Vísir - 01.09.1971, Blaðsíða 9

Vísir - 01.09.1971, Blaðsíða 9
VÍSIR. Miðvikudagur 1. september 1971. 9 Búnir a< níutíu a, o, a sjomn i ekkert frí Ræft v/ð sjómenn á Náttfara ÞH 60, sem var að koma frá s'ildveiðum i Norðursjó Það var engin sérstök blíða f augnaráði mannskapsins, né heldur neinn gælutónn í rómn um þegar við ætluöum að taka tali strákana á Náttfara, sem nýkominn er heim a'f síldveiö- um í Noröursjó. í níut’iu daga — þrjá mánuði samfleytt — eru þeir búnir að berja sjóinn allt frá 40 föðmum og út á 70 faöma og dýpra utan við 12 mílna landhelgislínu Hjaltlandseyja. Óslitið í 90 daga, menn jafnvel fyrir sínu kaupi. „Hey, annars! Voruð það ekki þið á Vísi, sem svo snilldarlega reiknuðuð út hve mikið þjóöar búið tapaöi á því að síldarsjó- menn tækju frí um helgar? — Þið getið sleppt áhyggjunum núna. Engu töpuðuð þið á okk ur 1 sumar.“ Ef ekki hefði örlað á stríðni- glampa í einstaka augum þarna í messanum, hefðum við senni lega foröað okkur í land, áður á bryggjunni Að vísu hefur hún ekkj langt geymsluþol í þessum tönkum, um sólarhring, ef hún er geymd lengur verður hún roðlaus en það stafar af því að þetta eru þrýstitankar. Við hins vegar setjum síldina beint í kassa úti á miðunum. Þetta er ekki svo mikið magn sem við getum komið með eftir hverja veiðiferð 60 til 65 tonn, og það er of lítið miðað við þetta langa siglingu. Við veiddum aðallega úti viö Hjaltlandseyjar og lönduðum í Hirtshals á Jótlandi. Tíminn fór aðallega í að stíma fram og Strákarnir á Náttfara eru að vonum ánægðir á svipinn, yfir því að /era komnir í höfn eftir þéssa löngu útiveru. fyrir utan einhverja tvo sóla- hringa sem þeir lágu í vari við eyjarnar fyrir veðri „Og er nú verið að koma til þess að skrifa um, hvað þetta hafi verið allt gott og yndislegt. Hetjur hafsins komnar heim i veiðilok, ánægöar með góðan afla og allt það kjaftæði? — Jæja, kallarnir. Þá eruð þiö komnir í skakkan stað, held ég,“ sagði einn hásetanna og gaut auga til útbúnaðar ljósmyndarans. Þessu var ekki hreytt i okkur, heldur svona slegið fram til þess að viö gætum sparað okkur strax ómakið, ef við værum á þeim buxunum. Vestur við Grandabryggju voru þeir að setja veiðarfærin og fiskikassana í land og hreinsa skipið efcir úthaldið. Leiðinda- verk, sem kemur öllum ærleg- um sjómönnum í fúlt skap, og suddarigningin bætti ekki geð ið í þeim. Og svo voru líka þessir 90 dagar að baki . . . „Ekki einn einasti helvítis fri dagur allan tímann,“ og þung áherzlan hneig af hverju orði 'i von um, að með því gætu biaðamennirnir kannski skilið ögn af því. hvað slíkt úthald þýöir. Þar sem hver dagurinn er öðrum líkur. Sofa, taka stýr isvakt, standa uppi á nótapalli með fullar lúkur af garni og draga inn nótina — ísa síld í kassa og koma þeim fyrir i lest inni. „Já, stafla 40 kg kössum upp 'i þrettándu kassa hæð! — Hald ið þið, að það sé eitthvert létta verk,“ og augnaráðið, sem got ið var til hvítrar skyrtu blaða mannsins, lýsti vissum efasemd um um, að þar í stétt ynnu en þeir dembdu alveg úr skál- um þriggja mánaða samansafns af ergelsi og leiðindum yfir okk ur — Það bitnaði þó ekki á gestrisninni, því að fyrr en varði skákaði kokkurinn nokkr um kaffiföntum fram á borðið og bauð okkur brosandi að gera svo vel. Hann var l’ika orðinn vanur rausinu í köllunum, og sennilega jafngott fyrir hann og hafa tiltækt glaðvært bros, þeg ar þeir hafa verið að setjast viö boröið hjá honum, úrillir og ön ugir, og ýmislegt fleira munn tamara en tómar bænir. Kaffið bjargaði málunum. og samræður tókust, — ef sam ræður skyldi kalla. Spurningum er varpað fram og svörin koma dræmt og seint, og alls ekki, ef spurningarnar eru heimsku- legar. „Ó, já. Þið eruð svona fróðir! — Vitið ekki, að svæðið þarna er opnað til veiða ‘i byrjun júní, og því lokað í endaöan ágúst. Síðan er ekki opnað aftur fyrr en í október," upplýsist með háðslegu glotti, sem breytist í meðaumkunar- og umburðar- svip. „Þetta eru orðin alltof lítil og úrelt skip, sem við erum með, þarna í Norðursjónum.“ Það er stýrimaðurinn á Náttfara, Pét- ur Guðjohnsen sem segir þetta. „Til dæmis Færeyingarnir, sem fyrir nokkrum árum voru að okkar dómi langt að baki ís- lendingum í veiðitækni og skip um, eru núna komnir langt fram úr okkur. Skipin þeirra eru bæði stærri og fullkomnari, og svo eru þau til dæmis útbúin með kælitönkum. í þessum tönkum er síldin flutt ísuð ti' lands og háfuð beint í kassa tij baka. Engin stopp í landi, mesta lagi klukkutími fyrir suma en ekki allir komust í land.“ „Hvernig er svo að vera þetta lengi aö héiman í einu?“ „Þetta er alltof langur tVmi í einu Það er kominn urgur í mannskapinn, menn orðnir leiðir á því að fá engin frí allan þenn an tíma. Við fórum út héðan 2. júní og komu inn klukkan 2 í nótt. Þetta lendir á fjölskyld- unni, konan verður að standa i öllu vafstrinu hérna heima. Þetta er sérstaklega slæmt þeg- ar menn standa í stórræðum, eru að kaupa íbúðir og þess háttar." „Hvernig er svo mannskapur- inn á bátunum?" „Það má segja að það sé helzta vandamálið í dag. Hér á Náttfara erum við bara tveir sem erum búnir að vera hérna síðan skipið var smiðaö 1957, ég og vélstjórinn. Vana sjó- menn virðist bara ekki vera að fá. Það er ekki alltaf auðvelt að standa með 8 til 9 háseta á dekkinu, alla meira og minna óvana,“ segir Pétur Guð- johnsen að lokum. Þeir eru búnir aö vera í flota 55 íslenzkra veiðiskipa, sem ver ið hefur að veiðum í Norðursjó í sumar. En á miðunum hefur veriö fjöldi norskra, danskra og þýzkrá veiðiskipa. „Fyrir utan svo Skotana, sem veiða auðvitaö innan við land- helgi — þar sem mesta og bezta síldin er.“ Þeir hafa landað í Skágen og Hirtshals í Danmörku, og eina ferð fóru þeir til Þýzkalands. Öll síldin ísuð í kassa — nema ef mikið var í s’iðasta kastinu, en það fer þá í bræðslu. „Norsarárnir;'e'Áií!þéíf''feihU, .> sem veiða, þarna, í gúanó — moka í gúanó. Það er skrítið, að takmarka veiði á svæðinu við örfáa mánuði, en leyfa svo mokveiði í gúanó þann stutta tíma, sem veiða má. — Það mætti hafa lengri veiðit’ima, með því að banna gúanófiskiríið. Hvers vegna hafa þeir ekki sam ið um það?“ En við getum ekki svarað því, og við kunnum heldur ekki svör við þvi, hvers vegna þeir geta ekki fengið svipað verð fyr ir síldina hérna heima. eins og þeir fá úti í Danmörku. Það þykir gott, ef þeir ná að landa einu sinnj í viku, 1200—1600 kössum. Fimmt’iu og fjögurra tíma sigling er í ÍttttLwws.. Pétur Guðjohnsen stvrimað- ur: Erum með úrelt skip og okkur vantar fleiri vana sjó- menn. höfn af miðunum, og lenguren 3 nætur mega þeir ekki vera á miðunum með aflann. Þeir á Náttfara eru búnir að afla fyrir ca 8 milljónir, og úr því er hásetah’uturinn ca. 170 þúsund. Með netavertíðinni og loðnunni er hásetahluturinn kominn upp í 440 þús. frá ára- mótum. — Þegar blaðamaður- inn slær tölunni fram til þess að sýna, hve snöggur hann er V hugareiknigi er því tekið kuldalega. „Og hvað með það! — Við erum búnir að púla fyrir hverri krónu. Við gætum velt hverj- um einseyring upp úr svitan- um, sem við erum búnir aö úthella fyrir þetta.“ Og framundan er daufur kafli. Hvað á að gera svo með stóru bátana? — Fara á síld hér heima, ef síld finnst. (Hafi ein- hver séð síld hér um slóðir, er hann vinsamlegast beðinn um að gera viðvart.) Kannski verð ur bara legið við bryggju, þar til Noröursjórinn verður opnað- ur aftur í október — ef það verður þá farið í Norðursjóinn aftur. Allt er í óvissu. Og mannskapurinn, hvað gerir hann á meðan? — Fyrst verður gluggað í tollinn (bjórinn og á- fengið). sem fékkst úthlutaður ... „og við megum alveg viö því aö staldra ögn við til þess að draga andann.” Nokkrir sfldarbátanna, sem komnir eru úr Norðursjó liggja við bryggjur vestur á Granda, og í gær voru flestir að taka upp veiðarfærin og fiskikassana.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.