Vísir - 24.04.1972, Síða 11
10
VtSIR. Mánudagur 24. aprll 1972.
VISIR. Mánudagur 24. aprll 1972.
11
Hraðupphlaupin og frá-
köst vopn KR gegn Þór
KRingar sýndu mjög
sannfærandi leik í gær-
kvöldi gegn Þór, og verða
varla lambið að leika við
fyrir IRinga á laugar-
daginn kemur. Hraðupp-
hlaup, sem hafa verið allt
annað en góð hjá KR i
vetur, voru nú frábær.
Hjálpaði það lika til, að
KRingar hirtu svo að segja
hvert einasta frákast undir
sinni körfu, siðan gekk
boltinn út á kant, inn á
miðju, og síðan lá hann í
körfu Þórs eftir augnablik.
Voru þarna útfærð einhver
skemmtilegustu hraðupp-
hlaup, sem sést hafa i 1.
deild i vetur, og verður nú
gaman að fylgjast með,
hvort IRingar, sem fram að
þessu hafa verið nokkurs
Norski kringlukastinn Magne
Föleide kastaöi 60.12 metra i
kringlukasti á móti i Floröigær.
18 ára piltur Oystein Björbæk
kastaði 50.76 metra og er talinn
mjög efnilegur. Hann er læri-
sveinn Föleide, en báöir garp-
arnir eru búsettir í Florö.
konar hraðupphlaups-sér-
fræðingar körfuboltans,
verða að láta í minni pok-
ann fyrir sínu eigin
skæðasta vopni. Það kemur
i Ijós á laugardag vestur á
Nesi.
KR skoraði 8 fyrstu stig
leiksins, en Þór jafnaði innan
skamms, 8—8. Þór hafði 1 stig
yfir, þegar 10 minútur voru
liönar af fyrri hálfleik, 18—17, en
þá fóru hraðupphlaupin verulega
i gang hjá KR, og var þá ekki að
sökum að spyrja. KR skoraði 10
næstu stig, 27—18, og haföi 13
stig yfir i hálfleik, 49—36,
I siðari hálfleik var enn meira
áberandi, hversu mikla yfirburði
KRingar höfðu i fráköstum, og
virtist eitthvert áhugaleysi þjá
Þórsara. Veittu þeir litla mót-
spyrnu i siðari hálfleik, eins og
þeir hefðu gefið alla von upp á
bátinn, og KR hafði um 30 stig
yfir allan siðari hluta hálf-
leiksins. 1 fyrsta sinn i vetur
tókst KR i þessum leik að komast
yfir 100 stiga hjallann, en leiknum
lauk með 105 stigum KR gegn 73
stigum Þórs.
KR—liðið i heild átti góðan
leik, en af bar Bjarni
Jóhannesson, sem er i örri fram-
för, og gerir margt snilldarlega
vel. Skoraði Bjarni 32 stig i
leiknum, en Kolbeinn Pálsson
skoraði 24. Kristinn Stefánsson
var góður i vörn, en hann og
Einar Bollason voru einna
harðastir i fráköstunum.
Guttormur ólafsson skoraöi mest
Þórsara, eða 21 stig, en Jón
Hýðinsson skoraði 19.
gþ
FH gerði
jafntefli
við KSÍ
Úrvalslið KSt komst ekki til
Vestmannaeyja eins og fyrirhug-
að var i gær, en lék i þess staö
æfingaleik við FH á Melavellin-
um.
Jafntefli varð 2-2. Daniel
Pétursson skoraði fyrsta markið i
leiknum fyrir FH, en Hermann
Gunnarsson jafnaði. Staðan i
hálfleik var 1-1. í siðari hálfleikn-
um skoraði Asgeir Eliasson fyrir
KSl, en Leifur Helgason jafnaði
fyrir FH. Lið FH stóð sig vel i
þessum leik og hinir ungu leik-
menn þess gáfu landsliðsmönn-
unum aldrei frið.
Ármann náði 5. sœti
af slökum Þórsurum 65 79 •
Það er oröið langt siðan
Þórsliðið hefur sést jafn-
slappt og það var i leikjum
sinum um helgina i ís-
landsmótinu í körfubolta,
eða varla síðan á sokka-
bandsárum liðsins i 2.
deild. Vantaði allt fyrra
öryggi í leik liðsins, enda
fór það svo, að Þór tapaði
bæði fyrir Ármanni og KR
með talsverðum mun.
Á laugardagskvöld mættust
Þór og Armann. Armenningar
léku maður á mann vörn, en Þór
svæðisvörn. Svæðisvörnin hjá Þór
var þó varla nema i meðallagi,
þvi eftir fáeinar minútur stóð 10-0
fyrir Ármann.
Eftir þessa slæmu byrjun réttu
Þórsarar þó heldur úr kútnum, og
eftir miðjan fyrri hálfleik, þegar
staðan var 22-14 fyrir Ármann,
tóku þeir að saxa á forskotið jafnt
og þétt, þar til aðeins skildu 2 stig,
tveimur minútum fyrir hlé, 32-30.
1 hléi stóð 38-32 fyrir Armann,
en eftir 5 minútna leik i siðari
hálfleik munaði enn aðeins 2 stig-
um, 44-42. Þá kom enn eitt erfið-
leikatimabilið hjá Þór, og Ar-
menningarnir náðu öruggri for-
ystu um miðjan siðari hálfleik, 58-
46. Ellefu stig bar i milli þegar
yfir lauk, 80-69.
Jón Sigurðsson og Björn
Christensen voru skæöastir Ár-
menninga að þessu sinni, skoruðu
22 og 20 stig, en einnig átti Jón
Björgvinsson ágætan leik. Jón
Héðinsson var hinn sterki maður
Þórs á miðjunni, bæði i sókn og
vörn. Hann skoraði 19 stig, en
Þorleifur Björnsson, sem einnig
skilaði sinu hlutverki vel, skoraði
16. GÞ
kringlu
John Vanmreen, suður-afrik-
anskur stúdent.sem stundar nám
viö háskóla i Kaliforniu, kastaöi
kringlunni 65 .79 metra á móti á
Lönguströnd á sunnudaginn.
Þetta er langbezti árangur sem
Afrikumaður hefur náð i þessari
grein og jafnframt niundi bezti
árangur, sem náðst hefur i
kringlukasti i heiminum.
Þó Jóhn Vanmreen sé nú
kominn i hóp beztu kringlu-
kastara heims er ekki vist, að
hann fái að láta ljós sitt skina i
Múnchen — og reyndar litlar .
sem engár likur til þess, þar sem
flestar þjóðir eru a' móti þvi að
Suður-Afrika fái aö senda
keppendur á Ólympiuleikana.
A sama móti á sunnudag
kastaði skólafélagi Johns, George
Frenn, sleggjunni 70.54 metra.
ÍR í basli með stúdenta
Þaö blés ekki byrlega
fyrir iR i leiknum við iS í
gærkvöldi, þegar voru 25
minútur af leiknum, og
munurinn aðeins 3 stig,
40—37. Hafði róðurinn verið
með erfiðasta móti hjá IR
fram að þvi, en þá loks fóru
tslandsmeistararnir að
leika á þann hátt, sem
nafnbótinni þeirri er til-
hlýðilegt, og tókst að sigra
með 27 stiga mun.
Fór ekki að ganga verulega
fyrr en 1R tók upp pressuvörn,
sem þó var hriplek. og fengu
Stúdentar margar „ódýrar”
körfur vegna hennar. öllu heldur
væri rétt aö segja að hún heföi
verið hripalek á bakvelli, þvi á
framvelli var hún nokkuð góð —
en kæmist boltinn fram yfir
miðju, brást það ekki að IS náði 2
á 1, eða 3 á 2, og skoraði oftast.
tS—menn voru mjög harðir i
vörninni gegn 1R allan leikinn, og
nægði það til að koma leik
tR—liösins úr jafnvægi. Attu
skytturnar hjá IR i mestur erfið-
leikum meö að komast i skotfæri,
enda skoraði hvort lið um sig
aðeins 8 stig fyrstu 8 minúturnar.
IR naði þó 8 stiga forskoti 5
minútum fyrir hlé, 20—12, en
aðeins munaöi 4 stigim i hléi,
31—27 fyrir IR. Olli þvi slakur
sóknarleikur IR, og svo það að
kæmist boltinn inn á miðjuna
undir körfu 1R, skor-uöu
Stúdentarnir yfirleitt, og stóð
Bjarni Gunnar Sveinsson sig meö
prýði i þeirri baráttu, og skoraði
alls 24 stig i leiknum.
Steinn Sveinsson skoraöi fyrir
IS i fyrsta upphlaupi siðari hálf-
ieiks, 31—29, og fimm minútum
siðar stóð 40—37 fyrir IR. Þá
skoraði IR hins vegar 12 stig gegn
aöeins 2 stigum 1S, og var það
upphafið að falli IS. Gekk IR nú
flest i haginn, hittnin batnaöi til
muna, stöku hraðupphlaup sást,
og loks skelltu þeir pressuvörn á
1S. Varð brátt nær 30 stiga
munur, þrátt fyrir þá annmarka
pressunnar, sem áður er lýst, og
sigraði IR örugglega með 91 stigi
gegn 64.
Þorsteinn Guðnason var nú
aftur meö 1R, og skilaöi sinu
hlutverki á miðjunni mjög vel.
Birgir Jakobsson var sterki
maðurinn i vörninni, en Kristinn
Jörundsson varð stigahæstur með
23 stig, og næstur var Agnar
Friðriksson með 16. Athygli vakti
nýliði með mfl. IR, Gunnlaugur
Pálmason, unglingalandsliðs-
maður og 1. flokks—stjarna,
sem sýndi verulega skemmtileg
tilþrif i sókn. Stúdentaliðið er
mikið baráttulið, sem örugglega
nýtur góðs af stjórn Birgis
Jakobssonar. Mega Stúdentarnir
vel við una aö hafa náö 4. sætinu i
1. deild, en það er liklega meira
en bjartsýnustu menn þoröu að
vona.
G.Þ.
Borgnesingar féllu í aðra
deild - en naumt var það!
Ekki varö seta Borgarness i
1. deild i körfubolta löng að
þessu sinni, en hún varö því
eftirminniiegri. Liöinu gekk
afar illa framan af mótinu,
var þó óheppið aö vinna ekki
einn eöa tvo leiki, en sneri svo
aldeilis blaðinu við, þegarsíga
tók á síðari hlutann. Eftir-
minnilegur veröur sigur liösins
gegn Ármanni fyrir skömmu,
þar sem Borgarnes fékk sín
fyrstu stig í mótinu, og i fyrra-
kvöld sigraði liðið ÍS í hörku-
skemmtilegum og jöfunum
leik.
Með fjögur stig til góða gekk
Borgarnesliðið til leiks i gærkvöldi
gegn HSK, sem hafði hlotið sex stig, og
þurfti þvi Borgarnes að sigra til að
eiga möguleika á jöfnu. HSK átti
reyndar einn leik eftir, við Þór á Akur-
eyri, en hefði HSK tapað honum, hefði
þurft aukaleik um neðsta sætið i 1.
deildinni, og þá jafnframt fallið i 2.
deild. En, það tókst ekki hjá
Borgnesingunum að þessu sinni, þótt
sáralitlu munaði, þvi HSK vann með
2ja stiga mun, 76—74.
Á laugardagskvöld léku
Borgnesingar við IS, eins og fyrr
sagði, og var hart barizt til siðustu
minútu. Léku Stúdentarnir maður á
mann vörn, og reyndu sýnilega mjög
að stöðva Gunnar Gunnarsson, en
hann brást þannig við, að sjaldan
hefur maður séða aðra eins snilld og
Gunnar sýndi i leiknum. Voru
sendingar hans á samherja i opnum
færum oft með glæsibrag, og ekki
voru körfuskotin af lakara taginu.
Verður örugglega sár -missir að
Gunnari fyrirþá Borgnesinga, en hann
er á förum til Reykjavikur, og mun
væntanlega leika með KR næsta vetur.
Jafnt var i leik UMFS og 1S um
miðjan fyrri hálfleik, 18—18, og oft átti
eftir að verða jafnt á stigatöflunni i
þessum leik. Þar gaf að lita 29—29 og
39—39, en þannig var staðan i hléi. IS
tókst að ná 5 stiga forystu i byrjun
siðari hálfleiks, 47—42, en Gunnar
Gunnarsson jafnaði á 7. minútu,
54—54, Enn var jafnt þegar rúmar 8
minútur voru eftir, 60—60, en þá ná
Stúdentar enn forystunni, 66—62.
Bragi Jónsson, hinn ungi framherji
UMFS, sem stóð sig skinandi vel i
leiknum, og skoraði 25 stig, kom
UMFS nú aftur yfir, 67—66. Siðan
skoruðu Borgnesingarnir 5 næstu stig,
og var sigur þeirra ekki i hættu eftir
það, en þeir skoruðu 76 stig gegn 70.
EN NAUMT VAR ÞAÐ
Eins og sakir stóðu, hafa
Borgnesingar væntanlega verið von-
góöir um að takast mætti að halda i
sætið I 1. deild, enda þótt útlitið hefði
verið æði dökkt um tíma. Þeir byrjuðu
lika leikinn við HSK í samræmi við
þetta, þvi þeir höfðu náð 8 stiga forystu
skömmu fyrir miðjan fyrri hálfleik,
16—8,
Gifurleg harka færðist i baráttuna
undirkörfunum, og var hart barizt um
hvert frákast. Voru HSK—menn öllu
harðari i þeirri baráttu, og gekk Einar
Sigfússon vasklega fram i henni fyrir
þeirra hönd. Tveimur minútum fyrir
leikslok munaði aðeins 3 stigum,
39—36, UMFS i hag, en UMFS átti
tvær siöustu körfur hálfleiksins, og
hafði 7 stig yfir hléi, 43—36.
Hafi mikið gengiö á i baráttunni um
fráköstin i fyrri hálfleik, þá
magnaðist hún enn i þeim siðari. Enn
voru það HSK—menn, sem höfðu
betur, og náðu þeir mörgum frá-
köstum undir eigin körfu, þar sem
hittni Borgnesinga datt i byrjun siðari
hálfleiks niður úr öllu vladi. Leið ekki
á löngu þar til HSK jafnaði, og komst
yfir, 46—44, og skömmu siðar 50—44.
Voru þá liðnar um það bil 8 minútur
af siðari hálfleik, og höfðu Borg-
nesingar aðeins skorað 1 stig úr viti.
Er á leið tók hittnin helldur að lagast
hjá UMFS. Munaði brátt 2 stigum,
61—59. Tveimur minútum siðar stóð
68—64 fyrir HSK, þegar Anton
Bjarnason fær sina 5. villu. Þetta
virtist vera UMFS mikil heilsubót, þvi
Gunnar Gunnarsson jafnar, 68—68.
HSK nær enn forystu, en enn jafnar
Gunnar, 74—74. Þá fer Einar Sigfússon
einnig út af með 5 villur, en Þórður
Óskarsson gafst ekki upp, og skoraði
sigurkörfuna fyrir HSK nokkrum
sekúndum fyrir leikslok, 76—74.
Gunnar Gunnarsson varð stigahæsti
maður leiksins með 30 stig, en hjá HSK
varð Anton Bjarnason stigahæstur
með 25 stig. .
gþ
Staðan í
körfuboltanum
KR 13 13 0 1090:888 26
IR 13 12 1 1146:884 24
Valur 13 7 6 917:950 14
ts 14 6 8 934:1044 12
Ármann 13 5 8 906:947 10
Þór 13 4 9 799:845 8
HSK 13 4 9 866:949 8
UMFS 14 2 12 968:1119 4
Stigahæstir:
Þórir Magnússon 381 (29,3)
Einar Bollason 281 (21,6)
Kristinn Jörundss. 276 (21,2)
Agnar Friðriksson 275 (21,2)
Ólympiuleikvangurinn I Munchen verður opnaöur opinberlega eftir nákvæm-
lega mánuð, en 24. mal verður þar landsleikur I knattspyrnu milli Vestur-Þýzka-
lands og Sovétrikjanna. Völlurinn rúmar 79.835 áhorfendur og þessi mynd var
tekin sl. föstudag af honum.
Og Njarðvík tók sœti þeirra
Það mun verða UMFN frá
Njarðvik, sem fyllir skarð
það, sem Borgnesingar,
UMFS, lætur eftir sig i 1.
deild að ári. Sigraði
UMFN 2. deildina örugg-
lega.tapaði ekki leik, og var
áberandi bezta liðið i deild-
inni.
Tveir riðlar voru^I 2.
deildinni, suð-vesturlandið,
ásamt KA frá Akureyri, og
svo Vestfjarðakjálkinn,
ásamt Snæfellingum.
S;igruðu Snæfellingar i
vesturlandsriðlinum, og
mættu UMFN i úrslitaleik i
gær. Unnu Njarðvikingar-
nir auðveldan sigur með 71
stigi gegn 39.
Hið unga lið KR vann
Þrótt auðveldlega 2-0
KR vann heldur léttan
sigur gegn Þrótti í öörum
leik Reykjavíkurmótsins,
sem háður var á Melavell-
inum á laugardaginn —
skoraði tvö mörk í fyrri
hálfleik og þar við sat —
Jim Ryan
að ná sér
á strik
Heimsmethafinn I 1500 m. og
miluhlaupi, Bandarikjamaðurinn
Jim Ryan, er nú heldur betur aö
ná sér á strik á ný. A móti I
Lawrence I Kansas I gær hljóp
hann míluna á 3:57.1. min. og sig-
raði Tom van Ruden örugglega,
en hann hljóp á 3:57.9 min.
Þriðji varð Larry Rose á 3:59.6.
min.
I marz kepptu þeir Ryan og
Ruden einnig I miluhlaupi og
sigraði hinn siðarnefndi þá með
miklum yfirburðum.
Kjell Isakson hafði enga mögu-
leika til að bæta heimsmet sitt i
stangarstökki á mótinu. Hann
varð að láta sér nægja 5.31
metra, og átti sæmilegar tilraunir
við 5.43. m., sem er 10 sm.
lakara en heimsmet hans.
1 kúluvarpinu sýndi A1 Feuer-
back mikið öryggi og varpaði
lengst 21.05 metra. Herb Wash-
ington hljóp 100 jarda á hinum
frábæra tima 9.2 sekúndur og
Barry Schur stökk 2.16 metra I
hástökki á mótinu.
fleiri mörk voru ekki skor-
uð í leiknum.
Fyrri hálfleikurinn var all-
skemmtilegur og hið unga lið KR
sýndi þá af og til góð tilþrif. Arni
Steinsson skoraöi fyrsta markið I
leiknum eftir að KR hafði fengið
aukaspyrnu, en hiö siðara skoraöi
efnilegur leikmaður, Gunnar
Gunnarsson.
Þróttur komst betur frá siðari
hálfleiknum, án þess þó aö skora,
en liðið fékk þá allsæmileg tæki-
færi, og leikmenn Þróttar voru
greinilega i betri úthaldsæfingu.
Aö visu einkenndi kæruleysi
nokkuö leik KR-inga þá — það var
sem leikmenn litu á leikinn sem
unninn eftir fyrri hálfleikinn, en
slikt er hættulegt og mörgum lið-
um orðið hált á þvi.
Mótið heldur áfram i kvöld á
Melavellinum og mætast þá Ar-
mann og Þróttur i þriöja leik
mótsins — en annaö kvöld leika
Haukar unnu
Breiðablik
Tveir leikir voru háöir i Litlu
bikarkeppninni á laugardag.
Haukar úr Hafnarfirði, en lið
þeirra og FH skiptast um að
leika fyrir Hafnarfjörö i keppn-
inni, komu á óvart og unnu
Breiðablik 3-1. Leikurinn var háð-
ur i Hafnarfiröi og sýndi Hauka-
liðiö miklu betri leik gegn áhuga-
litlu liði Breiðabliks.
A Akranesi léku Islandsmeist-
ararnir frá Keflavik við heima-
menn og sigruðu 2-1. Oll liðin i
keppninni hafa tapaö leik, en
Akureyringar og Keflavikingar
eru efstir með 4 stig eftir þrjár
leiki.
Fram og Víkingur. Valur hefur
enn ekki hafiö keppni, þar sem
leik liðsins viö Fram, sem vera
átti á sunnudag, var frestaö þar
til 11. mai.
Myndina hér til hliðar tók
Bjarnleifur, þegar KR-ingar
skoruöu fyrra mark sitt I
leiknum.
Hraðkeppni
Hraökeppni i handknattleik
fyrir4. flokk karla verður haldin I
iþróttahúsinu i Hafnarfirði
sunnudaginn 30. apríl. Þátttaka
tilkynnist I sima 51901 fyrir miö-
vikudag 26. april.
Stellan Bengtson, í miðju, eftir
að hann varö Evrópumeistari I
Moskvu 1970.
Stellan varð EM-meistari
Ungi Svíinn Stellan
Bengtson varö Evrópu-
meistari i einliðaleik í
borðtennis á Evrópumeist-
aramótinu i Rotterdam á
laugardag, þegar hann
vann Ungverjann Istvan
Jonyer i mjög hörðum og
tvisýnum úrslitaleik.
Úngverjinn byrjaði betur og
vann fyrstu lotuna meö 21-10, en
þá tók Stellan sig heldur betur á
og vann þá næstu 21-12. Þriöja lot-
an var gifurlega hörö —- en aftur
var það Ungverjinn, sem fór með
sigur af hólmi 24-22. Sama sagan
var i fjóröu lotu, en nú var það
Sviinn, sem hafði betur og vann
21-9 og i þeirri fimmtu og siöustu
vann hann 21-16 og tryggði sér þar
með aftur Evrópumeistaratitil-
inn.
I tviliðaleik var hann einnig I
úrslitum ásamt Kjell Johansson
gegn Ungverjunum Jonyer og
Rozsas, sem sigruöu meö 21-18,
21-13, 21-23 og 21-16 og sýndu Ung-
verjarnir mikið öryggi i leik sin-
um.
1 einliðaleik kvenna sigraði
Zoya Rudnova frá Sovétrikjun-
um. Hún sigraði Beatrix Kishazi,
Ungverjalandi, I úrslitum 21-14,
21-17, 22-20. I tviliðaleik kvenna
sigruðu Magos og Lotaller, Ung-
verjalandi, Hammersley, Bret-
landi, og Kishazi, Ungverjalandi,
og i tvenndarkeppni sigruðu
Gomozkov og Rudnova, Sovét-
rikjunum, þau Stellan Bengtson
og L. Anderson frá Sviþjóð með
21-12, 21-16 og 21-19.
örlagarlkt augnablik IPrag. Tékkin Holik Jar skorar sigurmark liös slns I úrslitaleiknum við Sóvetrikin
Sjá nánar grein á bls 9.