Vísir - 13.04.1972, Page 7
VtSIR. Fimmtudagur 13. april 1972.
cTMenningarmál
7
FAUVALTLIIKI LÍFSINS
EITTHVERT ásjárverð-
asta efni, sem sjónvarpið
sýnir að staðaldri, hafa iðu-
lega verið tiltölulega langir
myndaflokkar um hálf-
fræðileg efni. Flestir
þessara flokka hafa verið
brezkir, en nú í vetur hefur
þó verið á dagskrá siíkur
myndaflokkur af öðru og
suðlægara ætterni. Þará ég
við ítalska myndaflokkinn
um hafið. Einhverra hluta
vegna hef ég ekki getið
hans fyrr í þessum pistlum
en þykir rétt að draga það
ekki öllu lengur, þótt ekki
sé til annars en þakka fyrir
að hafa fengið að sjá hann.
Þessi myndaflokkur hefur
sameinað það tvennt að vera
heldur skemmtilegur á að horfa
og einkar fróðlegur. Og hann
virðist auk þess vera vand-
virknislega unninn, og i hverjum
þætti er þvi efni sem fyrir er tekið
gerð furðu tæmandi skil; itölsku
höfundarnir láta sér semsé ekki
nægja að raða einhvern veginn
saman sundurlausum svipmynd-
um og kalla það kynningarmynd
um ákveðið efni.
Eftir
■
Kristján Bersa
' :
Olafsson :
Ég sá það einhvers staðar i
blaði um það leyti, sem þessi
flokkur var að hefja göngu sfna,
að það væri undarlegt ef Italir
gætu kennt íslendingum eitthvað
um hafið. En þótt það sé aldrei
nema satt að engin þjóð er jafn-
háð hafinu og við Islendingar,
verður að gæta þess í fyrsta lagi
að það er ekki nema örlítið og
fábreytt brot af heimshafinu öllu,
sem við höfum kynni af, og í öðru
lagi er það einungis litill og
minnkandi hluti þjóðarinnar sem
þarf að standa i beinum við-
skiptum við ægi. Hafið býr yfir
mörgu, sem við getum ekki haft
hugmynd um af eigin raun einni
saman, en hins vegar má gera
ráð fyrir að nábýli okkar við út-
hafið geri okkur flestum öðrum
forvitnari um eðli þessarar mátt-
ugu höfuðskepnu.
Þessari forvitni hefur italska
myndaflokknum tekizt að svala
að nokkru, og það er aðeins til
marks um ágæti þessara mynda,
að þær virðast ná til allra aldurs-
flokka. Ég hef horft á flestar
myndirnar með talsverðri
athygli, en þó hygg ég að þær hafi
náð enn sterkari tökum á börnum
minum, sex og sjö ára gömlum.
Þau hafa ef eitthvað horft á
þessar myndir með enn meiri at-
hygli en auglýsingarnar, sem þó
eru löngu alræmdar fyrir að vera
það sjónvarpsefni, sem bezt
gengur i augun á börnum.
Hvaó er
siðmenning?
A MANUDAGSKVÖLD hófst i
sjónvarpinu nýr myndaflokkur,
sem mun taka við af þeim italska.
Þar rekur brezki listfræðingurinn
Kenneth Clark sögu vestrænnar
menningar á persónulegan og
lifandi hátt. Um þennan flokk er
að sjálfsögðu ógerlegt að segja
neitt eftir aðeins eina mynd, en
upphafið lofar góðu. Frásögn
Clarks var litrik og lifandi, og
það er þakkarvert að sjónvarpið
skuli hafa staðizt þá freistingu að
þagga niður i honum og láta flytja
tal hans á islenzku, kannski i
vafasamri þýðingu. Það er eitt-
hvert hvimleiðasta einkenni alltof
margra fræðslumynda i sjón-
varpinu að ekki skuli látið nægja
að birta þýddan texta neðanmáls,
heldur burðast við að flytja
islenzku þýðinguna munnlega
með. (Og þó tekur út yfir þegar
frumtextinn heyrist undir niðri
eins og daufur ómur i fjarska).
Þessi fyrsti þáttur fjallaði um
fyrri hluta miðalda, timabilið frá
falli Rómaveldis til kristnitöku á
fslandi. Sjálfsagt mætti segja
sögu þessa timabils öðruvisi en
Clark gerir, leggja aðrar áherzlur
og dæma sumt á annan veg. En
túlkun hans var sannfærandi og
honum tókst að sýna á talsvert
dramatiskan hátt, hve mjóu
munaði að menningararfleifð
Grikkja og Rómverja færi for-
görðum i myrkri miðaldanna.
Almennt munu nútimamenn
hrósa happi yfir að svo illa tókst
ekki til, en þó veit enginn og getur
ekki vitað, hver hefði orðið saga
heimsins, hefði hin klassiska
menning hlotið svo óblið örlög.
Það eitt er vist að sagan hefði
orðið allt önnur en hún varð. En
þar með er ekki sagt að útkoman
Tilkynning
frá félagsmálaráðuneytinu
Rikisstjórnin hefur með visun til laga
nr. 94/1971 ákvæðis til bráðabirgða, á-
kveðið, að húsaleiga, er fylgir verðlags-
visitölu samkvæmt samningi, skuli að svo
stöddu ekki hækka frá þvi sem visitölur
þær, sem giltu i nóvember 1970 leyfa.
Félagsmálaráðuneyti, 10. april 1972.
Heilsurœktin
The Health Cultivation
hefur flutt starfsemi sina i Glæsibæ. Ennþá eru nokkrir
morgun-og dagtimar lausir fyrir dömur. Ennfremur eru
lausir timar fyrir herra, sérstakir hjónaflokkar, meiri
fjölbreytni. Ath. breytt símanúmer 85655.
I)júpa vik á Ströndum: par var aour Diomiegur slldarbær sem nú er fallinn í gleymsku og þögn.
hefði endilega orðið lakari veröld
en sú sem við byggjum i dag, hún
hefði fyrst og fremst orðið öðru-
visi.
Hvar er nú
feðranna frægð?
HRUN RÓM AVELDIS leiðir
hugann að fallvaltleik lifsins, og
fallvaltleiki lifsins, með öðru móti
þó, var efni myndar sem sjón-
varpið sýndi á sunnudagskvöldið.
Sú mynd var um Djúpuvik á
Ströndum, sem um skeið var
blómlegur sildarbær, en nú er
fallinn i gleymsku og þögn.
Þessi sömu örlög hafa fleiri
byggðarlög á Islandi hlotið, og
það vekur ævinlega hljóðlátan
trega að koma á slika staði, jafn-
vel að sjá þá aðeins á mynd. Hins
veear er bað fiarska eðlileeur
hlutur að slikir staðir skuli vera
til, þeir eru óhjákvæmileg
minnismerki þeirrar atvinnu- og
þjóðfélagsbyltingar sem átt hefur
áér stað á Islandi á þessari öld.
Og það er rómantiskur barna-
skapur að gera sér vonir um aö
þeir geti nokkru sinni vaknað
aftur til horfinnar frægöar. En
þaö er hollt manni aö staldra þar
við og hugleiða það sem einu sinni
var, þótt ekki sé til annars en
minna á það að nútiminn er ekki
einangrað skeið sögunnar, heldur
rökrétt afleiðing af fortiðinni. Og
það skaðar ekki að muna eftir
fallvaltleikanum I leiðinni.
ÞESSIR LISTAR OG HORN
Þetta gæti verið yðar heimili
(-Svo auðvelt að góður eiginmaður
setur það upp á einni kvöldstund-)
i 3 tcgundum cru nú loksins komnir
aftur, og þeir sem pantað hafa, vin-
samlega sæki þá nú þegar. Meö
þessum gylltu . listum og snúnum
hornum, sem gcfa ótal möguleika,
hafið þér nú tækifæri til að breyta
húsakynnum yðar i hlýleg og vistleg
húsakynni, i stuttu máli sagt, ef
komast má þannig að orði, breytt
„hreysi i höll”.
Jafnt fyrir nýbyggingar og eldri hús
fellur þetta ótrúlega vel inn i um-
hverfið.
Þetta hcfur verið notað i aldaraðir og
þá sérstaklega i Krakklandi, en hcfur
núna á undanförnum árum skotið upp
kollinum aftur, og fyrir svo ótrúlega
lágt verð, þökk sé vélaetfMuningunni,
að liver og cinn getur nú veitt sér
þeúnan „lúxus".
Gömul húsgögn, rúmgaflar, hurðir,
skápar, og hillur að ógleymdum
veggjum verður nú sem nýtt • eftir
ásetningu Rococco guli-listanna.
Þessir listar og horn fást eins og svo
margt annaö aðeins hjá okkur. Yður er
velkomið að koma i verzlanir okkar og
kynna yður hina ótæmandi möguleika,
sem þessir iistar og horn veita.
0 KfAiVMS
Skólavöröustíg 8 og Laugaveg ll (Smiðjustiasmegin)