Vísir - 18.08.1971, Qupperneq 2
Hún vill
verða
lögreglu-
þjónn
Það væri ekki amalegt að látá
hana þessa taka sig fastan, en
hún virðist hafa einkar mikinn á-
huga þeim starfa. Lögregluþjónn
viH hún verða, hvaö sem tautar
og raular.
Hún er ekki nema sextán ára
gömul. svo aö hún fær ekki strax
inngöngu I ’.ögregluna. Hún er
dönsk og heitir Metta Johansen.
Eins og stendur vinnur hún í bak
aríi, en finnst sem sagt lífið þar
lftið spennandi og vitl komast í
lögregluna.
TÖLYA
í LANG-
STÖKKI
Síöustu fjögur ár hefur „Lik-
amsræktarstofnun Tækniháskól-
ans í Vestur-Berlín“ fengizt við
spumingar í sambandi við æfing
ar handa þróttamönnum og að-,
ferðir handa þeim til að ná betri
árangri.
Al's konar upplýsingum er
safnað saman, og sfðan vinnur
tölvan úr þessum upplýsingum og
segir til um bezta æfingakerfið,
eða beztu aðferðir til aö ná langt.
Ein fyrsta íþróttakenningin,
sem tölvan setti fram var um
langstökk, eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd. sem á að sýna,
á hvern hátt langstökkvarar geti
stokkið lengst.
Efri hluti myndarinnar sýnir
stökkið „hægt“ í „slowmotion")
og neðri myndin sýnir það
„hratt“.
Fæðingarstaður
Maós formanns
Hér byrjaði það a’.lt saman. —
í þessum litla dal, 1 bóndabýli,
sem byggt var úr leir og strái.
Hér fæddist Maó Tse-tung fyrir
77 árum.
Dalurinn og þorpið eru helgir
staðir í augum Kínverja, og dag-
lega koma þangað 3000 til 4000
manns. Þegar menningarby'.tingin
stóð yfir komu um 70 þúsund
Rauðir varðliöar þangað á dag.
Þessi staður heitir Shaoshan í
Hunan-héraði. Shaoshan er Kln-
verjum eins konar samsetning úr
Betlehem og Nazaret. — Hingað
koma þeir til að fá að heyra um
æsku og uppvaxtarár mann^ins,
sem þeir kalla „frelsara hinnar
kínversku þjóðar".
Leiðsögumenn sýna ferðalang-
inum rúmið, þar sem Maó fædd
ist 26 desember 1893. Þeir segja
frá því, að Maó hafi verið dug-
lemir að aðct-oða móður sína við
húsverkin, hann sótti vatn og hjó
i eldinn.
Á táningsárunum vann hann á
ökrunum á daginn eg vaktj síðan
’.angt fram á nótt við lestur í bók.
Þegar rigndi kom hann hinum
fátækari til hjálpar við aö bjarga
uppskerunni.
Fæðingarstaður Maós var stór
býli. Þegar kommúnistaleiðtoginn
sagði Edgar Snow ævisögu sína
árið 1936, sagði hann. að faðir
sinn hefði haft tekjur af því að
flytja og selja kom. Leiðsögu-
mennirnir í Shaoshan minnast
ekki á það við þá ferðamenn, sem
koma til staðarins. Þeir em næsta
rámálir um ævi og starf Maós
eldra.
Húsið, sem hefur verið gert
upp, stendur undir skógarási. —
Skó'.inn, sem Maó gekk í hefur
líka verið endurbyggður.