Vísir - 26.07.1971, Qupperneq 1
VISIR
61. árg. — Mánudagur 26. Juií 1971. — 166. IWI.
Fer vamarliðið til Angmagsalik?
Hermálanefnd NATO hugleiðir mótleik við
stefnuyfirlýsingu islenzku stjórnarinnar —
Danir munu vera samþykkir
# Hernaðarmálanefnd
Atlantshafsbandalagsins
mun hafa setið á rökstól
um undanfarnar vikur í
Briixelles vegna yfirlýs-
inga stjórnarflokkanna
um, að varnarliðið verði
látið hverfa úr landi á
kjörtímabilinu. Rætt hef
ur verið um til hvaða
ráða verði gripið, ef ríkis
stjórnin gerir alvöru úr
yfirlýsingu sinni og mun
helzta lausnin, sem rætt
hefur verið um, að flytja
vamarliðið til Ang-
magsalik á austurströnd
Grænlands.
Rússar hafa unniö mjög stfft
að því að byggja upp flota sinn,
sem hefur bækistöð á Kolaskaga
á Murmansk til aðgerða á At-
lantshafinu. Þessi floti hefur aö-
eins aðgang að Atilantshafinu í
gegnum sundin milli Grænlands
og íslands og ísl. og Noregs og
hefur verið fylgzt meö feröum
flotans að undanförnu frá Græn-
landi, Islandi, Noregi og Dan-
mörku. Með fráhvarfi varnarliðs
ins frá íslandi veikist mjög að-
staðan ti'l aö fylgjast með fiot-
anum og því hefur komið til
tals að flytja varnarliðsstöðina
til Angmagsalik, sem liggur á-
ln'ka vel við og Keflavíkurstöðin,
en Angmagsalik liggur á svipuð-
um breiddarbaug og Keflavrk.
Danir munu i fyrstu hafa
verið mótfallnir þessum ráða-
gerðum, en nú upp á síðkastið
mun fulltrúi Dana hafa verið
málinu jákvæður. Dönum mun
ekki þykja það verra, að með
tilkomu varnarliðsins til Ang-
magsalik bætist um 1.5 milljarð
ur króna í efnahagslíf GrænTend
inga Einnig munu þeir telja
sig skuTdbundqa til að gera sitt
ti'l að vei’kja ekki vamarmátt
Atlantshafsbandalagsins meðan
enn er vilji ti'l að halda því
samstarfi vestrænna þjóða í
vamarmálum áfram.
Þessar upplýsingar var ekki
unnt að fá staðfestar hjá ísienzk
um aðilum f morgun. — VJ
Flugvélin ónýt
Munaði mjóu oð rtavðlendingin tækist slysalatist
Milljón
manns í sund
Þótt Reykvíkingar séu ekki
nema um 80 þúsund, er búizt
við því, að ein milljón manns
komi í sundstaði borgarinnar á
þessu ári. Það samsvarar því, að
hver einasti Reykvíkingur fari
i tólf og hálft skipti í sund á
ári.
Undanfarin ár hefur fjöldi
sundgesta aukizt jafnt og þétt,
og þaö sem af er bessu ári hef
ur rösklega hálf milljón manns
komið á sundstaðina, og eru þá
allir meðtaldir, böm og fullorðn-
ir, en við teljum reyndar óh'k-
legt, að furðufuglinn hér á mynd
inni sé talinn með.
Á bls. 9 í dag er að finna
grein, þar sem spiallað er um
sundstaði borgarinnar.
Dóttir Peters Ronsons
efnileg sundkona
Það var heldur betur meta-
regn á sundmeistaramótinu, sem
háð var í LaugardalsTauginni
um helgina. Alis voru sett fjór-
tán met og var Guðmundur
Gíslason að venju drýgstur. Þá
vakti Lisa litTa Ronson, dóttir
hins kunna fþróttamanns Péturs
Rögnvaldssonar, sem einnig er
þekktur sem kvikmyndaleikar-
inn Peter Ronson, athygli og
einnig hinir mörgu þýzku kepp-
endur.
Og þá rann boltinn um helg-
ina bæð; í 1. og 2. deild og
mörg urðu sums staðar mörkin.
Þannig skoruðu Víkingar ellefu
— og Keflvíkingar settu mikla
spennu i 1. deild með því að
sigra Fram 3—0. Vestmannaey-
ingum tókst í fyrsta skipti að
vinna KR í 1. deild og Akurnes
ingar brugðu ekki út af venju
og sigruðu á Akureyri.
— sjá iþróttir bls.
4, 5 og 6
„Okkur leizt ekki þannig á, aö
vélin værj þess virði, að við fær-
um að bjarga henni,“ sagði Ámi
Þorvaldsson, forstjóri Tryggingar
hf. í viðtali við Vísl í morgun, en
hann fór ásamt fleiri um helg-
ina til að athuga flakið af Airo
Commander-vélinni, sem nauölent
var við Síðujökul.
„Þeir voru í heyskap bændurnir
í þurrkinum, svo að það gekk erf-
iðlega að fá nokkurn til að fara
með okkur,“ sagði Árpi. .„L^ksins
fengum við mann frá Kálfafelli,
sem fór með okkur á jeppa að
flakinu.
Vélarbúkurinn sýndist okkur
mikið skemmdur að neðan. grindin
brotin og ilTa farin. Vængirnir
eru heilir en við létum þá samt
eiga sig. Við hirtum mótorinn og
öll tæki úr vélinni.
Bf vélin hefði verið í skárra
standi, þannig að hægt hefði verið
að gera við hana, hefði það ekki
verið erfitt að gera þarna flugbraut
til að hún gæti tekið sig á loft,
eða öinnur flugvél lent þama.
Þarna er harður melur framund-
an, og flugmaðurinn hefur að vissu
leyitj verið óheppinn um daginn, því
að hann hefur rekizt á stórán stein,
áður en lendingin var almennilega
hafin. Hefði hann sloppið yfir
steininn, hugsa ég, að hann hefði
lent vélinni mikið til óskemmdri."
„Verður fiakið þá látið eiga sig
þarna á sfaðnum?"
„Já,‘‘ segir Árni. „Annars er það
til sölu ef einhver hefur áhuga, og
svo auðvitað mótorinn og tækin,
sem við hirtum “m helgina. En
það er örugglega mikiö verk að
gera þessa vél flugfæra aftur —
ef það er þá hægt.“ — ÞB
Hún eldist
ekki
Marlene Dietrich er sannar-
lega komin af Téttasta skeiði,
— það sýnir árafjölditm, sem
hún hefur lagt að baki, Engu
að siður er La Dietrich alltaf
jafnfögur, segir fréttin, og
áreiðanlega ber hún titilinn ,,feg
ursta amma í heimi“ með
mestu sæmd.
Sjá bls. 2
Hlustum á
rödd
hjartans
Á tækniöld er svo komið fyr
ir manninum að hann er farinn
að hugsa of mikið. Það segir
a. m. k. frægur sálfræðingur,
sem vill að við förum að huga
meira að rödd hjartans, nálg-
umst að nýju þá hlið mannlegr-
ar náttúru, sem skáld og heim-
sjjekingar nefndu þessu nafni
fyrir 3 öldum. 1 grein i blaöinu
í dag er rætt um flóttann frá
„of mik'lum raunveruleika" á
náðir eiturlyfja. — Mánudags-
mynd HáskóTabíós að þessu
sinni fjallar um annað stórmál
nútfmans, agaleysi ungu kynslóð
ariiwiar, og segir frá myndinnj í
blaðinu í dag.
Sjá bls. 8 og 11
Liffærí
I
mannsins
gefin —
konan ekki
spurð
Kona svertingjans, sem hjartað
og lungun voíiu tekin úr, var
ekki beðin leyíis. Bún er mjög
óánægð og segiet akirei hefðu
leyft það.
— sjá frétt á bls. 3
30 togarar
v/ð akkerí
til að mót-
mæla EBE
Brezkir sjómenn segja, að
100 þúsund yrðu atvinnulausir,
ef Bretland gengi í Efnahags-
bandalagið.
— sjá bls. 3
Liz Taylor
orðin amma
Elizabeth Taylor varð amma í
nótt, 39 ára gömul. Barnið et
sonar hennar Michael Wildingf
og eiginkonu hans. Það fæddisi
fimm vikum fyrir tímann. —HK