Vísir - 01.09.1971, Side 13
V1S1R. MtoviKudagur t. septenflter rsn
?3
Hvað kostar að
þvo í sjálfvirkri
þvottavél?
— ódýrara að jbvo fyrir Jbó, sem fcúo í fjöl-
býlishúsum, sem i er sameiginleg bvottavél
T/' venfélagasamband íslands
hefur nýlega gefið út bækl-
ing, sem fjallar um sjálfvirkar
þvottavélar.
Sigríður Haraldsdóttir, sem
stendur fyrir Leiöbeiningastöð
húsmæðra, sem rekin er af
kvenfélagasamba'ndinu segir að
ástæðan fyrir því að ráðizt var
í að gefa bæklinginn út sé sú,
að í leiðbeiningastöðinni sé oft
ast beðið um fræðslu varðandi
sjálfvirku þvottavélarnaT.
í bæklingnum er sagt frá því
hvers þarf að gæta, þegar sjálf
virk þvottavél er keypt, hvern
ig þvottavélin þvær, hvemig
eigi að fara með hana og hvað
það kostar að þvo í sjálfvirkri
þvottavél. Bæklingurinn er
myndskreyttur af Barböru Áma
son, og er til sölu á skrifstofu
kvenfélagasambandsins og kost
ar 25 kr.
Fjölskyldusiðan birtir hér á
eftir kaflann um það hvað það
kostar að þvo í sjálfvirkri þvotta
vél en samkvæmt athugun Sig
ríðar sem tók bæklinginn sam
an virðist seijj. ódýrara sé að
þvo í eigin þvottavél en senda
í þvottahús.
Þess skal getið að greinam-
ar H bæklingnum ha'fa áður birzt
f Neytendablaðinu, 2.—3 tbl.
1970.
„TJtilokað er að gera nákvæma
áætlun um þaö, hvaö kost
ar að þvo þvott í sjálfvirkri
þvottavéi og skal því hér aðeins
með dæmum reynt að benda á
helztu kosnaðarliðina.
Margar sjálfvirkar þvottavél
ar kosta um 40.000 kr. og er
þá talinn með kostnaður við
tengingu vélarinnar við vatns
lögn og ra’fleiðslu. Ef vélin end
ist í 10 ár, þarf að afskrifa
hana um kr 4.000 á ári. Erfitt
er að segja, hve lengi þvottavél
in endist. Ef til vill þarf að
endurnýja hana eftir 5 eða 8
ár og ef til vill endist hún í 12
og jafnvel 15 ár.
Ennfremur verður að gera
ráð fyrir vaxtatapi. Ef engin
þvottavél er keypt mætti setja
upphæðina í banka og fá banka
vexti, en þar sem vélin er af-
skrifuð um kr. 4.000 á ári,
minnkar vaxtatapið með hverju
árinu sem líður Að jafnaöi verð
ur vaxtatapið þVi vextir af helm
ingi upphæðarínnar (9% af kr.
20.00) eða kr. 1.800 á ári.
Viðhaldskostnaður vélarinnar
er því miður ekki aðeins undir
því kominn, hve mikið vélin er
notuð og hvernig gengið er um
hana, tilviljanir ráða þar einnig
nokkru um.
Meðalviðgerðarkostnað er því
aðeins hægt áð gizka á, og eru
hér kr 2.000 árlega nefndar.
Reksturskostnaður fer að
sjálfsögðu eftir því, hve mikiö
vélin er notuð. og auk þess er
rafmagnsneyzla sjálfvirkra
þvottavéla misjöfn eftir tegund
um Ef gert er ráð fyrir, að ein
fjöiskylda noti þvottavélina' 150
— 170 sinnum á ári (fyrir 600
kg af þvotti) og að vélin eyði
rúmlega 3 kílówattstundum við
hvern þvott, þýðir það 450-
510 kwst. á ári. Hver; kwst.
kostar nú kr. 2.31 Rafmagns-
kostnaður verður þannig um
kr 1.200 árlega (júlí 1971).
Við hvern þvott má reikna
með að um 100 g séu notuð af
þvottaefni að meðaltali. (Stund-
um minna, stundum meira).
Þvottaefnið er misdýrt eftir því,
hvort um erlent eða innlent
þvottaefni er að ræða (Um kr.
14 hver 100 g erlenda þvotta-
efnið, um 7.50 hver 100 g inn-
lenda þvottaefnið). Þvottakosfn-
aðurinn yrði þannig yfir árið
I. 200—2..30O kr. .(eftil þv4' hvaða
þvottaefnj er notað).
Kostnaður vegna sjálfvirku
þvottavélarinnar yrði þannig á
einu ári:
Fastur kostnaður:
Afskrift . . . . kr. 4.000
Vextir . . . . kr. 1.800
Viðgerð . . . . . kr. 2.000
AIls kr. 7.800
Reksturskostnaður
Rafmagn kr. 1.200
Þvottaefni kr. 12 00-2.300
Alls kr. 2.400—3.500
Heildarkostnaður við þvotta-
vélina yrði þannig 10.200—
II. 300 kr árlega. f þessum 'Út-
reikningi er aðeins tekin fyrir
þvottavél, sem ætluð er fyrir
eina fjölskyldu dæmið liti öðru
vísi út ef athugaður yrði kostn-
aðurinn við sjálfvirka' þvottavél,
sem er ætluð trl sameiginlegrar
notkunar í fjölbylishúsi.
Notkun slikrar þvottavélar er
auðvitað miklu meiri en þvotta
vélar, sem aðeins ein fjölskylda
notar, en það þýðir m. a'„ að í
afskrifa verður slíka þvottavél
hraðar og að öllum líkindum að
áætla viðgerðakostnað allmikiu
meiri. Auk þess er sjálfvirk
þvottavél fyrir fjölbýlishús nokk
uð dýrari en venjuleg sjálfvirk
vél — Heildarupphæð hins
fasta kostnaðar yrði þannig
hærri, en þessi kostnaður deil-
ist hins vegar á marga aðila.
Ef reiknað er með að sjálfvirk
þvottavél fyrir fjölbýlishús kosti
um kr. 50.000 (tenging við vatns
'.......
Heildarkostnaðurinn við sjáif
virka þvottavél í fjölbýlishúsi
er áætlaður 5.400—6.500 kr.
árlega fyrir eina fjölskyldu en
10.200—11.300 kr. fyrir
þvottavél, sem ætluð er einni
fjölskyldu eingöngu. Hér
sjáum við vélasamstæðu í
einu fjölbýlishúsanna í borg-
inni.
lögn og rafleiðslu er hér tekin
með) og ef áætlað er, að vélin
afskrifi sig á 5—6 árum og
viðgerðakostnaðurinn yröi um
helmingi hærri en á þvottavél
fyrir eina fjölskyldu, yrði fastur
kostnaöur (árlega) um kr, 10.000
(lauslega,áætla§). Algepgt er, að,
um 6 fjölskyldur séú saman
um slíka þvott^vél og vjði fjyiU,,
kostnaðurinn árlega fyrírnverja’
fjölskyldu um kr. 3.000. Rekstr-
arkostnaðurinn (þ. e. rafmagn
og þvottaefni) yrði auðvitað sá
sami fyrir eina fjölskyldu og 1
dæminu áðan, eða kr. 2.400 —
3.500 Alls yrði þannig heildar
kostnaðurinn ,við slíka þvottavél
kr. 5.400—6.500 árlega fyrir eina
fjölskyldu.
En hvað kostar þvottur í sjálf
virkri þvottavé] í samanburði
við aðrar léiðir við þvottinn,
eins og t. d þvottahús?
í dæminu hefur verið reiknað
með þvotti á 600 kg af fatn-
aði árlega. Ef ein fjölskylda not
ar sjálfvirku þvottavélina verður
kostnaðurinn af þvottinum kr.
17—19 fyrir hvert kíló. Ef fjöl
skyldur eru saman um þvotta
vél kostar þvotturinn sam-
kvæmt dæminu að framan og
miðaö við sömu notkun árlega
fyrir hverja fjölskyldu kr. 9 — 11
fyrir hvert kíló. 1 þvottahúsi
kostar blautþvottur 22 kr hvert
kíló, Við þessa upphæð má
þæta flutningskostnaði.
Sést af þessu, að hvernig sem
á málið er litið, virðist ódýrara
að þvo í eigin þvottavéi en
senda )' þvottahús.
Tekið skal fram að margt
getur breytt þessari kostnaðar
áætlun eins og hve góð þvotta
vélin er og hvernig með hana
er farið, hvert verð vélarinnar
er, hve mikill viðgerðakostnað-
ur verður. og að sjálfsögðu geta
þvottahúsin breytt verði sínu.“
—SB
MGMéghrth
með gleraugum frá
Austurstræti 20. Simi 14566.
tyo
Atvinna
Stúlka óskast til verzlunarstarfa. Lágmarksaldur 18 ára.
Meiabúðin, Hagamel 39.
\ WVi V
Sölumennska —
Útkeyrsla
Óskum eftir að ráða mann til starfa við heildverzlun
Verður að geta unnið sjálfstætt við lagerstörf, —
útkeyrslu og sölumennsku. Þarf aö geta byrjað sem
fyrst. — Tilboð sendist augld. Vísis fyrir Iaugardag
merkt „Sölumennska“.
Klæðskeri
— Framtibaratvinna
Óskum eftir að ráða klæðskera.
Uppl. í síma 36600 kl. 9—5 næstu daga.
/ mm \
£tSp/c
Einkennisföt
Tilboð óskast í framleiðslu einkennisfata fyrir
ríkisstarfsmenn. Útboðslýsingar eru afhentar
á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð 28. september 1971.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844