Vísir - 18.08.1971, Síða 6

Vísir - 18.08.1971, Síða 6
6 V1SIR. Miðvikudagur 18. ágúst 1971. Rafskinna og höfundar hennar 1 frétt hér í dálkunum um dag inn kom það fram að Jón bóndi Kristinsson í Landey hafi verið höfundur Rafskinnu. Þetta kem ur mörgum áreiðanlega á óvart, því hinn raunverulegi höfundur þessarar merkilegu auglýsinga- bókar var nefnilega Gunnar heit inn Bachmann. Hann var frum- kvöðuil að Rafskinnu og samdi f jöldann ailan af siagorðum, sem síðan hafa mörg hver verið verið notuð, t.d. á hvers manns disk og, græddur er geymdur eyrir, og h-ald manna er að Gunnar hafi smíðað slagoröið: VÍSIR — fyrstur með fréttimar. Þessi mynd er af Rafskinnu og ösinni eins og hún var að öllu jöfnu fyr ir framan gluggann. Ritgerðir bamanna e.t.v. gefnar út í bók „Áhrif manna á umhverfiö" var ritgerðarefnið í samkeppni, sem Fegrunarnefnd efndi til sl. vetur 1 barnaskólunum. Nú hefur verið tilkynnt um úrslit samkeppninnar, en dómnefnd, skipuð þeim Birni Jónssyni, skólastjóra, Hafliða Jónssyni garðyrkjustjóra og Eiríki Hreini Finnbogasyni. borgarbókaveröi, skilaði á'.iti á þá leið að Guð- laugu Vilbogadóttur, Njörva- sundf lO bæri 1. verðlaunin fyr ir ritgerð sfna. Friðrik Sigurðs son, Sigtúni 3Í fær 2. verðlaun og He’gi K Grfmsson, Kambs- vegi 23 3. verðlaun. Ákveðiö er að kanna, hvort ekki sé mögu leikj á að gefa rigerðirnar út í sérstakri bamabók. Búfræðingar f á framhaldsnám I vetur stendur til aö veita takmörkuðum fjölda búfræðinga framhaldsnám að Hvanneyri að sögn Guðmundar Jónssonar, skólastjóra Landbúnaðarráðu- neytið hefur nú ákveðiö að haf izt veröi handa um námskeiða- hald, en bæöi fyrrverandi ráð- herra landbúnaöarm.ála og nú- verandi hafa lýst stuðningi við þessar áætlanir. Þrjii námskeiö verða haldin og kenns la ókeypis. Námskeið jarðræktarfraíði á að hefjast í nóvemberbyrjun, í búfjárrækt upp úr áramótum og bútækni og byggingum seinni hluta febrúar. Átti að brenna Sundhöllina? Sagt er frá því í Suðurnesja tíöindum að einhverjir nátthrafn ar hafi brotizt inn f Sundhöllina í Keflavík og borið eld aö kassa í skrifstofunni. Eldurinn hefur síðan dáið út vegna loft.leysis og raka. Ekki virðist ne.itt hafa horfið, — nema hand s’.ökkvi- tæki. Nokkrar skemmclir urðu þarna. Eins og kunnugt er brann sundhöllin f Keflavík fyr ir tveim árum og var endur- byggö. Veiðimannahús brann Átta manns var f veiði'húsi við Sandá í Þistilfirði, er eldur kom þar upp fyrir nokkrum dögum. Brann húsið til ösku, en svo vel tókst til aö engin slys uröu á fólki. Var þetta vandað hús og vel búið húsgögnum en í sér- stakri byggingu var dísilrafstöð, en þar kom eldurinn einmitt upp. Einhyerju. tókst að bjarga af verðmætum. Sandá mun vera hvað fengsælust af ánum sem renna f Þistilfjörð. Húsið sefh þama brann, var eign Stanga- veiðifélagsins Fiska í Reykja- vfk. 5 daga skólavika Norömenn stefna nú eindregið aö sama skipulagi og Danir og fleiri varöandi 5 daga skóla- viku. Kemur þetta fram í frétta tilkynningu um námskeiö, sem íslenzkir skólastjórar sóttu í Noregi nú fyrr í sumar. Efndi Skólastjórafélag íslands til nám skeiðsins f samráði við Norsk lærerlag og norrænu fé'.ögin í Noregi og var það haldið í Trangberg viö Gjövik á fögrum stað við Mjörsvatn. Þrettán kunnir, norskir skólamenn fluttu þarna fróðleg erindi Alls tóku 60 manns þátt í för þessari, en Hans Jörgenson. skólastjóri, for maður Skólastjórafélags íslands, var fararstjóri. Hópferðir Margar stærðir hópferðabíla alltaf til leigu. BSÍ Umferðarmiðstöðinni. Sfmi 22300 Motaðir bilor gegn skuldabréfmm Skoda 110 L árg. 1970 Skoda 1000 MB árg. 1968 Skoda 1000 MB árg. 1967' Skoda 1000 MB árg. 1966 Skoda Combi árg. 1965 Skoda Combi árg. 1966 Skoda Combi árg. 1967 Skoda Oktavia árg. 1965 Skoda 1202 árg. 1966 Ffat S50 árg. 1967 Tékkneska bifreiðaumboðlð á tslandi hf. — Auðbrekka 44—46 Simi 42600. Hugsum áðurenviö 1hendum ® m Aö gera hreint fyrir sínum dyrum Fáein orð úr bréfi frá s. p. á. f tilefni hreinlætisherferðarinn- ar, sem staðið hefur yfir: „Ég vil aöeins minnast þess, — að þegar ég var að alast upp á Akureyri en ég er nú 75 ára þá var það yfirleitt eitt af skylduverkum a’lra húsráðenda að hreinsa og sópa hver frá sín um bæjardynim. Og allir hljóta að sjá, hve slíkt er mikill léttir fyrir viðkomandj bæjarfélag, ef allir legðust á eitt að hjálpatil við hreinsunina. Sem betur fer er þetta ekki algjörlega tilheyr andi fortíðinni. Á tveimur eða þremur stöðum í Austurstræti hef ég séð starfsfólk verzlana fara út á gangstétt framan við viðkomandi verzlun til þess að þrffa til. Mættu aðrir taka sér þaö til fyrirmyndar. Borgin er þaö fallega staðsett, að það er hrein skömm að því að láta hana ekk; hafa ætíö hreinan og fallegan svip Það er ekki nóg að ofsækja öl] okkar helztu húsdýr og fugla (t.d. dúfur). Það eru nefnilega til tv’ifætlingar, sem eru verri í allri umgengni en blessuð dýrin. — Vinsamlega s. p. á. Gallabuxna- sfríð „Ég hélt ég hefði tapað ásjónu minni upp fyrir rúmstokkinn rétt sem snöggvast, þegaréglas grein í blaði þessu í dag. Grein þessi ber titilinn ,Gallabuxna- saumum sagt strt'ð á hendur“. — Alltaf verða þessir biessaðir veit ingahúsavarðhundar og húsbænd ur þeirra fáránlegri í augum gestanna, sem sækja þennan um rædda stað, sem getíö er í grein inni. Þær aðferðir, sem verðim ir nota ættu kannski ágætlega við á Sögu eða Hótel Loftleiðum en ekki þar sem unga kynslóðin er aö skemmta sér. Klœðnaður unga fólksins hefur breytzt og það svo um munar. — Um all- langt ske'ð hefur fólk verið frjálst að þvf að klæðast þeim fötum sem því sýnist og koma þannig inn á umræddan skemmt stað, eina skemmtistaðinn, sem fól'k 19—30 ára getur sótt frjáls lega klætt. En nú ætla forráða- menn hússins augsýnilega að fara aö taka upp aöra siði og taka aftur upp gömlu kreddum ar, sem voru góðar oe gildar, þegar Hótej Borg opnaði fyrst. Nú eiga allir íslenzkir herrar að mæta í „HERRAFÖTUM” þó svo þau hangi utan á þeim eins og striganokar. — Ekk’ nóg með það. Hljómsveitarmenn mega nú víst ekki heldur mæta á galla buxum til vinnu sinnar. — Auð vitað á fólkið, sem sótt hefur staöinn aðeins eitt svar við þessu: Þegar staðurinn kærir sig ekki um þetta fölk eins og það er, þá sækist fólk auðvitað ekki eftir skemmtistaðnum eins og hann er. Þetta ættu húsráðendur þar á bæ að athuga í tíma.“ JK. HRINGIÐ í Sl'MA 1-16-60 KL13-15 Orðsending frá Síldarútvegsnefnd Vegna fyrirframsamninga um sölu á saltaðri Suðurlandssíld framleiddri á komandi ver- tíð, hefir Síldarútvegsnefnd ákveðið, að gefa innlendum síldarniðurlagningarverksmiðjum kost á forkaupsrétti á síld til niðurlagningar í neytendaumbúðir. Þær verksmiðjur, sem óska að semja um kaup, þurfa að hafa gert fyrir- framsamninga eigi síðar en 6. september n.k. —^r?Smurbrauðstofan | BJORNIIMIM Njálsgata 49 Sími 15105 Visir vísar á viaskiptin

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.