Vísir - 28.03.1972, Side 13
Vísir. Þriöjudagur 28. marz 1972.
13
sfcc/
Þjóðarmetnaður og Kana-
sjónvarp
Rithöfundafélag íslands gerði
samþykkt á almennum félags-
fundi sinum á dögunum um
ameriska sjónvarpið á Kefla-
vikurflugvelli. Er það lýst án-
ægju með viðleitni útvarpsráðs
að fá lokað sjónvarpinu i herstöð-
inni. Einnig lætur fundurinn i ljós
furðu yfir þeirri tregðu, sem rit-
höfundar telja að sé til að fram-
fylgja skilmálalausum fyrirmæl-
um laga um einkarétt Rikisút-
varpsins á þessum vettvangi.
Einnig segjast rithöfundar undr-
ast meðferð hérlendra stjórn-
valda á málinu. „Væntir fundur-
inn þess, að ekki verði lengur un-
að þeirri lögleysu, sem hefur ver-
ið látin viðgangast, heldur verði
undinn bráður bugur að þvi að af-
greiða málið i samræmi við lög og
þjóðarmetnað”, segja þeir.
Bretar enn iðnir. . .
Brezku togararnir eru enn iðnir i
landgrunninu með veiðiskap sinn.
Fjörutiu voru þeir brezku tog-
ararnir, sem voru inn við 12 milna
linuna, þegar landhelgisgæzlan
taldi togarana umhverfis okkur i
fyrradag. V-Þjóðverjar voru
hálfdrættingar og vel það með 21
togara og Belgar með niu togara,
a-þýzkir voru með aðeins einn
togara, alls 71 skip.
Kveðja gamlan og
góðan starfsmann
Loftleiðir eru þessa dagana að
kveðja enn einn af frumherjunum
erlendis, það er H. Davids-Thom-
sen, forstjóri i Danmörku, sem er
að láta af störfum eftir 17 ára
starf við erfið skilyrði og mikla
baráttu. Við af honum tekur
Milton Lundgren, sem hefur
starfað sem svæðisstjóri Loft-
leiða i Danmörku siðustu mán-
uðina.
Nú er það keppni
við pianóið
Norrænir tónlistarmenn af yngri
kynslóðinni hafa undanfarin þrjú
ár háð með sér keppni, fyrst
strokhljóðfæraleikarar, þá
blásturshljóðfæramenn, söngvar-
ar, — og i ár eru það pianóleikar-
ar, sem keppa, en á næsta ári
kemur röðin að siðasta hópnum
og þeim minnsta, orgelleikurum.
Norrænu télögin hafa stjórn á
keppni þessari, en keppt er um 15
þús. danskra kr. verðlaun og
önnur að upphæð 10 þús. d. kr.
Fer úrslitakeppnin fram i Reyk-
javik að þessu sínni 6.-8.
október. Forkeppnin hér heima,
þar sem keppt er um 5 þús. og
3500 d. kr., fer fram 16.—17. sept.,
og ættu keppendur að snúa sér hið
fyrsta til Norræna félagsins.
Tvö rit um land-
helgismál.
Rikisstjórnin hefur gefið út -48
siðna kynningarrit um land-
helgismálið og Sjáfstæðisflokkur-
inn annað 27 siðna. Rit stjórnar-
innar er litprentað á ensku og
verður það meðal annars sent 500
erlendum blöðum i 125 rikjum,
eða nær öllum rikjum heims.
Ritið nefnist Ieeland and the Law
of the Sea, og hefur Iiannes
Jónsson blaðafulltrúi samið bað.
Þar er gerð grein fyrir rökum
islendinga fyrir útfærslu land-
helginnar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gefið út kynningarrit á sjónar-
miðum flokksins i þessumikilvæga
máli. Fjallaðer um grundvöllinn
að sókn tslendinga i landhelgis-
málinu, stjórnmálasigur 1961,
þróun alþjóðaréttar og
ályktanir Alþingis fyrr og siðar.
Eldheitur
,,koss”
Þeir voru margir bileigendurnir,
sem-ekki vöruðu sig á hálkunni
um helgina, — og sjálfsagt varð
mörgum hált á þvi peningalega.
Þessi eldheiti koss á mótum
vegarins um Þrengsli og yfir
Hellisheiði hefur kostað nokkra
skildinga. Myndina tók Þröstur
Eyvinds.
OSIA
PINNAR
Hér eru nokkrar
hugmyndir en,
möguleikarnir eru
ótakmarkaóir.
Leggið heilan valhnetukjarna ofan á
teninga af goudaosti.
2.
Vefjið skinkulengju utan um staf af
tilsitterosti, setjið sultulauka efst á
pinnan og skreytið með steinselju.
3.
Skerið gráðost í teninga, ananas í
litla gcira, reisið ananasinn upp á
rönd ofan á ostinum og festið saman
með pinna.
Helmingið döðlu, takið steininn úr og
fyllið með gráðostlengju.
5.
Skerið tilsitterost í teninga, setjið
lifrakæfubita ofan á ostinn og
skreytið með agúrkusneið og stein-
selju.
6.
Mótið stafi úr goudaosti, veltið þeim
upp úr þurrkaðri papríku og skreytið
með sultulaukum.
Setjið ananasbita og rautt kokkteilber i
ofan á geira af camembert osti.
5
8' 1
Setjið mandarínurif eða appelsínu- |
bita ofan á fremur stóran tening af r
port salut osti. T
9. S
Festið fyllta olífu ofan á tening af
port salut osti. Skreytið með stein-
selju.
il
m
Sj
t»::
8.
vetur, sumar.VOR
. og haust
FljúgiÓ utan i vor
nneó Flugfélaginu
mmm
mnim
- - j
" rnuwwi
Á öllum árstímum býður Flugfélagið yður Nú er tími vorfargjaldanna. Venjuleg far-
tíðustu, fljótustu og þaögilegustu ferðirnar gjöld lækka um þriðjung til helztu stór-
og hagstæðustu kjörin með þotuflugi til borga Evrópu.
Evrópulanda. Það borgar sig að fljúga með Flugfélaginu.
Hvergi ódýrari fargjöld.