Vísir - 18.03.1972, Blaðsíða 16

Vísir - 18.03.1972, Blaðsíða 16
A Laugardagur 18. marz 1972. Gúmmítékkar að upphœð 4,9 milliónir Skyndikönnun Seöalbankans, sem við sögðum frá i gær, leiddi i ljós, að i umferð voru 605 ávisanir að upphæð samtals um 4,9 milljónir, sem ekki var næg inni- stæða fyrir. Er þetta heldur lægri upphæð en við siðustu könnun, en þá var upphæöin 6,6 milljónir. Hins vegar var eftir aö reikna út hlutfalliö miöað við ávisanavelt- una I þessari siðustu könnun, er Visir haföi samband við Seðla- bankann i gær. Þeir Seölabankamenn sögöu, aö skyndikönnunin stæði ekki i neinu sambandi viö hina miklu sölu á happdrættisskuldabréfum. Það hefði veriö tilviljun , að þessi könnun fór fram kvöldið sem bréfin seldust upp. Ennfremur kváðust þeir þess fullvissir, að enginn gúmmitékkur hefði verið notaður til kaupa á bréfunum. -SG 100 þúsund til hjálpar heyrnarskertum Félaginu Heyrnarhjálp hefur borizt 100 þúsund króna gjöf til aö kosta nám starfsmanns, sem kynni sér meðferð heyrnartækja. Skrifstofuvélar h.f. gáfu féð í tilefni 25 ára afmælis síns. Heyrnarskertir þurfa sérstaka hjálp og leiðbeiningar við með- ferð heyrnartækja og annarra hjálpargagna, til þess að tækin komi að fullum notum. Gjöfin gerir Heyrnarhjálp kleift að styrkja nýjan starfsmann til náms erlendis og veita aukna þjónustu við heyrnarskerta, einkum úti á landi. Stjórnarformaöur Skrifstofu- véla h.f. er Ottó A. Michelsen. HH. Stútur ó ferð / Nokkrir ökumenn voru grunaðir um ölvun viö aksturinn i nótt og voru teknir til nánari at- hugunar hjá lögreglunni. „Annars er þetta ósköp venju- leg laugardagsnótt” sögðu þeir á fjórða timanum i morgun. „Enginn almennilegur árekstur og enginn fengið ærlegt kjafts- högg hvað þá meira. Fólkið er á leið heim til sin af dansleikjum og margir góðglaðir eins og venju- lega”. -SG- „Farið gœtilega I viðskiptum við brezka og þýzka blaðamenn" - segir Auðunn Auðunsson skipstjóri - Sunday Times sleppti helztu rökunum „Mig langar aö koma á framfæri eindreginni viövörun til tslend- inga aö fara gætilega i viðskipt- um við þá brezku og þýzku frétta- menn, sem hér eru, og tala helzt ekki við þá nema að hafa segul- band.” Þetta segir Auðunn Auðunsson skipstjóri, en hann segist eiga um sárt að binda af viðskiptum við brezka frétta- menn. Auðunn sagði, að blaöamaður Sunday Times hefði sleppt úr viö- tali viö sig öllu þvi helzta, sem væri málstað Islands til stuðn- ings. t grein blaðamannsins Sayle, sem Visir greindi frá i fyrradag, var vitnað til ummæla Auðuns um landhelgismálið. Auðunn sagði, að þessi grein hefði verið tiltölulega sanngjörn, en við hverju mætti búast af öðrum, þegar þessi blaðamaður hefði stungiö undir stól helztu rökun- um, sem Auöunn færði fram okkur til stuðnings? Auöunn sagðist þó hafa haft varann á og heföi túlkur verið viðstaddur við- talið, þvi aö enskan væri farin að ryöga hjá sér. Siðan hefði hann lesið viðtalið hjá Bretanum, en þegar það kom i Sunday Times var búið að fella ýmislegt niður, sem miklu skipti. —Allmargir brezkir og þýzkir fréttamenn hafa komið hér við að undan- förnu. Auðunnsagðistvilja minna á, að ein helzta kveikja þorska- striðsins 1958 hefði verið, að Bretar beittu á ráðstefnu neitunarvaldi til að koma i veg fyrir friðun smáfisks við Norð- austurland. Vestur-Þ jóöverjar „ryksuga", Belgíumenn fylgja ekki reglum. Hann sagðist einnig vilja undir- strika, að við ættum við fleiri en Breta að etja. Vestur-Þjóðverjar kæmu skammarlega fram gagn- vart okkur i landhelgismálinu, þvi að hagsmunir þeirra væru tii- tölulega mjög litlir. Þá hefði verið of litið á það bent, að Belgiumenn væru þeir einu af V-Evrópuþjóð- um, sem ekki fylgdu almennum reglum um takmörkun á möskva- stærð. V-Þjóðverjar hefðu full- komnari veiðitækni en Bretar, og þeir „ryksuguðu” sjóinn miklu fremur en Bretarnir. —HH. Ein floska - eða fœði fyrir 30 manns Ef þu sleppir þvi að fara á dansleik i kvöld, en gefur þess í stað 1000 krónur til Hjálparstofn- unar kirkjunnar, nægja þærtil að halda lífinu i 40 manns i einn dag á þeim stööum, sem hungursneyð er rikjandi. Andvirði einnar flösku af áfengi nægir 30 manns til matar- kaupa í einn dag og einn konfektpoki jafngildir fæðu fyrir tvo daglangt. Fórnarvika kirkjunnar hefst á morgun og stendur næstu viku og eru einkunnarorð hennar „Hjálpum kirkjunni að hjálpa.” Þetta er almenn fjársöfnun til starfs Hjálparstofnunarinnar, en meðal verkefna, sem stofn- unin hefur hug á að vinna aö, er hjálp til handa ibúa Bangla- desh og til holdsveikra i heiminum. Ekki er farið inn á merkjasölu eða aðrar slikar fjáröflunarleiðir á fórnarvik- unni, heldur getur fólk komið framlögum til presta eða sett þau á giróreikning Hjálpar- stofnunarinnar nr. 20001. Fórnarvikan er jafnan haldin á föstunni og hægt er að fasta á margan hátt. Það þarf ekki háar upphæðir frá hverjum og einum til að hjálpa mörgum, sem búa við skort. Ef við tökum sem dæmi, aö 25 5 manna fjöl- skyldur sleppi einni sunnudags- máltið, þá nægir andvirðið til að kosta sjúkrahúsvist' og læknis- meðferð fyrir holdsveikan mann i heilt ár. Maður sem neitar sér um tvo pakka af sigarettum og gefur andvirðið til hjálpar hungruðum, getur með þvi haldið lifinu i einum svöngum meðbróður i meira en viku, og þannig mætti lengi telja. Það voru prestar, sem lögðu grunninn að Hjálparstofnuninni með þvi að samþykkja árið 1969 að leggja 1% af launum sinum til hjálparstarfsins, og hafa þeir gertþaðsiðan. -SG. Flaska handa Ólafí Þau gengu á fund ólafs Jóhannessonar, forsætisráð- herra og færðu honum að gjöf flösku af ákaviti. Tilgangurinn var að minna á að fjörutiu ár eru siðan stofnuð voru Samtök bindindismanna i skólum. SBS hefur i 40 ár barizt gegn bakkusi og á afmælinu vöktu samtökin athygli fólks og yfirvalda á ó- venjulegan hátt. Forsætisráðherra var færð flaskan, og mælzt til þess að innihald-hennar yrðineytti „sið- ustu áfengisveizlunni sem rikis- stjórnin héldi, — og að sú veizla yrði mjög fljótlega”. -GG Jöfn tilboð í hitaveitu Nessins Aðeins 1.3 milljónir milli efsta og neðsta Hásetahluturinn á loðnunni: 300.000 á hœstu bátum - meðaltekjur sennilega kringum 120.000 krónur Hlutur háseta á loðnubát i vetur hefur að likindum eftir allan veiðitimann verið i kringum 100.000,00 krónur. Og það er vist ekki afskaplega há upphæð miðað við núverandi verðlag og lengd veiöitimans. Loðnuveiðin hófst kringum 20. janúar. Og raunar ekki fyrr en um mánaðamót jan./feb. hjá flestum bátanna. óhætt mun að áætla að vertiðinni hafi lokið kringum 10. eöa 12. marz, þannig að á liðlega einum mánuði, kannski einum og hálfum, hefur háseti á loðnubát haft um 100.000,00 krónur i hlut, og er vitanlega vel að kominn, þar sem það er aðeins mjög stuttan tima úr árinu, sem hann hefur slikar tekjur. Haunar hafa sumir haft tals- vert meira en 100.000,00 og aðrir minna. Við reiknuðum út aflahlut háseta á loönubát, sem veiddi 10.000 tonn. Og það var aöeins einn bátur, sem veiddi svo mikið. Háseti á aflahæsta bátnum, sem var um siðustu helgi Eldborgin frá Hafnarfirði með 10.167 tonn, mun hafa haft aðeins yfir 300.000 krónur i hlut. Og skipstjóri hefur 100% i viðbót, þannig að dágóður skildingur hefur farið um hendur þeirra á aflahæstu skipunum eftir þessa vertiðardaga, enda munu mennirnir hafa lagt á sig miklar vökur og vinnu við að afla þessa fjár. A sunnudaginn var voru afla- hæstu skipin Eldborg með 10.167 tonn, Jón Garöar með 9.059 tonn, Gisli Arni meö 8.886 tonn, Súlan meö 8.367 tonn og örfirisey meö .124 tonn. Sést af þessari upptalningu, að það eru einungis mjög fá skip sem eru i hæsta flokknum, og er án efa óvarlegt að áætla meðalhlut há- seta eftir loðnuvertiðina hærri en um 120 þúsund krónur. —GG. Menn hljóta að taka ofan hatt sinn fyrir islenzkri verkfræöi- stétt, þegar þeirsjá tilboö eins og þau, sem borizt hafa í lokaáfanga hitaveitu Seltjarnarness. Alls bárust 5 tilboö i verkiö og munaöi aöeins 1,3 miiljónum króna á lægsta og liæsta tilboöinu, sem veröur aö teljast ótrúlega litiö miöaö viö alla þá óvissu faktora, sem alltaf hljóta aö vera i svona verkum. Lægsta tilboðið barst frá Loft- orku sf. 8.318.510 kr., en fast á eftir fylgdu Aðalbraut sf. (Guðmundur Einarsson i Breiðholti h.f. o.fl.) 8.454.940 kr. og Vesturverk h.f. (Guðmundur G. Þórarinsson form. Skáksambandsins o.fl.) 8.776.740 kr. Nokkuð hærri voru þeir Sigfús Sigurðsson 9.220.320 kr og Eggert Sigurðsson o.fl. 9.645.339 kr. Tilboöin eru mjög áþekk þeirri kostnaðaráætlun, sem gerð hafði verið fyrir verkið, en auk sjálfrar hitaveitulagnarinnar var gert ráð fyrir þvi i útboðinu að gera ýmis önnur verk fyrir hreppinn, svo sem að leggja gangstéttir, raflagnir og fleira. Lokið var að leggja hitaveitu i um helming húsa á Nesinu i fyrrasumar. Þau hverfi, sem nú verður lagt i, eru Lambastaða- hverfið og Strandahverfið. Verk- inu á að ljúka siðast i september og verður þá öll byggðin á Nesinu komin i hitaveitusamband. -VJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.