Vísir - 18.08.1971, Side 13

Vísir - 18.08.1971, Side 13
VISIR. Miðvikudagur 18. ágúst 1971. 't » » I 7 # | / ,' j ) / 13 „Fyrsta árið var lenerst að líða“ — Vísir talar v/ð Huldu Hermóðsdóttur og Kristján Hjálmarsson, sem kveðja senn Hvera- vgIIí eftir fimm ára starf JVTú bíöum við eftir því að 1 fara í bæinn og vinna okk »r okkar átta tíma á dag, en það er alveg ábyggilegt, að okk ur á eftir að langa oft hingað upp eftir.“ Þetta segja hjónin 1 Hulda Hermóðsdóttir og Krist ján Hjálmarsson, sem kveðja senn Hveravelli eftir að hafa starfað þar við ve'ðurathugnir í fimm ár. Um mánaðamótin taka önnur hjón við veðurathugunum á Hveravöllum. Stíf vinna, þegar bensínið bættist á Það er eri'.samt starf veður athugunarflóksins á Hveravöll um. „Veðrið er tekið“ á þriggja stunda fresti allan sólahringinn. Þess utan eru ýmsar aðrar mæl ingar t. d. á jarðvegi, grasi, sólskini. Vélgæzla fylgir einnig, en dísilvélin sem sér ýmsum tækjum fyrir rafmagni þarf stöð ugt að vera í gangi, síðan er vinna við sfritamælingar og úr- vinnsla þeirra. Nú er einnig bens instöð hjá húsinu, „það er mjög stíf vinna, þegar bensínið bæt- ist á yfir sumarið,“ en oft hafa hjónin vaknað um miðja nótt við bílflaut, sem merkir það að bensín vanti á einhvern bíl- inn. Útvarpstruflanir í tvo mánuði Vísir tók þau hjón tali á Hveravöllum. Þá var þar margt um manninn. Á hæð nokkru ofan við sæluhús ferðafélagsins er bústaður veðurathugunarfólks ins, nýtízkulegt einnar hæðar hús. Upp úr bví teygist sjón- varpsloftnet. Það var þVi sfzt að merkja, að maður væri stadd ur inni í miðjum óbyggðum. Þegar inn í húsið er komið er þar rúmgóð stofa, svefnher- bergi, gestaherbergi, eldhús með öllum heimilistækjum, baðið flfsalagt. og það þarf varla að taka þaö fram að heitt vatn jafnt sem kalt rennur þar úr krönunum. En svo eru aðrir hlut ir, sem benda til þess að eftir alit saman sé maður staddur á óvenjulegu heimili. Talstöð er í einu herbergj- anna, og eitt herbergi er fullt af alls konar mælitækjum. Það er vinnuherbergi þeirra hjóna. Sjónvarpið f stofunni veitir þeim takmarkaða skemmtun þar sem alltaf snjóar á skerminum og það heyrist misvel í útvarpkm. Truflanir voru það eina, sem fékkst úr því í tvo mánuði einn veturinn. 140 lítrar af hraðfrystri mjólk Búskapurinn á Hveravöhum er á annan veg en gengur og gerist í höfuðborginni. Heimilið þaif tvær frystikistur. Eftir að sú seinni kom var hægt að geyma í henni þá 140 lítra af hraðfrystri mjólk. sem er árs forðinn af þessum drykk og hefur komið á haustin ásamt öðrum vistum undanfarin tvö ár. Búr eru tvö og veitir ekki af, þegar þarf að hýsa sjö kjöt- skrokka m. a. Þetta eru ekki búr í venjulegum skilningi því annað er stórt herbergi og fyllast bæði á haustin. „Við köllum þetta kaupfélagið okk- ar“, segir Hulda um stærra búr ið, sem lfkist einna helzt lítiíli vérzliin með? dósayörum og pakkavörum í röðum í hillum. Þegar fjárverðir fara kemur tómahljóð í Hveravelli Þrátt fyrir veðurblíðu úti fyr ir og mannmergð verður þáð þvf einangrunin á veturna, sem verður ofarlega í huga. „Það fer að draga úr umferð hér eftir miðjan ágúst, og þegar fjárverðimir þeir Eysteinn og Óskar fara þann 15. septem- ber þá fer að verða tómahljóð í Hveravöllum", segja hjón- in. „Við höfum aldrei liðið fyrir einangranina, en auðvitað er hún ekki skemmti- leg, og mann langar til þess að hitta fólkið sitt. En það er nákvæmlega það sama með okk Ur og sjómennina við Grænland, að fyrsta árið var lengst að líða héma, en svo fóru þau einhvernveginn að styttast." Orðið að vaka til þess að okkur fennti ekki inni — En vetrarveðrin hljóta að vera ógurleg? „Við höfum aldrei verið hrædd, en víst hafa stundum verið voðaleg veður. Og við höf- um oft orðið að vaka og moka frá gluggum og gæta þess, að okkur fennti ekki inni. Þú sérð, að hurðin er tvfhólfa. Marga daga höfum við orðið að nota efri hlutann á henni, sem út- gönguleið. Okkur hefur verið sagt, að við þyrftum ekki að fara út og taka veðrið, þegar veðurhamar er mikfll. en við þœlfúm hvort eð er að fara út og gæta aö mótomum og að ekkf kcwnizt bleyta að rofun am. Stwndum hefur það verið svo, að það var ekki meira en að maður réðj við sig í verstu veðranom en við notum snjó iim sem viðspyrrru. Fyrst fórum við út með Iínu en svo venst maður þessu og hættir því“ Sumardagurinn fyrsti eftirminnilegur Vetrarveðrin em kannski ekki það versta, sem hent getur í öbyggðum. Það er langt tii lækn is á Hveravöllum,' þegar óvænt og skyndileg veikindi ber að höndum, eins og mætt hafa á hjónunum f ár. í apríl fékk Kristján blæðandi magasár, og það liðu fjórir dag ar áður en hann komst undir ’.æknishendur. „Daginn eftir að það gerist kemur þetta brjálaða. veður. Sumardagurinn fyrsti er eftirminnilegasti dagurinn héma hjá mér,“ segir hulda, „það var eitt af verstu veðrunum, sem þá gerði.“ Síöar, 1. júlí, springur botn- langinn í Huldu. „Ég veit ekki hvað hefði gerzt hefði vindhrað inn verið meiri en þessir tólf hnútar, ef hann hefði t. d. ver ið 18 hnútar eða rneira," segir Kristján. „Þá var rétt hægt að lenda á annarri neyðarflugbraut inni en hin var óvöltuð 0g er enn. Veikindi mín koma í veg fyrir. að við verðum hérna á- fram eins og við höfðum hugs að okkur, en við erum alls ekki að flýja staðinn." Við eigum marga vini og kunningja héðan — En svo eru það ljósu blett irnif við dvölina á Hveravöll- um? „Þeir em miklu fleiri en hin- ir“ segja hjónin „Við höfum kynnzt hér fjöldanum öllum af hugsunarsömu og hlýlegu fólki. Við eigum marga vini og kunn- ingja héðan Það era þeir, sem koma hingað oftast fjárverðim ir, gangnamenn að norðan og sunnan og menn frá Blönduósi og Selfossi. sem hafa einnig komið á vetuma, og þær ferðir þykir okkur óskaplega vænt um. Okkur hefur einnig líkað ákaf- lega ve! við okkar yfirmenn og viljum við sérstaklega þakka dan d Hulda að skrifa niður hitann á Hveravöllum sl. laugardag. Ljósm S.B. Flosa Hrafni Sigurðssyni deild arstjóra. Það mætti leita víða eftir jaíngóðu samkomulagi á millj starfsfólks á opinberri stofnun eins og er á Veðurstof unni.“ Þeim Kristjáni og Huldu er Laus staða Staða skrifstofustjóra viðskiptaskrffstCKfu Rafmagnsveitu Reykjavíkur er laus til um- sóknar. Laun samkvæmt kjarasamningum Reykja- víkurborgar. Umsóknarfrestur er til 28. ágúst. Rafmagnsveita Reykjavíkur Notuð húsgögn og skrifstofubúnaður til sýnis og sölu á 3. og 4. hæð Hverfisgötu 8—10 í Reykjavík (Skattstofa Reykjavíkur) miðvikudag og fimmtudag 18.—19. ágúst M. 14.00 til 18.00 báða dagana. Selt verður: Skrif borð, fundarborð, stólar (borðstofu ofl.), hill- ur, skápar, sófar og fleiri húsgögn, ekmig tveggja hurða peningaskápur. Ennfremur er til sölu á afgreiðslu vorri Borg- artúni 7, stór uppþvottavél, skjalaskápar „Skrifpúlt“ 2 stk ný, dæla með rafmótor, Ijós- prentunarvél, fjölritari, bókhaldsvélar og ritvélar. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BÐRGARTÚNI 7 SÍMI 26844 einnig sólríkur malmán. minn- isstæður og það voru mikrl við- brigði fyrir Kristján þegar hann var fluttur frá alhvítum Hvera völlum í apríl f þyrlunni og sá auða jörð við Gullfbss. —SB

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.