Vísir - 22.07.1971, Blaðsíða 8

Vísir - 22.07.1971, Blaðsíða 8
8 M 1971, VISIR Otgefandl: Reytejaprear M. Framkvæmdastjöri: Svetan R. Eyjdftwoc Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstiórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhanoessao Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Brðttugðtu 3b. Simar 16610 U660 Afgreiðsla- Brðttugðtu 3b Simi 11660 Ritstjóra: Laugavegi 178. Siml 11660 (5 llnur) Áskriftargjald kr. 195.00 A mánuði tananlands f lausasðlu kr. 12.00 eintaldð Prentsmiðia Vtsis — Edds hf. Viðsjár Araba X Mið-Austurlöndum er sú púðurtunna, sem getur sprungið á hverri stundu og valdið ófriðarbáli um allan heim. Arabar og ísraelsmenn hafa um eins árs skeið haldið vopnahlé, en tilraunir margra til að leiða þá að samningaborði hafa farið út um þúfur. Valdamenn jafnt í ísrael sem í ríkjum Araba hafa orðið tannhvassari undanfarnar vikur. Margir þeirra segja, að stórstyrjöld sé óumflýjanleg, og allir þykjast þeir mundu sigra, ef til hennar kæmi. Þótt Arabaríkin eigi sér sameiginlegan andstæð- ing, þar sem ísrael er, og þess vegna mætti vænta samstöðu þeirra og samheldni, þá hefur sundrung ver- ið mikil og enn aukizt eftir fráfall Nassers forseta Egyptalands. Nú er nær daglega greint frá vaxandi viðsjám í Arabaríkjunum, Minnstu munar, að styrj- öld brjótist út milli sumra þeirra. Að undanförnu hefur í aðalatriðum mátt skipta ríkjunum í tvo hópa, hægfara og róttækan, en jafnvel sú skipting er of takmörkuð. I hópi hinna hægfara leiðtoga Arabaríkja eru kon- ungarnir Hussein í Jórdaníu, Feisal V Sáúdi-Arabíu og Hassan í Marokkó, og auk þess Bourguiba forseti Túnis. Stjórnvöld í Líbanon hafa og yfirleitt tilheyrt þessum flokki. Hins vegar hafa verið hinir „róttækari“ valdhaf- ar í Egyptalandi, Sýrlandi, írak, Líbíu og Súdan. Milli þeirra innbyrðis hefur þó oft geisað „kalt stríð“, eftir því hvernig á stóð um valdabaráttu í ríkjunum hverju sinni. Valdhafar í Alsír hafa fremur hallazt á sveif með þeim róttækari. Hinum róttækari hefur vaxið ásmsgin á undan- fömum árum með stjómarbyltingum í ríkj- anna. Viðsiár ^nn magnazt undanfarnar vikur milli hinna róttækari r'r' ’ 'fara Ríkisstjórnin í Líbíu hefur staðið á bak við tilraun til að steypa stjóminni í Marokkó af stóli. Stjórnin í írak virðist hafa átt hlut að stjómarbyltingu í Súdan, þar sem þó voru „róttækir“ við völd. Valdhafar í frak styðja einnig ljóst og leynt skæruliða, sem reyna að velta stjóm Husseins í Jórdaníu. Loks hefur stjóm smáríkisins Jemen fallið, en vald- hafar þar fylgdu yfirleitt Egyptum að málum í tíð Nassers. Stjórnarbyltingar em orðnar miklu tíðari í Araba- ríkjum en jafnvel í rómönsku Ameríku. Það, sem skiptir önnur ríki heims mestu í þessu sambandi, eru afleiðingar þessa upplausnarástands á friðarhorfur í deilum Araba og ísraelsmanna. Þótt ísraelsmenn kunni að hafa skamms tíma hag af sund- urlyndi Araba, þá skiptir hitt meiru, að leiðtogar Arabaríkja hafa verið of valtir í sessi til að geta kom- ið til móts við ísraelsmenn um þá málamiðlun, sem eiu hagsmunamál rfkjunum öllum. Erfitt að koma Sovét- borgurum í hjónaband Fjölmiðlar hvetja til visindalegra oðferða — piparfólk „stelur af hinum" t Sovétríkjunum eru 18,9 milljónum fieiri konur en karl- ar. Erfitt. er að koma fólki í hjónaband. Hjónabandsmiðiun- arskrlfstofur hafa jiaö hlutverk a8 finna maka handa hlnum fjölmörgu ógiftu konum og körl- um. þó að dæmið geti að visu ekki gengið alveg upp. Fjölmiðl- ar beita sér nú ákaft gegn þeirri „spillingu“. að fólk sé ógift „Heilbrigður maður með ör- ugga afkomu. sem ekki vill kvænast, heldur aðeins tína einu sinni nóg fyrir mjólk, að sögn þýzka tímaritins. Hins vegar kosti það 600 til 2000 krónur á mánuði að hafa barn á barnaheimili. Svo sé enn lftið um ráðgjöf í kynferðismálum atf hálfu hins opinbera, og pillan fyrirfinnst ekki. Hjónaskilnaður tíður Hjónaskilnaður er tíðari í Sovétrikjunum en annars staðar Brúðkaup í Moskvu blóm lostans, er vondur maður og eigingjarn," segir bókmennta blað í Moskvu. Ástæðan fyrjr þessum hita tímaritsins eru nið- urstöðutölur seinasta manntals í Sovétrikjunum, fyrir árið 1970, Samkvæmt þeim eru kon- ur 53,9 af hundraði fbúanna.og karlar 46,1 af hundraði. Þetta er afleiðing heimsstyrjaidarinnar, enda eru flestar ógiftar konur landsins komnar yfir fertugt. Fjölskyldubætur með þriðja barni f aldursf'.okkunum innan þri- tugs er hins vegar nokkurt jafn vægj milli kynja. Manntals- fræðingar kvarta hins vegar yfir því, að Sovétborgarar gift- ist otft seint og vilji helzt ekki eignast nema eitt eða tvö böm, en þetta sé þjóöfélaginu and- stætt. „Nú er kominn tími til að finna sér konu, nú er tíminn til að ná sér í mann," segir blaðið. Orsökin fyrir tregðu borgaranna að binda sig f hjóna- bandi er aða’.lega sú, að i Sovét- rikjunum vinna konur yfirleitt „úti“. og því er erfiðara að ala önn fyrir börnum. Fjöjskyldubætur eru fyrst greiddar með þriöja barni. að sögn þýzka tímaritsins Der Spiegel, og eru þá greiddar i eitt skipti fyrir öll um tvö þús- und ísl krónur. Þegar fjórða bamið kemur í heiminn er hins vegar greitt um 6500 krónur V byrjun og síðan sem nemur 400 krónum á mánuði. sem er ekki eða 2,73 „skilnaðir" á hverja 1000 fbúa. Algengasta skilnaðar- orsök eru þrengslin í fbúðum og drykkjuskapur eiginmannsins. Margt er því til að draga úr Sovétmönnum áhugann á hjóna- bandi. Við það bætist samfevæmt llllllllllll (Jmsjón: Haukur Helgason könnun. sem bófemenntablaðið 1 Moskvu gerðj meðal lesenda, að ekki er heiglum hent að kynnast álitlegum mafea. Þriðj- ungur lesenda, sem sendu svör, sagði, að „f dag er mjög erfitt að kynnast" 31 af hundraði lét þess getið að samband manna á mil'i væri takmörkunum háð „veana streitunnar f nútfmalífi" iðnaðarþjóðfélagsins. „Kvennabæir“ Bókmenntablaðið í Moskvu taldi það einnig mikinn löst á skipulaginu, að algengt væn, ao einungis feonur eða einungis karlar ynnu í ákveðnum verk- smiðjum eða jatfnvel því sem næst f átoveðnum byggðarlög- um. Ein atfleiðing otfskipulags, sem miðar að sem mestri fram- leiðslu, er til dæmis. að í bæj- unum Iwanowo og Kamyschin eru nær eingöngu konur, sem stunda vefnað. Þær verða að fara í karlmannsleit til „karl- mannabæjar", þar sem konulitlir karlmenn eru fyrir. Annað dasmi er bærinn Tsohaikowski, sem var stofnsettur árið 1962. Þar eru nær eingöngu toonur, sem starfa við vetfnaðarverksmiðju. Nú átti að reisa efnaverksmiðju á þessum stað, en henni er' ó- lokið. Þvi hetfur raunin orðið sú, að verkakonumar una ekki hag s’inum í karlmannsleysinu og þær hafa farið burt. Framleiðsla vefnaðarvöru í bænum minnkaði um helming. Hjónabandsauglýsingar láta enn næstum ekki á sér kræ’.a í sovézkum blöðum. Hvatt til notkunar tölvu Mostovulhlaðið hvetur til þess, aö nýtízkuleg tækni verði nýtt til að bæta úr vandræðum sovét borgara í þessum efnum. Lesend ur vom spurðir um skoðun sína á tillögum um að nota tölvur í hjónabandsmiðlun. Þetta er nú þegar gert í talsverðum majli í hjónabandsmiðlun víða'' um heim. Lesendur sýndu mikinn álhuga á þessum tiilögum. Sjö- ttfu og fímm af hverjum hundrað þeirra sem svöruðu, voru fylgj- andi hjónabandsmiðlun með að- stoð tölvu. Sjötiu af hundraði sögðust hafa „persónulegnn á- huga á framvmdu þessara rnála" Flestir þeirra sem eru á aldr- inum 30 til 50 ára, voru þeirrar skoðunar, að þjóöfélaginu bæri skylda til að sjá til þess aö auðveldara verði að stofna til hjónabands en nú er. Það verði að auðvelda þeim sem hafj á- huga á stofnun fjölskyldu aö koma þeim vilja s’inum fram. Með tölvum, segðu filestir, mætti tooma f veg fyrir mistök í maka- vali betur en nú tlðkist meö „venjulegum aðferðum". Skattur á piparfólk Auk dryktojuskapar og fram- hjáhalds nefnir Moskvublaðið, að of margir séu of illa búnir undir hjónaband, marga skorti skyldurækni við fjölskylduna og alltof oft eigi makar illa saman. Margt af þessu gera menn sér vonir um að mætti útiloka með vísindalegum aðferðum við makaval. 1 Sovétríkjunum eru lagðir refsiskattar á þá, sem eru ekki í bjónabandi og hina barnlausu borgara. Sex aí hundraði þeirra launa, sem fara yfir sex þúsund krónur á mánuði, eru samkvæmt frásögn þýzka tímaritsins Der Spiegel, tekin í skatta, ef menn eru ógiftir eða barnlausir. „Bókmenntablaðið" í Moskvu bendir á að hluti launa fólks í Sovétríkjunum sé hugsaður „til framfærslu barna" Þess vegna „stelj piparsveinninn eða rúoar- meyjan 1' rauninni af þeim borg urum, sem séu giftir og eigi böm" og beri að taka þetta þýfi atf mönnum með sköttum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.