verðlaun og viöur- kenningar fyrir snyrtilegan ftá gang lóóa og mannvirkja í bten wm. Ferðamálafélag Siglufjarðar gefur út kynning- arbækling og stuðlar að fegrun bæjarins % Ferðamálafélag Siglufjarðar hefur nú gefið út vandaðan litprentaðan kynningarbækling um Siglu fjorð, þar sem getið er þess helzta, sem þar er að sjá, og er nú unnið að því að dreifa bæklingnum bæði innanlands og utan. Þetta er liður i áætíun, sem miðar að því að auka ferða- mannastraum til bæjarins, en það er megintilgamgur Ferða- málafélagsins, sem stofnað var fyrir rúmu ári á Siglufirði. Stjórn Ferðamá'laféiagsins boð aði fréttamenn til fundar að Hótel Höfn á mánudaginn og skýrði fná útgáfustarfsemi fé- lagsins og verkefnum þess. Gestur Fanndal, kaupmaður, formaður Ferðamáiafólags Siglu fjarðar, sagði þar, að unnið hefði verið að undirbúningi fyrir út- gáfu ferðamannabæklingsins undanfarna mánuði, en fjár til útgáfunnar hefur verið aflað með skemmtunum, sem félagið hefði gengizt fyrir og með fjár framlögum frá Sigiufjarðarbæ og fyrirtækjum á Siglufirði. Kynningarbæklingurinn er prýddur litmyndum af Sighi- firði bæði að sumar- og vetrar- lagi auk fjölmargra mynda með frásögnum af sögu bæjarins, um hverfi hans, atvinnulífi og mann lífi, en ailt miðar þetta að þvi að gefa ferðamönnum sem gleggsta mvnd af því, sem bær inn hefur upp á að bjóða. Þar er meðal annars vakin at- hygli á því, að Siglufjörður er nyrztj kaupstaður landsins. Þar er menningarlíf með miklum blóma, aðstaða til iökunar sumar og vetraríþrótta mjög góð, skemmtilegar gönguleiðir ótelj- andi og náttúrufegurð mikil. Bent er á ýmislegt, sem ferða menn gætu haft áhuga á að kynna sér og skoða, svo sem þær fimm síldarverksmiöjur og rúmlega tuttugu söltunarstöðv- ar, sem séu á Siglufirði. Þessi Siglufjörður í dag — vinalegur bær hvort heldur hann er í vetrarbúningi eins og hér, eða baðaður í sumarsólinni. Trésmiðjan Víðir auglýsir Glæsilegt urval af vönduöum sófasettum Verð frá kr. 29.800,— Hagkvæmir greiðsluskilmálar Verzlið þar sem úrvallð er mest og kiörin bezt Verzlið í Víði Laugavegi 166 — Simar 22229 — 22222

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.