Vísir - 13.04.1972, Page 4
4
NestijSem örvar hæfileikana!
Unga fólkið þarf að læra meira nú, en fyrrum.
Þegar það kemur út I atvinnulifið, verða mennta-
kröfurnar strangari en þær eru I dag.
Námsgáfur þess þurfa þvl að njóta sln. Rétt fæði er
ein forsendan.
Smjör veitir þeim A og D vitamln. A vitamln
styrkir t. d. sjónina.
Ostur er alhliða fæðutegund. I honum eru m. a.
eggjahvltuefni (protein), vitamin og steinefni,
þ. á m. óvenju mikið af kalki.
Öll þessi efni stuðla að eðlilegu heilbrigði.
Kalkið er m. a. nauðsynlegt starfsemi taugakerfisins.
D vitamín smjörsins og ostanna styrki tennur
og B vftamfn er nauðsynlegt húðinni. Skortur þess
er ein af ástæðunum fyrir óhreinni húð.
örviS námshæfileika unga fólksins, gefið þvi
holla næringu.
Gefið því smjör og osta
SMJÖR
Nýtt happdrœttisár
100 BILAR
ÍBÚÐARVINNINGUR
manaðarlega
. stgerri
vinningar
vinníngar *
5,
milljóna *
hús
HUSBl
RERÐALÖG I iy/k: “ 04/"i*
VÍSIR. Fimmtudagur 13. april 1972.
ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í M
Sundurbarið lík Franks Ferriano á bflastæði i Manhattan.
Mafíustríðið:
Enn voru tveir
glœpamenn myrtir
er Gallo var graf-
inn í gullkistu
Næstu „attöku" í Mafiu-
stríðinu þurfti ekki lengi að
biða. I þann mund er
Mafíuforinginn Joeseph
Gallo og tveir aðrir, sem
höfðu verir myrtir í fyrstu
lotu, voru jarðsettir, bætt-
ust enn tvö fómardýr á list-
ann.
Gennaro Ciprio var lifvörður
Mafiuforingjans Joe Colombos,
sem enn er ekki heill eftir að
reynt var að myrða hann i fyrra.
Gennaro var skotinn niður á
mánudag, er hann gekk út úr
veitingahúsi i Brooklynhverfi.
Við hlið liksins fannst hlaðin
skammbyssa og um 100 þúsund
króna fjárhæð var i vösum hans.
Á bilastæði i Manhattan fannst
annað likið, Frank Ferriano.
Hann hafði verið hæfður skoti i
höfuð og öðru i öxl og siðan barinn
i höfuðið.
Margir telja, að morðið á ,,vit-
lausa” Joe Gallo hafi verið hefnd-
arverk fyrir morðtilraunina á Joe
Comombo i fyrra, sem Gallo hafi
staðið á bak við. Séu menn
Colombos nú þegar farnir að
falla, er „fjölskylda” Gallos hefn-
ir sin fyrir morðin. Gennaro Cip-
rio, sem nú var myrtur, stóð við
hli.ð Colombos, þegar svertingi
skaut hann i fyrra. Það kemur við
kaun Colombos að missa þennan
lifvörð sinn og meðreiðarsvein.
Trylltist, er foringinn
I! +jl
æði, þegar foringi hans féll við
skotið. Hann hafi stokkið af pall-
inum, sem hann og
Colombo stóðu á, og barið alla,
sem fyrir urðu. Lögreglan ýtti
honum frá, og stökk hann á þá og
lumbraði á þeim, svo að lögregl-
an varð að taka hann i gæzlu.
Ciprio var ásamt mörgum
fylgismönnum Colombos dæmdur
fyrir verðbréfaþjófnað i New
York og Chicago i fyrra.
Líkkista á 400 þúsund.
Joe Gallo var grafinn i gull-
lagðri likkistu, sem mun hafa
kostað um 400 þúsund krónur. En
á sama tima virðist „fjölskylda”
hans hafa verið i óða önn að
brugga launráð andstæðingunum
i baráttunni um völdin i Mafiunni
i New York.
Atburöir i striðinu hafa
verið þessir:
30. marz var Conrad Greaves,
eitt vitna i opinberri rannsókn á
glæpum, skotinn niður við klúbb-
hús sitt.
6. april fann lögreglan illa barið
og sundurskotið lik Bruno Carne-
vale, sem var „hermaður” i liði
Mafiuforingjans Gambino, en
hann er talinn hafa unnið með
Gallo.
6. april fannst einnig lik
Tommy Edward Ernst fyrir utan
heimili hans, og hafði hann verið
skotinn til bana. Ernst var
„skyldur” glæpaflokki Dee
bræðra, og talinn i tengslum við
Gallo.
7. april var svo Gallo myrtur i
afmælisveizlu sinni.
m april var C >
lundust háar peningafúigur.