Vísir - 28.03.1972, Side 9
Visir. Þriðjudagur 28. marz 1972
9
HLAUPIÐ
HINDRAR
ÖRÆFA-
FERÐIRNAR
en ferðir í áttina þó „með útúrdúrum"
Margir hugsa sér til
hreifings i páskafriinu.
Innanlandsferðirnar,
bæði á skiðastaði og
aðra staði til að skoða
náttúruna, eru af ýmsu
tagi. öræfaferðirnar eru
týpiskar páskaferðir, en
nú hefur komið babb i
bátinn, þar sem er
Skeiðarárhlaupið. Það
er einsýnt, að ekki
verður komizt yfir vötn-
in nú i þessum páska-
ferðum.
Það virðist þó ekki draga úr
áhuganum á páskaferðunum
austur, á leið til öræfa, enda
margir, sem vilja komast i
námunda við Sulu og Sandgigju-
kvisl og skoða verksummerki
eftir hlaupið þar.
Guðmundur Jónasson verður
með sina ferð eins og venjulega.
Hann segir: — Fólkið er jafnvel
ennþá æstara i að fara núna en
áður. Það hefur mikið verið
hringt og spurt um ferðina. Það
kvað vera mikil lón þarna austur
frá og verður einum degi eytt þar,
siðan verður farið inn i Núps-
staðarskóg.
Eg vona, að góða veðrið fari að
koma og að snjókoman núna
merki, að páskahretið sé búið. Þá
verður möguleiki á að fara inn i
Þórsmörk.
Um 60 manns hafa látið skrá
sig i ferðalag með Guðmundi yfir
páskana og þeim er heitið ýms-
um útúrdúrum i bakaleiðinni til
þess að bæta upp, að ekki er hægt
að fara i öræfasveitina.
Njáll Simonarson hjá Ferða-
skrifstofu Úlfars Jacobsen sagði:
— Það er nú alveg fyrirsjáanlegt,
að ekki er hægt að fara i öræfa-
Skeiðarárhlaupið sem beljar niður sandana eins og sést á myndinni kemur í veg fyrir, að ferðalangarnir
með þeim Guðmundi og úlfari komist i öræfasveitina um þessa páska.
sveitina og ekki lengra en að
Sandgigjukvisl. Það hefur brotn-
að svo mikið úr bökkunum, að það
er vonlaust að komast yfir hana.
En það verður farið yfir Súlu og
upp að jökli og reynt að sýna fólk-
inu, hvar áin brýzt fram undan
jöklinum. Það verður einnig farið
um Meðallandið, Þykkvabæ,
Mýrdalinn, Hjörleifshöfða og i
Þórsmörkina, upp með Þjórsá og
að Búrfellsvirkjun og jafnvel að
Sigöldu. Við höfum orðið að
breyta ferðalaginu dálitið út af
hlaupinu. Milli 80 og 90 manns
hafa skráð sig i íerðina.
Hjá Ferðafélagi Islands
íengum við upplýsingar um
páskaferðir á vegum þess. Farið
verður i fimm daga Þórsmerkur-
ferð og aðra 2 1/2 dags i Þórs-
mörk. Einnig verður farið i fimm
daga Hagavatnsferð.
Ferðafélagið efnir einnig til
eins dags ferða i'yrir þá, sem vilja
ekki fara i lengri ferðalög um
páskana. Um ýmsar ferðir er að
velja. A skirdag verður l'arið á
Vifilsfell, l'östudaginn langa i
Lækjarbotna og Sandfell, laugar-
daginn i Bláfjöll, og er það skiða-
ferð, á páskadag á Helgal'ell og
Valahnjúka, og annan i páskum
er strandganga Irá Straumsvik
og i Kúagerði.
-SB-
Straumur fólks úr landi
páskar œ vinsœlli sem ferðatími — og eiginkonur fá að fljóta með í verzlunarferðir
Páskar eru að verða
mjög vinsæll timi til
ferðalaga, og er vist um
það, að mjög margir
munu leggja land undir
fót eða hjól innanlands.
Einnig freistast margir
til að fara til útlanda.
Eftir þvi sem ferða-
skrifstof umenn i
Reykjavik segja, þá
munu um 1000 manns
vera á þeirra snærum út
og suður um páskahelg-
ina.
Útsýn og Sunna selja sem
jafnan fyrr í ferðir til Spánar um-
fram önnur lönd, og munu tals-
vert yfir 700 manns vera á vegum
þessara ferðaskrifstofa á
Mæjorku, Malaga og viðar.
Allar ferðaskrifstofurnar hafa
svo selt i ferðir Flugfélagsins til
Kanarieyja, og eru þar nú á veg-
um Útsýnar einnar 125 manns —
fóru i morgun með þotu F.t., og
komust færri en vildu. Þotan
tekur aðeins 125 farþega, og sátu
40 manns heima með sárt ennið,
þar sem ekki var pláss fyrir þá i
vélinni.
Ferðaskrifstofan Landsýn
hefur einbeitt sér að sölu ferða til
Austur-Evrópulanda, svo sem
Júgóslaviu — og væntanlega
hefur hópur fólks ætlað sér
þangað núna, en hætt er við, að
bólusóttin, sem Júgóslavar eru nú
að berjast gegn, hafi sett strik i
reikninginn. Forstöðumaður
Landsýnar er nú i Júgóslaviu,
væntanlega að semja um hóp-
ferðir tslendinga þangað austur i
sumar.
En það er hægt að fara til út-
landa án þess að vera i Sunnu- eða
Útsýnarhóp.
Ferðaskrifstofa rikisins
áætlaði, að á hennar vegum væru
50-60 manns i útlöndum nú yfir
páskana, og sennilega hafa hóp-
ferðaskrifstofurnar, svo sem
Úrval, Sunna og Útsýn, einnig
skipulagt ferðir fyrir svipaðan
fjölda einstaklinga.
Þvi mun óhætt að ætla, að
a.m.k. 1000 manns séu erlendis
yfir páskana og á snærum ein-
hverra isl. ferðaskrifstofa.
„Það hefur færzt mjög i vöxt,
að menn notuðu þennan tima,
páskana, til að sameina verzl
unarferðir einhverju frii”, var
okkur sagt hjá Útsýn — og enda
auglýsir ein ferðáskrifstofan nú
ferðir i stórum stil fyrir
verzlunarmenn, segir i auglýs
ingunni, að ferðirnar séu „svc
ódýrar að þér hafið efni á að takc
eiginkonuna með”.
Hlýtur að vera gaman að vera
eiginkona á svo dýrlegum timum.
-GG.
GHIS.TI.NA
PftLLMA
Þessi mynd var tekin á Arenal ströndinni á Mæjorku, en sá staður er nokkuð utan viðhöfuðborg sólbaðseyjarinnar, Palma. Sennilega eru nú
uppundir 1000 islendingar að veltast i sandinum þarna núna og um páskana.