Vísir - 17.04.1972, Qupperneq 3
VtSIR. Mánudagur 17. apríl 1972.
3
Ný atvinnugrein:
Rœktun og tamning
hrossa til útflutnings
Nýr atvinnuvegur er I uppsigl
ingu, þar sem er ræktun og tamn-
ing hrossa. Seljendur fá nú mun
betra verö fyrir hrossin erlendis
en veriö hefur, er jafnvel talaö
um margfalt verö miðað við verö^
fyrir þrem—fjórum árum. 1 ár
má gizka á, aö hross veröi flutt út
fyrir 43 milljónir króna. Nefnd
hefur verið talan 60 milljónir.
Agnar Tryggvason hjá Sam
bandi islenzkra samvinnufélaga
sagði, að i ár flytti það út 700—800
hesta á alla markaði erlendis.
Meðalverð sé 45—50 þúsund fyrir
stykkið, einstaka stóðhestar séu
seldir á 150—175 þúsund krónur,
en barnahestarnir séu tiltölulega
ódýrir og fari allt niður i 30
þúsund krónur.
Agnar sagði, að árið 1969 hefðu
1650 hestar farið úr landi, en
margir af þeim hefðu verið teknir
beint úr högunum. Nú sé farið að
selja fullunna hesta fyrir stór-
hækkað verð. 1969 hefði meðal-
verð verið 15 þúsund krónur, nú
sé verðið þrisvar til fjórum
sinnum meira en þá.
Flutningsleiðin væri nú miklu
heppilegri, þar sem væru flug-
vélar i stað gripaflutningaskip
anna. Meðferðin væri allt önnur á
hestunum og hægt að taka þá i
notkun strax eftir að þeir væru
komnir út.
Agnar sagði, að nú væri að
myndast atvinnugrein, þar sem
væri hrossatamning, og hún örv-
aði mikið umsvif i sveitum.
Fjöldinn allur af ungum mönnum
hefði kynnt sér hrossatamningu,
og væri gifurleg vinna i kringum
hana og hrossaræktun hags-
munamál fyrir bændur, milljóna-
fyrirtæki. Ekki væri hætta á, að
gengi á hestastofninn. Nú væru
38—40 þúsund hestar á Islandi.
— Svona útflutningur ætti að
stuðla að meiri hrossarækt og
leiða til betri reiðhesta.
Asgeir Hjörleifsson fram-
kvæmdastj. S. Hannessonar og
Co. sagði fyrirtækið flytja út
100—300hesta árlega. Gerðar séu
meiri gæðakröfur nú en áður, og i
siðustu sendingu hafi meðal-
verðið verið 53 þúsund krónur á
hest.
— begar fyrsta sendingin var
að fara fyrir svona 10—12 árum,
þurftu hestarnir aðeins að hafa
fjórar lappir og ganga áfram, en
nú er það ekki nóg. I fyrra hafi
forseti smáhestaeigendafélagsins
i Þýzkalandi og Sviss verið með
tamninganámskeiö hér, og úti á
landi hafi verið efnt til nám-
skeiða, sem voru byggð á þvi,
sem hann hafði kennt.
— Þeir gera aðrar kröfur til
hestanna en við hér.
—SB—
Fógœtum
dúfum stolið
Pörupiltar stálu á föstudags-
kvöldiö fimm mjög svo fágætum
og dýrum dúfum frá Gunnari
Guöjónssyni, sem býr á Ægissiöu
64.
„Þetta voru þrjár „svartar
nunnur”, svokallaöar, og tvær
„gular nunnur”, sagöi Gunnar
VIsi i morgun.
„Ég hef ræktaö þetta lengi. og
geymdiþær i bilskúrnum hjá mér.
lleld helzt aö einhverjir prakkar-
ar hafi tekfð þetta, og ef foreldrar
þeirra veröa varir viö fallegar,
óvenjulegar dúfur hjá börnum
sinum, er hægt aö hafa samband
viö mig i sima 24646. Annars vinn
ég i Þjóöleikhúsinu”. —GG
Grunsamlegur með glerskera
Æði grunsamlegur maður var á
vappi i nótt á bak við Apótek
Vesturbæjar.
Voru lögreglumenn’ á eftirlits-
ferö þar um nágrennið um klukk-
an eitt i nótt, og sáu þeir þá til
ferða manns nokkurs, sem þeim
fannst að þeir þyrftu aö athuga.
Kom i ljós, þegar lögreglumenn
tóku hann tali þar á bak við apó-
tekið, að maðurinn var all vel
vopnaður til innbrots. Bar hann
með sér létt verkfæri af ýmsu
tagi, sem sem rúðuskera og
fleira, sem gott er að nota við inn-
brot.
Játaði maðurinn þar á staðnum
að hann hefði ætlað inn að brjót-
ast. Tóku lögreglumenn hann i
sina vörzlu og hafa áhuga á að
yfirheyra hann frekar
—CjCj
POPPIÐ SIFELLT VINSÆLT
„Einn pop, einn pop, tvo pop
- 23 pop. Ha, hvað segirðu. Ég
sagöi tuttuguogþrjápop. Já,
gerðu svo vel.” Þessi oröaskipti
áttu sér staö i einu kvikmynda-
húsa borgarinnar um daginn og
allir biógestir kannast viö pop-
kaupin þótt óvenjulegt sé aö
menn kaupi 23 poka i cinu. En
þctta er þó dagsatt og sýnir lik-
lega hina miklu og sivaxandi
popkornsþörf þjóöarinnar.
„Þetta er algjörlega ómiss-
andi biófæða og þýðir ekki að
reyna aö hamla á móti pop-
kornsneyzlunni. Við hættum
einu sinni að selja þesáa fæðu
hérna en þá hafði fólkið hana
bara með sér sem nesti” sagði
Friðfinnur i Háskólabiói. Hann
sagðist alltaf kaupa þetta inn
eftir hendinni enda færi svo
mikið fyrir vörunni aö vonlaust
væri að koma nokkru magni
fyrir. „Annars er þetta allt i
lagi, að visu dálitill óþrifnaöur
sem fylgir popinu, en þetta
skemmir þó ekki tennurnar.”
En það er dálitiö misjafnt
hvað bióin selja mikið af pop-
korni. „Það selzt náttúrlega
langmest á barnasýningum og
myndum sem einkum eru ætl-
aðar ungu fólki. En svo á spenn-
andi glæpamyndum rifur fólk á
öllum aldri þetta i sig” sagði
einn bióstjórinn viö Visismenn.
Viða um bæ keppast menn við
að framleiöa popkorn og láta vel
af sölunni. „I þessu er mais-
baunir, feiti og salt. Fólk getur
borðað sig satt af þessu ef nógu
mikið er etið” sagði einn fram-
leiðandinn. Og popið rennur út,
eða kannski inn og út.__ „
„Iss þetta klárast á einni sýningu", sögöu stelpurnar I Tónabfó, hlaön ar popi.
Ml
SUMAR
FRAMUNDAN
Sumarið kemur á
fimmtudag. En við
höfum lengi verið í
sumarskapi. Þess-
vegna bjóðum við nú
aðeins upp á vörur,
sem henta íslenzku
sumri. — Vikulegar
nýjar vörur. Ný-
komnir stuttir kjólar
og stutt pils (1295 kr).
Stóru alpahúfurnar
komnar aftur. Buxur
í 20 litum (f rá 995 kr).
Síðir samkvæmiskjól-
ar o.fl. o.fl.
FANNY 7 tízkuverzlun ungu konunnar,
Kirkjuhvoli, sími 12114
„Til fiskiveiða
förum..."
Hvítasunnuferð nvs Gullfoss
til Vestmannaeyja
FRA REYKJA VÍK
19. MAÍ
TIL REYKJA VÍKUR
23. MAÍ
VERÐ FRÁ
KR. 4.218,-