Vísir - 13.04.1972, Blaðsíða 12

Vísir - 13.04.1972, Blaðsíða 12
12 VÍSIR. Fimmtudagur 13. april 1972 Hótar að rœna syni Sharífs! — sökum þess, að leikarinn lék á móti Barböru Streisand í myndinni „Funny Girl' Omar Sharif lifir í stöðugum ótta um að hann fái símahringingu, og honum sagt, að syni hans hafi verið rænt. Ef svo skildi fara veit Omar Sharif spiiar viö son sinn Tarek I London, en á meðan vappa llfverðir utandyra......... Sharif, að Tarek, 14 ára sonur hans, er í höndum egypzks hermdarverka- manns, sem hefur svarið þess dýran eið, að ná sér niðri á Sharif. Egyptinn hefur ekki veitt Sharif stundlegan frið siðan Omar lék á móti gyðinga —leikkonunni Barböru Streisand i kvik- myndinni „Funny Girl”. ,,Hvar sem ég er hef ég það stöðugt á tilfinningunni, að hann sé á hælum mér. Hvort sem ég er staddur á heimili minu i Paris, i Deauville, að glettast við hrossin min, ellegar þá að skemmta mér i London. Alltaf finnst mér sem þessi mannfjandi sé ekki langt undan,” segir Sharif. t simahringingum og sendi- bréfum minnir Egyptinn Sharif stöðugt á ætlunarverk sitt. Og þessi heimsfrægi kvik- myndaleikari er ekki i nokkrum vafa um að hermdarverka- maðurinn muni standa við orð sin einhvern daginn. Drengurinn og móðir hans eru stöðugt undir eftirliti lögregluvarða á heimili sinu i London. Sótt er að drengnum úr tveim áttum. Arabiskir byltingarmenn leggja fæð á hann sökum þess, að hann er guðsonur Hussein Jór- daniukonungs. Vinir og kunningjar Sharifs telja höfuðástæðuna fyrir þeirri ákvörðun leikarans, að hætta kvikmyndaleik vera þá, að þannig geri hann sér vonir um að hermdarverkamennirnir láti hann og son hans i friði. Sharif heldur þvi þó sjálfur fram, að það sé liklega sama hvaða leiðir hann fari, sá dagur muni engu að siður koma, að syni hans verði rænt og i gegnum sima verði honum sagðar fréttirnar: ,,Syni yðar hefur verið rænt!” Nei, nei, svona ilia farinn er Omar ekki þrátt fyrir hótanir hermdar- verkamanna. Hann er bara þarna i þvi gervi, sem hann ber I nýjustu mynd sinni, „She Will Tell Him on the Island”, en þá mynd var verið að gera i Sofia i Búigaríu nú fyrir skömmu. Bandarikjamenn eru farnir að óttast, að þessi annariegi svipur kunni að færast yfir forseta þeirra nú að lokinni Kinareisu hans. Vill gera stórmynd um dauða Mussolinis Mun annaöhvort Brando eða Steger leika Mussoiini? Sergio Pastore, italskur kvikmyndaframleiðandi hefur Marlon Brando i einum sima og Rod Steiger i öðrum. Báðir vilja þeir gjarna fara með hlutverk Mussolinis i næstu kvikmynd Pastores „Fimm hinztu klukkutimar Mussolinis og Clöru Pattaccis”. Þessa stundina fæst Pastore við gerð myndarinnar „Silkihálsklútarnir sjö,” sem er hrollvekjandi glæpa- mynd. Myndin er tekin i og utan við Hótel Sheraton i Kaupmannahöfn. Gerð Mussolini-myndar Pastores hefst á næsta hausti, næstum samtimis töku myndar Italo Zingarellis, sem einnig fjallar um Mussolini. I þeirri mynd fer Richard Burton með aðalhlutverkið. JEANETTE LEN fransk-italskri kvik- myndaleikkonu, 24 ára gamalli, hefur verið falið hlutverk ástmeyjar Mussolinis, sem deilir dauðanum með honum i næstu k'vikmynd Sergios Pastroes um fimm siðustu klukkutimana i lifi einræðis- herrans liðna. Jeanette er einnig með i kvikmyndinni um „silkihálsklútana”, sem Pastore er að gera um þessar mundir. Henni er fleira en leikhæfileikar til lista ' lagt. Hún hefur náð talsvert langt sem rit- höfundur, en þekktast. rit- verka hennar er að likindum bók hennar um Martin Luther King. BOB HOPE Á FLANDRI Það verður ekki annað sagt en að Bob Hope sé víða á ferðinni. Hann hefur að undanförnu eytt tíma sínum i Saigon, — merkileg ferð það, — en hér er hann einungis í bíltúr í kvik- myndaborginni Holly- wood. Þessi risastóra andlitsmynd hans á að prýða anddyri golf- klúbbs á Palm Spring, og er þarna verið að koma myndinni áleiðis þangað. A meðan stúlkur út um viða veröld leggja brjóstahaldara sina á hilluna, færa beljurnar í Kent I Englandi sér þau áhöld i æ rikara mæli i nyt, alls ófeimnar. Þessi virðist I það minnsta ekki blygðast sin svo mikið fyrir að ganga með júgrið sitt i þessháttar apparati.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.