Vísir - 27.04.1972, Síða 3
VÍSIR. Fimmtudagur 27. april 1972
3
Bjolla um háls kisu
Mýsnar taka til fótanna og
hlaupa tistandi inn i næstu hoiu.
Litlir fuglar biaka vængjum i of-
boði og reyna að hefja sig á loft.
Hvað er aö ske? Ja, það skyldi
þó aldrei vera? Einhver dökk, lið-
ug vera læðist fram úr skúma-
skoti og stekkur fram, hviss...
skellir skoltunum saman og það
er búið.
Litill fugl að hefja lífið og nú er
það búið. „Böivaður kötturinn,”
segir vegfarandi, horfir stundar-
korn ó vígstöðvarnar, en heldur
siðan á brott.
Saga, sem endurtekur sig. Timi
kattarins er enn á ný að renna
upp, og munnvatnið fer að
streyma fram i kjafti hans.
,,En þetta er nú bara lifið,”
sagði Þorsteinn Einarsson, hjá
Dýraverndunarfélaginu, er Visir
hafði samband við hann i morgun
um köttinn og fuglana.
Og hann tjáði okkur að nú færi
einn mesti veiðitiminn i hönd, það
er að segja i mailok. Þá fara
þrastarungarnir að detta úr
hreiðrunum, ófleygir, og þá er
vist engrar undankomu auðið, ef
kisa gamla er nálæg.
Siðan heldur þetta áfram alla
vega fram i ágústlok. ,,0g það er
vist litið hægt að gera,” sagði
Þorsteinn ennfremur, ,,Ja, nema
þá, ef fólk vildi hengja bjöllur um
hals kattarins, eins og tiðkast
mikið erlendis, eða þá að halda
honum innan dyra.”
Og það er kanski ekki til of mik-
ils ætlazt þó að fólk hengi bjöllu
um háls kisu sinnar, til viðvörun-
ar fyrir fuglana.
— EA
SEXTÍU ÁRA
HEILDVERZLUN
Heildverzlun Kristjáns Ó.
Skagfjörð á sextiu ára afmæli I
dag 27. apríl.
Verzlunarleyfi Kristjáns Ó.
Skagfjörð var gefið út á Patreks-
firði 27. april 1912, en fyrirtækið
er nú tit húsa að Trvggvagötu 7 i
Rvik.
í fyrstu vcrzlaði fyrirtækið
aðallega með veiðarfæri og máln-
ingarvörur, auk allra algengra
vara, og hefur fyrirtækið enn
nokkuð af þeim umboðum cr
byrjað var með.
Fyrirtækið var rekið sem
einkafyrirtæki til 1951, en 1952 var
stofnað hlutafélag um fyrirtækið.
Siðan þá hefur fyrirtækið vaxið
mjög ört og má geta þess, að þá
var upphæð hlutafjár 90 þús. og
starfsmenn 3, en nú er hlutafé 6
milljónir og starfsmenn 56.
Mestur hluti verzlunarinnar er
enn sem fýrr nýlenduvörur og
veiðarfæri, en undanfarin ár hafa
verið teknir upp nýjir vöruflokk-
ar, svo sem: Fiskvinnsluvélar,
bátavélar, radarar, fiskleitartæki
og margt fleira.
Nýlokið er byggingu nýs húsnæðis
fyrirtækisins i Hólmsgötu i
örfirisey, sem notað er fyrir
vörugeymslur, frysti- og kæli-
kiefa, skipaþjónustu og fleira.
—EA
„LISTAHATÍÐ
FYRIR ALLA"
— verið er að ganga frá samningum um kvikmyndasýningar
á hátiðinni — mikil ásókn i miða
„Við auglýstum Listahátið
fyrir helgina og fólk tók þegar
við scr. Okkur hafa borizt þó
nokkrar pantanir á miðum. Og
allar pantanirnar komu' innan-
lands frá. Satt að segja þor'um
við ekki að vona að fólk i.eföi
svona mikinn áhuga á þessu”,
sagði Þorkell Sigurbjörnsson,
framkvæmdastjóri Listahátiðar
'72, er Visir ræddi við hann i
gærmorgun.
Sagði Þorkell að dagskrár-
atriði á hátiðinni væru reyndar
enn að mótast.
„Það eru ýmis atriði sem við
erum enn að athuga og eigum
eftir að reka endahnútinn á,
varla rétt aö tala mikiö um það
á þessu stigi málsins”.
— Veröa einhverjar kvik-
myndasýningar — var ekki i
haust talað um að sýna myndir
eftir Danann Dreyer?
„Jú það var vist, og einnig
Antonioni og pólskar myndir.
Pólsku myndirnar eru komnar
til landsins, og þær verða sýnd-
ar. Við eigum bara eftir að finna
þeim stað og stund innan
dagskrárinnar”.
Miðar eru seldir á einstaka
liði hátiðarinnar, og kosta frá
200 — 400 krónum, ,,viö reynd-
um að stilla miðaverðinu mjög i
hóf, þetta verður lika hátiö fyrir
alla - ef svo má segja, þetta er
ekki hátið fyrir eitthvert sér-
stakt fólk. Miðaverðið fer samt
svolitið eftir þvi hver kostnaður
er lagður i einstök atriöi”.
Sagði Þorkell og aö eitt sinn
hefði staðið til að láta gera
islenzka kvikmynd um hátiðina
-eins konar kynningarmynd, en.
fallið hefði verið frá þeirri ætl-
an, ,,ég held mönnum hafi
hrosið hugur við, hve dýrt slikt)
fyrirtæki myndi verða”. —GG.
• •
0KUMENN MISSKILJA,
TILGANG ADVÖRUNARUOSA
— notuð í tíma og ótíma
„Af hverju cru þcssi Ijós þá sett
i bilana” segja ökumenn sem
misnota aövörunarljósin sem
blikka i sifelldu á báöum hliðum á
nýrri gerðum bila. Þetta eru
algengustu svörin, sem lögreglan
fær þegar hún ávitar menn fyrir
gáleysi þeirra i meðferð slikra
Ijósa.
„Það er föst reglugerð fyrir
notkun aðvörunarljósa” segir
Óskar Ólason hjá umferöardeild.
1 7.gr umferöalaga 4. liö stendur:
„Aðeins er heimilt að nota
aðvörunarljós bifreiöa ef ökutæki
stendur óökufært á vegi eftir
árekstur, skemmd eða bilun,
þannig að annarri umferö stafi
hætta af” (undanskilið sjúkra og
lögreglubifreiðar)
„Aðvörunarljósin eru sérstaklega
gerð vegna aksturs á þjóðvegum”
sagði Óskar, ,,en menn nota þau i
tima og ótima t.d. ef þeir þurfa að
hægja á sér eða stanza andartak,
þannig að það er erfitt að átta sig
hver þarf i rauninni á hjálp að
halda og hver ekki”. „Annars er
skilningur ökumanna að aukast á
þessu”, sagði Óskar að lokum,
„og ég held aö viö séum að
komast yfir þetta.”
Siglfirðingar fá mun ódýrara rafmagn
— 14 aurum ódýrari kilóvattsstund þar en i Reykjavík
Siglfirðingar greiða 14 aurum
minna fyrir hverja kwst sam-
kvæmt heimilistaxta rafveit-
unnar þar en Iteykvikingar gera.
Þessi mismunur er þó eftir að
rafmagnsverð á Siglufirði var
hækkað fyrir skömmu úm 11-12%.
Ilver kwst er nú scld á kr. 2.70 á
Siglufiröi og er þaö 70 aurum
lægra en hjá Rafmagnsveitum
rikisins.
Ekki voru þó allir taxtar
rafveitunnar á Siglufiröi hækk-
áðir, þvi hitunartaxtinn var
lækkaður um 10% vegna niður-
fellingar á söluskatti á rafmagni
til húsahitunar. Siglfirðingum er
að sjálfsögðu mikið i mun að
halda þessu hagstæöa rafmagns-
verði og eru því ekkert of hressir
yfir þeim áætlunum Magnúsar
Kjartanssonar að gera landiö að
einu raforkusölusvæöi þar sem
jafnaðarverð gildi.
Hið hagkvæma rafmagnsverö á
Siglufirði má rekja til hagstæðra
vatnsaðstæöna við Skeiösfoss-
virkjun annars vegar og hins
vegar til góðrar stjórnar á rekstri
rafveitunnar. Þessi 11-12%
hækkun á gjaldskrá mun aðeins
gefa rafveitunni um 4% meiri
tekjur þarsem rekstrarkostnaður
hefur aukizt talsvert. -SG
Róbert
stjórnar í kvöld
Sinfóniuhljómsveitin er nú á
endaspretti þessa starfsárs, ef við
megum bregða iþróttamáli fyrir
okkur i þessu sambandi. Róbert
A. Ottósson stjórnar hljómleikun-
um i kvöld, en á efnisskránni eru
verk eftir Wagner, Beethoven og
Dovrak. Söngsveitin Filharmónia
kemur enn einu sinni til skjalanna
og flytur nú Te Deum Dvoraks
ásamt hljómsveitinni.
TROÐFULLT AF
NÝJUM VÖRUM
Finnsku vörurnar komnar með úrvali
af röndóttum bómullarjersey blússum i
öllum iitum, langerma, stutterma og
með nýja japanska sniðinu. Sumarpils,
jakkar og dragtir. Nokkrir mjög kven-
legir kjólar og draktir frá Mary Quant’.
o.fl. o.fl. — Búðin er að springa
af nýuppteknum vörum.
Fanny, tízkuverzlun ungu konunnar, Kirkjuhvoli, Sími 12114