Vísir - 24.04.1972, Qupperneq 5
VÍSIR. Mánudagur 24. aprll 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Pompidou ló
á eigin bragði
Frakklandsforseti,
Gerorges Pompidou,
beið talsverðan ósigur i
þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni um stækkun Efna-
hagsbandalagsins i gær,
þótt stækkunin væri
samþykkt. Kjörsókn var
miklu minni en
stuðningsmenn höfðu
vænzt, og lita menn á
þetta sem vantraust á
Elízabeth Mattingly, sem á von á
fyrsta barni slnu, biður brosleit
eftir heimkomu eiginmanns slns,
Thomas Mattingly geimfara.
Pompidou, sem hafi
boðað þessa þjóðarat-
kvæðagreiðslu til að fá
traustyfirlýsingu.
Brezku blöðin gerBu I morgun
mikið úr lélegri kjörsökn I Frakk-
landi, á forsíöu, og í forystu-
greinum. Af þeim, er kusu,
greiddi yfirgnæfandi meirihluti
atkvæði með stækkun banda-
lagsins, en margir skiluðu auöu
og ógildu, svo aö aðeins 36 prósent
kjósenda greiddu atkvæði með
stækkun, þegar tillit er tekið til
þeirra, er heima sátu og skiluðu
nei—seðlum eða auðum og
ógildum.
Sum brezku blööin telja sigur-
vegara þessara kosninga vera
Mitterand foringja sósialista-
flokksins ( sósialdemókrata ) en
henn er talinn helzti forsvars-
maður stjórnarandstöðunnar um
þessar mundir. Sóslalistaflokkur-
inn skoraði á kjósendur að sitja
heima.
Pompidou stóð fyrir þessari
þjóðaratkvæöagreiðslu af eigin
dáðum. Kjðsendur greiddu
atkvæði um hvort þeir féllust á
stækkun EBE með inngöngu
Bretlands og fleiri rikja eða ekki.
Settu met
Apollo-geimfararnir komust I
morgun klakklaust um borð I
geimfarið. Þeir skutu tunglferju
sinni upp frá tungli og tengdust
tveimur stundum slðar stjórnfar-
inu, þar sem félagi þeirra hafði
beðið.
Tunglfararnir voru alls 71
klukkustund á tungli, fimm
stundum lengur en nokkrir aðrir.
Þeir ferðuðust um tunglið meira
en fyrirrennarar þeirra, og munu
þeirhafa fundið gosgrjót og fleira
markvert þrátt fyrir bilanir i út-
búnaði.
Siðasta ferð Apollo-áætlunar-
innar verður i desember.
Humphrey vill
heimköllun fró
Indó-Kína strax
Hubert Humphrey vill,
að allt bandaríska liðið í
Indó-Kína verði flutt heim
næstu einri eða tvo mánuði.
Hann sagði, að þessir flutn-
ingar væru framkvæmanlegir.
Unnt væri að flytja hermennina
flugleiðis i skyndingu. Bandarikin
ættu ekki að halda áfram að veita
löndum i Suðaustur-Asiu her-
naðaraðstoð.
„Við höfum gefið Suður-Viet-
nam fimmtán beztu árin i lifi
okkar,” sagði Humphrey, „og
beztu aðstoð og tæki. Hið eina,
sem við getum ekki gefiö Suður-
Vietnömum, er vilji til að verja
hendur sinar,” sagði hann.
Loks náðu stuðnings-
menn EBE andstœð-
ingunum
Sifellt fleiri Bretar
styðja stefnu stjórnar-
innar um inngöngu i
Efnahagsbandalagið.
Samkvæmt skoðanakönnun,
sem var birt i morgun, fylgja 42
prósent aðild, en 43 prósent eru
andvigir og 15% óákveðnir.
Staðan má þvi kallast jöfn milli
stuðningsmanna og andstæðinga,
og er þetta i fyrsta sinn, að slikt
gerist, þvi að andstæðingarnir
hafa alltaf verið miklu fleiri.
Fylgi Verkamannaflokksins
hefur minnkaö mikið og munar
nú næstum engu á honum og
íhaldsflokknum. Verkamanna-
flokkurinn hafði um langt skeið
haft miklu meira fylgi en Ihalds-
flokkurinn I skoðanakönnunum.
Umsjón: Haukur Helgason
Svona kátur var Willy Brandt fyrir hclgina, þcgar hann hitti llcath i Bretlandsheimsókn sinni.
En nú hefur Brandt minni ástæðu til kæti.
Osigur Brandts
Stjórnarandstœðingar fengu hreinan meirihiuta í Baden-Wiirttemberg
— Þingmeirihluti Brandts í Bonn aðeins 3 þingmenn
Willy Brandt varð að þola
áfall i fylkiskosningunum
i Baden-Wurttemberg í
gær. Stjórnarandstæð-
ingar, kristílegír demó-
kratar, fengu hreinan
meirihluta á fylkisþing-
inu og juku fylgi sitt
verulega.
Kristilegir fengu 53% at-
kvæða. Þeir hafa ekki áður
fengið meirihluta i fylkinu.
Jafnaðarmannaflokkur
Brandts vann nokkur sæti, en
frjálslyndi flokkurinn, sem hef-
ur samstarf við jafnaðarmenn i,
rikisstjórn missti þriðjung
fylgis sins.
Af þessu leiöir, að Brandt
mun eiga mjög erfitt uppdráttar
á þingi, er atkvæði veröa greidd
um samninga stjórnar hans við
Sovétmenn.
Enn einn þingmaður segir skilið
við rikisstjórnina.
Stjórnarandstæðingar sækja
hart á Brandt vegna samn-
inganna. Úrslitin I Baden-
Wurttemberg eru talin gefa
töluvert til kynna um afstöðu al-
mennings til samninganna og
ekki boða gott fyrir Brandt.
Viö þetta bætist, aö enn einn
þingmaður stjórnarliösins hefur
sagt skilið við rikisstjórnina.
Er það þingmaður frjálslyndra,
sem gekk úr flokknum I gær.
Meirihluti Brandts á þingi er
nú aðeins þrjú atkvæði.
Með vindil I munni og barn sitt á baki kom þessi kona úr fjöllunum I bæinn Ban Me Thuot. Þorps-
búar flýðu undan sókn kommúnista.
Norðanmenn Hefja
sókn ó miðhólendinu
Norður-Vfetnamar her-
tóku í morgun bæinn Tanh
Canh i hálendinu í miðbiki
Suður-Víetnam, en þar
höfðu Suður-Vfetnamar
haft héraðshöfuðborg.
Margar herdeildir norðan-
manna, studdar skriðdrekum,
tóku sjálfan bæinn snemma i
morgun og skutu af falibyssum á
herstöðina við bæinn. Varnarliö
Suður-Vietnama gafst upp, þegar
Noröur-Vietnamar höföu eyði-
lagt sendistöð þeirra.
Herflokkar Noröur-Vietnama
hafa skoriö sundur verasam-
band til og frá bænum. Tvær
þyrlur sunnan-manna voru skot-
nar niður á þessum slóðum.
Bandarisk sprengjuflugvél af
gerðinni B-52 var i morgun hæfð
yfir N-Víetnam, og varð hún að
nauðlenda við bæinn Da Nang i
Suður-Vietnam.
Norðanmenn eru nú sagðir hafa
byrjað öfluga sókn i miðhálend-
inu, en þar áttu menn heizt von
á, aö úrslitaorrusturnar yrðu
háðar.
Norðanmenn hafa ráðizt á
bæinn Dak To úr tveimur áttum,
annars vegar skriðdrekasveitir,
hins vegar fótgöngulið.
Suður-Vletnamar eru að senda
fallhlifariið til bæjarins Tanh
Canhtilaðfreistaþessaðreka N-
Vietnama þaðan.