Vísir - 25.09.1971, Side 13
73
V ÍSIR. Laugardagur 25. september 1971.
•••••••«
J ólaskrey ti ngar
auka ekki söluna
— niðurst'öður rannsókna, sem hafa farið
fram erlendis sýna, að viðskiptavinurinn
lætur jólaskreyfingarnar ekki hafa áhrif á
innkaup sin fyrir jólin
TTér heima er þegar byrjað að
velta vöngum yfir „jóla-
bókaútgáfunni“ — hvaða bækur
komi út hjá hinum ýmsu útgef
endum fyrir jólin. Erlendis er
þegar farið að huga að jólasöl
unni og sálfræðin er tekin með
i reikninginn í þetta sinn.
Frændur okkar á Norðurlönd
um haf a orðið várir við það s’ið
ustu árin, að mörgum er farin
að ofbjóða kaupmennskan kring
um jólin, allt glysið og skrumið,
sem hefst löngu fyrir jól, mun
fyrr en hér hefur tiðkazt.
Minnka jólaskreyting-
arnar?
í blaði kaupsýslumanna í Dan
mörku segir frá danskri verzlana
keðju, sem þegar er búin að
taka ákvöröun í sambándi við
jólasöluna. Hún er á þá lund,
að verzlanahringurinn mun ekki
taka þátt í sameiginlegum skreyt
ingum fyrir jólin. Þessi ákvörð
un byggist á rannsóknum, sem
hafá farið fram í Danmörku og
Þýzkalandi. í Þýzkalandi hefur
Of mikil verzlunarhátíð.
„Við höfum það á tilfinning|
unni, að neytandanum finnistj
jólin vera orðin of mikil verzls
unarhátið og öll jólastemmningj
in of háspennt.
Margir viðskiþtavinanna hafai
raunin orðið sú að hætt er við
mikilfenglegar skreytingar fyrir
jólin í verzlunum.
Danska verzlanakeðjan hefur
gert sínar eigin rannsóknir
á því hvernig jólaskreytingin hef
ur haft áhrif á sölu fyrir jólin
li þeim deildum sem hafa tekið
þátt í sameiginlegri skreytingu
ásamt öðrum verzlunum. Það
kom í Ijós, að salan hefur verið
jöfn í þeim deildum, sem hafa
skreytt og hinum, sem ekki
hafa gert það.
Forstjóri þessa fyrirtækis seg
ir í viðtal; við blaðið, að það sé
ekki aðeins af sparnaðarástæð
um og til að vera leiðinlegir,
sem ákvörðunin hefði verið tek
in.
þegar glaumurinn hefst löngu fyrir jól.
Börnin ruglast í ríminu —
sagt okkur, að börnin verði
alveg rugluð í rí'minu vegna jóla
útstillinga verzlananna og jóla
skreytinganna, sem séu settar
upp löngu fyrir jól.
Okkur fannst einhver verða
að vera upphafsmaður að því að
draga úr jólaverzlunaræðinu og
koma þessum viðskiptum í jafn
vægi.“
Þetta sagðj forstjóri þessarar
verzlanákeðju og bætti þvf við,
að í ár myndi verzlunin ekki
taka' þátt í jólaskreytingum
nema innandyra og þá hafa litla
skreytingu.
„Þeir peningar, sem sparast
við þetta verða notaðir til að
lækka vöruverð og við höldum
því fram, að viðskiptavinir okk
ar muni kjósa það fremur en
jólaskrautið.“
Það má búást við því, aö
þessum nýmælum verði vel tek
ið af viðskiptavinum þessarar
verzlunar, og hún muni sfzt af
öllu tapa á þessum viðskiptum.
—SB
/ / /,« v
*. cV,á'\KVtAoc*«j/
»••1
VÍSIR í VI!<ULOKIN
fylgir aðeins til fastra áskrifenda.
Vöntíuð mappa getur fylgt á
Kostnaoarveroi.
VÍSIR í VIKULOKIN
er orðin 396 síðna litprentuð bók í fallegri möppu,
sem inniheidur allt sem viðkemur konunni og
heimilinu.
VÍSIR í VIKULOKIN
er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun
til nýrr; áskrifenda.
(nokkur tölublöð eru þegar uppgengin)
VISIR ÍVIKULOKIN
HANDBÓK HÚSMÆÐRANNA