Vísir - 17.04.1972, Page 2

Vísir - 17.04.1972, Page 2
2 VÍSIR. Mánudagur 17. apríl 1972. VÍSBSm: Hafið þér komið í Bláf jöll? Inga Bjarnason. Nei þangað hef ég aldrei komið. Og ég get ekki sagt, að ég hafi nokkurn áhuga á þvi. Og t.d. að fara þangað á skfði, nei almáttugur, ég hef and- styggð á skfðum og öllum iþrótt- um. Sigriður Gu6jónsdó11 i r , Gagnfrsk. Austurbæjar. Já, já þangað hef ég komið. Ég fór þangað með skólanum um daginn iskiðaferðalag. Ogíg vil endilega drifa mig þangað hið bráðasta aftur á skiði eða jafnvel á snjó- þotu! Jón Sigurosson, loniisiarmauur. Nei, ekki hef ég nú farið þangað ennþá, en ég verð að fara að skella mér. Enda er ég núna að gera upp skiðin min, en ég hef ekki komið á skiði frá þvi ég var 14 ára gamall. Eiður Einarsson, bankastarfs- maður.Nei, ég er nú lika svo f jári lélegur á skiðum. En annars væri gaman að skreppa þangað og skoða landslagið, ég hefði gaman af þvi. Sigrún Jónsdóttir, bankastarfst. Ekki hef ég komið þangað ennþá. En ef ég færi, þá væri það ekki i þeim tilgangi að fara á skiði, heldur til að sjá mig um. Ég er nefnilega engin skiðamanneskja. Elof Wessman, feldskeri. Já, þangað hef ég komið einu sinni og það var reglulega skemmtilegt. En ég hafði engan tima til að fara á skiði, þvi aö ég var með barna- börnunum minum og maður þurfti að sjá um og leika sér við þau. Annars finnst mér að þarna þyrfti endilega að vera einhver kaffisala, svo maður gæti fengið sér molasopa. Dagur Þoríeifsson með Vísi Við fengum Dag Þorleifsson, blaðamann við Vikuna, til að renna augum yfir Vísi síðustu viku: Islensk dagblöð hafa gegnt og gegna einkum tvennskonar hlutverki: öðrum þræði eru þau málgögn og áróðurstæki stjórnmálaflokkanna, hinsvegar fréttamiðlar. Persónulega hefur mér alltaf fundist sá ljóöur mestur á ráði þeirra að fyrrnefnda hlutverksins hafi verið sinnt um of á kostnað þess siðarnefnda. Nú er ekki svo að skilja að ég hafi á móti fjörugum og upplýsandi umréðum um stjórnmál hvort heldur er i ræðu eða riti, siöur en svo. En stjórnmálaskrifum dagblaðanna er yfirleitt ekki ætlað aö fræða og upplýsa, heldur aö telja fólk á að styðja þann stjórnmálaflokk, sem er baráttutæki þeirra hagsmuna hópa eða stétta er standa á bak við hvert blaö fyrir sig. Visir er meö sinn skammt af þessháttar, en blaðinu til veröugs hróss er skylt aö geta þess, að sá skammtur er með naumasta móti. Ég renndi yfir leiðarana i fljótheitum og gat ekki annað séö en þeir væru mjög i anda slikra ritsmiða yfirleitt. Þó virtust þeir mér nokkuö greindarleg hugverk miðað við greinarkorn i miðviku- dagsblaðinu, birt undir nafni manns sem var vist einhvertima forsætisráðherra hérlendis. Burtséð fra þessu kemst ég varla hjá að gefa flestum efnisþáttum Visis fleiri stjörnur en eina og i sumum tilfellum fleiri en tvær. Yfirsvipur blaðsins er fjörlegur og lystaukandi frétta- svipur, mér liggur meira aö segja við að slá þvi fram að það sé eina hérlenda dagblaðið, sem tekur fréttaflutninginn ákveðið fram- yfir pólitikina. Ég fæ meira aö segja ekki annað séð en fréttirnir séu settar fram á hlutlægan og hlutlausan hátt, eða allt að þvi; i Vietnamfféttunum er Þjóð- frelsisfylking SuöurVietnama meira að segja kölluð sinu rétta nafni, en ekki Vietcong uppá amerisku eins og Mogginn gerir. Fréttaflutningi islenzkra blaða af erlendum vettvangi hefur að minu viti lengstum verið mjög ábótavant^en mér er nær að halda að þar standi Visir betur i stykkinu en nokkurt hinna. Það hrós er fyrst og fremst ætlaö Hauki Helgasyni, sem mér virðist taka á flestum hlutum af hlut- lægni og málefnalegri skarp- skyggni. Greinar Ólafs Jónssonar um menningarmál, föstudagsgreinar Þorsteins Thorarensens og fleira innsiðuefni er einnig góöra gjalda vert. Þar er oftlega á þann veg um. fjallað að ég á eríitt með að Imynda mér að þaö sé að smekk pólitiskra guðfeðra Vísis, en þvi lofsverðara er að blaðið skuli ljá slikum höfundum rúm. Grein Ólafs um Hufvudstads - bladet sænskfinnska er mjög svo athyglisverð og áreiðanlega meira en timabært fyrir tslendinga að gera gagnrýnar athuganir i framhaldi af saman- burði þeim á Morgunblaðinu og þessum Mogga þeirra Finn- svianna, sem Ólafur tæpir á. Þorsteinn fer á kostum i föstu- dagsgrein sinni þessa vikuna eins og oftar. Ef marka má skrif hans er hann ekki einn þeirra manna er rekst I flokki, og er þaö lofs- vert. Ég get tekið undir margt i ádrepunni á læknana, og þekkingu skortir mig til að geta með rökum mótmælt þeirri full- yröingu Þorsteins að þeir séu gróðastétt mest hér á landi. En á hitt má benda að læknar eiga að baki margra ára erfitt nám og starf þeirra er þess eðlis að það krefst ekki einungis mánnúðar og fórnarlundar i rikum mæli, heldur og yfirburða kunnáttu og hæfileika. Ég á ólikt auöveldara með að sætta mig við efnahagsleg forréttindi slikrar stéttar en vissra annarra gróða og „athafna” manna, sem maður oft freistast til að halda að hafi margir hverjir ekki annað vit til að bera en ef til vill svokallað peningavit. Þá vil ég ekki láta hjá liða að gefa Gunnari Gunnarssyni góða einkunn fyrir kvikmyndagagn- rýni hans, en á honum tek ég meira mark en nokkrum öörum, sem um það efni fjallar i dag-l blöðum hér. Kveður svo rammt að(aö ég er tekinn upp á þvi að hringja Gunnar uppi til að leita fróðleiks hjá honum um myndir, sem komnar eru í bióin en honum hefur láðst að skrifa um. I þessari viku saknaði ég i blaðinu greinar eftir Þorgeir Laugardagurinn er slappur, maður Arnar hringdi: „Þeir eru slappir þarna i út- varþinu maður. Þegar maður opnar fyrir tækið i þynkunni á laugardagsmorgna er Guðmund- ur Jónsson að þylja kolvitlaus bréf frá einhverjum kolvitlausum karlskarfi norður á Akureyri og svo er eithvert fjas um það hvort fólk vestur á fjörðum kemst á dansleik i næsta pláss moldar- vegarins vegna. Svona kjaftæði þoli ég bara hreint ekki. Fyrir hádegi á Jón G. að fá að sprella alveg eftir vild og spila fyrir okkur skemmtileg lög. Hins vegarer vel til fallið að vera meö dagskrárkynningu næstu viku eftir hádegi á sunnudögum. Liggur upp i sófa og nennir ekki einu sinni að slökkva á útvarpinu., Fyrir hádegi á Jón B. að fá að sprella alveg eftir vild og spila fyrir okkur skemmtileg lög. Hins ! vegar er vel til fallið að vera með í dagskrárkynningu næstu viku eftirhádegiá sunnudögum. Þá er maður fint afslappaður eftir steikina. Liggur upp i sófa og nennir ekki einu sinni að slökkva á útvarpinu. En i guösbænum fjörgið upp á laugardaginn. Ekki veitir af.” Þakka fyrir fjörgandi lesefni Jón T. simar: „Ég hef fullan hug á að þakka Visi fyrir margar skemmtilegar greinar og fréttir sem hann hefur fært mér. Ég er orðinn aldraður maður og búinn að missa konuna fyrir mörgum árum. Helzta dægradvölin er þvi að lesa, en jafnvel beztu skáldsögur komast ekki i hálfkvist við skemmtilegt dagblað og Visir hefur jafnan reynzt mér bezt. Ég nenni ekki lengur aö lesa allar þessar minn ingargreinar sem fylla Morgun- blaðiö enda kominn á grafar- bakkann sjálfur og leiðist að lesa alla þessa lýgi um góða kunningja. En það er alltaf hægt að opna Visí an þess aö rekast á þessar væmnu greinar sem eru til þess eins aö sannfæra Þorgeirsson, sem stundum fjallar þar um sjónvarpsefni. Sjónvarpsgagnrýni viröist annars hafa dottið að mestu niður i dag- blöðunum og er ekki andskota- laust. jafnfyrirferðarmikill liður og sjónvarpið er orðið i daglegu lifi þorra manna. Með tilliti til þess teljast menn eins og Þorgeir sem fjallar um málin af faglegri þekkingu og viti og er undan- dráttarlaus og”heiðarlegur i gagnrýni sinni, beinlinis til brýnustu lífsnauðsynja. Mikið plass er lagt undir iþróttir og sport og er það sjálfsagt i hlutfalli við almennan áhuga á þessu, svo áð ég ætla ekki að lasta það. Hvort þeim lið eru annars gerð góð eða slæm skil i blaðinu get ég ekki dæmt um,því að ég man varla til að hafa fylgst með iþróttafréttum siðan ein- hverntima fyrir fermingaraldur. A laugardaginn var kirkjuþáttur; slikir þættir I dagblöðunum hérna munu að jafnaði álika upplýsandi um trúmál og trúar- brögð og leikararnir og annað flokkspólitiskt efni um stjórnmál. Og að lokum — það er alltaf gleðilegt að sannreyna að forn- kunningi manns Tarsan apa- broðir skuli vera i fullu fjöri. Vonandi verður hann enn án ellimarka er degenerað leiðinda- pakk á borð við James Bond verður löngu dautt og grafið. gamlan mann eins og mig um að ég muni vakna dauður að morgni. Og ég er meira að segja farinn að fylgjast með, hinum og þessum kynbombum, sem kynntar eru i blaðinu þinu og svei mér þá ef ég verö ekki ungur i annað sinn við þann lestur. En aðalatriðið var nú það, að þakka Visi fyrir það skemmtilega efni sem hann færir mér. Og mér finnst alveg út i hött aö skammast ,út i iþróttafréttirnar. Þær eru lif- lega skrifaðar og þótt ég hafi aldrei komið i þessa Laugardags- höllþá finnst mér aö ég sé farinn að þekkja hana út og inn og þá ekki siður handboltastrákana. Þið skuluð halda áfram á þessari braut og blaðinu mun vel farnast.” ..og kvenmannsrödd gargaði eitthvert símanúmer........... J. Tryggvason simar: „I nýju simaskránni fletti ég upp um daginn, þegar ég þurfti að hringja i ákveðna deild hjá borg- inni. Stóð þar að skiptiborð væri opið kl. 9-12 og 13-17. Nú, klukkan var bara hálffimm svo ég grip simann og hringi. En viti menn, það er einhver kvenmannsrödd, sem svarar og gargar eitthvert simanúmer, og siöan slitnar sam- bandið. Mér þótti þetta sérlega undarlegt og hringdi strax aftur. Lagði ég mig nú i lima við að hlusta, þegar svarað var. Og sami kvenmaðurinn kallar eitt hvað á þá leið, að vaktmaður sé i sima hitt og þetta. Skildist mér þá að þarna væri simsvari I sam- bandi, og gafst upp við fleiri tilraunir. En mig langar til að fá það upp- lýst, hvort simi borgarfyrirtækja lokar fyrir kl. 17 og ef svo er, hvers vegna það sé ekki gefið upp i simaskránni.” HRINGIÐ í SÍMA 86611 KL13-15

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.