Vísir - 27.05.1972, Síða 6

Vísir - 27.05.1972, Síða 6
6 VÍSIR. Laugardagur 27. mai 1972. vísrn Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson - iFréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14. Sirr' 6611 (5 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaöaprent hf. Þetta fúla raunsœi ( Kremlverjar hafa ekki viljað verða eftirbátar ) Kinverja i móttöku Bandarikjaforseta. Bresnjev ) flokksleiðtogi, sem ekki hafði orðið frægur af bros- ( um sinum, leikur við hvern sinn fingur frammi fyrir ( myndavélunum. Æðstu menn heims hafa gert / samninga um margt, sem lengi hafði verið unnið að ) og stefnir til góðs, verði efndirnar i samræmi við ) orðin. ( Á sama tima halda risaveldin áfram að drepa fólk \\ austur i Vietnam. Tundurdufl, sem Bandarikja- (' menn hafa lagt við strendur Norður-Vietnam, / hindra rússnesk skip i að flytja þangað vopn. Rúss- ) ar styðja Norður-Vietnama i grimulausri innrás ) þeirra i Suður-Vietnam. Bandarikjamenn falla fyrir ( sovézkum kúlum, og hafnbanni á Norður-Vietnam ( er fyrst og fremst beint gegn rússneskum skipum. ) En umfram allt eru það þjóðirnar i Indó-Kina, ) sem gjalda afhroðið. \ Skálaglamur æðstu manna i Moskvu ber ekki ) vitni um það hatur, sem brennur i brjósti mörgum l minni spámönnum i stjórnmálum heimsins, sem / betur fer er liklega rétt að segja. Vafalaust er það / sjónarmið sanni næst, sem kom fram hjá einum ) þátttakenda i sjónvarpsþætti um Vietnam, að Rúss- \ ar séu manna raunsæjastir. Þeir telja sér ekki ( hagnað af öðru en að brosa við Nixon. / Nixon hefur einnig verið talinn manna raunsæj- ( astur i stjórnmálum, þótt slikt hafi stundum virzt ) með endemum. Hann hefur varpað fyrir borð, að ) segja mætti á einni nóttu, meginatriðum i stefnu \ sinni og má þar til nefna efnahagsmálin og afstöðu- ( na til Kina. / Þetta hefur hann oft gert af augljósri ,,henti- ( stefnu”. Þegar honum hefur orðið ljóst, að stefna / hans á einhverju sviði var ekki vænleg til að efla ) brautargengi hans meðal kjósenda, fleygði hann ) henni og fékk sér aðra. (( Sérhver virðingarverð stjórnmálastefna verður ( að grundvallast á hugsjón, en framkvæmast með / raunsæi. ) Hugsjónir þarf hver maður, en of mörgum hafa ( þær orðið ofskynjanir. ( Kaldlynd raunsæisstefna Nixons gagnvart / Sovétrikjunum og Kina er vafalaust hagstæðari en ) fúkyrðin. Risaveldin munu ekkert gefa. Við höfum ) næga reynslu af kalda striðinu til að skilja, hversu y litið vinnst með stóru orðunum. Þvi ber að reyna til ( þrautar, hvort ekki sé unnt að semja um mörg mál- ) anna og þá auðvitað af þeirri ástæðu einni, að stór- ) veldin sjái sér ekki hag i öðru. ) Nýtt blóðbað i Vietnam, sem skjólstæðingar ( Sovétrikjanna byrjuðu, er friðarspillir i þessum til- ) raunum. Það hefur gert örðugara um raunveruleg ) þáttaskil i Moskvu. ) En ef til vill eru þeir báðir, Nixon og Bresnjev, ( nógu kaldrifjaðir umboðsmenn risaveldanna til að (i láta óbein átök þeirra i Vietnam litlu skipta i samn- / ingum i Moskvu. ) Við svo fúlt raunsæi bindur heimurinn vonir sfn- ) ar. Án þess væru vonirnar vist litlar, eins og málum ( er komið. /( Þannig verður morð- tilrœðismaðurinn til „Næsti tilræðismaöurinn verð- ur sennilega lítill vexti og fæddur erlendis. Heimili hans verður sundrað, faðirinn liklega annað- hvort fjarverandi eöa sinnir ekki barninu. Tilræöismaðurinn verð- ur einrænn, ókvæntur, engar stöðugar vinstúlkur. Hann mun hafa unnið starf sitt vel, þar til einu til þremur árum fyrir tilræð- ið. en þá kemur yfir hann kæru- leysi og áhugaleysi. Hann mun fylgja stjórnmálalegri eöa trúar- legri hreyfingu. Tilræðiö verður vakiö af sérstöku máli, sem kem- ur við meginhugsjón þessarar hreyfingar. Þótt tilræðismaöur- inn fylgi hreyfingunni, er hann ekki virkur þátttakandi í henni. — Ekki hafa allir tilræðismenn, er reyna að myrða forseta, þessi einkenni, en sambland þeirra hefur einkennt þá.” Þessi var niðurstaða nefndar, sem rannsakaði ofbeldi i Banda- rikjunum árið 1969. Þar sem rætt er um menn, sem reyni að myrða forseta Bandarikjanna, munu vafalaust flest atriöin einnig eiga við um aöra stjórnmálamenn á efstu tindum. Arthur Harman Bremer, 21 árs, er reyndi að myrða George Wallace fyikis- stjóra, hafði ekki öll þessi ein- kenni. Hann var ekki fæddur er- lendis, heldur i Milwaukee, og heimili foreldra hans var ekki sundrað, hversu eyðileggjandi sem það kann að hafa verið honum engu siður. En afgangur- inn af einkennum, sem nefnd voru, fyrirfinnast með Bremer, auðmýkt, einangrun, getuleysi i kynlifi og hugarórar. Tapandi frá fæðingu. Hér verður aðallega stuðzt við frásagnir Time og Newsweek af þessum manni. Artie Bremer var „tapandi” frá vöggu og sennilega til grafar. Hann var fjórði af fimm börnum, fæddur i litið finni Suður-Milwau- kee. Faðir hans, William, nú 58 ára, er góðgjarn maður, en litill bógur, og móðirin, Sylvia, 57 ára, er illa lynt og stjórnaði börnunum með harðneskju. Sylvia átti eina dóttur og einn son, áður en hún giftist William Bremer, og eignaðist siðan þrjá syni. Sá elzti þeirra þriggja, William yngri, var tekinn fastur 23. marz fyrir að hafa fé af konum i Miami með þvi að láta þær borga fyrir meðferð i þremur heilsuhælum, sem ekki eru til, en konurnar létu skrá sig þar til að megrast og greiddu samtals um 7 milljónir króna fyrir. Tveggja ára i skýrslur lögreglu. Arthur kom tveggja ára i skýrslur lögreglu, þar sem for- eldrarnir fóru meö hann til yfir- heyrslu á bróður hans vegna unglingaafbrota Williams. Artie hlaut barsmið, þegar hann fór að gráta, og dómarinn lét þau orð falla, að móðirin kynni ekkert með börn að fara, og siðar var sagt i skýrslum, að hún færi með William eins og „dýr”. Greindarvisitala Arthurs, 106, er rétt yfir meðallagi, og hann stundaði námið mátulega til að vera i miðjum bekk alla jafnan. Hann var einrænn og óttaðist nána vináttu, talaði mest við sjálfan sig, muldrandi, er hann gekk um skólagangana, hristandi höfuðið og brosandi yfir eigin hugsunum. Eini frami hans i skóla var rit- gerð, þar sem hann sagöi meðal annars: „Ég vildi imynda mér, að ég væri i sjónvarþsfjölskyldu og ekki væri verið að skammast heima og enginn lemdi mig.” Kennarinn gaf ágætiseinkunn fyrir stilinn og sagði, að „þetta væri frábært verk — um ungan mann i vanda i heimi nútimans og gærdagsins”. Það var siðla i nóvember 1963, að 13 ára piltur sat sem upp- numinn við sjónvarpstækið og horfði á fréttamyndir af morðinu á John F. Kennedy. Skyndilega birtist á skerminum Jack Ruby og skaut niður Lee Harvey Oswald köldu blóði. Faðirinn minnist þess, hversu heillaður sonurinn var af þessu. Eins og Ruby kom þessi drengur fyrir skömmu i hópi áhorfenda og skaut köldu blóði George Wallace, með enga von um undankomu, fyrir sjónvarps- myndavélunum. Bremer var þó „tapari” misheppnaður jafnvel i hlutverki morðingja. Arthur var tekinn úr rúgbyliði skólans, af þvi að móðurinni fannst, að „einhver væri alltaf að erta hann” þar. „Hann er kannski 21 árs, en hann er enn barn”, segir faðirinn. Las mikið og bakaði. William Bremer segir, að Arthur hafi stefnt að þvi að bæta sjálfan sig. Hann hafi lesið mikið, bækur um stærðfræði, heimspeki. Hann bakaði mikið heima, smá- kökur og tertur, var snjall i þvi. „Ég reyndi að berja það inn i börnin. Reynið að finna ykkur sjálf, en Artie sagði bara „vertu ekki að þessu”. Jú, ég flengdi þau.” Arthur reyndi að mennta sig i ljósmyndun. Hann hafði sam- timis tvö störf, sendisveinn og ihlaupa húsvörður. Einangrun hans var nær alger, en þeim fáu, sem minnast hans, þótti hann vinna verk sitt vel. Hann fluttist að heiman og bjó einn i þriggja herbergja ibúð. Fékk sér bil. I fyrrasumar urðu breytingar, sem byrjuöu með þvi, að hann vildi „auglýsa sjálfan sig”. Hann keypti i september bil, árgerð 1967, tveggja dyra Rambler, fyrir um 70 þúsund krónur, greitt út. Hann var færður i „ósýnilegra” starf i iþróttaklúbbnum, þar sem hann hafði unnið, þegar hann tók upp á að blistra, syngja og þramma um i matsalnum. Þá kom fyrsta merkið um, að eitthvað væri að bresta, þegar lögreglan fann hann einan i bil sinum á stað, þar sem bilastöð- ur voru bannaðar, með marga kassa af skotum við hlið sér i sætinu og skammbyssu. Lögreglumaður segir, að Bremer hafi verið „algerlega óskiljan- legur” i tali, en sálfræðingur rétt- arins taldi hann „geðheilan”. Hann fékk sekt, um 3000 kr. og byssan var tekin. Misheppnuð eina ástin. 1 nóvember gerði Bremer einu tilraunina sem vitað er um, til að hafa samband við manneskju. Hann „bauð út” 15 ára Joan Pemrich. Þau hittust i sex vikur. Henni fannst hann mjög skrýtinn. „Hann gerði alls konar skrýtna hluti, fólk var alltaf að hlæja að honum”, segir hún. Einu sinni komu þau i ibúð hans, föðmuðust litillega við hliðina á fána Suður- rikjanna. Henni leiddist, og hún fór heim. 13. janúar sagði hún honum, að hún vildi ekki hitta hann framar eftir margvislegar tilraunir til að slita sambandinu áður. George Wallace boðaöi framboð sitt i forsetakosningum. Bremer keypti skammbyssu. Hann varð æ skrýtnari. Hann krúnurakaði kollinn, hætti að fara til vinnu, keypti aðra byssu. Hann sást nær aldrei, skellti hurðum framan i móður sina, er hún heimsótti hann, dvaldist i furðu- heimi i ibúð sinni, innan um sam- safn hluta, óhreinna fataleppa, óhreinna diska, tómra matar- pakka, klámrita. Hann skrifaði Joan Pemrich: ,,Ég var ab hugsa um sjálfsmorð. Þú gafst rugluðu lifi minu eina innihaldið. Þú varst eini vinur minn.” Og svo skaut hann á George Wallace. Illlllllllll M) Umsjón: Haukur Helgason Faðirinn-gæöablóð, en móöirin harðvitug. Ljóshærði maðurinn i hópnum. Vinstúlkan Joan hafnaði honum. Bróöirinn hafði fé af konum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.