Vísir - 23.08.1971, Síða 8

Vísir - 23.08.1971, Síða 8
8 VISI R. Manudagur 23. ágúst 1971, VISIR Otgefandt: Reytejaprenr nt. Framkvœrndastjón: Sveinn R Eyjóifsson Rltstjóri ■ Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birglr Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H- Jóhannessoo Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýslngar; Bröttugötu 3b Simar 15610 11660 Afgreiösla- Bröttugötu 3b Slmi 11660 Ritstjórn: Laugavegl 178, Slmi 11660 f5 linur) Áskriftargjald kr. 195.00 á mánuði innanlands f lausasölu kr. 12.00 eintakið Prentsmiöja Vtsis - Edda M Póstferðum hraóaö 'yísir skýrði nýlega frá nokkuð ýtarlegri athugun \ blaðsins, sem benti til þess, að póstur vsepi að meðal- ( tali heila viku að berast póstleið, sem ekki ætti að / geta tekið nema einn dag, — pósturinn væri sjö sinn- / um lengur á leiðinni en hann þyrfti að vera. / Póstþjónustan hefur kannað þetta mál og virðist ( hafa fundið bilunina í.kerfi sínu, því að nú er póstur V yfirleitt ekki nema einn dag og stundum tvo að berast ( þessa leið. Svo virðist sem þessi póstleið hafi verið / fórnardýr endurskipulagningar á póstkerfinu, sem / stendur yfir um þessar mundir. Alténd virtust póstyf- ) irvöld sunnan og norðan fjalla hvorki vera sammála \ um, hvaða leið pósturinn færi, né hvaða leið hann ( ætti að fara. En nú hefur þessum mistökum verið í kippt í lag. ( Vísir skýrði einnig nýlega frá þeirri endurskipulagn- ( ingu á póstflutningum um landið, sem staðið hefur / yfir að undanförnu og stendur enn yfir. Mál þetta hef- / ur verið lengi 1 undirbúningi, en er nú smám saman ) að sjá dagsins Ijós. Hin aukna þjónusta kostar tölu- \ vert fé, rúmlega þrjár milljónir króna á ári. En hún er \\ Ifka að gera póstþjónustuna mun betur hæfa til að ({ svara kröfum tímans og nútíma samgangna. íi Endurskipulagningin felst í því, að sérstakar flug- ( ferðir og póstbílaferðir eru teknar upp í töluverðum / mæli. Markmiðið er, að allir þéttbýliskjarnar landsins / fái póst ekki sjaldnar en fimm sinnum í viku og af- )) skekktustu sveitabæir ekki sjaldnar en tvisvar í viku, \\ ef ekki er um tímabundna samgönguörðugleika að ií ræða. Þetta er vitanlega stórkostleg endurbót frá því, // sem verið hef ur. /I Vísir skýrði 16. ágúst s.l. nokkuð frá hinu nýja / kerfi í meginatriðum. Geta menn þar séð, til hvers ) þeir geta ætlazt af póstþjónustunni, þegar endur- \ skipulagningunni er lokið, sem raunar er þegar orðið í \ flestum héruðum landsins. Eins og sést af dæminu ( fremst í þessum leiðara, getur það auðvitað komið / fyrir í þessu kerfi eins og öllum kerfum, að reynslan / sé ekki í samræmi við kerfið. Er þá um að gera fyrir ) menn að hafa samband við póstþjónustuna, svo aðhún geti kippt málunum í lag. Hin nýja endurskipulagning er fyrst og fremst gerð ) fyrir landsbyggðina. Samkvæmt kerfi póstþjónust- \ unnar á póstur hins vegar lengi að hafa verið mjög ( fljótur milli staða á Reykjavíkur- og Reykjanessvæð- ( inu. Hinu er ekki að leyna, að ýmsir óánægðir hafa / allt aðra sögu að segja því og raunar fleiru, t.d. að ) hraðpóstur sé látinn liggja yfir nótt. Vísir er nú að \ hefja athugun á því, hvað hæft sé í, að kerfi og raun- \\ veruleiki fari ekki saman á þeim sviðum. (( Verður stjórnarbylting gerð í Suðnr-Víetnam? Margir telja, að bylting kunni að verða í Suður- Víetnam innan skamms Nú hafa báðir keppinaut ar Thieus forseta borið kúgun og svik á Thieu. Annar þessara andstæðinga Thieus for seta er enginn annar en sjálfur varaforseti hans, Nguyen Cao Ky. — Ky hafði verið hafnað sem frambjóðanda í forseta- kosningum, en nú um helgina, vegna þrýstings frá Bandaríkjamönnum, endurskoðaði hæstirétt- ur S-Víetnam úrskurð sinn og nú segir hann, að Ky megi fara í framboð. Ky hefur í hótunum Forsetinn og varaforsetinn hafa ekki verið á eitt sáttir um marga hiuti. Ky hefur verið til muna sjálfstæðari í skoðunum gagnvart Bandaríkjmönnum, Hins vegar h afa komið upp ýmsar sögur um miður æskiiegt framferði Kys, og hann á það til að hrella menn að tilefnis- litlu. „Enn fylgi ég löglegum að- féröum i baráttu minni,“ sagði Ky fyrir skömmu, þegar hann flutti mál sitt fyrir hæstarétti og bar þær sakir á Thieu, að hann hefði kúgað þingmenn og sveitarstjórnarmenn til að gefa Ky ekki nauösynlegan fjölda meðmælenda svo aö hann kæm ist í framboð í forsetakosning- unum. Þetta var greinileg ögrun. Ky gaf í skyn, að til þess kynni að koma, að hann beitti ekki lengur löglegum aðferöum. „Stóri“ Minh grunaður um að vilja samninga við kommúnista Það hefur enn aukið á líkurn- ar á stjómarbyltingu eða upp- reisn í Saigon, að „Stóri“ Minh, hershöfðingi og fyrrver andi forseti afturkallaði framboð sitt nú fyrir helgina „Stóri" Minh er fylgissterkur i Suður- Víetnam, og fjölmarga borgara hefur alla tíð dreymt, að hann tæki við og bjargaði landinu út úr stríðshryllingnum. „Stóri“ Minh var eitt sinn granaður um tilhneigingu til að reyna samn- ingaleiðina við kommúnista. Margir telja, að hann kynni að geta náð samningum, sem bindi endi á stríðið, en hvort það er rétt mat er annað mál. Fer fyrir Thieu eins og Dinh Diem? Þegar talað er um hugsanlega byltingu í Suður-Víetnam, má ekki gleyma, að bylting á bylt- tingu ofan hefur verið reglan fremur en undantekningin, ef litið er til undanfarins áratug- ar. Ngo Dinh Diem forseti var myrtur árið 1963. Mörgum „Stóri“ Minh iiiiiiimn flSi'iffiH llHIBBDIiGiii Umsjón: Haukur Heigason Ky varaforseti er líklegur til stórræða Thieu er sagður hafa fjar- lægzt raunveruleikann í fíla- beinstumi sínum — Thieu og kona hans. finnst ástandið nú mjög líkt því, sem það var þá Eins og Diem þá hefur Thieu forseti fjarlægzt raunveruleikann í stjórnmálum Víetnam og orðið háður litlum hópi ráðunauta, að margra áliti. Munurinn er hins vegar sá,- að Thieu hefur stuðning Banda- ríkjamanna, en Diem ekki. Jafn- vel hafa margir haldið því fram og það verið að nokkra leyti staðfest í „leyniskjölunum" frægu um Víetnam, að Banda- ríkjamenn hafi staðið á bak við byltinguna, sem kostaði Diem lífið. Afstaða Bandaríkjanna gæti ráðiö úrslitum í hugsanlegri atlögu gegn Thieu. Sum blöðu f Saigon hafa látið að því liggja, að það sé bandarfski sendiherr- ann. sem einn viti hver verður forseti Suður-Víetnam f fram- tíðinni Herinn líklega hlið- hollur Thieu Ekki er unnt að fullyrða, hvort til dæmis Ky gæti sigrað Thieu í borgarstríði eða steypt honum átakal’itið Flest bendir ti! þess, að herinn mundi fylgja Thieu að málum í átökum. Hitt er annað mál, að bylt- ingartilraun í Saigon mundi enn auka á óvissuna í Vietnammál- inu og verða vatn á myllu skæru liða. Þótt annað veifið komi til átaka milli herja Suður-Víet- nama og Bandaríkjamanna ann- ars vegar og skæruliða Víetkong og Noröur-Víetnama hins vegar, þá hafa úndanfarnir mánuðir verið þeir bardagaminnstu, frá því að Víetnamstríðið hófst fyr- ir alvöru. Þótt deilt sé um, hvort árangurinn af „víetnami- seringu" Nixons sé jafn góður og stjórnarvöld vilja vera láta, þá hefur her Suöur-Víetnams vissulega eflzt með þeirri stefnu að Víetnamar skuli eins og kostur er þjálfaöir og vopnum búnir til að taka á sínar herðar æ stærri hiuta varnanna. Auk þess hafa bandarísk stjórnvöld Iagt áherzlu á þann vísi að lýð- ræði, sem verið hefur í Saigon. Grunsemdir um, að Thieu hafi með breytingu kosningalaga 'í vor og síðan með ofríki og svik- um hindrað Það, að forsetakosn- ingarnar bæru svipmót lýðræð- isins, eru ekki til að styrkja mál stað bandarískra stjómvalda, sem gjarnan segjast vera að vernda lýðræðið í Víetnam gegn einræði kommúnisma. Einræð’V Ein hættan af einhverjum uppreisnartilraunum er sú, að þær leiði til einræðis sigurveg- arans í þeim átökum Hvort sem Thieu héldi velli eöa einhver keppinautur hans næöi völdum, mætti búast við, að harka'ega vrði gengið fram gegn þeim, sem yrðu undir. Eftir seinustu forsetakosningar tókst að varð- veita frið, með þvi að keppinaut- arnir Thieu og Ky serðust sam- eiginlega stjórnendur landsins og skutu ýmsum deilumálum á frest, Yfingar hafa þó jafnan, verið og persónulegar deilur beirra milli. Thieu þykist! hins vegar nú geta leyft sér að kné- setja kenninaut sinn og • afli til þess. að ekki sé hætta á, að hann missi völdin. Þannig horfir nú í Saigon, að engum skyldi koma á ðvart. þótt upn ur syði og þar yrðu mikil tVðindi innan skamtns.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.