Vísir - 28.03.1972, Side 5
Vísir. Þriðjudagur 28. marz 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Vilja jafnmarga í
skiptum fyrir Bretana
Stjórnvöld neita að hafa fengið bréf frá mannrœningjunum,
ALLENDE
Hópur fyrrverandi yfir-
manna i her Chile hefur
veriö handtekinn, og eru
‘mennirnir sakaðir um að
hafa gert samsæri um að
steypa af stóli Allende for-
seta og stjórn hans. Bylt-
ingin mun hafa átt að vera
síðastliðinn föstudag.
Uppreisnarmenn höfðu sam-
band við einstaklinga i her og lög-
reglu og reyndu að fá þá til að
taka þátt i ráðabruggi sinu. Her-
menn og lögregluþjónar visuðu
þessum tilmælum algerlega á
bug, að sögn talsmanns rikis-
stjórnarinnar i morgun.
Meðal þeirra, sem stóðu að
samsærinu, var Alberto Barque-
dano fyrrum hershöfðingi og
Marshall Marchesse fyrrverandi
ofursti, sem báðir hafa verið
opinskáir andstæðingar Allendes
Menn þessir verða dregnir fyrir
herrétt, sagði talsmaður Chile-
stjórnar.
Hægrisinnaður flokkur, sem
kallast samtök fyrir frelsi og
föðurland er sagður flæktur i
samsærið. Lögreglan gerði
skyndileit um helgina i þremur
skrifstofum samtakanna og fann
þar nokkurt magn vopna.
en Inönu gamli hefur aðra skoðun
Skæruliðar, sem rændu
þremur brezkum ratsjár-
tæknimönnum, hafa kraf-
izt þess, að þremur vinstri
sinnuðum byltingar-
mönnum verði sleppt úr
tyrkneskum fangelsum, að
sögn fyrrum forsætisráð-
herra Tyrklands, Ismet
Inönu, í Ankara i gær-
kvöldi.
1 tilkynningu, sem hann gaf út
um málið, segir hann, að
ræningjarnir hafi skilið eftir sig
bréf, þar sem ðskað sé eftir þvi,
að þrir félagar i „alþýðuher”
skæruliða, verði látnir lausir.
Þeir hafa verið dæmdir til dauða
fyrir mannrán og bankarán með
vopnum. „Verði þessir þrir
Soledadbrœður sýknaðir
eftir tvö ár í fangelsi
Umsjón:
Haukur Helgason
hengdir, munum við drepa gisl-
ana,* segir i bréfi mannræningj-
anna.
Fylkisstjórinn i Ordufylki
neitaöi hins vegar i
gærkvöldi, að slikt bréf hefði bor-
izt. Það gerði einnig saksóknari i
fylkinu og yfirmaður lög-
reglunnar i Ankara.
Inönu er leiðtogi „hægfara lýð-
veldis flokksins” og andvigur
dauðarefsingu fyrir pólitiska
glæpi.
Forsœtisráðherrar í vanda
Þeir reyndu að brosa, Edward Heath og Brian Faulkner, forsætisráð-
herra Norður-trlands. Stefna Heaths var hins vegar að ýta stjórn N-tr-
lands til hliðar, og nú mótmæla mótmælendatrúarmenn i Norður-tr-
landi, en kaþólskir una sæmilega við.
Tveir lifðu af þremur — Krafist mestu refsingar í móli Angelu Davies,
sem er sökuð um þótt í tilraun til að frelsa Soledadbrœðurno
Kviðdómur í San
Francisco úrskurðaði i
gærkvöldi tvo svert-
ingja, sem eru þekktir
sem Soledadbræðurnir,
saklausa af ákærum um
að hafa myrt fangavörð-
inn John Mills i Soledad-
fangelsi i janúar 1970.
Þetta mál hefur vakið einna
mesta athygli af sakamálum um
kynþáttaátök i Bandarikjunum,
og það er nátengt máli Angelu
Davis sjálfrar.
Þriðji svertinginn, George
Jackson, var einnig ákærður um
morðið, en hann er ekki lifs.
Hann var skotinn til bana i flótta-
tilraun i spetember siðastliðnum.
George Jackson varð hetja svörtu
hlébarðanna en margir fullyrtu
að Soledadbræður allir hefðu ver-
o
Angela Davies var fyrir skö-
mmu látin laus úr fangelsi gegn
hárri tryggingu, sem bóndi i
Fresno i Kaliforniu lagði fram,
öllum að óvörum.
A myndinni er hún að fagna
frelsinu og með henni bóndinn,
Roger McAfee, og börn hans.
ið handteknir og ákværðir rang-
lega vegna þátttöku sinnar i bar-
áttu bandariskra svertingja.
Þeirsem voru látnir lausir, eru
28 ára John Clutchette og 26 ára
Fleeta Drumgo.
„Angela elskaði
George".
Það er einmitt flóttatilraun
Soledadbræðra, sem Angela
Davies er ákærð fyrir, en þar
reyndu svertingjar að bjarga
Soledadbræðrum úr dómshúsi i
San Rafael i Kaliforniu. Þetta var
i ágúst 1970, og var dómari og þrir
aðrir voru skotnir til bana i þeirri
tilraun.
Bróðir Georges Jacksons,
Jonathan Jackson, var sá, sem
skipulagði flóttann og féll i til-
rauninni. Angela Davies er ák-
værð fyrir að hafa útvegað Jonat-
han byssu þá, sem grandaði
dómaranum. t réttarhöldunum
yfir Angelu Davies, sem hófust i
gær, krafðist ákærandi þess, að
hún yrði dæmd fyrir fyrstu gráðu
morð, þvi að hún hefði útvegað
Jonathan byssuna, en hún hefði
„elskað George Jackson”, sagði
ákærandi. Samkvæmt lögum i
Kaliforniu er sá, sem tekur þátt i
undirbúningi verknaðar, sem
leiðir til morðs, jafnsekur og sá,
er morðið fremur.
/,Sýnir ofsóknir".
Verjandi Angelu sagði i gær,
eftir að kunnugt varð um sýknu-
dóminn yfir Soledadbræðrum, að
úrslit þess máls sýndu glöggt, að
um ofsóknir væri að ræða.
Gilti hið sama i máli Angelu
Davies og sjálfu máli Soledad-
bræðra að þvi leyti.
„Guð blessi
kviðdóminn,"
sagði móðirin.
Foreldrar Soledadbræðra fögn-
uðu dóminum, og móðir annars
þeirra hrópaði: „Guð blessi kvið-
dóminn, guð blessi dómarann”.
Ættingjar grétu hástöfum i
réttarsalnum.
Clutchette og Drumgo hafa setið i
fangelsi siðan fangavörðurinn
Mills var drepinn.
Ákærandi i málinu gegn Angelu
Davies sagði i gær, að vegna ást-
ar sinnar á George Jackson hafi
Angela ekki fundið til neinna
samvizkukvala vegna þátttöku
sinnar i samsæri um að frelsa
George og félaga hans.
Hann sagði, að Jonathan og
Angela og aðrir samsærismenn
hefðu ætlað að halda dómaranum
og öðrum gislum, þar til Soledad-
bræður hefðu verið látnir lausir.
Ákærandi viðurkenndi, að Angela
hefði verið hvergi nærri, þegar
fólkið var drepið við dómshúsið i
San Rafael. „Við munum samt
leggja fram sannanir fyrir þvi, að
ungfrú Davies er ábyrg fyrir
drápinu á Harold Haley dóm-
ara,” sagði hann.
Angela Davies er sögð hafa
keypt vopnin, sem Jonathan
Jackson og félagar hans i
frelsunartilrauninni notuðu.
Mörgum skammbyssum og riffli
var komið inn i réttarsalinn,
sagði ákærandinn. Vopnin voru i
litilli tösku, þar sem siðar fundust
tvær bækur, sem Angela Davies
átti.
m-------►
George Jackson er sagður hafa
verið elshugi Angelu Davies. llann
var skotinn til bana i september
siðastliðnum á flóttatilraun úr
íangelsi. Áður hafði bróðir hans,
Jonathan, fallið i tilraun til að
bjarga George og tveimur öðrum,
sem liafa verið kallaðir Soledad-
bræður. í þeirri tilraun féll dómari
og tveir aðrir auk Jonathans.
SAMSÆRI
GEGN