Vísir - 03.05.1972, Blaðsíða 2

Vísir - 03.05.1972, Blaðsíða 2
2 VISIR. Miðvikudagur 3. mai 1972. vhnsm: Fóruö þér í kröfugöngu 1. maí? Gunnhildur Snorradóttir, hús- móðir.Nei, reyndar gerði óg það nú ekki, og ef satt skal segja, þá hef ég aldrei á ævinni farið i kröfugöngu, og ég hef bara engan áhuga á þvi. Jónas Guðlaugsson, skrifetofu- maður. Nei, ég fór ekki i kröfu- göngu. t kröfugöngu hef ég ekki farið, siðan ég var smástrákur, og þá þóttist maður jafnvel vera nokkuð, sem kallað er nasisti, en ég er nú löngu vaxinn upp úr þeim barnaskap. A g n a r Tryggvason, framkvæmdastjóri. Nei, ég fer yfirleitt aldrei i kröfugöngur, og ég hef bara vist aldrei gert það. Kannski maður sé lika orðinn of gamall núna. Bragi ólafsson, skrifvélavirki. Nei, það er nú lika orðið ósköp langt siðan ég hef farið i kröfu- göngu. Þetta er bara framtaks- leysi i manni að drifa sig ekki. Reidar Jóhann óskarsson, bil- stjóri. Nei, ég fór ekki i kröfu- göngu 1. mai, og ég hef mjög svo takmarkaðan áhuga á þess hátt- ar göngum. Ég fer mjög sjaldan. Gisli Gestsson, sendibilstjóri. Nei, það er vist bara bezt að segja eins og það er. Ég fór ekki og geri yfirleitt litið að þvi að ganga i svona göngum. Ég hef vist bara aldrei farið. En það er ekki það, að ég hafi þar með sagt eitthvað á móti þeim. Siður en svo. Siglir á 20 feta segl- bát umhverfis landið ,,Ég er alveg hissa á að islend- ingar skuli ekki stunda meira siglingar hérna en gert er. Aðstaðan er prýðisgóð”. Svo scgir David Jarvis, sem er nú staddur hér á landi á vegum fyrirtækis, seni framleiðir báta, og nefnist það Hurley Marine I.TD t i gærdag kom hann til landsins ásamt 20 feta seglbát frá fyrir- tækinu llurley, sem hann ætlar aö sigla umhverfis landið og reyna siðan að selja. Ilann mun dvelja hér i Reykja- vik um það bil tvær vikur og sigla þá bátnum i höfninni og lengra og leyfa þvi fólki, sem hefur áhuga, að reyna bátinn. Siðan mun hann sigla i kringum landið með viðkomu á mörgum stöðum og gefa einnig þeim, sem ekki búa i höfuðborginni, kost á að reyna farkostinn. Hringferðina telur hann munu taka um það bil tvo og hálfan mánuð. Báturinn mun liklega kosta 400 þúsund krónur, en hér á landi er aðeins einn bátur frá þessu fyrir- tæki, en af annarri gerð. Bátar sem þessi hafa oft tekið þátt i kappsiglingum i Englandi og þá staðið sig með prýði. Einnig hafa þeir mikið verið notaðir til æfinga i sjóhernum, en fram- leiðsla á þessum bátum hófst fyrir um það bil 7 árum. David Jarves er ekki óvanur siglingaháttum hér á tslandi, þvi að hann hefur verið hér á vertið, og var hér siðast i fyrravetur. Hann hafði í hyggju að sigla á bátnum hingað til lands, en ekkert tryggingafélag þorði að tryggja bátinn. Þó er báturinn talinn fullfær i þvilika siglingu. Bátar þessir hafa verið seldir viða um heim, meðal annars til Suður-Afriku og Astraliu, en hér verður hann til prufu i fjóra mán- uði —EA Hann kom meö Dcttifossi í gærdag farkosturinn og hér sjáum við hann I lestinni. David Jarvis, lengst til hægri. Hann tekur sig vel út, þessi 20 feta seglbátur, en þessi er nákvæmlega eins og sá sem tslendingum gefst nú kostur að að sigla. HÁLFUR NEMANDI í EINUM HREPPI „Meðalfjöldi nemenda I Þing- vallahreppi er e.s i árgangi og gert er ráð fyrir að þeir sæki skóla að Ljósafossi fyrstu 4 náms- árin, síðan á Selfossi, Flúðum, eða annarsstaðar þar sem henta þykir. Svo segir m.a. i tillögum sem fram hafa komið um skólaskipan á Suðurlandi og lýsir þetta vel þeim vanda sem hin dreifðu byggðarlög eiga viö að etja i skólamálum. Samband sunn- lenzkra sveitarfélaga hélt aðal- fund ekki alls fyrir löngu og komu þarfram tillögurum breytingar á skólaskipan. Eru þærmiðaðar við 9 ára skólagöngu sem samfellda heild, sem skipt verður i 4 skóla- stig eftir aldri nemenda. Hrepparnir á Suöurlandi eru milli 30 og 40 og þvi óhjákvæmi- legt að aka þarf sumum nem- endum til og frá skóla, aðrir búa i heimavist og enn aðrir sækja heimangönguskóla. t fámennum hreppum verða það ekki margir nemendur sem falla inn i hvert skólastig eða árgang eins og i Þingvallahreppi, þar sem aðeins hálfur nemandi er á hverju stigi I einu. Þá er i Dyrhólahreppi svo dæmi séu tekin 3,5 nemendur i aldurs- árgangi og gert er ráö fyrir að þeir þurfi að sækja 3 skóla, að Ketilsstöðum, Vik og Skógum. Þarf þá að aka nemendum allt upp i 25 km til að komast i tima. Gert er ráð fyrir fjölda skóla á Suðurlandi fyrir þessa aldurs- flokka og verða skólabilar á fleygiferð fram og til baka um þetta vfölenda svæði Annars eru þessar tillögur mjög itarlegar og þar bryddað á ýmsum nýmælum. Sjónvarpið stöðugt að klippa Fœreyjar Reiður Færeyingur hringdi: „Fyrir nokkrum vikum var sýndur i sjónv. þáttur frá Færeyj- um og þá var það tekið fram að um fyrri hluta væri að ræða. Mig er farið að lengja mikið eftir seinni hlutanum sem ekki hefur bólað á ennþá. Ég hef grennslazt fyrir um málið hjá sjónvarpinu en fæ bara þau svör að verið sé að klippa hann niður. Ef svona held- ur áfram er ég hræddur um að endirinn verði sá að myndin verði klippt niður i ekki neitt. Þess vegna vil ég beina þeim tilmælum til sjónvarpsins að þeir sýni seinni hlutann hið bráðasta meðan eitthvað er eftir af hon- um.” í kjölfar Leifs og Eiríks 5. april, 1972 A leið frá Venuzuela til Englands. Ég sigli um heimshöfin og horfi oft i huganum heim, og sýnast mér f jöllin blá og mennirnir mikl- ir. Þvi lengur sem ég sigli verða þeir æ meiri i minum augu, sæ- fararnir, er upphaflega sigldu til tslands, Grænlands og Vinlands. Það er vafalitið, að þeir hafa verið djörfustu og snjöllustu far- menn allra tima miðað við að- stæður, og þar bera þeir hæst feðgarnir Eirikur og Leifur svo og þeirra fólk. Menn minnast liðinna atburða og manna á ýmsan hátt. Nú legg ég til, að framkvæmd verði fyrsta islenzka hnattsiglingin með is- lenzk-smiðuðum bát (Leifur Eiriksson) þjóðhátið 1974 til minningar um þetta fólk og dáðir þess. Nú spyr ég. 1) Eru á íslandi karlar og konur, sem vilja fara slika ferð? 2) Eru á Islandi ein- staklingar, félög og opinberir aðilar, sem vilja styrkja slika ferö? Ef einhverjir eru, vinsam- legast sendið mér linur. Svavar H. Guðmundsson m/t Agneta Billner Billnerbolagen, Skeppsbron 5&6 Göteborg, Sverige. Álfabyggðin í Hafnarfirði Hafnfirðingur, sem horft hefur yfir Norðurbæinn, skrifar: „Ég var að enda við að lesa umsagnir Visis um Norðurbæinn i Hafnarfirði og fannst á öllu, að greinarhöfundur væriekki mjög á þeim slóðum. Og ekki finnst okk- ur Hafnfirðingum bagi að, hve mikið hefur verið malbikað i Firðinum. Mér finnst Visir gera fullmikið úr kostum skipulags gamla bæjarins og ókostum þess nýja. Það segir sig sjálft, að ef á að byggja bæjarhverfi, er erfitt að hlifa landinu algjörlega, þar sem húsin og göturnar eiga að vera. Eða hver vill láta göturnar vera hlykkjóttar eins og fjárgötur og húsin standa hingað og þangað? En mér finnst alveg sjálfsagt að skilja eftir verulega stóra bletti af hrauninu eins og guð og eldur hafa gengið frá þessari náttúru- smiði. Og það á ekki einu sinni að gróðursetja á þeim. Við höfum nógu mörg önnur svæði til aö gróðursetja á. Þá geta þessi svæði orðið gósenland fyrir álfa, og raunar virðist þessi náttúru- smiði hafa verið gerð sérstaklega fyrir þá. Aldrei hef ég heyrt að álfar hafi búið i skógi. Og þá gæt- um við Hafnfirðingar boðið álf- ana velkomna til okkar, enda hef- ur heyrzt, að það sé orðið full- þröngt um þá á Stór-Reykjavik- ursvæðinu. Visir minnist á, að allt sé slétt- að og sprengt bara vegna þess, hve menn séu skotglaðir. En ég veit þó undantekningu frá þvi. Einn sem byggði blokk skildi eftir álfáklettsem lenti innanlóðar hjá honum og stendur drangurinn alveg við altanið. Þessi húsbyggjandi telur það mikið happ að hafa hlift klettin- um, og virðist það vera orðin al- menn trú, að ekki hafi þurft menn til að byggja þetta hús, og hefur það þó ekki orðið á eftir öðrum húsum i byggingu. Ég vil benda húsbyggjendum og húseigendum á það að láta kletta standa óhreyfða, ef þeir eru svo heppnir að klettar standa á lóðum þeirra. Það verða þá einhverjir eftir til að taka á móti flótta-álfum, sem missa sina bústaði undir hús og götur.”

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.