Vísir - 23.08.1971, Blaðsíða 3
VIS IR. Mánudagur 23. ágúst 1971. j
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
JeniB upp um 20 prósent?
Japanir biða eftir framgangi i Evrópu i dag
Gengi japanska jensins
verður hugsanlega hækkað
um 20%. í morgun var allt
mjög óstöðugt og óvíst
með hækkunina í Japan, en
fregnir benda til, að Japan
muni neyðast til að endur
skrá gengi sitt til muna
hærra en áður var, vegna
falls dollarans.
Bankamenn í Japan segja
að sennilegt sé að jenið
verði endurmetið og hækk
að í þessari viku, en Jap-
anir eru neyddir til að
grípa til gagnráðstafana,
er Bandaríkjamenn gera
svo harða hríð að útflutn-
ingsverzlun þeirra.
Fregnir frá Washington benta til
aö Bandaríkjamenn hafi krafizt
þess að jenið yrði endurskráð og
hækkað um 17—25%, og stöðugt
virðist sú skoöun ryöja sér til rúms
aö ómögulegt verði að halda hinu
minnsta samræmi milli doilara og
jens — sem og reyndar gildir hvaö
annan gjaldmiðil snertir. Óhætt
mun að reikna með að næstu daga
muni ýmsar þjóðir verða að breyta
gengi gjaldmiðils slns með tiiliti tili
dollars.
Japanir bíða nú eftirvæntingar-
fullir eftir því hvað gerast muni í
evrópskum bönkum í dag. Enn er
ekkert vitað hvernig gengi verður
skráð á þessum morgni í gjald-
eyrisdeildum banka í Evrópu, en
eflaust verður ailt reynt til að koma
í veg fyrir dollaraflóð til Japan.
ÞINGAÐ UM
KRÓNURNAR
Fjármálaráðhorrar og bankastjórar af öllum Norðurlönd-
um komu sa; fjármálaráðuneytinu í Stokkhólmi, þeg-
ar eftir að ljós. varð hverjar breytingar væru yfirvofandi
á gjaldeyrismörkuðum — þ.e. eftir ræðu Nixons í síðustu
viku. Þarna sitja frá vinstri: Gunnar Strang (fjármálaráð-
herra Svía), Per Keppe, viðskiptaráðherra frá Noregi, Knut
Wold yfirbankastjóri Noregsbanka, Tallgren, fjármálaráðh.
Finna og Mauno Koivisto, aðalbankastjóri Finnlandsbanka.
Frá íslandi sat fundinn Jóhannes Nordal, en hann vantar á
myndina.
Fljótandi gengi í Evrópu
//
— erfiður timi fyrir fiármálamenn
Peningamenn í Evrópu
era heídur tæpir á taug
um þar sem gengi ein-
stakra gjaldmiðla eða
mynta var í algjörri ó-
vissu í morgun, og ekki
vitað neitt með vissu
fyrr en gjaldeyrisdeildir
Frakkar halda
tvöföldu gengi
— Japanir segjast hafa haft 35 milljarða $
af Bandarikjamönnum á 3 árum
Fyrirætlun Frakka um að skrá
?engi frankans á tvo vegu á alþjóð-
'egum mörkuðum virðist mælast vel
yrir beggja vegna Atlantshafsins.
Haga Frakkarnir þá siínum gengis
málum í þessu dc'llara-öngþveiti
þannig að þeir halda föstu gengí á
dollar hvað snertir vöruskiptaverzl
un og opinbera umskráningu milli
landa, en hins vegar er gengi haldiö
fljótandi hvað snertir ferðamanna
gjaldeyri og allt brask með gjald-
eyri
Þessi aðferð Frakka nýtur yfir-
leitt viðurkeningar, og hefur jafn-
vel komið til tals í sumum löndum
að fara að þeirra dæmi — hvað sem
úr verður.
sem er farinn að standa all tæpur
gagnvart Evrópugjaidmiðli, þótt
japönsk blöð skrifi nú næstum því
kampakát að s'iðustu þrjú og hálft
ár hafi japanskir verzlunarmenn
haft 35 milljarða dollara af Banda
ríkjamönnum með innflutningi.
opna. Herma sögur, að
margur fjármálamaður-
inn hafi gránað í vöng-
um á þessum fáu dög-
um, sem heimurinn hef-
ur eins og flotið í óvissu
með peningamál sín. —
Hinar fyrirferðarmiklu
tilraunir til að bjarga
gengi dollarans hafa
leitt til þess að ekkert
hefur verið að marka
gengi margra þjóða.
Staða dollars kemur til með að
vera breytileg frá landi til lands,
enda hafa ríkisstjórnir allra Noröur
landa, Bretlands og fleiri landa lýst
þvf yfir, að þær muni halda gengi
dollars „fljótandi" — þ.e. skrá
gengi dollars eftir þvf hvernig kaup
in gerast í hinum ýmsu löndum.
Raunar merkir þetta aðeins, að
hvorki Norðurlönd né Bretland
munu gera eitt eða annað til að
breyta genginu að markj fyrr en
skráningin hefur hækkað eða lækk-
að.
Fregnit, frá London benda til að
Englandsbanki muni halda gengi
pundsins eins og það er, nema doll
arinn falli meira en 2,5 prósent.
í Vestur-Þýzkalandi hefur verið
mikið reynt til að halda gengi á
dollar fljótandi og vilja Þjóðverjar
að hið sama gildi um gjaldmiðil ann
arra þjóða, en fjölmiðlar hermdu í
morgun, að doMarinn gæti fallið
allt að 5 prósent gagnvart þýzka
markinu áður en v-þýzkir ákvæðu
að breyta skráningunni.
Sama er aö segja frá Ítalíu og
Benelux-löndunum, þar hefur gengi
verið fljótandi miMi Benelux-land-
anna og landa utan þeirra — einnig
gagnvart samherjum Benelux-land
anna í Efnahagsbandalaginu, V-
Þýzkalandi, ftalíu og Frakklandi. —
Þegar fjármálaráöherrar Bfnahags-
bandalagslanda höfðu ekki getað
komið sér saman um hvort meta
skyldi gengi dollars á einn ákveð
inn veg, komu Benelux-löndin sér
saman um ákveðna skráningu, og
hafa farið eftir henni síðan — hvað
sem verður nú í vikunni, er gengi
gjaldmiðils hinna ýmsu landa breyt-
ist.
21 skæruliði frá Norður-Kóreu
var stanzaður í rauðabítið morg-
un er þeir komu akandi galvaskir
og stefndu á höfuðstað S-Kóreu,
Seoul, en skæruliðar þessir voru
settir á land í höfn einni örfáa km
í vestur frá Seoul.
Skotárás var gerð á skæruliðana
og sögðu fréttastofur í morgun,
að þeir hefðu flestir verið drepnir.
Hægrisinnuð herforingjaklíka tók
öll völd í Bólivíu á sunnudaginn.
Stóðu fyrst harðir bardagar milli
liðsmanna herforingjaklíkunnar og
herstyrks, sem studdi fyrrverandi
forseta landsins, Juan Torres.
Hugo Banzer heitir hinn nýi leið
togi Bölivíu, og hefur hann þegar
ávarpað þ|óðina í útvarpi. Bændur
og verkamenn hafa verið helztu
stuðningsmenn Torres 'og gengu
margir þeirra fram gegn herstyrk
Banzers, herforinginn réði þó öllu
eftir 16 klst stríð.
Miklar deilur hafa veriö um Torr
es. Hægri menn hötuðu hann fyrir
vinstri villu, og vinstri menn fyrir
hægri villu.
Varaforseti Suður-Víetnam, Nguy
en Cao Ky skýrði frá því f nótt að
hann myndi ekki verða í framboði í
forsetakosningunum í S-Víetnam
sem verða 3. október n.k. Þess
vegna verður núverandi forseti
landsins Nguyen van Thieu eini
frambjóðandinn.
Nixon Bandaríkjaforseti hefur án
efa vonazt til að Evrópuíönd og
Japan hefðu í bvrjun síðustu viku
■breytt gengi gjaldmiðils síns, en
þar sem reyndist mögulegt að
halda jafnvæginu — að minnsta
kosti þessa einu viku — er allt
útlit fyrir, að Nixon verði fyrir
nokkrum vonbrigðum með áætlun
sína, verði henni haldiö áfram.
35 MILLJARÐA TAP
í fyrstu var því haldið fram, að
endurmat dollarans hafi einvörð-
ungu komið til vegna jensins — að
Nixon hafi neyðzt til að stemma
eitthvað stigu við viðgangi Japana
á bandarískum markaði, en sú er
ekki raunin. Raunar þykist Nixon
viss um að ekki hafi verið um ann
að að ræða og hann mun vonast til
hækkunar jensins um a.m.k. 15—
17 prósent, en dollarinn var hvort