Vísir - 17.04.1972, Qupperneq 10
■ ■ - I
&
m£miax*avBB&f!£&&í&
VÍSIR. Mánudagur 17. aprfl 1972.
VÍSIR. Mánudagur 17. aprfl 1972.
Umsjón: Hallur Símonarson
Agnar Friðriksson skorar iyrir IR I leiknum gegn Armanni I gærkvöldi. Ljósmynd BB.
Kristinn Jörundsson — maður leiksins gegn Ármanni i gærkvöldi.
HSK er enn ó uppleið—vann
Val og er nú úr fallhœttu!
HSK sigraði Val i ís-
landsmótinu i körfu-
knattleik i gærkvöldi, og
hefur þar með að öllum
likindum tekizt að forða
sér úr fallhættunni. HSK
hefur að þessum leik
loknum 6 stig, en Borg-
nesingar.UMFS,hafa að-
eins 2, og enda þótt það
sé enn fræðilegur mögu-
leiki að UMFS takist að
jafna metin við HSK
með þvi að sigra i
báðum þeim leikjum,
sem liðið á eftir, er það
1x2
Úrslit voru talsvert snúin i get-
raunaleikjunum á laugardaginn
og þvl útlit fyrir, að fáir verði
með marga leiki rétta.
Úrslitin urðu þessi:
x Arsenal-Stoke l-l
2 Birmingham-Leeds 0-3
x Coventry-Manch. City 1-1
xEverton-Leicester 0-0
x lpswich-Sheff. Utd. 0-0
1 Man. Utd.-Southampt. 3-2
1 Tottenham-Chelsea 3-0
2 West Ham-Liverpool 0-2
2Wolves-WBA 0-1
1 Cardiff-Carlisle 3-1
1 Middlesbro-Norwich 10
2 Swindon-Burnley 0-1
Fjórum sinnum 1, fjórum sinnum
x og fjórumsinnum 2.
talið frekar óliklegt að
svo fari.
Anton Bjarnason
sýndi enn og sannaði i
þessum leik, að hann á
allt annað og betra skilið
en að vera hálfgerður
utangarðsmaður, þegar
landsiið er annars veg-
ar. Hann átti að visu
slappa leiki framan af
mótinu, en hefur siðan
átt mjög góða leiki og oft
sýnt frábæra frammi-
stöðu, og svo var einnig
að þessu sinni.
Greinilegt var, hvern Vals-
manna HSK-menn tölu hættuleg-
astan, þvi þeir settu frá sér fyrstu
minutu mann til höfuðs Þóri
Magnússyni, en aörir liösmenn
léku nokkurs konar svæöisvörn.
Þetta gekk vel, þvi bæöi var
vörnin mjög opin, og svo átti
Þórir auðvelt meö að hrista
gæzlumanninn af sér og skora,
enda skoraöi hann 32 stig i
leiknum, þrátt fyrir gæzluna.
Valsmenn náðu 9 stiga forystu
fyrir hlé, 40:31, en þegar siðari
hálfleikur var rétt nýbyrjaður
varð Þórir að hvila,þar sem hann
hafði fengið fjórar villur, og ekki
stóð á afleiðingunum.
HSK skoraði nú hverja körfuna
á fætur annarri, og skömmu eftir
miðjan siðari hálfleik komst HSK
yfir i fyrsta sinn i leiknum, 53:52.
Fjórum minútum fyrir leikslok
hafði HSK náð 7 stiga forystu, 65-
58, jók hana i 16 stig um tima, og
sigraði siðan örugglega með 84
stigum gegn 70.
Anton Bjarnason var mjög
góður i þessum leik, eins og áður
var sagt, og skoraði hann 28 stig,
en einnig áttu Guðmundur
Böðvarsson og Einar Sigfússon
ágætan leik. Hjá Val varð Þórir
Magnússon stigahæstur með 32
stig, og hefur nú skorað alls 381
stig i 13 leikjum, eða 29,3 stig á
leik. A hann einn leik eftir, og
verður þá gaman að vita, hvort
Þóri tekst fyrstum manna i
Islandsmóti að ná 400 stiga
markinu, en til þess þarf hann að-
eins 19 stig til viðbótar.
Leikinn dæmdu Ilörður
Tuiinius og Erlendur Eysteinsson
og gerðu þeir það vel. Enn eimir
eftir af gamla nöldrinu i einstaka
leikmanni.en með ákveðni sinni i
leiknum, gerðu dómararnir
nöldrarana ákaflega hallæris-
lega. Er það ángjulegt, hvernig
andúð hefur skapazt á nöldrinu,
og má greinilega merkja hana á
áhorfendapöllunum, þar sem
nöidrararnir skapa sér siður en
svo vinsældir. Þetta er rétta
stefnan —niður með nöldrið. G.Þ.
Billy Bremncr, fyrirliði
Nóði betri tíma innanhúss
í 800 m.en ískindsmetið er
Fjögur ný Isl. met innan
húss i frjálsíþróttum voru
sett i gær í Laugardalshöll-
inni á sameiginlegu innan-
félagsmóti Ármanns og
UMSK. Eitt þeirra, 800 m
hlaup kvenna, þar sem
Ragnhildur Pálsdóttir
hljóp á 2:26.8 mín er betra
en islandsmetið úti og
sýnir vel hve miklu má bú-
ast við i sumar af þessari
bráðefnilegu íþróttakonu,
en sem kunnugt er setti
hún mörg íslandsmet í
fyrra frá 400 upp i 3000 m
önnur i 800 m hlaupinu varð
Unnur Stefánsdóttir, ný hlaupa-
stjarna úr HSK, og hljóp hún
vegalengdina á hinum ágæta
tima 2:29.7 min.
Fyrsta keppnisgreinin var 1500
m hlaup karla og þar keppti
Agúst Ásgeirsson, IR, sem gestur
og bætti tslandsmet sitt á vega-
lengdinni Hnn hljóp á 4:11.0 min.
— frægur timi það i 1500 m hlaupi
þvi lslandsmet Geirs Gigja var sá
sami og stóð það met lengi. Annar
i hlaupinu varð Einar Óskarsson,
UMSK, sem hijóp á 4:20.9 min.
Keppt var i fyrsta skipti i 800 m
hlaupi karla á innanhússmóti hér
og varð þvi sigurvegarinn i
hlaupinu þvi um leið islenzkur
methafi. Og sigurvegarinn varð
Bjarki Bjarnason, UMSK, sem
hljóp vegalengdina á 2:13.2 min.
Annar varð Ragnar Sigurjónsson,
UMSK, á 2:15.1 min.
1 600 m hlaupi kvenna setti Lára
Sveinsdóttir, Ármanni, nýtt Is-
landsmet i fyrsta skipti, sem hún
hlaypur þessa vegalengd. Timi
hennar var 1:47.5 min og'hefði ef-
laust getað verið mun betri, ef
ekki hefði komið til misskiningur.
Þær Lára og Ragnhildur Páls-
dóttir misreiknuðu sig i hlaupinu
— heyrðu rangt köll brautardóm-
ara — og héldu að einn hringur
væri eftir — en þeir voru þá tveir-
— og tóku þvi alltof fljótt loka-
sprett i hlaupinu. Þær fóru yfir
markið og hættu, en var þá sagt
frá mistökunum, Lára tók þá
sprett á ný, en Ragnheiður ekki.
önnur i hlaupinu varð Björk
Kristjánsdóttir, UMSK, á 1:48.7
min. Þriðja Sigrún Sveinsdóttir,
Armanni, á 1:49.3 min og i fjórða
sæti varð Lilja Guðmundsdóttir,
ÍR, á 1:56.9 min en hún átti eldra
metið i hlaupinu.
Þá var einnig keppt i hástökki
karla og kvenna og i kúluvarpi
kvenna á þessu innanfélagsmóti.
i hástökki karla sigraði Elias
Sveinsson, ÍR, stökk 1.90 metra.
Annar varð Karl West, UMSK,
með 1.80 metra og þriðji Sigurður
Ingólfsson, Ármanni, með 1.75
metra. I hástökki kvenna sigraði
Sigrún Sveinsdóttir, A, stökk 1.45
m og Asa Halldórsdóttir, A, stökk
einnig sömu hæð.
1 kúluvarpinu bar Gunnþórunn
Geirsdóttir , UMSK, sigur úr být-
um — varpaði 9.09 metra. önnur
varð Unnur Stefánsdóttir, HSK,
með 8.32 metra. —hsim.
Kristinn, var maður dagsins
þegar IR gersigraði Ármann
Leeds komið \ úrslit í
bikarkeppninni ensku
m B8 Wilson lieeur á vellinum. hann
vann Birmingham 3:0, en Arsenal og Stoke gerðu jafntefli
Hið frábæra lið Leeds er
komið í úrslit i ensku
bikarkeppninni, sem verð-
ur á Wembley-leikvangin-
um í Lundúnum 6. maí, en
hverjir verða mótherjar
Leeds-leikmannanna i úr-
slitum er enn ekki vitað,
því Arsenal og Stoke gerðu
jafntefli í leik sínum í
Birmingham á laugardag
l-l. i Sheffield hafði Leeds
nokkra yfirburði gegn
Birmingham City og vann
með 3-0, en leikmenn 2.
deildar liðsins börðust af
krafti alian tímann, þó
uppskera yrði litil.
Þegar Leeds tókst að skora eft-
ir 18 min má segja, að áhorfendur
á leikvelli Sheffield Wed. hafi vit-
að að hverju stefndi og fallegt var
markið. Það var virkilegur
Leeds-stimpill á þvi. Peter Lori-
mer gaf fyrir markið — Alan
Clarke skallaði frá stönginni fyrir
fæturMike Jones, sem skoraði af
stuttu færi. Aðeins 7 min siðar átti
Lorimer eitt að sinum frægu skot-
um og knötturinn söng i netinu án
þess markvörður Birmingham
næði að lyfta höndum. Þriðja
mark Leeds skoraði Jones eftir
undirbúning fyrirliðans Billy
Bremner og Leeds er þar með
komið i úrslit i þriðja skipti i
bikarkeppninni, en félagið hefur
aldrei sigrað þar. Tapaði fyrir
Liverpool i úrslitum 1965 og fyrir
Chelsea 1970 eftir tvo leiki.
Aðalleikurinn var hins vegar i
Birmingham, þar sem bikar-
meistarar Arsenal léku við
deildabikarsmeistarana, Stoke
City. Nokkur forföll voru hjá
Stoke — Conroy, Mahoney og
Pejic ekki með vegna meiðsla eða
leikbanns, og Stoke lék greinilega
upp á að ná jafntefli, þar sem
þessir leikmenn verða væntan-
lega með á miðvikudag. Stoke lék
sem sagt mjög varnarkenndan
leik og það þó liðið léki undan
sterkum vindi i fyrri hálfleiknum.
Arsenal var betra liðið, en ekk-
ert mark var skorað i hálfleikn-
um. Strax i byrjun siðari hálfleiks
— eða á þriðju minútu — fékk
George Armstrong knöttinn frá
Charlie George rétt utan vita-
teigs, spyrnti viðstöðulaust og
þrumuskot hans hafði Gordon
Banks enga möguleika að verja.
Sigurinn virtist nú blasa við
leikmönnum Arsenal, þvi þeir
nutu nú einnig aðstoðar hins
sterka vinds. Leikurinn gekk lið-
inu mjög i hag — en þá gripu ör-
lögin inn i — Bob Wilson mark-
vörður Arsenal slasaðist það illa,
að hann varð aö yfirgefa vöilinn
eftir nokkra stund og er vafasamt
að hann leiki með i bráð. Miðherj-
inn John Radford fór i markið og
varði aö minnsta kosti þrisvar
snilldarlega, en i lokin var þó
Arsenal heppið að tapa ekki
leiknum.
Wilson hélt áfram að leika fyrst
eftir að hann meiddist og það
voru mistök. A 25 min tókst Stoke
að jafna. George Eastham gaf
fyrir markið — Wilson komst ekki
að knettinum, en Denis Smith,
miðvörður Stoke, skallaði að
marki og af Peter Simpson lenti
knötturinn i markinu. Rétt á eftir
munaði litlu að Stoke tæki forust-
una. Knötturinn var i vitateig
Arsenal og þulur BBC hrópaði —
Wilson liggur á vellinum, hann
getur ekki hreyft sig, og það voru
mikil átök i vitateignum. Peter
Dobing spyrnti á markið, en
þversláin kom Arsenal til
bjargar. Knötturinn hrökk út aft-
ur og á siðustu stundu tókst
McLintock að bjarga. Eftir þetta
skipti Arsenal um markmann og
Radford sýndi vel að hann var
vandanum vaxinn, en Ray Kenn-
edy miðherjinn, sem kom i stað
hans, var meira i eiginn vitateig
en Stoke lokak. ieiksins og skýrir
það nokkuð gang leiksins þá.
En ekki voru fleiri mörk skoruð
og liðin mætast að nýju á mið-
vikudag. Þá verður leikið á leik-
velli Everton i Liverpool —
Goodison park.
121 þúsund áhorfendur sáu báða
þessa leiki og greiddu fyrir það
148 þúsund pund — eða um 33
milljónir islenzkra króna.
STIGAHÆSTIR:
Þórir Magnússon
Einar Bollason
Agnar Friðriksson
Kristinn Jörundsson
Birgir Jakobsson
Guttormur óiafsson
Kolbcinn Pálsson
381 (29,3)
269 (22,4)
259(21,6)
253 (21,1)
221 (18,4)
206 818,7)
205 (17,1)
Þrenn einstaklingsverðlaun
eru veitt i tslandsmótinu. Leik-
menn 1. deildariiðanna veija
sjálfir „Besta leikmanninn” úr
sinum hópi, verðlaun eru veitt
fyrir hæstu stigaskorun móts-
ins, og virðist Þórir Magnússon
vera búinn að slá eign sinni á
þau nú þegar, og loks eru veitt
verðiaun fyrir beztu vita-
bittnina. Virðist þar vera hörku-
barátta milli Einars Bollasonar,
Jóns Sigurðssonar og Agnars
Friörikssonar, og munar, eins
og sést hér fyrir ofan, aðeins
0,4% á efsta manni og þeim
þriðja i röðinni. Allir eiga þessir
leikmenn tvo leiki eftir, og verð-
ur nú spennandi að fylgjast með
þvi, hvernig þessum leikmönn-
um tekst upp i vitahittninni það
sem eftir er. Hún er framúr-
skarandi góð hjá þeim öilum, en
nú getur eitt misheppnað skot
svipt viðkomandi verðlaunum.
skoraði fjörutíu stig í leiknum og sýndi frábœran leik að öllu leyti
Ekki varö Ármann til þess
aö leggja stein i götu iRinga í
gærkvöldi vestur á Nesi,
þegar þessi lið mættust í
íslandsmótinu í körfuknatt-
leik. IRingarnir hafa sjaldan
verið betri, og gerðu sér
meira að segja litið fyrir og
fóru yfir 100 stiga markið í
annan sinn á einni viku.
Virðist liðið vera mjög að
færast í sitt gamla form, og
er maður þegar farinn að
hlakka til að sjá úrslitaleikinn
við KR þann 29. april. Þessi
tvö lið, IR og KR, eru örugg-
lega þau lang-beztu í 1. deild-
inni nú, sennilega mjög jöfn
að styrkleika, en eins ólík
hvað leik snertir og dagur og
nótt.
Margir spáðu Armanni
velgengni i mótinu að þessu sinni
eftir að liöiö haföi sigrað i Reykja-
vikurmótinu á mjög sannfærandi
hátt. Þaö hefur hins vegar fariö svo,
að sjaldan eða aldrei hefur jafn illa
gengið hjá liðinu og i Islandsmóti
þvi, sem nú stendur yfir. Bæði er
það, að ekki hefur náðzt eins mikið
og efni stóðu til út úr aðal-stjörnu
liðsins i Reykjavikurmótinu, Birgi
Birgis, sem ekki hefur náð sér veru-
lega á strik allt mótið, og svo hitt, að
liðið nær illa saman, bæði i vörn og
sókn. Þetta er þó misjafnt, og þegar
liðinu tekst vel upp, skipar það sér á
bekk með þeim beztu, og getur þá
sigrað hvern sem er.
ÍRingar eru ekki alveg blankir,
þar sem er hinn stjórsnjalli ieikmað-
ur Kristinn Jörundsson. Frekar
lágur i loftinu, miðað við þessar
körfuboltasleggjur yfirleitt, en öllum
klókari við að skora úr erfiöustu
aðstæðum. Var Kristinn áberandi
beztur IRinganna I leiknum, enda
skoraði hann 40 stig — þar að aðeins
tvö úr vitaskotum.
Armenningarnir byrjuðu af mikl-
um krafti, og komust i 10-3. Ekki
varð það til að draga úr vonum
áhorfenda eftir jöfnum leik, en IR-
ingar skoruðu 6 næstu stig, og staðan
var 10-9 fyrir Armann. Þá tók
Ármann enn mikla skorpu á 1R-
körfuna, og náði 18-9, en ÍR skoraði
þá 8 stig i röð, 18-17 fyrir Armann.
Armann.
Kristinn Jörundsson kom IR yfir i
fyrsta sinn i leiknum, þegar liönar
foru rúmar 10 minútur af fyrri hálf-
leik, 23-22, og i hálfleik haföi IR 12
stig yfir, 45-33.
í siðari hálfleik var allur vindur úr
Ármanns-liðinu, og IRingar eins og á
velheppnaðri skotæfingu, svo að si-
fellt dró sundur með liðunum, 59-43,
70-51 og þegar fimm minútur voru til
leiksloka hafði IR 25 stig yfir, 84-59.
Þeir notuöu svo siöustu minúturnar
vel, skelltu pressunni á Armenn-
ingana, stálu boltum, og tókst að ná
hinum eftirsóttu 100 stigum, og
tveimur betur en það, en Armenn-
ingar skoruðu 69. gþ
Staðan í
íslands-
mótinu í
körfunni
KR 12 12 0 985:815 24
ÍR 12 11 1 1055:820 22
Valur 13 7 6 917:950 14
1S 12 6 6 800:877 12
Þór 11 4 7 657:660 8
Ármann 12 4 8 826:878 8
HSK 12 3 9 790:875 6
UMFS 12 1 11 818:973 2
VITAHITTNI:
Einar Bollason 43/33 76,7%
Jón Sigurðsson 34/26 76,5%
Agnar Friðriksson 59/45 76,3%
Þórir Magnússon 64/46 71,9%
Kristinn Jörundss. 48/33 (68,8%
Einar Sigfússon 42/28 66,7%
Skólamótið
ÚRSLITALEIKIJKlWN í Skóla-
móti KSÍ verður háður. _i dag
á MelaveUinum og hefst lefleut'1
imi ki. 17.00. Liðin sem mætast
í úrslitaleiiknuim er Menntaskól-
rnn í Reykjavik og Háskóli Is-
lands, en þessi tvö lið hafa oftast
lei'kið ti'l úrslita í Skólamótinu,
9íðan það hóf gönigu sina 1969.
Men-ntaiskólimn í Reykjavik sigr-
aði í mótinu 1969 og 1970, en
Háskólinn hefur eigi enn náð
að sigra. Báðir hafa þvi til mikils
að vinna. Að leiik loknum mun
formaður KSÍ Albert Guðmunds-
son afhenda sigvrvegurunum
bikar þann sem keppt er um, en
gefandi hans er KSÍ.