Vísir - 21.01.1972, Blaðsíða 4

Vísir - 21.01.1972, Blaðsíða 4
4 V 1 S I R ...Jagur 21. janúar 1972. Gyðingahatur er rótgróið í Sovétríkjunum, en Gyðingar þar hafa að undanfömu verið djarfari en áður að heimta rétt sinn. Nokkur þúsund þeirra hafa fengið leyfi að flytja burt frá Sovét ríkjunum síðasta árið, og þessir fólksflutningar haida áfram jafnt Og þétt. Á myndinni er ungt og gamalt. Gamli maðurinn bíður eftir að skrá sig hjá yfirvöldum, eftir að Júmbóþota lenti á flug vellinum í Tel Aviv með hóp Gyðinga. Ferðamannahótel var opnað í smáríkinu Nepal v ið' rætur Mt. Everest, hæsta fjalls veraldar. Jap- anskir fjármáiamenn stóðu að fyrirtækinu, og þ eir hafa sett í hvert herbergi hótelsins súrefnis- geyma, sem eru ætlaðir þeim gestum, sem kunna að eiga erfitt um andardrátt í þessari miklu hæö, 3.860 metra yfir sjávawnáli. Bandaríkjamenn leggja inn á nýja braut í geimvísindum. Fimmta janúar samþykkti Nixon Bandaríkjaforseti að smíða skyldi geim flaug, sem gæti borið mannskap og tæki milli jarðar og geimstöðva í framtíðinni. Fyrirtækið kostar ekki minna en 500 milljarða króna. Á myndinni eru þrjár gerðir shkra geimflauga framtíðarinnar. Hafnarverkamenn hafa gert verkföll víöa í bandarískum liafnar borgum. Þessi verkfaliaida hefur staðið í nokkra mánuði. Mynd in sýnir verkfallsvörð hafnarverkamanna í San Francisco eftir að félag þeirra byrjaði á nýjan leik á 100 daga verkfalli sínu. Ríkisstjórnin hafði skipað þeim að snúa aftur til vinnu 6. október í samræmi við Taft Hartley lög, sem gera ráð fyrir að „kæia“ megi verkföll og fresta þeim um tíma. Jarðýtan villtist illa í Sylmar í Kalifomíii. Hún réðst á rangt hús, og það, sem áttu að vera um 450 þúsund króna umbætur á húsum, sem jarðsk jálftinn hafði skemmt, varð algert tap. Frú Dor- othy Irwin veit ekki sitt rjúkandi ráð, þar sem hún stendur við rústir hússins síns gamla. Hún segir, að húsið hafi verið rúmlega tveggja miiljón kr. virði. Það hafi skemmzt lítið eitt í jarðskjálftan um í febrúar í fyrra. Húsið, sem átti að brjóta, er nokkrum númerum neðar í götunni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.