Vísir - 01.02.1972, Side 3

Vísir - 01.02.1972, Side 3
VtSIR. Þriöjudagur 1. febrúar 1972. 3 Hans G. Andersen á hafsfbotnsfundi i Lagos Áheyrnarfulltrúi á laganefndarfundi Asíu- og Afríkuþjóða Hans G. Andersen, sendiherra og þjóðréttarfræöingur islenzkra stjórnvaldr er nýkominn heim af fundi laganefndar Asiu og Afríku- þjóöa i Lagos i Nígeriu, þar sem hann sat sem áheyrnarfulltrúi. Þetta var eins konar undirbún- ingsfundur þessara þjóöa fyrir fund, sem halda á i New York i marz i undirbúningsnefnd haf- réttarráöstefnunnar , sem ráö- gert er aö halda áriö 1973. Hans G. Andersen sagði, að ekki væri um það að ræða, að þessi fundur gæti komizt að neinni einstakri niðurstöðu. I fyrsta lagi hefði nefndin aðeins ráðgefandi vald, en þar að auki hefðu aðildarlöndin mjög skiptar skoðanir á landhelgismálunum, allt frá Japan, sem vildi 12 milna landhelgi, til Kenya, sem krefðist 200 milna landhelgi. Haffootnsmálin og landhelgis- málin voru almennt á dagskrá fundarins. Þó var fyrst og fremst rætt um það, hvernig staðið yrði að nýtingu alþjóða hafbotns- svæðisins, sem yrði utan hafi- botnssvæða einstakra strand- rikja. Enn sem komið komið er er allt á huldu um, hve hafbotns- svæði einstakra strandrikja muni ná langt út. Þar er er bæði rætt um að miða þau við ákveðinn milufjölda út frá gunnlinum eða miða þau við ákveöið nýtanlegt dýpi, t.d. 200 metra. Hans G. Andersen sagði að lokum, að þarna hefði að sjálf- sögðu gefizt gott tækifæri til að ræða við fulltrúa hinna einstöku rikja i undirbúningsnefndinni um sjónarmið Islands. —VJ Klassíkin d uppleið AAiklI eftirspurn í gömlu meisturunum, Kjarval, Ásgrimi og á uppboðum Vogun vinnur vogun tapar segir máltækiö. Islending- ar virðast ekki vera hrifnir af þessu máltæki, þegar þeir fara á listmuna- uppboð. Allavega finnst þeim tryggara að treysta gamalgrónu verðmæta- mati og kaupa Kjarval, Ásgrím og Jón Stefánsson, en að styðja við bakið á yngri listamönnum og efni- legum. Það gerir það að verkum, að eftirspurn eftir verkum „gömlu mannane” i málaralistinni er mikil, jafnframt sem framboð er fremur litið. Kannske veldur hinu siðarnefnda einnig allsæmilegur efnahagur fólks. t vetur hafa tveir uppboðshald- arar stundað sina iðju i Reyk- javik Knútur Bruun, sem verður með fjórða listmunauppboð sitt i dag og býður þar upp bækur og Hilmar Foss, sem hefur forsjá með listmunauppboðum kennd- um við Sigurð heitinn Benediktsson. Hilmar Foss verður með annað málverkaupp- boð sitt á vetrinum hinn 8. febrú- ar. Visir talaði við uppboðshald- arana. Hilmar Foss sagði, að hann hefði nú talsvert framboð af góðum myndum til að hafa á næsta uppboði, en þó væri erfitt að hafa upp á verkum eftir þá Kjarval, Ásgrim og Jón Stefánsson. „Væri framboðið ekki Jóni Stefónssyni svona dræmt væru fleiri uppboð á okkar vegum. En eftirspurnin er mikil og einstaklega háir prisar á uppboðinu i nóvember. Hilmar sagði, að nokkrir vinir Sigurðar Benediktssonar héldu uppboðin i hjáverkum og gæfist þvi minni timi en efni stæðu til að sinna málverkasöfnun. Og stemmingin á uppboðum. „Það klassiska landslag er á upp- leið en figurativ og abstraktkúnst á niðurleið”. Knútur Bruun segist hingað til hafa boðið upp bækur eingöngu að mestu leyti úr hinu stóra bóka- safni, sem hann keypti i haust. „Hins vegar ætla ég mér að fara út i málverkauppboð, min in- tressa liggur þar.” Ætli ég fari ekki af stað með málverkaupp- boð i byrjun marz og hafi kvalitet og litið framboð. Ég held, að upp- boðin eins og þau hafa verið hafi fyrst og fremst verið vettvangur gömlu meistaranna Kjarvals, Ásgrims og Jóns Stefánssonar. A verkum þeirra hefur skapazt fast verðmætamat, og þegar þau verk eru i boöi getur íólk, sem selur reiknað með að fá góða prisa. Ég er kominn nokkuð langt áleiðis með að safna saman i uppboð. Þar hef ég að likindum 25-30 númer og skipulegg það á þann veg, að hafa i bland yngri og eldri málara og taka fyrir færri mál- ara og færri myndir. Þessi bókauppboð min hafa gengið mjög vel, og hef ég einnig sent skrárnar til fornbókasala á Norðurlöndum og i Bretlandi og hef slegið bækur til Bretlands. Ég hef haft bókauppboðin sem næst mánaðarlega og mun halda þvi áfram i vetur”. —SB— Fimm vilja Listahótíð Fimm manns hafa sótt um stöðu framkvæmdastjóra listahá- tlðar, sem haldin verður i Reykja vik i vor. Ivar Eskeland, fram- kvæmdastjóri Norræna hússins, hefur gegnt starfi framkvæmda- stjóra listahátiðar fram til þessa, en hann er nú á förum héðan, fer alfarinn þann 4. febrúar n.k., og mun nýi framkvæmdastjóri lista- hátiðar taka við þá. Umsóknarfresturinn um fram- kvæmdastjórastöðuna rennur út i dag, og i kvöld kemur hingaö til lands hinn nýi forstöðumaður Norræna hússins, Finninn Jyrki Mántila. íslenzk skuldabréf boðin á 1 siðustu viku voru boðin út skuldabréf frá tslandi að fjárhæð 15 milljónir dollara á hinum al- þjóðlega dollaramarkaði. Fjórir bankar i London, New York, Brussel og Dusseldorf annast lánsútboðið. Lánið er til 15 ára, nefnvextir 8% á ári og skulda- bréfin seld á 99.5% af nafnverði. stjórna Mantila mun ekki gegna starfi framkvæmdastjóra listahá- tiðarinnar, eins og forveri hans i Norræna húsinu, þótt hann muni sjálfsagt hafa einhver afskipti af hátiðinni. Ivar Eskeland sagði Visi i gær, að nú væri svo að segja búið að ganga frá dagskrárliðum fyrir listahátíðina, og myndi væntan- legur framkvæmdastjóri skýra frá tilhögun hátiðarinnar fljót- lega eftir að hann tekur til starfa. Rætt hefur verið um að hafa sérstaka kvikmyndadagskrá, kvikmyndahátið innan listahá- tiðar, en enn hefur ekki verið full- komlega gengið frá þeim þætti listahátiðar. —GG erlendum markaði Lánið er hagstætt að sögn fjár- málaráðuneytisins, afborgunar- laust fyrstu 3 árin, og 60% af endurgreiðslum falla ekki fyrr en á siðustu sex árunum. Hafa bréfin hlotið góðar viðtökur og selzt vel. Féð á að renna til raforkufram- kvæmda hérlendis. CHANELLÍNAN SÖM VIÐ SIG — þrátt fyrir það, að Chanel er liðin Eitt tizkuhúsanna i. að halda sinni linu,sama Paris er þekkt fyrir það, hvað á gengur i tizku- heiminum. Það er hús Chanel. Það er sagt, að Chaneldragt geti enzt ævina út. Og eftir að Chanel lézt,hefur stefnu hennar verið haldið áfram. Nú er þaö tizkuteiknari að nafni Gaston Berthelot, sem stendur að baki þeim fötum, sem sýnd eru á tizkusýningum Chanelhússins, og að sögn tizkufréttaritara tekst honum að viðhalda Chanellin- unni. Klæðnaðirnir eru enn úr sömu efnum, að visu þykir tizkufrétta- ritara International Herald Tribune, að tviddragtirnar séu ekki eins frumlegar og áður, a.m .k. ekki hvað munstur snertir, en þær haldi sinum Chanelsvip. Linan er eins og áður fellt pils, sidd um hnéð og gullkeðjur til skrauts. En sjón er sögu rikari, og á myndunum, sem fylgja með.sést linan, sem ýmsir tizkuteiknarar fylgja um þessar mundir og föt, sem sýnd voru á tizkusýn- ingunum i Paris. —SB- Laroche sótti linuna aftur i timann til 1930 eða þar um bil. Hér eru það tennisföt, sem hafa haft áhrif á gerð þessara klæðn- aða. Peysurnar eru með beinum öxlum og það má geta þess, að daman er i felldu pilsi við blúss- una og peysuna. ■<------------------m Chanellinan er söm við sig. Hér er ein hinna sigildu tviddragta i Chanelstil. Dragtin er i litunum dökkbláu og hvitu. Undir jakk- anum er hvit silkiblússa. Castillo heitir tizkuteiknarinn, sem stendur að baki þessum föt- um. Annað er útikjóll með sigildu sniði úr röndóttu ullarefni, hvitu og dökkbláu, en hvitt á kraga og ermaliningum Hin fötin eru köflóttur ullarkjóll I litunum rauðu, svörtu og hvitu, en yfir honum er ermalaus jakki. <--------------m

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.