Vísir


Vísir - 23.08.1971, Qupperneq 13

Vísir - 23.08.1971, Qupperneq 13
7 3 V í S I §L. Mánudagur 23. ágúst 1971. Eldri námskeiö sem haldin hafa verið, hafa ekki verið eins viðtæk. Sameiginlegur kjarni fyr- ir. alla. síðan ■— Kennaranámskeiðin í myndiðn og tónlist boða víðtækar breytingar á kennslu í listræn- um efnum í barna- og gagnfræðaskólum, og um leið verður hefðbundinni sundurgreiningu handavinnukennslunnar eftir kynjum breytt. Tjað er hópur fólks, sem and- stætt flestum öörum situr skólabekkinn á sumrin — en það eru einmitt kennarar sjálfir. Þetta er ný þróun og í beinum tengslum við endurskoðun námsskrárinnar og nýjungar, sem á að taka upp og verið er að taka upp í kennsluháttum hér á landi. Nú er það svo, að 60% allra starfandi kennara á barna- og gagnfræðaskólastiginu hafa varið tveim til þrem vikum af sumarleyfi sínu til þess að sækja þessi námskeið í sumar. Þessa dagana er haldið nám- skeið fyrir teikni- og handa- vinnukennara, sem tæplega 150 manns taka þátt í. Þar er verið að ptófa og kynna víðtækar breytingar, sem munu eiga sér stað í teikni. og handavinnu- kennslu einhvern tíma á næstu árum. Útkoman verður senni- lega námsefni, sem kallast myndíð og er fólgið i tengslum handavinnu- og myndlistar- fraeðs'lu. Þegar myndíð kemst á sem kennslugrein verður æva- gömlu skipulagi endavelt, en það er hefðbundin sundurgrein- ing handavinnukennslu eftir kynjum. ^ndri ísaksson forstöðumaður Skólarannsókna sagði að unnið yrði að endurskoðun námskrárinnar í handavinnu- kennslu og teikningu næsta ár og að undirbúningi mynd’iðar- kennslu f skólum. „Sú kennslu- tilraun, sem nú fer fram með námskeiðinu er að byggja þessa kennslu upp sem sameiginlega grein, síðan myndu greinarnar skiptast. Þannig verður sameig- inlegur kjarni fyrir alla, síðan valgreinar þar sem nemendur velja út frá áhugasviðum". Meðal þess sem kennaramir leggja stund á á námskeiðinu er föndur, leirmunagerð, silfur- smíðavinna og margt annað, sem gefur kost á miklu fjölbreyttari kennslu en áður hefur t’iðkazt. Auk þess er á námskeiðimi fjall að um markmið myndlistar- kennslu og stöðu myndíðar í skólakerfi og þjóðlífi og tengsl myndlistarkennslu við aðrar námsgreinar. í einhverjum skólanna hefur kennslu i handavinnu og teikn- ingu verið breytt á grundvelli eldri námskeiða. Námskeiðið nú felur f sér mik’u stórtækari breytingar eins og áður hefur verið minnzt á. ( Cöngkennslu n^un einnig verða ^ breytt og aukin í skólum borgarinnar næstu árin. í vet- ur á að vinna að nýrri nám- skrá, sem mun taka gildi haustið 1972. Nú stendur yfir námskeið fyrir tónlistarkennara, sem tveir Ungverjar kenna á meðal ann- arra, en í Ungverjalandi hefur orðið gjprbylting í söngkennslu og kallast það Kodalykerfið. Þar er gert ráð fyrir viðtækari tónlistarkennslu en þekkzt hef- ur, og að hún tengist a.m.k. 6- beint öðrum námsgreinum. Tilraunir með þetta kennslu- form hafa þegar verið gerðar f nokkrum bamaskólanna, ein- um fjórum, m.a. með aukinni kennslu. þrem vikulegum tón- listartímum í stað eins áður og auk þess var námsefni breytt Tilraunin var gerð í 7, 8, og 9 árá bekkjum og ætlimin er að nýta þá reynslu, sem þar fékkst —SB Fjölskyldan MUNIÐ FLÓTTAFÓLKIÐ FRÁ PAKISTAN ★ Tekið á móti framlögum í bönkum, spari- sjóðum, póstafgreiðslum og í skrifstofu félagsins, Öldugötu 4. GÍRÓNÚMERIÐ ER 90-000. , \ Rauði kross Islands Kranar til sölu Til sölu eru hjá hafnarsjóði Hafnarfjarðar tveir kranar, ef viðunandi kauptilboð fæst. Annar kraninn er 15 tonna „Michigan“ bS- krani með 65 feta bómu og 15 feta „jib’*, hinn kraninn er 5 tonna sjálfakandi „Coles*' krani með 30 feta bómu. Kranarnir eru til sýnis við Hafnarfjarðarhöfn frá kl. 14 til 18 þessa viku fram til föstudags. Kauptilboð skulu hafa borizt til undirritaðs fyrir 1. september 1971. Hafnarstjórinn í Hafnarfirði, Strandgötu 4. MGUtiévhviU _ með gleraugum frá Austurstræti 20. Síml 14566. BjóBum aðeins jboð bezta Badedas í 25 og 10 böð ný- komið FRÁ CUTEX: Naglabandaeyðir — nagla- bandakrem — naglastyrkir — naglaþjalir og aciton. Opið til kl. 22 á föstudögum. — auk þess bjóðum við við- skiptavinum vorum sérfræði- lega aðstoð við val á snyrtivörum. SN YRTIV ÖRUBÚÐIN Laugavegi 76. Sími 12275

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.