Vísir - 01.02.1972, Blaðsíða 5
VtSIR. Þriðjudagur 1. febrúar 1972.
5
í MORGUN UTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Þúsundir gegn slökkviliði
UMSJON:
HAUKUR
HELGASON
Þúsundir kröfugöngu-
manna söfnuðust í gær-
kvöldi fyrir utan brezka
sendiráðið í Dublin og köst-
uðu milli 25 og 30 bensín-
sprengjum i sendiráðið.
Fólkið reyndi eftir megni
að hindra, að slökkviliðið
kæmist að byggingunni til
að slökkva eldinn, sem
bensínsprengjurnar ollu.
Mannfjöldinn var að mótmæla
atburðunum i fyrra kvöld i
Londonderry, þar sem brezkir
hermenn skutu til bana þrettán
borgara.
Bensinsprengjurnar hæfðu
flestar framhlið sendiráðsins. og
urðu töluverðar skemmdir.en
annars slokknaði eldurinn af
sjálfu sör.
Slagsmál urðu tið milli kröfu-
göngumanna og lögreglu. sem
varð að beita kylfum til að varna
þvi, að æstur mannfjöldinn bryt-
ist inn i bygginguna.
Forsætisráðherra Irlands, Jack
Lynch, kvaddi i gær heim sendi-
herra landsins i London til að
mótmæla fjöldamorðunum, er
berzku hermennirnir frömdu i
Norður-lrlandi. Lynch krafðist
þess jafnfram, að allir brezkir
hermennyrðu tafarlaust kvaddir
burt frá hverfum kaþólskra
manna i borgum Norður-Irlands.
Utanrikisráöherra Irlands
Patrick Hillary kemur i kvöld til
New York, þar sem hann mun
ræða við embættismenn Samein-
uðu þjóðanna um ástandið i
Norður-Irlandi. Búizt er við að
utanrikisráðherrann muni siðan
fara til Washington og Ottawa og
ræða við fulltrúa bandarisku og
kanadisku rikisstjórnanna um
málið.
Brezka stjórnin tilkynnti i gær.
að óháð rannsóknarnefnd yrði
skipuð til að rannsaka atburðina i
Londonderry. Við umræður um
málið á brezka þinginu réðst hin
2!iára Bernadetle Devlin á innan-
rikisráðherrann R e g i n a I (i
Maudling, eftir að hann hal'ði
gefið skýrsiu um aiburðina i
SJÓNVARPSEFTIRUT
Handtaka Irving
og konu hans
Níu sjónvarpsmyndavélar
liafa verið teknar i notkun á
Östbanestasjon i Oslo til aðstoðar
við eftirlit með járnbrautunum.
Mvndavélaarnar eru tengdar
sjónvarpsskcrmum á skrifstofu
stöðvarstjórans. Norðmenn
vænta mikils af þessu eftirliti.
Londonderrv frá sinum sjónar-
hóli. Bernadette kallaði ráð-
herrann ..morðóðan hræsnara"
og sakaði hann um að ljúga, en
ráðherrann sagði, að brezku her-
mennirnir hefðu ekki hlevpt af
skotum, fyrr en eftir að á þá hefði
verið skotið af leyniskyttum
Kernadetta réðst á innanríkis-
ráðherrann Maudling við
umræður i þinginu.
Tiudeau fa*r að lievra um
ástandið á Norður-irlandi af vör-
um ilillary.
Fóstureyðingar i
vöxt i Bretlandi
Löglegum fóstureyðingum
hefur farið fjölgandi i Bretlandi,
og i fyrra nam fjölgunin 50
prósentum.
h'óstureyðingar hafa verið sem
hér segir (löglegar):
1908 - 22.250
1909 - 54.158
1970 - 83.849
1971 - 120.774
Fóstureyðingar i stúlkum 10
ára og yngri höfðu einnig aukizt
um 50% i fyrra.
Frakkar fengu
aðeins enskt blað
Frakkar urðu i morgun að vera
án morgunblaðanna sinna, þegar
þeir snæddu. Fleslir franskir
blaöamcnn eru i sólarhrings
verkfalli til að mótmæla versn-
andi aðstöðu i starfi, að þvi er
segir i fréttaskeyti NTB.
Engin morgunblöð komu út i
Paris. Ritstjórar blaðsins Le
Parisien gerðu að visu tilraun lil
að gefa út minna blað en venju-
lega, en skömmu áður eri blaðið
átti að fara i prentun, urðu þeir að
viðurkenna, að tilraunin hefði
misteki/.t.
Eina blaðið á götunni var enska
blaðið International Herald Tri-
bune, en við það blað vinna engir
franskir blaðamenn.
Þrátt fyrir rikisstyrk seinustu
ár hafa fjárhagsvandræði frönsku
blaðanna slöðugt vaxið. Kostnað-
ur hefur aukizt, kaupendum
fækkað og auglýsingum.
Um tólf þúsund blaðamenn eru
i verklalli, og það nýtur einnig
stuðnings blaðamanna við
franska útvarpið og sjónvarpið,
en i útvarpi og sjónvarpi mun i
dag einungis verða sendar stuttar
fréttir.
Arið 1945 voru 35 dagblöð i
Paris. Nú eru þau 11 og aðeins
eitt, Le Monde, er rekið með
hagnaði.
i
Svissneska lögreglan gaf
i gær út handtökuskipun á
hendur rithöfundinum
Clifford Irving og konu
hans Edith, sem er fædd í
Sviss, eftir aö höföu fundizt
sem nemur um 35 milljónir
Rithöfundurinn dularfulli
Clifford Irving, ööru nafni Heinz
Dieter Irving.
ísl. króna á þeirra vegum í
banka í Zurich.
Peter Veleff saksóknari skýrði
frá þvi, að lagt hefði verið hald á
þetta fé og bankanum fyrirskipað
að greiða það ekki út. Hann sagði,
að kona nokkur. sem sennilega
væri Edith Irving, hefði opnað
reikning og tekið bankahólf á
leigu. Konan notaði vestur-þýzkt
nafnskirteini með nafninu Hanne
Rosenkrantz.
Veleff sagði, að handtökuskip-
unin á hendur Irvings hljóðaði á
nafnið Heinz Dieter Irving, en það
er hið raunverulega nafn rithöf-
undarins. Irving er bandariskur
rikisborgari, en býr i Ibiza á
Spáni.
Clifford Irving hefur verið mik-
ið umræddur að undanförnu, þvi
að hann hefur fullyrt að „rikasti
maður heims’’ Howard Hughes
hafi átt við sig viðtöl, sem hann
hafi tekið saman i ævisögu. Mill-
jarðamæringurinn Hughes fer
huldu höfði, og ýmsar sögur eru á
kreiki um afdrif hans. Rödd i
sima hefur neitað þvi, að Irving
hafi átt nein slik viðtöl við
Hughes, en Irving lagði fram sk-
jöl, er virtust rituð með hendi
Hughes.
Austur og vestur saman gegn isnum.
Vestur-þýzki ísbrjóturinn Wisent (framar) og Wolf frá Austur-Þýzkalandi eiga erfitt uppdráttar L
baráttunni viö Isinn á Elbu. Dögum saman hafa tólf Isbrjótar frá báðum hlutum Þýzkalands unnib að
ruöningi á 80 kilómetra svæði árinnar milli Lauenburg og Schnackenburg, en þar eru landmæri Austur
og Vestur-Þýzkalands um ána.
Vonazt er til, að umferð geti komizt I eðlilegt horf eftir viku.