Vísir - 17.04.1972, Blaðsíða 4

Vísir - 17.04.1972, Blaðsíða 4
4 VtSIR. Mánudagur 17. apríl 1972 AOALSTN4KTI « SÍMI 15009 Stúlka óskast Stúlka með gagnfræðapróf, ekki yngri en 20 ára óskast strax. Ljósprentstofa Sigriðar Zoega & Co, Austurstræti 10. FERAAINGJARGJAFIR SPEGLAR Fjölbreytt úrval SPEGLABUÐIN Laugavegi 15 - Sími 19635 Frá vöggu til grafar Fallegar skreytingar ^ Blómvendir i miklu úrvali. Daglega ný blóm Mikið úrval af nýjum vörum. — Gjorið svo vel að lita inn. Sendum um allan bæ EOSIN GLÆSIBÆ, simi 23523. u >- /4 Sportjakkar í hressandi litum op mynstrum 4000/ 303 Foco 4000 Foco 303 Hómarks lyftigeta Óútdreginn 1,2 m. 3000 kg. 1,7 m. 3500 kg. Útdreginn 5,1 m. 600 kg. 6,1 m. 800 kg. Hómarks lengd fró miðri bifreið 5,75 m. 6,75 m. Lengd vökvaknúinnar lengingar 5,10 m. 5,20 m. Handútdregin lenging Engin Ein Auka lenging á bómu Allt að 7,20 m. Allt að 10,2 m. Snúningsvinkill 270° 360° Stuðningsfætur Einn Tveir Þyngd 780 kg. 1100 kg. Kranarnir eru með samanbrotinni bómu, tvöföldu stjórnkerfi og innbyggðum olíugeymi. Foco bílkranar hafa hlotið viðurkenningar fyrir lipurð og hagkvæmni. FOCO KRANINN VINNUR VERKIÐ VEITIR HF Suóurlandsbf auí 16 - Simi 35200 5 NÚ SKULUM VIÐ BERA SAMAN FOCO KRANA OG FOCO KRANA ÚTLÖND í MOR Sjálfsmorð 72ja ára Nóbelsskálds Japanski Nóbels verðlauna- hafinn i bókmenntum, Yasunari Kawabata, framdi sjálfsmorð f gær á heimili sinu f bænum Zushi, skammt vestan Tókió. Hann var 72 ára. Kawabata var telinn fremsta ljóðskáld Japana á siðari timum, fæddur 1899. Hann hlaut Nóbels- verðlaun 1968. Hann fannst látinn þegar þjónustufólk kom i ibúð hans i gær. Lögreglan vildir ekki greina nákvæmlega frá tildrögum, en gefið var i skyn, að hann heföi andað að sér gastegund eða öðru eitri. Kawabata r Atta sprengjur sprungu í byrjun „30 daga" stríðs Atta sprengjur sprungu i gær I höfuðborg Úruguays, þegar ríkis- stjórnin hóf „þrjátíu daga stríð” gegn Tupamarosskæruliðunum. Stjórnin ætlar að ganga milli bols og höfuðs á skæruliðum á þessum tima. Talið var, að hægri sinnaðir öfgamenn hefðu staðið á bak við sprengingarnar, en sprengjurnar voru sprengdar hjá kirkju, prent- smiðju, skrifstofu stjórnmála- flokks og fimm ibúðum. Eyði- legging var mikil, en manntjón ekki. Ein sprengjan splundraði inngangi og gluggum i meþódistakirkju, þar sem Tupa- marosskæruliðar földust þegar þeir myrtu fyrrum innanrikisráö- herra Úruguay. Morðið var fram- ið siöastliðinn föstudag. Þann dag skutu skæruliðar þrjá aðra menn, en átta munu hafa fallið af skæruliðum. Drápin leiddu til þess, að rikis- stjórnin ákvað um helgina að hefja 30daga strið gegn skærulið- um. Borgaraleg réttindi voru af- numin. Með þeim hætti telur stjórnin sig hafa betri möguleika á að útrýma Tupamaros. Eitt sprengjutilræðið i gær beindist að ibúð Juan Crottoginis, sem er i framboöi i varaforseta- kosningum og félagi í vinstri sinnuðum samtökum, sem nefn- ast „breiðfylking”. 1 henni eru sósialistar, kommúnistar og smærri hópar vinstri sinna. Aðgeröir Tupamaros hafa vald- ið glundroða i landinu, með fjölda mannrána, ekki sízt rána á er- lendum diplómötum. Skæruliðar hafa myrt marga af forystu- mönnum landsins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.