Vísir - 23.08.1971, Síða 9

Vísir - 23.08.1971, Síða 9
^TÍSIR. Mánudagur 23. ágúst 1971, 9 á stóru heimili ■y,....................................................................... .......................................................................................-................................- ...............................................................................................................................................................................• 500 millj. til félagsmála hjá Reykjavikurborg Vissir þú, að 1.663 menn hlutu í fyrra framfærslu- styrk hjá Reykjavíkurborg og að 1523 börn voru á dagheimilum og leikskólum borgarinnar? Eða viss- ir þú, að íbúðum í Reykjavík hefur á fimm árum fjölgað um 3767, en Reykvíkingum hefur aðeins fjölgað um 3162 á sama tíma? Væntanlega hefur þú ekki heldur vitað, að borgin hefur þurft í fyrra að hafa afskipti af þremur drengjum á fimm ára aldri fyrir innbrot og slcemmdir? Og þá væntanlega ekki heldur, að íbúum bragga hefur á 15 árum fækkað úr 2320 í 0? Hefðir þú getað gizkað á, að borgin varði 48.388 vinnustundum í fyrra til heimilishjálp ar og að borgin á 536 íbúðir, sem hún leigir þurfandi fólki? Níu barna f jölskylda Tæplega 57 milljónir króna fóru til framfærslustyrkja til 1.663 manna aðallega aldraðs fólks og foreldra með böm á framfæri. Stærsta fjö'.skyldan, sem fékk stuðning, taldi hvorki meira né minna en níu börn. í þessum hópi voru líka fjórir ein- stæðir feður, sem höföu sex börn á framfæri slnu hver um sig Höfuðástæðan fyrir vanda þessa fóf.is voru mikill bama- Allt þetta og þúsund fleiri atriði koma fram í skýrslu Fé- lagsmáiastofnunar Reykjavíkur- borgar fyrir árið 1970. Þetta er tiltölulega nýleg stofnun, sem borgarstjóm samþykkti árið 1967 að setja upp og láta taka yfir verkefni_ sem áður höfðu verið á vegum ýmissa aðila, svo sem bamaverndarnefndar, fram- færslunefndar og áfengisvam- amefndar Hugsunin á bak við þessa breytingu var sú, að hér væri um að ræða náskyld vandamál, sem gjarnan samein- uðust í tiltölulega fáum fjöl- skyldum, þar sem annað hvort foreldrið væri drykkjusjúkt, börnin á glapstigum, peningar af skomum skammti og hús- næði fyrir neðan allar hellur. Með því að beina kröftunum að fjölskylduvemd, eins konar varnaðarstarfi og endurhæfingu fjölskyldna og einstaklinga, væri hægt að komast að kjarna málsins og gera félagsmá'.astarf borgarinnar mun virkara en áður var. Helzti fjötur run fót þessa nýja og athafnasama ráðs er skortur á vel menntuðu starfs- liöi Hefur ráðið orðið að fara inn á þá braut, að veita lán til náms í félagsráðgjöf erlendis og halda námskeið á ýmsum sviðum félagsmálastarfs. Peningaskort- urinn er e kkinærri eins sár, og árið 1970 varði borgin hvorki tneira né minna en um 500 milljónum króna til félagsmála. Þar kennir ótal margra grasa. fjöldi, örorka og veikindi. 385 fengu styrk vegna veikinda, vegna barnafjölda og 315 vegna örorku. 99 fengu áfengisböls og 20 vegna afbrota. Af þessum fjö'da voru 440, sem ekki höfðu hlotið styrk áður, og var þorri þeirra til kominn vegna barnafjölda og veikinda. Styrkþegum hefur fariö fjölg- andi á undanförnum árum, aðal- lega vegna aukinna umsvifa í fé- lagsmálastarfi Rvíkur. Telja skipuleggjendur þessa starfs, að þessi kostnaður muni borga sig, því að varnaðarstarfið og endurhæfingin muni geta komið mörgum fjölskyldum á réttan kjöl aftur. Stærsti útgja'daliður borgar- innar á sviði félagsmálanna er þátttakan f rekstri almanna- trygginga og sjúkrasamlags. Þetta kostaði borgina tæplega 242 milljónir króna í fyrra eða um helminginn af'öl'.u félags- málafé borgarinnar. Þetta fé rennur til miklu fleiri en hinna verst settu í þjóðfélaginu. Hið sama er að segja um þann reksturshalla, sem borgin greið- ir af dagheimilum og leikskól- um þótt lítið fari fyrir þeim upphæðum í samanburði við tryggingakerfið. 640 leiguíbúðir Afskipti borgarinnar af hús- næðismálum hafa lengi verið mikil, enda er ekki auðvelt að fá leiguhúsnæði, þótt mikið framboð sé á húsnæði í sölu vegna mikilla byggingafram- kvæmda. Reykjavákurborg hefur stutt efnalítið fólk til kaupa á fbúöum og hefur lánað rúmar 49 milljónir króna f þvf skyni á sfðustu þrem árum. Alls hefur borgin byggt og se't yfir 800 fbúðir með hagstæðum kjörrnn og byggt og leigt nærri 300 fbúð ir með enn hagstæðari kjör- um. Leiguíbúðirnar voru f fyrra 536 talsins, en verða væntan- lega f lok þessa árs orðnar 640. Fjö'mennasta fjölskyldan f hús- næöi borgarinnar telur 12 manns. Veigamesta ástæðan fyr- ir þv*i að hleypa fólki f þessar fbúðir er mikill barnafjöldi, og er um tæplega 200 slíkar fjöl- skyldur að ræða. 100 ellilífeyris- þegar búa f bæjarhúsnæði og 93 öryrkjar. Margt af þessu fólki i bjó áður í braggahverfum þeim, sem fyrr á árum „prýddu" borg- ina. Ibúðarbröggunum hefur nú verið útrýmt en auðvitað hefur orðið að hjálpa mörgu af þvf fólki. Og borgin hefur alls látið rífa 822 óíbúðarhæfar Vbúðir á 14 árum. Borgin hefur vfðtækt sam- 'starf við ýmis félagssahitök út af velferðarmálum a'draðra og áfengisvömum. öldruðu fólki er útveguð heimilshjálp og heima- hjúkrun, svo ekki sé gleymt tómstundastarfi þvi, sem farið hefur fram í Tónabæ og gefið góða raun. íbúðir hafa verið byggðar fyrir aldraða og hjúkr- unarheimili er f byggingu við Grensásveg. í áfengisvörnunum er fólki kunnugast um gisti- heimilið f „Farsótt", þar sem 223 einstakiingar fengu inni eina nótt eða oftar, þegar þeir ’ höfðu hvergi höfði sfnu að i halla i 5 ára og samt... Barnavemdin er eitt viðkvæm- ej asta mál félagsmálastarfsins. u Hafa hefur þurft afskipti af 205 | drengjum á aldrinum 5—16 ára. n Flestum mun finnast ótrú'.egt, | að þar á meöal séu þrír 5 ára | drengir, sem skráð hefur verið á | innbrot og skemmdir. Innbrot | eru algengasta vandamálið og •] hafa 167 börn og unglingar komið þar við sögu á sfðastliðnu | ári. Er Þar eingöngu um drengi j að ræða, yfirleitt á aldrinum 10—15 ára. Stúlkur komast mik'.u síður á skrá, og vom þær aðeins 30 þetta sama ár, þar af sjö í dálkinum flakk og útivist. Hér hefur aðeins verið drepið á örfáar tölur úr þvf mikla upp- lýsingasafni, sem ársskýrsla Félagsmálastofnunarinnar er. 1 heild gefa þær þá mynd, að það þurfi áreiðanlega margs að gæta á stóru heimili. ekki sfzt þegar „heimilið" telur 80.000 manns. Eitt veigamesta verkefni borgar- innar er að byggfa upp félags- lega aðstöðu fyrir unga og gamla. Efri myndin er frá leik ve’li f borg'nni oe neðri myndin frá féiagsstarfi aldraðra í Tóna bæ. i

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.