Vísir - 18.03.1972, Side 7
Visir. Laugardagur 18. marz 1972.
7
KI RKJAi
Ferming, —
fermingargjafir,
fermingarveizlur
eftir Oskar J. Þorláksson
Um langt skeið hefur ferm
ingardagurinn verið mikill
hátiðisdagur i lifi unglinga og-
markað timamót i ævi þeirra.
Meðan almenn fræðsla var ekki
mikil i landinu, var kristindóms-
fræðslan töluvert veigamikill
þáttur, en hin siðari ár hefur
þetta hlutfall nokkuð raskazt,
kristindðmnum i óhag, og telja
margir að þar sé að leita orsaka
að mörgum vandamálum i lifi
nútimakynslóðarinnar.
Þar sem fermingarundir-
búningi er að ljúka hér i Reykja
vik og fermingarnar á næstu
grösum skal ekki rætt um ferm
ingarundirbúninginn eða gildi
athafnarinnar, heldur skal farið
Sr. Óskar J. Þorláksson.
hér nokkrum orðum um þær ytri
siðvenjur, er tiðkast i sambandi
við fermingar, svo sem ferm
ingargjafir og fermingar
veizlur, ef það mætti verða ein-
hverjum til ihugunar og leiðbein-
ingar. Þvi er ekki að leyna, að hér
er um nokkurt vandamál að ræða
og áhyggjuefni margra foreldra.
Kirkjan vill leggja rika áherzlu
á, að allar ytri siðvenjur i sam
bandi við fermingar séu sem ein-
faldastar og skyggi ekki á and-
legt gildi fermingarinnar. Flestir
prestar leggja á þetta rika
áherzlu við fermingarbörnin og
foreldra þeirra, þegar Jietta ber á
góma, og það er ekki að vilja
prestanna, að stofnað sé til
iburðarmikilla veizluhalda j sam-
bandi við fermingar eða börn
unum gefnar stórar peninga
upphæðir eða óhófslegar ferm
ingargjafir. Þar sem þetta á sér
stað rýrir það andlegt gildi ferm-
ingarinnar, eða eyðileggur and-
leg áhrif hennar með öllu.
Hins vegar hefur það lengi tiðk
azt, að fermingardagur barn
anna hafi verið fjölskylduhátið og
þau hafa verið glödd á þessum
degi, eins og tiðkazt hefur við
önnur hátiðleg tækifæri i lifi
manna. En hér er vissulega
vandratað meðalhólfið.
Ef gefa ætti einhverjar bend
ingar i þeim efnum, þá væri
mjög æskilegt, að fermingar-
gjafir væru gagnlegar og börn
unum til ánaégju. Gott er að
fjölskyldur leggi saman i slikar
Sr. Gisli Brynjólfsson ásamt fermingarbörnum.
gjafir, en láti alls ekki hendingu
ráða, hvað hver og einn velur.
Peninga ætti siður að gefa, nema
börnin hafi sýnt, að þau kunni
með fé að fara eða foreldrar fái
að hafa hönd i bagga með þvi,
hvernig þau fari með fé sitt. A
siðari árum hefur bættur efna-
hagur fólks orðið til þess, að sumt
fólk hefur viljað sýna höfðingskap
sinnmeðdýrum og jafnvel óhófs-
legum gjöfum, sem litið hagnýtt
gildi hafa haft fyrir unglingana og
veitt þeim takmarkaða ánægju.
Fermingarveizlur ættu alltaf að
vera bundnar við heimili barn-
anna og helzt aldrei að vera á
opinberum veitingahúsum.
Aðeins nánustu fjölskyldumeð-
limirog nánustu vandamenn ættu
að taka þátt i slíkum fagnaði, sem
þá miðaðist við stærð húsnæðis og
aðrar aðstæður. Ef stofnað er til
veizluhalda á veitingahúsum,
hlýtur kostnaðurinn alltaf að
verða meiri og venjulegast allt
annar blær yfir þeim fagnaði.
Það liggur i hlutarins eðli, að
fermingin hefur alltaf nokkurn
kostnað i för með sér t.d. i sam-
bandi við fatnað fermingarbarn-
anna, sem þó er ekki aðeins
vegna fermingarinnar, og annað
sem hér hefur verið nefnt. En hér
ber að stilla öllu i hóf, og Jiað er
fráleitt að stofna til skulda eða
efna til dýrra veizluhalda — til
þess að tolla i einhverri imynd
aðri tizku, enda bendir margt til
þess, að unglingar nú á dögum
kæri sig alls ekki um iburðarmikil
veizluhöld.
Ég vil hvetja foreldra til þess
að ihuga þetta allt vandlega.
þegar það undirbýr fermingarnar
i vor.
Tilgangur fermingarinnar er
að leiða unglingana til samfélags
við Jesúm Krist og gera ferm-
ingardaginn að minnisstæðum
andlegum hátiðisdegi i lifi barn-
anna, en láta hann ekki drukkna i
dýrum veizluhöldum eða meira
eða minna fánýtum fermingar-
gjöfum.
Óskar J. Þorláksson.
Vökunótt í Vatnsdal
Þegar fundur var haldinn i
Vatnsdal til að ræða um skiptingu
á gjafakorni frá Bretlandi, sem i
sveitina barst i harðindunum
miklu, 1882, komu fram tvær
stefnur i málinu:
Önnur, að skipta eftir skepnutölu:
þeirri stefnu fylgdu efna-
bændurnir og nokkrir aðrir. En
hin, að skipta eftir efnahag og
ástæðum manna. Þeirri stefnu
fylgdu þeir Lárus Blöndal sýslu-
maður og Hjörleifur prófastur
Einarsson. Eftir langt þras og
deilur um hvernig skipta ætti,
voru þessar tillögur bornar upp til
samþykkta. Varð sú tillaga ofan
á, að skipting færi fram eftir
skepnutölu á fóðri. Þessari niður-
stöðu hafði sira Hjörleifur reiðzt
mjög mikið. Hafði hann risið úr
sæti sinu og sagt, að þetta væri að
misnota drenglyndi hinnar
brezku þjóðar, þeirrar þjóðar,
sem hefði rétt bróðurhönd yfir
hafið snauðu fólki og þurfandi, en
nú væri svo komið, að hinir
rikustu fengju mest á kostnað
hinna snauðu. Jafnfram hefði
hann lýst þvi yfir, að samkvæmt
þessum væntanlegu skiptum
mundi hann láta hirða það, sem
sér bæri, en ekki handa sér. Hafði
hann verið orðinn mjög reiður og
rokið út af fundinum og inn i bað-
stofu og vakti vinnumann sinn, og
bað hann að nái i reið
hest sinn og leggja á hann. Úti var
dimm vetrarnótt og norðan
hríðarveður.
Þegar hesturinn kom, var
prófasturinn ferðbúinn: rauk
hann á bak og reið i spretti út i
koldimma vetrarnóttina. Um
morguninn kom hann heim, og
var þá rólegur sem ekkert hefði i
skorizt. Nokkrum dögum siðar
fréttist, að hann hefði riðið um
nóttina inn i dalinn og skipt slnum
hlut af gjafavörunum á milli
fátæks fólks, er bjó við slæm
heyskaparskilyrði.
Litlu siðar fréttist um dalinn,
að Lárus Blöndal sýslumaður
heföi einnig skipt sinu gjafafóðri
upp á milli fátæks fólks i dalnum.
Um leið og frásögn þessi skýrir
frá niðurstöðum þessa fundar,
sýnir hún meira og fleira. Hún
greinir frá þvi, hvernig tveir hátt-
standandi áhrifamenn fóru að þvi
að móta þá samtið/er þeir lifðu
með, með sinu eigin fordæmi,
með þvi að gjöra allt, sem þeir
gátu til að halda uppi rétti hinna
minnimáttar. A peningamæli-
kvarða voru báðir þessir menn
vel efnalega sjálfstæðir, en
hvorugur rikur — nema af hjarta-
gæzku og drenglyndi.
Úr grein i Sunnudbl. Visis 20.2. 44
e. Þorst. Konráðsson.
Sr. Hjörleifur Einarsson
BÆN
Þessi erindi eru úr ljóðinu Bæn eftir Grétar Fells, sem birtist í
Óðni 1921.
Lýs mér guð og lát mig heim
leiðina til þin finna.
Girnist ég ei gull né seim,
ég girnist það að komast heim,
heim til föðurhúsa þinna.
Þangað vil ég sækja sjóð —
sælu góðra barna þinna,
þangað sækja Ijós i ljóð,
— Hf i dauða: þenna sjóð,
þarf ég umfram allt að finna
Allt, sem hef ég.áður misst,
yndi horfið vona minna,
— sannleikann og sjálfan Krist,
syndum i er hef ég misst,
þarf ég untfram aUt að finna.
VISIR
AUGLÝSINGA-
DEILD ER AÐ
HVERFIS-
GÖTU 32
SIMI
cflúl
íSÍ3C3C3C3C3KSC3£JC3C3CJC3C%3C3C3C3C3CJCS
LOEWE0OPTA
Höfum fyrirliggjandi
LOEWE OPTA
radiófóna og stereósett.
Varahluta og viðgerðarþjónusta.
SkólðvBrBuitíg 10 • Reykjavlk • SlmI 10450
Otvarpsvirkja
MEISTARl