Vísir - 29.04.1972, Side 6
6
VtSIR. Laugardagur 29. april 1972.
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
' Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglysingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611 if> Imuri
Askriftargjald kr. 225 á mánuði inranlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakið.
Blaðaprent hf.
Aðförin að Reykjavík
Sterk rök hafa verið leidd að þvi, bæði af borgar- )
stjóranum i Reykjavik og fleiri að markmið rikis- /
stjórnarinnar og stuðningsmanna hennar með )
setningu tekjustofnalaganna hafi ekki hvað sizt \
verið það, ,,að koma Reykjavikurborg á kné,” (
þrengja kosti borgarbúa og setja borgarstjórnar- /
meirihlutann i sem stærstan vanda. Með nýju )
tekjustofnalögunum er svo um hnútana búið, að \
borgin verður að fullnýta allar álagsheimildir (
laganna. Svo mun að sönnu vera um fleiri sveitar- /
félög, en það skiptir litlu máli að mati valdstjórnar- )
innar, ef lögin koma nógu hart niður á Reykjavik. )
Engum, sem hefur kynnt sér þessi lög, getur (
blandazt hugur um, að þau skerða stórlega sjálf- )
stæði sveitarfélaganna i landinu, koma illa við þau \
flest öll og verst við þau stærstu. Þar sáu stjórn- (
völdin sér lika sterkan leik á borði gagnvart /
Reykjavik, enda hefur fulltrúi Alþýðubandalagsins )
i nefndinni, sem undirbjó tekjustofnalögin, játað \
það berum orðum i Þjóðviljanum, að nauðsynlegt /
hafi verið að endurskoða tekjustofna sveitar-)
félaganna, einkanlega með hliðsjón af þvi hve\
hlutur Reykjavikur hafi þar fram til þessa veriðl
mikill. Við svo búið mátti ekki lengur standa. /
Eins og á hefur verið bent, er það að kalla regla \
án undantekningar, að þvi stærra sem sveitar- (
félagið er, þéttbýlið meira, þvi meiri þjónustu er /
krafizt, og hana verður sveitarfélagið að veita. Þess )
má lika minnast og undirstrika það oftar en gert er, \
að sú þjónusta, sem Reykjavikurborg veitir á (
mörgum sviðum, kemur fleiri að gagni en /
ibúum hennar einum. Þar er i ótal mörgum efnum )
um að ræða þjónustu við alla landsmenn, og þá ekki \
sizt fólkið i sveitarfélögunum á þéttbýlissvæðinu (
utan borgarmarkanna. Þegar þess er gætt, að i (
Reykjavik sjálfri búa um 40% þjóðarinnar, og höfð /
hliðsjón af þeirri þjónustu, sem borgin lætur i té, er \
ekki óeðlilegt, að hlutur hennar i tekjum sveitar- (
félaga sé um 50% þótt núverandi landsstjórn sé þar /
á öðru máli. )
Ástæðan fyrir þessari aðför ætti að vera öllum ff
augljós. Hún er sú, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur (
meirihlutann i borgarstjórninni. Gegn honum er)
vopninu beitt. Von andstæðinganna er sú, að það biti)
nægilega til þess að svipta flokkinn meirihlutanum i \
borgarstjórn. Borgararnir kenni honum æ fleiri um (
þær hækkanir, sem óhjákvæmilegar eru,t.d. á fast- (
eignagjöldunum. (
Hér er ekki ný saga að gerast. Ýmsum ráðum \
hefur verið beitt i sama tilgangi. Muna ekki sumir \\
t.d. eftir „Gulu bókinni”, sem vinstri samsteypan ((
lét semja fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1958? //
Þeirri aðför var svarað með þvi að Sjálfstæðis-)
flokkurinn fékk þá kjörna tiu fulltrúa og upp úr þvi \
fór að styttast i valdatima þáverandi vinstri (
stjórnar. Gæti ekki farið svo, fyrr en rikisstjórnina /
sjálfa færi að gruna, að þessi afglöp hennar ásamt')
mörgum öðrum verði henni sjálfri að falli, áður en \i
henni tekst að koma Reykjavik á kné? ((
Bandaríkin fara nú
yfir í metrakerfið
Rœtt um 10 ára aðlögunartímabil
Bandarikjamenn ætla að taka
upp metrakerfið. Eins og á Bret-
landi er þetta byitingarkennd
breyting á mannlifi.
Þingið fjailar um tiiiögur, sem
mundu flýta þeim degi, er Banda-
rikjamenn feta i fótspor Breta,
Astraliumanna, Kanadamanna
og Japana og fleiri reyndar, sem
hafa siðustu ár breytt kerfi sinu i
samræmi við það, sem annars
staðar rikir.
Margir bandariskir nota nú
þegar metrakerfi, og það hefur
verið lögmætt i Bandarikjunum
siðan 1866, er það var samþykkt á
þingi. Engu siöur, eins og menn
vita, hafa Bandarikjamenn verið
að vandræðast með sina þuml-
unga, jarda, fet, únsur, gallón
o.s.frv. i hvivetna. Þetta er enska
mælikerfið, en Bretar tóku i fyrra
stórt skref i átt til metrakerfis
með töluverðum tilkostnaði og
áhyggjum, en þó talið munu
borga sig, er lengra liður, að hafa
sama kerfi og aðrir.
Fimmti hver bíll með
1 metra
Dr. Lewis Branscomb, formað-
ur staðlaeftirlitsins bendir á, að
metrakerfi sé i rauninni nú þegar
notað i lyfjafræði, ljósmyndun,
gleraugnagerð, og 20 af hundraði
bifreiða i Bandarikjunum hafi
mælingar sinar samkvæmt
metrakerfinu, Ford Pinto jafnt og
innfluttar bifreiðir. Sundlaugar
eru byggðar með tilliti til metra,
vegna samkeppni viö aðrar þjóð-
ir. Bandariskar iþróttir fara þó að
langmestu fram i jördum og mil-
um, fetum og þumlungum.
Geimvisindastofnunin notar
metrakerfi verulega, og eitt
helzta læknisfræðiritið tók fyrir
skömmu að nota metramælingar
i öllum visindalegum frásögnum.
Hvers vegna hafa Bandarikin
ekki metrakerfið? Skýringin er
auðvitað tengsl þeirra við Bret-
land. Frakkar tóku upp metra-
kerfi 1793. John Quincy Adams
Bandarikjaforseta fannst metra-
kerfið hið „fullkomnasta”, en þar
sem mest viðskipti Bandarikj-
anna, sem þá voru nýstofnað riki,
voru við gamla nýlenduveldið
Bretland, héldu Amerikumenn
áfram að hafa enska kerfið.
Minni vandamál í Bret-
landi er búizt var við
Bretar hafa hins vegar sjálfir
verið að breyta yfir i metrakerfið
siöan 1965, og verður þeirri um-
breytingu ekki lokið til fulls fyrr
en 1975. Ahugi Breta á inngöngu i
Efnahagsbandalagið ýtti á eftir
þeim i þessu. Breytingin hefur til
þessa gengið miklu betur en flest-
ir höfðu búizt við. Vandamál hafa
verið minni en talið var að
Það þarf víst mikið til, ef á að
breyta fegurðarmálum stúlkna úr
þumiungum i metra, svo að al-
menningur i Bandarikjunum átti
sig á, hvað um er að vera. Sá á
myndinni er kominn i metramálið
og tilkynnir sigurvegarann með
málin i sentimetrum „95-50-95”!
óreyndu. Metrakerfið rikir i
EBE, og tjóaöi ekki fyrir Breta að
halda sinu gamla. En i Banda-
rikiunum eru það vandamál i við-
skiptum, sem hvetja til
breytingarinnar. Þingmaðurinn
Claiborne Pell telur, að Banda-
rikin tapi eitthvað frá 10 til 25
milljörðum dollara á ári vegna
þess, að kerfið er annað en gerist
yfirleitt i heiminum. Þetta er i is-
lenzkum krónum frá 880
milljaröa til 2640 milljarða tap.
Illlllllllll
M)
Umsjón:
Haukur Helgason
Stefna að 10 ára aðlögun
I júli sendi Maurice Stans, sem
þá var viðskiptaráðherra Banda-
rikjanna, þinginu skýrslu um at-
hugun á hvernig breytingin yfir i
metrakerfi yröi framkvæmd,
hvað hún mundi kosta og þess
háttar, en þessa skýrslu höfðu
menn verið að semja i þrjú ár.
Mesta áherzlu beri að leggja á
uppfræðslu, svo að kynslóðir
framtiðarinnar læri að „hugsa i
metrum”. Mælt er með tiu ára
áætlun, og i lok þess tima verði
Bandarikin ,,að mestu en ekki
öllu” komin yfir i metrann.
Skólakrakkar verði fegnir
Blessað metrakerfið er vist
byggt „á hlutföllum i hringmáli
jarðar” og er rökrétt og einfalt i
stærðfræði, skipt i einingar með
10 i. Jafnvel i Bandarikjunum,
svo vanir sem menn eru hinu, má
búast við, að skólakrakkar og
margir fullorðnir verði guðsfegn-
ir.að losna viö núgildandi kerfi.
Enska kerfið er ekki rökrétt og
einingar þess breytilegar. Til
dæmis eru 12 þumlungar i fetinu,
og svo þrjú fet i jardinum. Milan
er 5280 fet. 16 únsur eru i pundinu
og 2000 pund i tonninu.
Þessar einingar urðu mest til af
tilviljun. Sagt var, að jardinn
væri „fjarlægðin milli nefbrodds
konungs og fingurgóms.”
Ógrynni af mælikvörðum eru
notuð við mismunandi mælingar,
og nægir vist að nefna „pints”,
„quarts” og gallón um vökva.
Með metrakerfinu kemur hin
þægilega skipting i kiló, litra.
Kosti 500-1200 milljarða
Bandarikjastjórn metur kostn
aðinn við breytinguna i iðnaðin-
um á 500 til 1200 milljarða isl.
króna. En þessi kostnaður dreifist
á mörg ár, og ef vel tekst, ætti að
vera unnt að draga úr þeim raun-
verulega kostnaði, sem breyting-
in veldur, með þvi að metrakerfið
sé tekið upp með nýjum vélum,
þegar útslitnar og úreltar vélar
eru settar á haugana og nýjar
fengnar.
Og eins og var sagt, geta
Bandarikjamenn sparað peninga
með þvi að breyta yfir i metrann,
jafnvel sennilega á skömmum
tima.