Vísir - 25.03.1972, Page 2
2
Vfsir. Laugardagur 25. marz 1972.
VfeUSPTR:
Hafið þér hugsað yður
að sjá Oklahoma?
Edda Hannesdóttir, Langholts-
skóla. Ja, ég veit það bara varla.
Mig langar reglulega til þess, en
ég hugsa að ég fari ekki, nema þá
ef það verður skólasýning, þá fer
ég alltaf i leikhús.
Jóhanna Guðbjartsdóttir,
mcnntaskólanemi.Já, ég er alveg
ákveöin i þvi. Og ég fer auðvitað
alveg örugglega, ef það verður
skólasýning. Annars fer ég stund-
um i leikhús.
Guðmundur Breiðfjörö. Nei, ætli
ég geri það nokkuð. Ég fer hvort
sem er ekki neitt, maöur heldur
sig orðið heima. En ég fór þó i
leikhús á minum yngri árum, það
er ég nú hræddur um.
Stefán Einarsson, framkvæmda-
stjóri.Nei, alveg örugglega ekki,
mig langar hrein og beint ekki
neitt. Svo geri ég ósköp litið að þvi
að fara i leikhús.
Gunnar Bjartmarsson, verka-
maður. Ég veit það eiginlega
ekki. Ég hef satt að segja engan
sérstakan áhuga á þvi. En þetta
væri nú kannski athugandi, þar
sem maður fer i leikhús, ef sýnd
eru stórverk.
Halldóra Jóhannesdóttir, húsmóð-
ir.Nei, aftur á móti ætla ég endi-
lega að reyna að fara á Matt
heusarpassiuna hjá Pólýfón
kórnum. En ég þori nú ekki að
fullyrða þetta alveg, það getur vel
verið að maður skelli sér bara
lika i leikhúsið.
1 hifandi roki og rigningu fylgdust nemendur úr Kennaraskólanum náið með bílum og gangandi fólki. Þrátt fyrir lögregluþjóninn voru
umferðarbrotin mörg.
KENNARAEFNI KANNA UMFERÐ
. . . og hvaða einkunn
fó svo 1489 ökumenn
sem leið áttu framhjá
í roki og rigningu?
,,Með þessu komast
nemendur i lifrænt
samband i umferðar-
fræðslunni og átta sig
mun betur á þvi, sem
verið er að kenna”
sagði Guðmundur Þor-
steinsson ökukennari i
samtali við Visi i gær.
Hann hefur verið með
umferðarnámskeið i
fjórða bekk Kennara-
skólans að undanförnu
og lét hluta af nemend-
mmm
nn
mrn
'U
Glaumbœr eða rúm
fyrir geðsjúka
Guðrún Jónsdóttir skrifar:
,,Margoft er búið að segja frá
þeim skorti, sem rikjandi er á
sjúkrarúmum fyrir geðsjúka, og
nú fyrir skömmu las ég einmitt
grein um þetta i Visi. Þar kom
fram, að rúmum fyrir geðsjúkl-
inga hefur ekki fjölgað svo
nokkru nemi i 20 ár. Þetta þykir
mér ljótur blettur á starfi þeirra,
sem með völdin hafa farið, og
ekki heyrist neitt frá þeirri stjórn,
sem nú situr, um að stórátak sé á
döfinni.
En á þessu timabili hefur orðið
mikil aukning á hvers konar geö-
sjúkdómum, allt frá taugaveiklun
og upp i alvarlega sjúkdóma. Mér
er tjáð, að þriðji hver maður þurfi
að leita geðlæknis einhverntima á
ævimii, en hvaöa möguleika hefur
þetta fólk á lækningu, þegar mörg
hundruð sjúkrarúm vantar?
Nýlega var stofnaður félags-
skapur, sem nefnist Glaumbæjar-
hreyfingin, eða eitthvað svoleiðis.
t stjórn þessa félags sitja bæði
unglingar og ábyrgir fullorðnir
menn. Markmiðið er að fá þvi
framgengt, að Glaumbær verði
endurreistur eða þá byggður
verði nýr skemmtistaður fyrir
tugi milljóna. Þessar kröfur eru
settar fram þegar salir í randýr
um skólabyggingum standa auðir
á hverju kvöldi, en þar mætti
hæglega koma fyrir leiktækjum
og efna til kvikmyndasýninga
fyrir unglinga, svo dæmi séu
nefnd. Seðlabankinn ætlast til,
samkvæmt lögum frá alþingi, að
þjóðin kaupi happdrættisskulda-
bréf fyrir fleiri hundruð milljónir,
svo hægt verði að leggja veg yfir
Skeiðarársand. Ein aðalforsend-
an er sú, að það verði svo gaman
fyrir landsmenn að geta keyrt
hringinn i kringum landið á
sumrin. Alþingismenn stórhækka
laun sin án þess aö spyrja, hvort
þeir eigi rétt á þvi eða ekki, og
helmingur þeirra virðist sitja á
þingi i hjáverkum.
A meðan berst litill hópur
lækna og annarra að þvi er virðist
um annast umferðar-
könnun i hádeginu i
gær.
t roki og grenjandi rigningu
sviptust nemendur til og frá á 9
gatnamótum borgarinnar.
Sumir gáfu gaum að gangandi
vegfarendum og skrifuðu sam-
vizkusamlega hjá sér allar vit-
leysur, sem þau uröu á. Aðrir
beindu haukfránum augum að
bilaumferðinni og rituðu mis-
kunnarlaust niður þá, sem ekki
fóru eftir settum reglum. Blaut-
ir en ánægðir héldu skólanemar
siðan i Kennaraskólann og tóku
saman niðurstöður. Sam-
kvæmt þeim fóru samtals 1489
ökutæki um þan gatnamót, sem
vöktuð voru, en athugunin stóð
yfir i um 20 minútur. Af þessum
fjölda stöðvuðu 12,5% of seint
við gatnamót og 4% svikust al-
veg um að gefa stefnumerki.
vonlitilli baráttu fyrir fjármagni
til að byggja yfir geðsjúklinga.
Þetta skilningsleysi ráðamanna
og raunar alls almennings lýsir
þvi kannski bezt, hvað það eru
margir, sem þyrftu að fara til
geðlæknis. Skortur á hælum fyrir
vangefna er einnig geysimikill,
en gagnvart þvi virðist sama
sinnuleysið rikjandi.
Sjúklingar, sem biða ár eftir ár
án þess að fá pláss á hælum fyrir
geðsjúka eða vangeína, fara ekki
i kröfugöngur á fund ráðherra.
Það heyrist litið frá þessu fólki,
þvi sjálft hefur það ekki mögu-
leika á að vekja athygb á málinu.
En hvernig er það meðþetta unga
og heilbrigða fólk, sem vill um-
bylta þjóðfélaginu og bæta það?
Þvi tekur það ekki upp baráttu
fyrir litilmagnann? Það er sjálf-
sagt gott að halda fundi um Irland
og Viet-Nam, en væri ekki ráð að
lita sér nær?"
Djammið í DAS
Amor hringdi i okkur og kom á
framfæri eftirfarandi skáldskap:
Flestum virtist vera bras
og vænlega ekki horfa
með „djammið” sem að var i Das
hjá Dagrúnu og Torfa.
Svo voru það 12% ökutækja,
sem gáfu stefnumerki of seint,
og er þá miðað við 25 metra
vegalengd frá gatnamótum.
Ekki var heldur allt i sóman-
um hjá gangandi fólki. Þarna i
rokinu voru 106 hræður að
bægslast áfram, og 37% af þeim
gengu ranglega yfir götu, en
23% gættu illa að sér og sýndu
óvarkárni. Um 60 nemendur
tóku þátt i þessari könnun i gær,
og i dag munu 60-70 fjórðubekk-
ingar framkvæma sams konar
athugun.
Guðmundur Þorsteinsson
sagði, að þetta væri i fyrsta sinn
sem kennaraskólanemar gerðu
þessa hluti, en taldi upplagt að
fá framhaldsskólanema til að
annast svona athuganir. Og ekki
sizt væri það gott fyrir kennara
efniaðöðlaststaðgóða þekkingu
á umferðarmálum.
—SG
Þóttist hafa litla lyst,
leyndi ástarfuna,
i tryllta tveggjamannavist
tók hann bústýruna.
Kalda landsins kræfi sonur
kúnni ekki að blikna,
en hún var eins og aðrar konur,
sem eiga til að vikna.
Amor.
AUGLYSINGA-
\xsxxx%
DEILD ER AÐ
HVERFIS-
GÖTU 32
SIIVII
00
lí sxxxxszxxsxxxxx