Vísir - 11.08.1971, Page 2

Vísir - 11.08.1971, Page 2
Lína langsokk- ur er sterk „Æ! er ég raunverulega svona sterk!“ sagði Inger „Lína“ Nilsson, 12 ára sænsk stúlka, sem leikið hefur Línu langsokk að undan- förnu. Og hennj íannst sjá’.fri að hún væri sterkust af öllum, er hún frétti að hún hefði borið sig urorð af Rússum í Moskvu, þar sem haldin var mikil kvikmynda hátíð fyrir barnakvikmyndir. 26 þjóðir sendu samtals 80 kvikmyndir í samkeppni við „Línu langsokk“. Og Lína sló alla út af laginu og Inger Nilsson fékk verðlaun fyrir bezta leikinn. „Stórkost’.egt að ég skyldi hafa sigrað“, segir Inger, ,ég nefnilega vissi ekki einu sinni að ég hefði veriö með í Moskvu". „Mér finnst það skemmtilegast að Inger litla skuli hafa fengið verðlaun fyrir leikinn sjálf“. seg ir pabbi hennar, Berti) Nilsson, forstjóri, „Þjóðverjar verðlaun- uðu myndina í fyrra — en ekki barriið fyrir leikinn". Bækur skáldkonunnar Astrid Lindgren um Línu langsokk eru lesnar um veröld víða, og ekki hvaö minnst í Sovétríkjunum. — Og segja þeir er viðstaddir voru sýninguna á „Línu langsokk" í Moskvu, að rússnesku börnin hafi æpt svo hressilega er Lína birtist á hvíta tjaldinu, að aldrei hafi verið vafamál, hver myndin á hátíðinni hlyti 1. verðlaun. Steffen Kjærbye — Við ölkassaflutninga hjá Tuborg fær verk- fræðingurinn jafnhátt kaup og verkfræðingur á fyrsta starfsári. MIMtlOMMIIIKCIIMIMIHM'llllXMMtMMM1 Vontað vera danskur verkfræðingur — þeim er nú sagt upp víða, og nýir menn fú ekki vinnu Burton/Taylor hjá Tító Richard Burton og Elizabeth Taylor borðuðu hádegismat á laug ardaginn fyrir hálfum mánuði hjá Josip Broz Tító, forseta Júgó- s’.avíu. Meiningin með hádegisverðin- um var að gefa Burton kost á að kynnast Titó ögn, en sá góði leik ari á að leika þennan aldna bylt- ingarforingja í næstu mynd sinni, baráttu Titó-skæruliða gegn Þjóð verjum í seinna striðinu. Hann er verkfræðingur að mennt og hefur það að lifibrauði núna að flytja til ölkassa fyrir Tuborg. Það tækniþróaða danska velferðarþjóðfélag hefur að því er virðist, engin betri not fyrir Steffen Kjærbye vélaverkfræð- ing. Hann er 27 ára að aldri og útskrifaðist í vor með 1. einkunn úr verkfræði- skóla, en getur ekki fund- ið atvinnu í sínu fagi. „Ég útskrifaðist úr „Politekn- isk Læreanstalt" í janúar l' ár eft ir 4 ára nám þar, og hafði fram til þess er ég innritaðist þar num ið við menntaskóla. Síðan ég út- skrifaðist hef ég látlaust Sótt um stöður sem verkfræðingur, og fæ svo sem hálfsmánaðarlega svar við einhverri umsókn: „Þegar hef ur verið ráðið í umrædda stöðu“. í marz fékk Kjærbye nóg af því aö reika um atvinnulaus, og réði sig sem sendil á reiðhjóli fyr ir skólakerfið í Lyngby. 1. júni var hann orðinn gersamlega blank ur og fékk sér þá vinnu við bruggverksmiðjur Tuborg. Verkfræðingum sagt upp í hópum „En þið skuluð ekki Imynda ykkur að ég sé niðurbrotinn mað- ur. eða eitthvað I þá áttina. — Sjálfur held ég að samheldni- stefna stjórnarinnar sé að baki þvi hversu 'iMa mér hefur geng- ið. Stóru fyrirtækin þora ekki að stækka við sig, eða halda úti út- víkkunarstefnu. Ég sótti um starf hjá Briiel og Kjær, en áöur en ég fékk svar, las ég 1 dag- blaði, að fyrirtækið hefði þá ein- mitt verið að segja upp 12 verk- fræðingum. Launajafnrétti Forsvarsmaður verkfræðinga- skólans. sem Steffen kernur frá, segir að árlega útskrifi skólinn 75—100 vélaverkfræðinga, og hingað til hafi flestum þeirra gengið vel að fá vinnu. „en það viröist sem samdráttur eigi sér stað núna“. Steffen Kjærbye getur unnið sér inn hjá Tuborg jafnmikið og hann fengi í laun sem verkfræð- ggg ingur á fyrsta starfsári. „Manni finnst það bara fjandi skítt að hafa verið svo lengi að ná sér í menntun og hafa svo eng in not fyrir hana“, segir hann. '*i V >1> -nit^n ntAriorrotpN 'ILídifíJÍVi Ö£>

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.